Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 46
LAUGARDAGUR 6. ágúst 2005 29
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
finnst mér aldrei nógu margir
tímar í sólarhringnum til að gera
allt sem þarf, og því ótrúlega gott
að breyta til og hlaða batteríin á
svona stað. Helgarnar eru frjálsar
og þá förum við eitthvert til að
lyfta okkur upp, borðum á vest-
rænum skyndibitastöðum og
látum nudda úr okkur æfinga-
þreytuna. Kína er að breytast
mjög ört en var eins og stórt
sveitaþorp fyrir tveimur árum.
Engin hefðbundin vatnssalerni
eru í bæjum og borgum, bara
holur í jörðinni, utan að í skólan-
um eru sameiginleg klósett. Ofan
í þau má ekki henda klósettpappír
né sturta niður og maður getur
aldrei vanist óþefnum þar inni,“
segir Inga Rut og hryllir sig, en
ber Kínverjunum vel söguna.
„Kínverjar eru afskaplega
innilegir, hafa mikla snertiþörf og
leiðast mikið, bæði karlar og
konur. Þeir eru sannir vinir þegar
þeir hafa vingast við mann, fáir
tala ensku og það hamlar oft vin-
áttunni. Hins vegar er samfélag
okkar nemendanna náið; engin
samkeppni en mikil samstaða.
Sameiginlegt eiga nemendur að
hafa áhuga á Kung fu, vera orðnir
leiðir á lífi sínu heima og vilja
breyta til,“ segir Inga Rut, og
bætir við að rómantíkin verði að
bíða á stað sem þessum.
„Hér má ekkert svoleiðis og
allt er voðalega strangt. Herberg-
isfélagi minn er gift kona og
maður hennar er á staðnum líka,
en þau mega ekki vera saman í
herbergi. Þegar líkaminn er
byggður upp, sem og chi (orka)
líkamans, tapar fólk henni í kyn-
lífi; ekki síst karlarnir. Því þurfa
menn að einbeita sér að æfingum
og passa upp á orkuna, þótt hér
séu vissulega kjöraðstæður til að
verða ástfanginn að öðru leyti,“
segir Inga Rut brosmild og er með
rómantískan augastað á einum.
Ýtt niður í splitt
Inga Rut æfði áður kick-box
heima á Íslandi og hafði tekið eitt
námskeið í Kung fu í uppvextin-
um. Nú æfir hún sem aldrei fyrr
frá sólarupprás til sólarlags.
„Ég get illa metið hvort ég sé
komin í toppform þar sem ég er
umkringd fólki sem æfir alla daga
og er í afbragðsformi sjálft.
Þjálfunin er ekki slétt eins og
áhorfendur sáu í Kill Bill því hér
eru engir einkaþjálfarar, við
hlaupum vissulega upp bratta,
langa stíga með vatn í þungum föt-
um, eins og Uma Thurman gerði,
og aldrei er slakað á,“ segir Inga
Rut, sem byrjar daginn á hlaupi,
hoppi og armbeygjum og fer þaðan
í Qi gong og Tai chi til sjö, en þá er
morgunmatur og pása til hálfníu.
„Meistarinn vill fá okkur út
klukkan átta til að hlaupa upp stiga
fram að æfingu en svo förum við í
Kung fu til hádegis. Vegna sumar-
hitanna er pása til hálfþrjú en þá
æfum við Tai chi, alls konar bar-
dagaíþróttir og hægar sjálfs-
varnaríþróttir með gömlu meistur-
unum, fram að kvöldmat klukkan
sex. Eftir kvöldmat er erfiðari teg-
und Tai chi, sem og kick-box, en
hálf tíu förum við í rúmið og ljósin
eru slökkt,“ segir Inga Rut, sem er
í senn komin með nóg af dvölinni
og langar ekki heim.
„Ég fór í vikufrí til Taílands og
saknaði þessa staðar mikið. Ég er
komin með ógeð á hlaupum upp
hæðir og hóla, og margar æfingar
væru trúlega ekki leyfðar heima.
Þjálfararnir virðast ekki vita betur
en þeir hika ekki við að rústa á
manni hnjánum, láta mann hoppa
um með lóð á bakinu, gera froska-
hopp og ýta manni niður í splitt. Í
hverri viku er teygt á manni í
klukkutíma, eða þar til maður er
farinn að grenja og garga af sárs-
auka. Þannig hafa þeir slasað
nokkra nemendurna sem eru vikur
að jafna sig, en einnig er auðvelt
að meiða sig í heljarstökkum úti á
stétt þar sem maður endar á bak-
inu og fær sverð í sig eða hoppar
fram fyrir sig og lendir á öxlunum
með tilheyrandi meiðslum,“ segir
Inga Rut, hvergi bangin.
„Ef manni ofbýður er nóg að
tala við kennarana. Þeir taka
alveg sönsum og þetta er ekki jafn
slæmt og það hljómar. Maður
hefur virkilega gott af þessu,
þetta er ótrúlega uppbyggjandi og
svona einfalt líf á vel við mann-
eskjuna. Þessi tími er það besta
sem ég hef gert fyrir sjálfa mig
um ævina. Ég hef hlaðið batteríin
til að halda áfram lífinu. Vistin
hefur breytt mér sem manneskju
og ég er orðin mun sjálfstæðari og
sjálfsöruggari en ég var áður.
Mér hefur fundist tíminn fjótur
að líða; er hálfpartinn sorgmædd
yfir kveðjustundinni og varla til-
búin að kveðja,“ segir Inga Rut
brosmild og tilbúin að bregða
sverði á æfingu í skóginum innan
um snáka, kóngulær og kínverska
tígra.
Í HÆSTA TURNI KÍNAMÚRSINS Inga Rut heimsótti Kínamúrinn í vetur, en á mun
óhefðbundnari slóðir en ferðamönnum er almennt boðið upp á. Múrinn er þar að hruni
kominn og aðstæður allar glæfralegar. Hér dinglar hún fótum í varðturni ofan við
hrikalegt gil.
Frábær árangur í fegur› og hreysti
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir um mánuði síðan héldu tvær
íslenskar stúlkur, Kristjana Thors
Brynjólfsdóttir og Yesmin Olsson,
á vit ævintýranna í Malasíu til að
keppa í Fitness Woman - World
Championships Finals 2005. Fit-
ness Woman er hreysti- og fegurð-
arsamkeppni þar sem dæmt er út
frá kvenlegum línum, fegurð og
danshæfileikum keppenda. Þar
sem aðeins má vera einn keppandi
frá hverju landi fyrir sig kom
Kristjana fram fyrir hönd Íslands
en Yesmin fyrir hönd Svíþjóðar.
Stúlkurnar stóðu sig með
stakri prýði þar sem þær komust
báðar í úrslitakeppnina og Yesmin
endaði í áttunda sæti en Kristjana
í því tíunda. Dómararnir voru
afar ánægðir með frammistöðu
stúlknanna og hefur Yesmin í
framhaldinu verið boðið að taka
þátt annarri fitness-keppni sem
verður haldin í Las Vegas seinna á
árinu. Þar keppir hún fyrir Ís-
lands hönd.
Krisztina G. Agueda, fram-
kvæmdastjóri Hreyfilands, er
fulltrúi International Fitness
Federation (IFF) samtakanna á Ís-
landi en keppnin er á þeirra veg-
um. Hún hefur verið hér á landi
að leita að keppendum frá því árið
2000 en segist loks hafa fundið
hentuga keppendur í ár. „Mér
finnst íslenska fitness-keppnin
frábær en Fitness Woman er
nokkuð ólík öðrum keppnum að
því leyti að þar er meiri áhersla
lögð á fegurðina frekar en vöðva-
stæltan líkama. Ég sá Yesmin
fyrir nokkrum árum og fannst
hún kjörin til þátttöku en hún sök-
um anna fór hún ekki í keppnina
fyrr en í ár. Svo fann ég Kristjönu,
sem er bæði fögur og lipur svo
þær fóru báðar utan,“ segir
Krisztina. „Samtökin stefna að því
að halda annað hvort Evrópu-
keppnina eða þá alþjóðlegu á Ís-
landi innan fárra ára sem væri
mjög gott tækifæri því keppninni
er sjónvarpað á Eurosport.“
Yesmin heldur til Las Vegas í
lok september en hún segir að
keppnin í Malasíu hafi verið ótrú-
leg lífsreynsla. „Það var rosalega
gaman og mikið ævintýri. Að-
standendur keppninnar vildu að
við upplifðum sem mest af mala-
sískri menningu og buðu okkur út
á hverju kvöldi. Þá var alltaf farið
í mat og það var sko ekki fitness-
matur,“ segir Yesmin og hlær.
„Það var því svolítið erfitt að
halda sér í formi.“
Kristjana var ekki síður ánægð
með ferðina en auk þess að lenda í
tíunda sætu fékk hún titilinn
„Bodylicious“. „Þetta er einn af
þessum hliðartitlum sem styrkt-
araðilar fá að velja og ég fékk
peningaverðlaun fyrir. Það var
bara mjög gaman að vinna hann,“
segir Kristjana. „Ég stefni ekki á
frekari keppni í fitness því ég er í
fullu starfi á Skjá einum og fer að
byrja í skóla. Þetta var frábær
upplifun og passaði mjög vel á
þessum tíma en ég ætla að leggja
skóna á hilluna í bili. Þetta var
bara fín byrjun og endir á ferl-
inum,“ segir hún.
Keppnin, sem fram fór í Kuala
Lumpur, verður sýnd á stærstu
íþróttasjónvarpsstöð Evrópu
Eurosport innan fárra mánaða.
soleyk@frettabladid.is
KRISTJANA THORS, ALEXANDRA BERAS OG YESMIN OLSSON Á lokakvöldinu.
Alexandra var aðaldómari keppninnar og er vel þekkt í fitness-heiminum.