Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 55
38 6. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
...Indie-kvöldi á skemmtistaðn-
um 22. Plötusnúðarnir Ellen og
Helga halda uppi stuðinu fram á
nótt. Húsið opnar klukkan 21.00.
...Gay Pride-dansleikjunum á
Nasa, Nelly’s og Pravda. Litrík
gleði langt fram á nótt.
...Síðustu tónleikum jazzbands-
ins Autorevse í bili á Kaffi
Rósenberg. Bandið er skipað
þeim Ívari Guðmundssyni á
trompet, Steinari Sigurðarsyni á
tenor saxófón, Sigurði Rögnvalds-
syni á raf-
gítar, Pétri
Sigurðssyni
á bassa og
Kristni Snæ
Agnarssyni
á trommur.
Frítt er inn.
Undanfarna mánuði hafa þau hjón Guð-
rún Gunnarsdóttir og Valgeir Skagfjörð
haldið tónleika víðs vegar í kirkjum
landsins og flutt fjölbreytta og vandaða
tónlistardagskrá. Á tónleikunum syngur
Guðrún meðal annars lög af plötunni
Óður til Ellýjar og sólóplötu sinni, Eins og
vindurinn, sem kom út fyrir síðustu jól
en á henni er að finna lög og texta eftir
Valgeir Skagfjörð.
Í næstu viku verða þau Guðrún og Val-
geir á tónleikaferðalagi um Norður- og
Austurland. Þau koma fram klukkan
20.30 í Akureyrarkirkju á mánudags-
kvöldið og í Reykjahlíðarkirkju á þriðju-
dagskvöldið. Þá halda þau til Eskifjarðar
þar sem tónleikar verða í kirkjunni á
staðnum, fimmtudagskvöldið klukkan
20.00. Síðustu tónleikarnir á ferðalaginu
verða í Hafnarkirkju á Höfn í Hornafirði
föstudagskvöldið klukkan 20.00
Á morgun klukkan 16.00 verður opnuð samsýn-
ing ríflega tuttugu listamanna á Listasafni Ár-
nesinga í Hveragerði. Sýningin nefnist Tívolí
og þar verður kölluð fram sannkölluð lista-
sprengja þar sem ægir saman listaverkum,
gjörningum og uppákomum.
Listamennirnir voru fengnir til að vinna út frá
hugmyndinni um gamla tívolíið sem var til
staðar í Hveragerði fyrir nokkrum árum enda
lifir tívolíið sem ævintýraleg minning í hugum
margra listamannanna.
Meðal þeirra sem taka þátt í sýningunni eru
Egill Sæbjörnsson, Gabríela Friðriksdóttir,
Gjörningaklúbburinn og Ragnar Kjartansson.
menning@frettabladid.is
Gu›rún Gunnars í kirkjum landsins!
Þegar gengið er inn baka-
til í gegnum portið hjá
Klink og Bank blasir við
sjúskuð bílskúrsíbúð þar
sem atvinnulausir karl-
menn hafa búið í um
tveggja vikna bil. Rýmið
er sköpunarverk leiklist-
arnemanna Jörundar, Stef-
án Halls og Vignis Rafns
en annað kvöld frumsýna
þeir verkið Penetreitor
eftir skoska höfundinn
Anthony Neilson.
„Þetta er þriggja manna stofu-
drama með hníf,“ segir leiklistar-
neminn Vignir Rafn Valþórsson
um verkið Penetreitor sem Reyk-
víska Listaleikhúsið frumsýnir í
Klink og Bank annað kvöld.
„Orðabókarskilgreiningin á
Penetreitor er „að þröngva sér
inni í eitthvað“ en ef maður slær
upp „penetrator“ á netinu birtast
myndir af eldflaugum Banda-
ríkjahers. Orðið hefur einnig
bæst við klámorðaforða Íslend-
inga en allt á þetta við þegar
kemur að leikritinu.“
Vignir segir að leikhópurinn
sjái nýja og nýja fleti á umfjöllun-
arefni verksins á hverri æfingu.
„Persónurnar eru flóknar og eftir
að hafa grannskoðað verkið
komumst við að því að það tæki
bæði á einelti og ýmsum geðsjúk-
dómum.“ Auk Vignis leika þeir
Stefán Hallur Stefánsson og Jör-
undur Ragnarsson í Penetreitor.
„Við ákváðum því að leggjast í
óhefðbundna rannsóknarvinnu til
að búa til eins gott leikhús og við
gátum. Dæmigerð leið hefði
kannski verið að leigja kvikmynd-
ina Englar alheimsins og stúdera
túlkun Ingvars Sigurðssonar á
manni sem glímir við geðsjúk-
dóm. Í staðinn langaði okkur að
gera tilraun til þess að koma á ein-
hvers konar tengslum milli leik-
hússins og fólks sem glímir við
geðræn vandamál úti í samfélag-
inu. Við ákváðum því að reyna að
hafa uppi á fólki sem hefði
reynslu af geðsjúkdómum og fá
það til að aðstoða okkur við
persónusköpunina.“
Reykvíska listaleikhúsið hlaut
styrk frá Nýsköpunarsjóði til þess
að hugmyndin gæti orðið að veru-
leika og eftir að hafa talað við sál-
fræðinga og lesið sér til um stöðu
mála í geðsjúkdómum á Íslandi
setti Reykvíska listaleikhúsið sig í
samband við hóp sem kallar sig
Hugarafl. „Hugarafl samanstend-
ur af fólki sem hefur reynslu af
geðheilbrigðismálum og einstak-
lingum sem hafa upplifað geð-
sjúkdóma á eigin skinni og vilja
deila reynslu sinni með öðrum.
Við fengum frá þeim góða punkta
og heilmikla innsýn inni í þeirra
heim sem skilar sér aftur í verkið
og vonandi til áhorfenda.“
Reykvíska Listaleikhúsið stefn-
ir að því að koma upp samskipta-
neti í kringum verkefnið og boðið
verður upp á umræður að loknum
sýningum. Kristín Eysteinsdóttir
leikstýrir Penetreitor en Ingvar E.
Sigurðsson er umsjónarmaður
verkefnisins. Frumsýningin á
morgun hefst klukkan 21.00 og
verkið verður sýnt fram á næstu
helgi. Miðaverð er 500 krónur en
boðið er upp á endurgjaldslausar
sýningar fyrir þá hópa sem telja
sig geta haft félagslegan ávinning
af leikhúsupplifuninni.
thorakaritas@frettabladid.is
Geðsjúkt stofudrama með hnífÓd‡r föt og eigin hönnun
„Josy Zareen stofnaði Magadans-
húsið í Skipholti fyrir ríflega ári.
Þá var hún eini kennarinn og óraði
ekki fyrir hversu hratt fyrirtækið
myndi stækka,“ segir Árni Guð-
mundur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Magadanshússins,
en fyrirtækið er nú flutt í nýtt
húsnæði í Ármúla 18.
Tíu kennarar starfa nú hjá
Magadanshúsinu og með flutn-
ingnum verður stærð magadans-
hússins tvöfölduð. „Við erum að
skrúfa niður biðlistana en maga-
dansinn virðist hafa fest sig í
sessi. Það er mikill félagsskapur í
kringum þetta og öðruvísi stemn-
ing en gengur og gerist, það er til
dæmis orðið mjög algengt að
gæsapartí fari fram í Magadans-
húsinu. Fyrir utan skemmtana-
gildið þá styrkir dansinn líka
sjálfstraustið og getur hjálpað
konum hvort tveggja á meðgöngu
og við að ná sér á strik eftir fæð-
ingu. Við höfum meira að segja
orðið vitni að því að par sem var
lengi búið að reyna að eignast
króa tókst það eftir að móðirin fór
að dansa magadans,“ segir Árni
en magadansinn örvar vöðva á
magasvæðinu sem oftast gleymist
að þjálfa.
Opnunarhátíð Magadanshúss-
ins verður í Ármúla 18 klukkan
20.00 í kvöld. „Það verður boðið
upp á fjölbreytt magadansatriði
og léttar veitingar,“ segir Árni en
það eru ekki eingöngu konur sem
hafa uppgötvað gleðina við maga-
dansinn. „Það eru þrír karlmenn
úr Karatefélaginu Þórshamri sem
hafa gengið til liðs við okkur.
Þetta byrjaði allt sem árshátíðar-
grín hjá þeim en nú halda þeir
ótrauðir áfram og eru meðal
þeirra sem sýna magadans á opn-
unarhátíðinni í kvöld.“
Ókeypis er á opnunarhátíðina
og allir eru velkomnir. ■
Næstu sýningar eru:
Í dag kl. 14 örfá sæti laus
6. sýn. sun. 7/8 kl. 14 örfá sæti laus
7. sýn. fim. 11/8 kl. 19 sæti laus
frá kl. 9.00 til 17.00 alla virka daga.
Opnunarhátí› Magadanshússins
JOSY ZAREEN Hefur komið af stað
magadansæði á Íslandi og flytur nú Maga-
danshúsið í helmingi stærra húsnæði til
að annast eftirspurn.
Fimm listagyðjur
verða með markað á
Flókagötu 69 um
helgina. „Þetta verð-
ur risa garðsala þar
sem við seljum alls
kyns notuð föt og
eigin hönnun,“ segir
myndlistarkonan Jóhanna Helga
Þorkelsdóttir en tilefnið er bú-
ferlaflutningur hennar. „Ég er að
flytja til Chicago þar sem ég verð
í meistaranámi í myndlist næstu
tvö árin. Þegar ég var að pakka
komst ég að því að ég ætti allt of
mikið af fötum og fékk því systur
mínar og tvær
vinkonur til að
halda með mér
markað um helg-
ina.“
M y n d l i s t a r -
konan Kolbrá
Braga hefur vak-
ið athygli fyrir nýstárlega notk-
un á ullarpeysumynstrinu og
verður hún með ullarpeysuboli,
pils og ermar til sölu á markaðn-
um sem verður opinn á Flókagöt-
unni gegnt Kennaraháskólanum
frá klukkan 11.00-18.00 í dag og á
morgun sunnudag. ■
FARA ÓTROÐNAR SLÓÐIR Reykvíska Listaleikhúsið frumsýnir verkið Penetreitor í Klink
og Bank annað kvöld. Verkið hefur hlotið styrk frá Nýsköpunarsjóði.
■ ■ TÓNLEIKAR
21.30 Sænski djassgítarleikarinn
Andreas Öberg með tónleika í
Ketilhúsinu á Akureyri.
■ ■ OPNANIR
14.00 Anna Gunnarsdóttir opnar
sýninguna Ljóshaf, lýsandi form úr
þæfðri ull, á Árbæjarsafni í Reykja-
vík. Um er að ræða skúlptúra sem
unnir eru úr þæfðri ull. Óður til hafs-
ins eftir Davíð Stefánsson var inn-
blástur Önnu í verkin. Sýningin
stendur til 18. ágúst og er opin alla
daga frá kl. 10.00 til 17.00.
15.00 Listakonan Tuuli Tuikka frá
Finnlandi sýningu í sal Íslenskrar
Grafíkur, Hafnarhúsi (hafnarmeg-
in),Tryggvagötu 17. Á sýningunni eru
teikningar og grafíkverk þar sem
manneskjan er útgangspunktur-
inn.Sýningin er opin fimmtudaga til
sunnudags frá kl. 14:00 - 18:00 og
stendur til 22. ágúst. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir.
16.00 Malin Stahl opnar sýningu
sína Three hearts á vesturvegg
Skaftfells á Seyðisfirði. Malin útskrif-
aðist frá Listaháskóla Íslands 2004,
hún býr og starfar í Svíþjóð. Sýningin
stendur til 18.ágúst.
17.00 Guðmundur Heimsberg
opnar ljósmyndasýningu á Sólon.
Sýningin ber heitið „You Dynamite“
og eru myndefnin sannir Íslenskir
karlmenn.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Hljómsveitin Sérsveitin
heldur uppi stemningu í kvöld á
skemmtistaðnum Vélsmiðjunni á
Akureyri. Húsið opnar klukkan tíu en
frítt er inn til miðnættis.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.