Fréttablaðið - 06.08.2005, Page 45
Dagur er að kvöldi kominn íJilin-héraðinu í Norður-Kína. Ljósin í fábrotnum
herbergjunum verða slökkt
klukkan hálftíu en þangað til æfir
Inga Rut vopnaburð með meistara
sínum úti í fagurri náttúrunni.
Nýafstaðinn er kvöldmatur; þurrt
kjöt og hrísgrjón, en Inga Rut
spyr aldrei af hvaða skepnu kjötið
er.
„Maður sér aldrei hunda né
ketti sem gæludýr hér um slóðir,
enda nýta Kínverjarnir allt til
matar í þessu fátæka héraði,
meira að segja stóra snáka og
rottur. Ég veit að sumir sem vinna
hér fá sent hundakjöt til átu, en
matur okkar nemendanna frá
Vesturlöndum er öðruvísi mat-
reiddur. Flest er djúpsteikt og
ansi ólystugt á köflum, en ég
redda mér hafragraut annars
staðar frá og svo sendir mamma
mér prótíndrykki að heiman,“
segir Inga Rut brosmild, enda
aldrei fengið vott af matareitrun
né kveisu í Kína.
Óhefðbundnar leiðir
Það var fyrir hreina tilviljun sem
Inga Rut lenti í bardagaþjálfun í
Kína. Vinur hennar hafði verið að
skoða kínverska bardagaskóla á
netinu, að hluta til vegna áhrifa
frá töffarabíómyndinni Kill Bill
eftir Quentin Tarantino.
„Það var vetur á Íslandi, ískalt
og allir í skammdegisþunglyndi.
Vinur minn spurði hvort ég væri
til í að fara með honum til Kína,
en þó í engri alvöru. Sjálf gat ég
ekki hætt að hugsa um þetta fyrr
en ég var komin hingað út. Í upp-
hafi fannst mér tilhugsunin
glæfraleg og ferðalagið óhugs-
andi langt, en mér fannst ég ekki
hafa neinu að tapa. Þegar upp var
staðið reyndist þetta minnsta mál,
ég lenti ekki í neinu veseni og
eftir mánuð hafði ég vanist ólíkri
menningu og framandi umhverfi
Kína,“ segir Inga Rut, sem áður
starfaði sem bifvélavirki hjá
Ræsi; sérhæfð í viðgerðum á
Mercedes Benz.
„Ætli ég sé ekki líkleg til að
velja óhefðbundar leiðir. Við vin-
kona mín vildum prófa eina önn
þegar við vissum ekki hvað við
vildum læra og ég ákvað að halda
áfram. Það var ótrúlega gott að
vinna hjá Ræsi, en nú langar mig
að gera eitthvað annað, vinna
meira með fólki og breyta til,“
segir þessi glaðlega og einbeitta
unga kona, sem lifir nú 25. ár lífs
síns.
Lamin til hlýðni
Skólinn þar sem Inga Rut nemur
bardagaþjálfun heitir Siping City
Shao Lin Martial Arts Academy,
en heimasíða skólans er shaol-
ins.com. Sumir eyða þar sumar-
leyfinu og láta gott heita við nám-
ið, en aðrir eru lengur og jafnvel
árum saman. Upphaflega ætlaði
Inga Rut að vera í níu mánuði en
framlengdi dvölina upp í ár.
„Við erum hér fimmtíu útlend-
ingar og fimmtíu kínverskir
drengir niður í fimm ára. Meistar-
arnir eru flestir á aldri við mig og
hafa æft hér og búið frá því þeir
voru smástrákar. Það er algengt
að litlir strákar úr erfiðum fjöl-
skylduaðstæðum séu sendir hing-
að svo eitthvað verði úr þeim og
þeir eru þá í skóla hluta úr degi á
milli þess sem þeir æfa stíft. Þeir
æfa mun harðar en við og það er
átakanlegt að sjá pínulitla krakka
hágrátandi því svo harkalega er
teygt á þeim og þeir lamdir
áfram. Reyndar erum við lamin í
klessu líka, ef við erum ekki góð,
en svona er rót Shao Lin; þessi
kínverska agameðferð,“ segir
Inga Rut, sem þótti heldur mikil
viðbrigði að hljóta líkamlega refs-
ingu, komandi úr þjóðfélagi þar
sem fólk hótar málshöfðun sé svo
mikið sem andað á börn þeirra eða
á það sjálft hallað.
„Þetta kom vissulega heilmikið
á óvart. Á heimasíðu skólans
stendur að maður geti komið hing-
að til að slappa af og hugleiða, en
ef maður er ekki mættur á slaginu
er maður laminn með spýtum og
spjótum, oftast blá og marin á
skrokkinn. Meistari minn er sá
harðasti í horn að taka, lætur okk-
ur æfa lengur en aðra hópa og
lemur okkur hiklaust geri maður
vitleysur. Mér var ekkert um
þetta gefið í fyrstu en skil núna að
þetta er nauðsynlegt til að ná því
besta fram í manni. Maður kemur
hingað til þess að læra aga yfir
sjálfum sér. Ég er löt að eðisfari,
þarf einhvern til að ýta mér áfram
og gera hlutina eins vel og ég
get.“
Spjót, sverð og keðjur
Shao Lin-skólinn er í vexti og
stefnir að því að verða einn sá
besti á sínu sviði. Flestir læra
Shao lin, Tai chi chuan, Kung fu
og Qi gong, en flestar þessara
greina eru ólöglegar á Íslandi
vegna vopnaburðar og miskunn-
arlausrar bardagatækni.
„Við notum löng spjót, sverð og
keðjur við æfingarnar, en hefð-
bundin ekta samúræja-sverð eins
og í myndinni Kill Bill fást bara í
Japan. Við notum mjög áþekk
sverð og ég sendi eitt slíkt sem ég
keypti til Íslands, en fékk það
endursent því það er ólöglegt
heima,“ segir Inga Rut, sem er
orðin býsna fær í sjálfsvörn og
hvers kyns bardagakúnstum.
„Ég gæti eflaust bjargað mér
úr klípu og kann orðið mörg
brögð, en það tekur áratugi að
vera orðin svo góð að þurfa ekki
að hugsa áður en ég framkvæmi.
Það eru þessi ósjálfráðu viðbrögð
sem tekur svo langan tíma að
þjálfa, en ég er komin með góðan
grunn og held áfram að læra
heima,“ segir Inga Rut, sem
kemur heim í lok ágústmánaðar.
„Ég hef aldrei þjáðst af heim-
þrá, ef frá er talin jólahátíðin
þegar ég átti frídaga og fékk bara
þurrt kjöt og kartöflur í matinn.
Maður hefur svo mikið fyrir
stafni, er umvafinn góðu fólki, og
það útilokar uppgjöf eða heimþrá.
Ég held mér muni reynast erfið-
ara að fara héðan heim en að fara
frá Íslandi á sínum tíma. Því gæti
ævintýraþráin aftur látið á sér
kræla þegar heim kemur,“ segir
Inga Rut einlægt og minnist með
kátínu fyrstu andartakanna í Shao
Lin-skólanum.
„Mér brá mjög í brún því engar
dýnur voru í rúmunum, engir
veggir málaðir, allt svo fábrotið
og óhreint, og skilti áberandi um
allt sem á stóð að skyrpingar
væru bannaðar með öllu. Hér
skyrpa menn mikið og talsvert er
um ruddaskap, háreysti og læti.
Kennararnir eru hins vegar in-
dælir og gera allt fyrir okkur þótt
þeir séu strangir, og þegar við
þörfnumst einveru og friðar
getum við farið í klaustrið og hug-
leitt með búddamunkum, eða upp
í kastalann í leit að þögninni,“
segir Inga Rut og vísar til kastala
sem hefur mikið aðdráttarafl
fyrir kínverska ferðamenn, þótt
hann hafi verið byggður fyrir
kvikmynd á síðasta áratug.
„Hér eru engir útlendingar
nema við og mikið gónt á okkur. Í
hvert sinn sem við förum út á
meðal annarra Kínverja erum við
elt og fólk þrífur upp varning úr
innkaupakörfum okkar til að sjá
hvað við kaupum. Ekki síst hjá
mér vegna ljósa hársins,“ segir
Inga Rut hlæjandi og er skemmt.
Rómantík og ábyrgðarleysi
Shao Lin-skólinn stendur hátt
uppi í fjöllum, í þriggja tíma akst-
ursfjarlægð frá borginni
Changchun. Í nágrenni skólans
eru lítil þorp þar sem bændur
vinna myrkranna á milli í örvasa
fátækt og kynda kofa sína með
kolum til að lifa af veturinn, en
frost fer niður í 25 stig á vetrum.
„Mér líður ótrúlega vel hérna,“
segir Inga Rut sæl í röddinni og
bætir við að þarna fyrirfinnist
ekkert stress.
„Einu áhyggjurnar eru að
koma sér á fætur og eina ábyrgð-
in er maður sjálfur. Það er óneit-
anlega góð tilfinning því heima
28 6. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Líkt og undanfarna 300 morgna var mosfellski bifvélavirkinn Inga Rut Gunnarsdóttir vakin klukkan fimm
árdegis í kínversku klaustri. Mínútum sí›ar var hún komin á har›asprett upp kínversk fjöll; allt flar til
morgunver›ur var framreiddur klukkan sjö. Á diskunum: Franskar kartöflur og olíublöndu› eggjahræra. Ekki
beint megrunarfæ›i, en samt er Inga Rut komin í hörkuform, enda brátt búin me› árslanga afplánun í kín-
verskri bardagafljálfun, svipa›ri og Uma Thurman sótti í kvikmyndinni Kill Bill. fiórdís Lilja Gunnarsdóttir
tók púlsinn á Ingu Rut á milli pústa.
STYLUS CX-3650
VILTU
TÖLVU?
Sendu SM
S skeyti›
BT SLF á
númeri›
1900 og
flú gætir
unni›.
Vi› sendu
m flér sp
urningu.
fiú svara
r
me› flví a
› senda S
MS skeyt
i› BT A,
B e›a C á
númeri›
1900.
Klikka›ir
aukavinn
ingar!
MEDION far
tölvur • EPS
ON prentara
r • SONY m
p3 spilarar
GSM símar
• SONY staf
rænarmynd
avélar • PS2
tölvur
Bíómi›ar á
Ævintýrafer
ðina • PS2 S
ingstar
Battlefield 2
• God of W
ar tölvuleik
ir • Kippur a
f Coke
og enn meir
a af DVD, g
eisladiskum
, tölvuleikju
m og fleira.
..
Taktu þátt
!
Þú gætir u
nnið
fartölvu fr
á BT og
margt flei
ra!
10. hver v
innur!
SMSLEIKUR
Vi
nn
in
ga
r
ve
r›
a
af
he
nd
ir
í
BT
S
m
ár
al
in
d,
K
óp
av
og
i.
M
e›
fl
ví
a
›
ta
ka
fl
át
t
er
tu
k
om
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
i›
C8 OPTIVIEW 17
100GBharður diskur!
17” WideXGA skjár!
SUPER DVDskrifari!
NVIDIA
GeForce skjákort
Flottasta
skólavélin
!
TÖLVULEIKIR
CYBER
SHOT
DSC-S
40
X1 BLACK DRAGON
Ódýr
asta
skóla
vélin
!
GSM SÍM
AR
TIGNARLEG BARDAGALIST Vetrarfrost í fjallahéruðum Jilin fer niður í -25° C, en æfingar standa frá hálfsex á
morgnana og stundum fram að háttatíma. Hér mundar Inga Rut kínverskt sverð í fullum skrúða.
Grátið undan sársauka agans
EINS OG Í BÍÓMYND Hluti æfingasvæðis nemenda Shao Lin er í tilkomumiklu kastala-
þorpi sem reist var fyrir kvikmynd skömmu fyrir aldamótin síðustu.