Fréttablaðið - 06.08.2005, Síða 42
LAUGARDAGUR 6. ágúst 2005 25
Fótfesturök (e. slippery slope)
eru notuð til þess að vara ein-
hvern við því að fallast á tiltekið
atriði því þá þurfi sá hinn sami
einnig að fallast á eitthvað annað
og svo enn annað og þannig
áfram. Segja má að með þessu
missi maður fótfestuna og hrapi
stjórnlaust. Oftast er því haldið
fram að endaskrefinu fylgi afar
óæskilegar afleiðingar og þess
vegna sé varasamt eða jafnvel
stórhættulegt að fallast á upphaf-
lega skrefið.
Rökvillur og rökskekkjur
Fótfesturök eru oftast flokkuð
með rökvillum eða -skekkjum, en
þó fer það eftir notkun þeirra
hverju sinni hvort þau feli í sér
villu eða ekki. Reyndar þarf við-
bótarrök til að sýna að hinar
slæmu afleiðingar hljóti að fylgja;
það leiðir nefnilega ekki af því
einu og sér að maður samþykki
eitthvað, taki einhverja ákvörðun
eða framkvæmi einhverja athöfn
að slæmar afleiðingar fylgi í kjöl-
farið, þó vissulega geti það stund-
um verið. Greina þarf á milli
mögulegra afleiðinga og afleið-
inga sem eru ekki einungis mögu-
legar heldur óumflýjanlegar. Til
að forðast rökvillu er því aðal-
atriðið að geta sýnt að afleiðing-
arnar sem fótfesturökin vara við
muni í raun fylgja upphaflega
skrefinu eða að afar sennilegt sé
að þær geri það.
Dómínórökin
Nokkur afbrigði fótfesturaka eru
til. Eitt afbrigðið er nefnt
dómínórök en dómínóvillan þegar
um villu er að ræða; einnig er
stundum talað um snjóboltavill-
una. Hægt er að lýsa dómínórök-
unum á þann hátt að ef þú fram-
kvæmir athöfn A, þá mun B ger-
ast líka sem og C og D, síðan E og
svo framvegis. Upphaflega at-
höfnin, A, mun þá hafa lík áhrif og
þegar dómínókubbur fellur og
veldur því að hinir kubbarnir í
röðinni falla líka hver af öðrum.
Einnig er hægt að hugsa sér að af-
leiðingar athafnarinnar vindi upp
á sig eins og þegar snjóbolti
stækkar við það að velta niður
brekku.
Dæmi um dómínórök
Eftirfarandi gæti verið dæmi um
dómínórök eða dómínóvillu:
Margir ökumenn aka örlítið
hraðar en leyfilegt er. En ef við
komum til móts við þá og hækk-
um hámarkshraðann á þjóðvegun-
um úr 90 í 100 km/klst, þá munu
ökumenn aka á 110 í stað 100
km/klst. Sömuleiðis, ef við hækk-
um þá hámarkshraðann úr 100 í
110 km/klst mun fólk aka á 120
km/klst. Afleiðingin verður sú að
hraðinn á vegunum mun sífellt
aukast.
Annað dæmi er að á 7. áratug
20. aldar var því haldið fram, eins
og frægt er orðið, að Kambódía
myndi falla í hendur kommúnista
ef Víetnam yrði látið þeim eftir, og
síðan hvert landið á fætur öðru þar
til Asía öll væri á valdi kommún-
ista. Þessi fullyrðing gekk beinlín-
is undir nafninu dómínókenningin.
Litlafingursrökin
Annað afbrigði fótfesturaka er
kallað litlafingursrök en litlafing-
ursvillan þegar um villu er að
ræða: Ef þú samþykkir A, þá
seturðu með samþykki þínu for-
dæmi sem verður til þess að næst
verðir þú að samþykkja B, C og D.
Á endanum siturðu ef til vill uppi
með E og getur lítið í því gert af
því að þú samþykktir upphaflega
A og gafst með því tóninn. For-
dæmisgildi upphaflega samþykk-
isins gerir manni erfitt fyrir að
neita næstu skrefum samþykkis.
Þú réttir einhverjum litla fingur-
inn en hann mun taka alla höndina.
Eftirfarandi rök gætu verið
dæmi um litlafingursvillu:
Ef við bönnum sölu á tóbaki
stöndum við næst frammi fyrir
því að þurfa að banna áfengi, og
síðan sætindi og aðra óhollustu. Á
endanum megum við ekki neyta
neins nema það sé hollt og sam-
þykkt af landlæknisembættinu og
öðrum yfirvöldum.
Munurinn á litlafingursvill-
unni og dómínóvillunni er að hin
fyrrnefnda snýst um fordæmis-
gildi sem verður þvingandi ef
ekki beinlínis allsráðandi ef við
föllumst á fyrsta skrefið, en í
hinni síðarnefndu er því haldið
fram fyrsta skrefið leiði af sér
óhjákvæmilega keðju orsaka og
afleiðinga.
Hrúgan
Að lokum skal getið raka sem
þekkjast undir nafninu hrúgan (e.
sorites). Þessi rök eru náskyld fót-
festurökum og eru reyndar oft
talin til þeirra. Í hrúgunni er
notast við hugtak sem ekki er
skýrt skilgreint, eins og til dæmis
hrúgu. Viðmælandinn er þá feng-
inn til að fallast á að sandhrúga
væri ennþá sandhrúga þótt eitt
sandkorn yrði fjarlægt. Þegar við-
komandi hefur fallist á það verður
hann að fallast á það sama aftur og
þannig er leikurinn endurtekinn
þangað til viðkomandi hefur að
lokum fallist á að eitt sandkorn sé
ennþá sandhrúga.
Viðmælandinn sem rökunum
er beint til missir fótfestuna strax
í upphafi þegar hann samþykkir
án nokkurs fyrirvara að sand-
hrúga væri áfram sandhrúga
þrátt fyrir að eitt sandkorn yrði
fjarlægt. Til að vera samkvæmur
sjálfum sér verður hann að fallast
á það aftur og aftur. Engin skýr
mörk eru þar sem hægt er að
segja að sandhrúga hætti að vera
sandhrúga þótt vitaskuld liggi í
augum uppi að eitt korn eða tvö
geti vart verið hrúga.
Heimildaskrá verður birt með
svarinu á vefnum og þar verður
einnig sérstakt svar um hrúgur.
Geir Þ. Þórarinsson, doktors-
nemi í heimspeki og klassískum
fræðum við Princeton-háskóla í
Bandaríkjunum.
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast. Að jafnaði
birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem þar hefur verið glímt við
að undanförnu eru: Í hvaða átt er humátt, af hverju er blóð yfirleitt rautt, hvað var
Gestapo og hvað gerðu menn þar, hver er munurinn á einhverfu og Aspergerheilkenni,
hvernig er lífsferill hrognkelsa og hver var Saladín Tyrkjasoldán? Hægt er að lesa svör
við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Hva› eru fótfesturök?
Dómínórök eru ein gerð fótfesturaka sem
fela í sér að upphaflega athöfnin mun
koma af stað ferli þar sem hver atburður-
inn tekur við af öðrum rétt eins og fyrsti
dómínókubburinn sem fellur veldur því að
hinir kubbarnir falla líka einn af öðrum.
Fröken Freyja leysir vandann
Ósanngjarnar konur
Ég er talinn frekar myndarlegur. Ég
á fullt af peningum, íbúð, sportbíl, er
í góðri vinnu og fer oft til útlanda.
Ég hef góðan fatasmekk og hef yndi
af því að strauja skyrturnar mínar og
taka til heima. Síðan ég kom heim úr
námi er ég búinn að reyna mikið að
ná mér í kærustu en ekkert hefur
gengið. Þær eru annað hvort
óspennandi, leiðinlegar eða of smá-
munasamar. Alltaf þegar ég hitti
stelpur sem mér líst vel á klúðrast
eitthvað. Ég er alveg hættur að skilja
konur. HJ í Hafnarfirði
Heyrðu nú mig. Þú ert eitthvað að klikka á
því. Það gæti verið sportbíllinn, mjög
þröngur hópur kvenna fílar slík farartæki.
Þú ert líka greinilega að leggja of mikið á
þig. Þegar ástin bankar upp á á það ekki að
taka svona mikið á. Ástin á að fljóta um
stræti og torg, mundu það.
Við það að gefast upp
Ég er mjög fylgjandi jafnrétti og
finnst ósanngjarnt að öll húsverk
falli í hendur einnar manneskju. Ég
er búin að reyna að ala eiginmann
minn upp síðan við kynntumst á há-
skólaárunum en ekkert gengur.
Hann vill bara veiða, spila golf eða
vinna. Hann hefur lítinn áhuga á
börnunum og það er eins og ég eigi
þau ein. Þegar ég bið hann um að
taka til í eldhúsinu eða ryksuga
framkvæmir hann verkið en hann
gerir það svo hroðalega illa að ég
verð alltaf að þrífa eftir hann. Stund-
um velti ég því fyrir mér hvort þetta
hjónaband sé að virka?
AKF í Borgarnesi
Nú er ég hissa. Af hverju eru konur alltaf
vælandi? Gerir þú þér grein fyrir því að
maðurinn þinn kemur líklega með miklu
hærri summu inn á
heimilið heldur en þú?
Má hann þá ekki bara
eiga sinn
frítíma? Ég bara
spyr. Það er tvennt í
stöðunni ef þú ætlar
að öðlast sanna
líf shamingju,
skilja við karl-
fávitann eða fá
þér húshjálp.
Ekki veitti af
því að gera
bæði.
Sendið fyrirspurnir og vandamál til fröken Freyju,
Fréttablaðið, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, eða
sendið henni tölvupóst á netfangið frk-
freyja@frettabladid.is. Nöfn sendanda verða ekki
gefin upp í blaðinu.