Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 51
FÓTBOLTI Keppni í ensku fyrstu
deildinni í knattspyrnu hefst í dag,
en átta Íslendingar eru samnings-
bundnir félögum í þeirri deild.
Landsliðsmaðurinn Gylfi Einars-
son er á mála hjá hjá hinu forn-
fræga félagi Leeds United, og hefur
æft af krafti undanfarnar vikur til
þess að vera í sem bestu formi þeg-
ar mótið hefst, en fyrsti leikur
Leeds er gegn Millwall á morgun.
„Það hefur gengið vel á undirbún-
ingstímabilinu. Leikmannahópurinn
er betri núna en á sama tíma í fyrra,
þar sem nokkrir nýir leikmenn hafa
bæst í hópinn. Ken Bates, eigandi
félagsins, leggur mikla áherslu á að
félagið komist sem fyrst í úrvals-
deildina og það er okkar markmið á
tímabilinu.“
Þó að Gylfa hafi gengið ágæt-
lega á undirbúningstímabilinu
reiknar hann ekki með því að byrja
inn á fyrsta leik, þar sem sam-
keppnin um stöður er hörð. „Ég
vona náttúrlega að ég byrji inn á
en ég býst frekar við því að vera á
varamannabekknum. Norðmaður-
inn Eirik Bakke hefur verið að
koma aftur inn í hópinn eftir erfið
meiðsli og hann byrjar örugglega
inn á. Svo eru hérna fleiri sterkir
leikmenn eins og Seth Johnson og
Steve Stone. Ég hef þó fengið að
spila töluvert í æfingaleikjunum
og vonast eftir því að fá tækifæri
gegn Millwall.“
Eftir erfiðleika í mörg ár, þar
sem félagið rambaði á barmi gjald-
þrots svo mánuðum skipti, hefur
nýjum eiganda félagsins tekist að
koma rekstrinum í eðlilegt horf.
Ken Bates, sem áður var eigandi
Chelsea, hefur styrkt innra starf
félagsins og bætt við leikmönnum
sem sárlega vantaði í fyrra. „Ég
hef trú á því að þessi hópur sem er
hérna núna muni ná góðum
árangri ef þjálfarinn heldur rétt á
spöðunum. Framherjinn Robbie
Blake kom til okkar frá Birming-
ham City og ég hef trú á því að
hann muni skora mikið. Vonandi
nær Eirik Bakke sér af meiðslun-
um, því hann er einn af fáum hjá
félaginu sem hafa mikla úrvals-
deildarreynslu. Svo er liðsandinn
góður og æfingarnar skemmtileg-
ar.“
Undanfarin ár hefur nokkur
fjöldi Íslendinga leikið í 1. deild-
inni á Englandi. Sex Íslendingar
eru í aðalliði félaga sinna í deild-
inni, en auk þeirra eru Björn Ingi
Hermannsson og Óskar Pétursson
báðir á unglingasamningi hjá
Ipswich. Í janúar mun svo níundi
leikmaðurinn bætast í hópinn, en
þá gengur Hannes Sigurðsson til
liðs við Stoke City, þar sem Íslend-
ingar eru meirihlutaeigendur.
magnush@frettabladid.is
Handboltaskóli fyrir 5 - 12 ára
stráka og stelpur dagana 15-19 ágúst.
Börn 5-9 ára fyrir hádegi kl. 09-12 og 10-12 ára eftir
hádegi kl. 13-16.
Þáttökugjald er 3000,- kr sem dregst frá æfingagjaldi í vetur ef
gengið er frá þeim fyrir 15. sept. 2005.
Góðir gestir koma í heimsókn.
Innritun við upphaf námskeiðs í Víkinni mánudaginn
15. ágúst.
Unglingaráð handknattleiksdeildar Víkings
H
A
N
D
B
O
L
T
A
S
K
Ó
L
I
V
ÍK
IN
G
S
Körfuknattleiksdeild óskar eftir
þjálfurum fyrir yngri flokka félagsins,
bæði drengi og stúlkur.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofu Fjölnis,
Dalhúsum 2, í síma 587-4085.
Körfuknattleiksdeild Fjölnis
6. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
> Okkur finnst sorglegt ...
... að þjálfari ungmenna- og A-landsliðsins
í handbolta, sem á að heita fyrirmynd í
starfi, skuli leyfa sér að hafa áfengi um
hönd þegar hann ferðast á
vegum HSÍ. Viggó
Sigurðsson hefur lengi
verið umdeildur sem
þjálfari en hegðun
hans í flugvélinni
á sunnudag
slær öllu við og
er óafsakanleg.
Haukur Ingi í hópinn
Eftir vonbrigðin í bikarkeppninni geta
Fylkismenn tekið gleði sína á ný því
Haukur Ingi Guðnason verður í
leikmannahópi Fylkis sem mætir ÍA á
morgun. Hann hefur verið frá vegna
þrálátra meiðsla í nærri tvö ár.
sport@frettabladid.is
34
> Við vorkennum ...
.... Viggó Sigurðssyni, landsliðsþjálfara í
handbolta, sem hefur með drykkju sinni á
leiðinni heim úr keppnisferða-
laginu í Svíþjóð gert það að
verkum að trúverðugleiki hans
sem þjálfari hefur hlotið
óbætanlegan skaða. Hann
getur engum nema sjálfum
sér um kennt.
Enska knattspyrnan er nú a› hefjast eftir sumarfrí og ver›ur fyrsta umfer›in í 1.
deildinni á Englandi leikin um helgina. Íslenski landsli›sma›urinn Gylfi Einars-
son á von á flví a› li› hans, Leeds United, ver›i í toppbaráttunni.
Íslendingar í eldlínunni
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
3 4 5 6 7 8 9
Laugardagur
ÁGÚST
■ ■ LEIKIR
14.00 Völsungur fær HK í
heimsókn til Húsavíkur í 1. deild karla.
14.00 KA tekur á móti Víkingi
Ólafsvík á Akureyrarvelli í 1.deild karla.
14.00 Breiðablik og Þór mætast á
Kópavogsvelli í 1.deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
11.10 Enski boltinn (Arsenal -
Man Utd) á Sýn.
13.15 Strandblak á Sýn.
14.05 Motorworld á Sýn.
14.35 World Supercross á Sýn.
14.40 HM íslenska hestsins á RÚV.
14.55 Mótorkross á RÚV.
15.30 Ensku mörkin á Sýn.
15.30 HM í frjálsum íþróttum á
Sýn.
16.00 Enski boltinn á Sýn. Sýnt
verður frá leik Southampton og Wolves.
18.35 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
19.00 US PGA The International á
Sýn.
23.40 Hnefaleikar (Bernard
Hopkins - J. Taylor) á Sýn.
Í undanúrslitaleik Vals og Fylkis var
Garðar Örn Hinriksson, dómari
leiksins, í aðalhlutverki en hann
sýndi Jóni Sveinssyni, aðstoðar-
þjálfara Fylkis, rauða spjaldið og
einnig Fylkismanninum
Christian Christiansen.
Christian kom inn á sem
varamaður í seinni hálf-
leik en fékk tvö gul spjöld
á skömmum tíma og var því
sendur af velli með rautt
spjald. Fylkismenn voru ósátt-
ir við síðara spjaldið, en
Garðar sýndi þá Christian
gult spjald fyrir leikaraskap.
Þorlákur Árnason, þjálfari Fylk-
is, var ósáttur við dóminn og
sagði hann hafa eyðilagt leik-
inn. „Þetta koma eins og köld vatns-
gusa framan í leikmennina.
Þeir trúðu varla sínum eig-
in augum en það þýddi
ekkert að kvarta yfir
þessu. Við reyndum
að spila boltanum
þrátt fyrir að vera
einum leikmanni
færri, en það var
auðvitað erfitt. Mér
finnst Garðar góður
dómari en hann
getur átt sína slæmu
daga eins og leik-
menn. Hann dæmdi
þennan leik ekki vel
að mínu mati en það
þýðir ekkert að kvarta
yfir því. Núna einbeit-
um við okkur að því að ná góðum úr-
slitum í leikjunum sem eftir eru í deild-
inni.“
Garðar segist ekki oft hafa lent í því í
sumar að sýna leikmönnum gult spjald
fyrir leikaraskap, en hann notaði spjald-
ið þó á tvo leikmenn Fylkis fyrir leikara-
skap í leiknum. „Því fer betur að flestir
leikmenn á Íslandi eru heiðarlegir og
reyna ekki að plata dómarann með
leikaraskap. Það koma upp svona atvik
einstaka sinnum. Ég get alveg viður-
kennt það að helst myndi ég vilja reka
menn út af fyrir svona hegðun en regl-
urnar segja annað. Það er mikil óvirðing
gagnvart íþróttinni og öllum sem að
henni koma, að svindla með þessum
hætti. Leikaraskapur er ekki hluti af
leiknum og á ekki að vera það.“
GARÐAR ÖRN HINRIKSSON: SÝNDI TVEIMUR FYLKISMÖNNUM RAUÐA SPJALDIÐ
Leikaraskapur er ekki hluti af leiknum
ÓLÖF MARÍA JÓNSDÓTTIR
Ólöf María Jónsdóttir:
Á sama skori
og Sörenstam
GOLF Ólöf María Jónsdóttir
kylfingur úr Keili er í 8.-13. sæti á
tveimur höggum yfir pari að lokn-
um tveimur hringjum á opna Nor-
ræna mótinu í golfi kvenna í
Barsebäck í Svíþjóð, en hún lék
hringinn í gær á þremur höggum
yfir pari.
Liselotte Neumann frá Svíþjóð
hefur forystu á tveimur höggum
undir pari. Athygli vekur að
sænska golfdrottningin Annika
Sörenstam lék hringinn í gær á
þremur höggum yfir pari eins og
Ólöf María og er í 6.-7. sæti á einu
höggi yfir pari. ■
FÓTBOLTI Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, lét hafa
eftir sér í fjölmiðlum í gær að
hann teldi Chelsea borga of hátt
verð fyrir Shaun Wright-Phillips,
sem liðið keypti frá Manchester
City á 21 milljón punda. Jose
Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea, gefur ekki mikið fyrir
yfirlýsingar Wenger.
„Enski leikmannamarkaðurinn
er ólíkur flestum öðrum. Við hefð-
um getað keypt ódýrari leikmann
en ég vil kaupa enska leikmenn sé
þess kostur, því hér hjá Chelsea
vil ég byggja upp lið af Englendin-
um en ekki fullt lið af útlending-
um eins og sumir,“ sagði Mour-
inho og hló því á stjóratíð sinni
hjá Arsenal hefur Wenger á tíðum
stillt upp liði sem eingöngu
samanstendur af útlendingum.
Greinilegt að spennan fyrir
ensku deildina er að magnast en
fyrsti leikurinn á tímabilinu er á
morgun þegar Chelsea og Arsenal
mætast í úrslitaleik í Cardiff um
Samfélagsskjöldinn en leikurinn
verður í beinni útsendingu á sjón-
varpsstöðinni Sýn. ■
ÍSLENDINGAR Í 1. DEILDINNI
Brynjar Björn Gunnarsson Reading
Ívar Ingimarsson Reading
Jóhannes Karl Guðjónsson Leicester
Bjarni Guðjónsson Plymouth
Þórður Guðjónsson Stoke City
Gylfi Einarsson Leeds Utd
*Björn Ingi Hermannsson Ipswich
*Óskar Pétursson Ipswich
*Eru á unglingasamningum hjá félaginu
GYLFI EINARSSON Gylfi
er hér í baráttu við
James Harper, leikmann
Reading , en með því fé-
lagi leika íslensku lands-
liðsmennirnir Brynjar
Björn Gunnarsson og
Ívar Ingimarsson.
Mourinho hlær a› Wenger
Stríð knattspyrnustjóranna í Englandi er hafið:
JOSE MOURINHO Situr sjaldan á skoðunum sínum, sama hvert umræðuefnið er.