Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 53
36 6. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Nú er hinsegin helgi.
Í fyrra svaf ég yfir
mig sökum þynnku
og missti af hátíð-
inni en Hinsegin
dagar fyrir tveim-
ur árum eru mér
afar minnistæðir.
Ég og vinur minn
stóðum í mannhaf-
inu - og regnhafinu - og
virtum fyrir okkur litadýrðina:
öldur af þúsundum regnhlífa innan
um dragdrottningar og leður-
homma sem höfðu nýlokið gleði-
göngunni. Gegnum regndropana
glitti í ótalmarga regnboga enda
merki samkynhneigðra flaggað
víða. Mér var skítkalt og hafði afar
takmarkaðan áhuga á skemmti-
atriðunum á sviðinu en mér hlýnaði
í hjartanu. Hvað það var nú sætt að
sjá allt þetta fólk mæta og gleðjast
með samkynhneigðum.
Mér fannst nokkuð merkilegt að
eyða laugardeginum í að standa
þarna frjósandi úr kulda og vosbúð
og horfa á skemmtiatriði sem ég fíl-
aði ekki, en að vera bara drullusátt
við það. Ég á ekki einu sinni ná-
komna ættingja eða vini sem eru
samkynhneigðir. Allt í einu varð ég
hrædd. Er ég kannski bara að þessu
til að friða samviskuna? Enginn
græddi jú meira á nærveru minni
en einmitt ég, sem sannfærðist um
að ég væri góð manneskja þrátt
fyrir allt. Þetta er svolítið eins og
með gjafir til alls konar samtaka.
Manni líður einfaldlega vel við það
að vera góður við aðra. Ef ég væri
efnafræðingur myndi ég rannsaka
hvort það sé ekki eitthvað sæluefni
sem leysist úr læðingi við góðverk.
Erum við kannski bara eigin-
gjörn og sýnum samkennd til að
okkur líði vel? Eftir mikla umhugs-
un í svaðinu á Arnarhóli komst ég
að þeirri niðurstöðu að svo væri
ekki. Óréttlætið sem samkyn-
hneigðir eru beittir er öllu sam-
félaginu til skammar og mér er það
mikið hjartans mál að bætt verði úr
ástandinu í framtíðinni. Auðvitað
eiga samkynhneigðir að geta gift
sig í kirkju, frumættleitt börn og
lifað mannsæmandi lífi eins og allir
aðrir. Gay Pride-hátíðir gera ekkert
nema gott í baráttunni fyrir jafn-
rétti. Til hamingju með daginn. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
RÓSA SIGNÝ GÍSLADÓTTIR VILL AÐ ÖLL DÝRIN Í SKÓGINUM SÉU VINIR
Sæluvíma á Hinsegin dögum
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Ég er hræddur um að
þú verðir að fara,
Tobbi!
Götin í netabolnum þínum eru
miklu stærri en hinar opinberu
pókerreglur gera ráð fyrir!
Hvaða
hvaða!
Við ætlum annað hvort að sjá
þessa eða þessa.
Mmm....
ókei.
Ég er bara fegin að þið ætlið
ekki að sjá ógeðslegu klám-
fengnu myndina „Menntaskóla-
stelpur á ferðalagi“, sem allir
eru að tala um.
Ha ha! Nei
það er ekki
okkar stíll!
Reyndar gæti það verið nota-
drjúgt fyrir okkur að fræðast
aðeins um menntaskóla!
Bíí bíííí bíííí
Kak
kak
kak
kak
kak
Katta - karókí.
Eftirrétti!
Eftir hverju eruð
þið að bíða?
Borðuðuð þið
ALLAR kökurnar?
Vel af sér vikið!
Takk!
Ókei mamma!
Búin!
Kjams kjams
krönsj
Sluurp!
Ahhhh!
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N