Fréttablaðið - 06.08.2005, Qupperneq 29
Teppi kr. 6.900
Hekluð kanína
kr. 3.290
Bolir
Sumir halda að sumarfötin nýtist ekki í haust og vetur en það er rangt. Á útsölum um
þessar mundir er fullt af fallegum bolum sem eiga svo sannarlega eftir að lifa – hvort
sem það er í ræktinni, vinnunni eða á djamminu.[ ]
Fyrr á árinu opnaði á Skólavörðustígnum lítil barnafataverslun í eigu
þeirra Birnu Melsted og Þórdísar Lilju Árnadóttur og heitir Hnokkar
og hnátur. Þær stöllur leggja áherslu á að bjóða upp á hágæðafatnað
fyrir smáfólkið og vörurnar kaupa þær að mestu inn frá Frakklandi,
Danmörku, Hollandi og Bretlandi. Stærstu merkin þeirra eru franska
merkið Catimini og Katvig sem kemur frá Danmörku. Katvig hefur
fest sig ótrúlega fljótt í sessi en það fór af stað fyrir einungis tveimur
árum og hafa viðtökurnar farið fram úr björtustu vonum eigendanna.
Uppistaðan af fatnaðinum eru bómullarbol-
ir, buxur, samfellur og kjólar sem eru
til allan ársins hring en svo er
einnig framleidd sumar- og
vetrarlína á hverju ári. Fyrir
utan barnafatnaðinn er ýmis-
legt fleira í boði í Hnokkum og
hnátum eins og lúxuskerrur
fyrir ungbörnin, handgerð leik-
föng, teppi, töskur og skartgripir.
Með haustinu eru svo væntanleg-
ar ýmsar nýjungar, þar á meðal
ungbarnafatnaður frá hátísku-
merkjunum Kookai, Donnu Karan
og Burberry. Útsalan stendur sem
hæst þessa dagana í versluninni
og nú er veittur 20% aukaafslátt-
ur af flestum flíkunum svo af-
sláttur er allt upp í 70% af völd-
um vörum.
Þrefaldi Grammy-verðlaunahafinn
Nelly hefur skrifað undir samning
hjá íþróttarisanum Reebok til þess
að þróa línu sem samanstendur af
fötum, skóm og fylgihlutum fyrir
fyrirtækið. Nelly hefur verið mjög
vinsæll í rappsenunni en bætist nú
í hóp 50 Cent og Jay-Z í íþróttafata-
bransanum. Sala á línunni hefst um
jólin í ár en þá verður skólínan að-
eins seld. Fötin og fylgihlutirnir fara
á sölu næsta vor en nafn línunnar
verður afhjúpað um nú jólin. Vörur
fyrir konur verða ef til vill kynntar
síðar þótt það sé ekki fastákveðið.
RAPPARINN NELLY HEFUR SKRIFAÐ
UNDIR ARÐVÆNLEGAN SAMNING
VIÐ ÍÞRÓTTAVÖRUFRAMLEIÐANDANN
REEBOK.
Nelly er geysivinsæll rappari sem
margir líta upp til.
Mussa kr. 2.585 + 20% afsl.
Bolur kr. 1.240
og buxur kr. 690
Toppur og pils kr. 2.840 og kr. 4.890 + 20% afsl
Bolur, gallabuxur og derhúfa kr. 1.995,
kr. 3.980, kr. 1.390 + 20% afsl.
Náttgalli kr. 2.790
Brúnröndótt
samfella og
gammosíur kr.
1.890 og 1.680
lokkar kr. 1.250
hálsmen kr. 1.220
hringur
kr. 1.150
Skór kr. 6.230
+ 20 % afsl.
Skór kr. 6.230
+ 20 % afsl.
Stjörnurnar vestan hafs virðast
ekki vera stjörnur með stjörnum
nema þær komi á laggirnar sinni
eigin tískulínu. Stjörnur eins og
50 Cent, Sean „P. Diddy“ Combs
og Jennifer Lopez hafa þénað vel
á þessu uppátæki og nýjasta
stjarnan í hópnum er sjálf ofur-
bomban Pamela Anderson.
Pamela hefur sett á markaðinn
aukahlutalínu og í henni eru alls
kyns töskur og glingur. Pamela er
mikill dýravinur og því notar hún
eingöngu gervileður í vörur sínar.
Sala línunnar hefur farið vel af
stað og eru tískugúrúar mjög
undrandi yfir því hve smekkleg
línan er þar sem Pamela sjálf vill
helst alltaf vera léttklædd og
frjálsleg. Hægt er að skoða línuna
og panta á heimasíðu Pamelu,
clubpam.com.
Í línunni er fullt af flottum og glitrandi
aukahlutum.
Pamela hannar skart
Baywatch-bomban hefur fylgt í fótspor margra stjarna í
Hollywood með sinni eigin tískulínu.
Nelly og Reebok
í sömu sæng
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
ET
TY
40-75%
afsláttur
Áður Nú
Brjóstahaldari 3.990 kr 1.197 kr
G-strengur 1.790 kr 537 kr
Sundbolur 6.990 kr 3.495 kr
Pantið skólafötin núna.
Föt og fleira fyrir börnin
Hnokkar og hnátur er barnafataverslun sem opnaði á Skólavörðustíg fyrr í sumar.