Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 58
h ö n n u n : w w w . p i x i l l . i s
20-70% AFSLÁTTUR
Útsalan er hafin
-40%
TV skenkur
Verð áður: 32.000.-
Verð nú:
19.200.- -30%
Náttborð
Verð áður: 19.500.-
Verð nú:
13.650.-
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-18:00 - sun 13:00-18:00
ATH. LÖNG OPNUNARHELGI
-30%
149.000.-
Borðstofuborð (200x100)
og sex stólar
Tendence eikarlína
Skenkur, borð og sex stólar
30% afsláttur
Verð áður: 118.000.-
Verð áður: 203.000.-
Verð nú:
Allt settið verð nú:
89.500.-
Skenkur
Verð áður: 85.000.-
Verð nú:
59.500.-
-30%-30%
Leðursófasett
3+1+1
Verð áður: 242.000.-
Verð nú:
169.400.-
3+2
Verð áður: 228.000.-
Verð nú:
159.600.- af öllum sófum og sófasettum
20-40% afsláttur
Leðursófasett
3+1+1
Verð áður: 256.000.-
Verð nú:179.200.-
Tungusófi
microfiber áklæði með óhreinindavörn
Verð áður: 139.000.-
Verð nú:
111.200.-
SMEKKURINN ANNA ÞORBJÖRG JÓNSDÓTTIR HAGFRÆÐINGUR
Eyrnalokkar og glingur í Los Angeles
LAUGARDAGUR 6. ágúst 2005 41
Anna Þorbjörg Jónsdóttir hagfræðingur
er í framhaldsnámi í fjármálastærð-
fræði í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Hún hefur búið í LA í tvö ár og hefur
gaman af því að fylgjast með tísku-
straumunum í borg kvikmyndanna og
elta uppi fallegt glingur.
Spáir þú mikið í tískuna? Já,
kannski svolítið, en það er oft sem
mér finnst tískan ekki vera falleg eða
að hún fari mér ekki.
Uppáhaldshönnuður? Í ár er það
Marc Jacobs. Ég er búin að kaupa frek-
ar mikið frá honum í ár.
Fallegustu litirnir? Svartur, gull og
silfur.
Hverju ertu mest svag fyrir?
Eyrnalokkum.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
Mig minnir að það hafi veirð jogging-
peysa sem ég keypti í Urban Outfitters
í Santa Cruz í Kaliforníu.
Hvað finnst þér mest sjarmer-
andi í tískunni? Hvað hún er fjöl-
breytt um þessar mundir og svo er ég
ánægð með að svartur sé að koma
inn í haust þó að hann detti nú aldrei
alveg út.
Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir
haustið? Ekkert sérstakt en eitt ætla
ég að kaupa á Íslandi áður en ég fer
út til LA, mosagræna flíspeysu sem ég
sá í 66 gráður norður.
Uppáhaldsverslun? Xin á Melrose í
LA, þeir selja flottustu eyrnalokka í
heimi. Svo finn ég oft eitthvað fallegt í
Planet Blue og Ron Herman í LA.
Hvað eyðir þú miklum peningum
í föt á mánuði? Frá núll krónum og
upp úr.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið
án? Svört French Connection peysa
sem ég fékk í Gallery fyrir rúmum
fimm árum síðan, hún passar við allt
og utan yfir allt.
Uppáhaldsflík? Handgert pils sem
ég keypti á Spitalfield-markaðnum í
London fyrir þremur árum. Það er
turkísblátt, hvítt og bleikt
með kögri. Ég hef verið
elt úti á götu af konum
sem vilja vita hvar þær
geta fengið alveg eins.
Annars er erfitt að
gera upp á milli þess
og grárrar hettupeysu
sem ég fékk í LA fyrir
tveimur árum, hún er
alsett glitrandi stein-
um í öllum regnbog-
ans litum. Systurdóttir
mín taldi steinana, þeir
eru hátt á annað þús-
und, og ég nýt sérstakr-
ar hylli barna þegar ég er í
peysunni því þau dáleiðast af
allri litadýrðinni.
Hvert myndir þú fara í
verslunarferð? New York.
Ljótasta flík sem þú hefur
keypt? Ætl það sé ekki kerl-
ingardragt sem ég keypti í
Evu á menntaskólaárunum.
Eða skósítt drapplitað ull-
arpils sem ég var í við hvíta,
víða og síða skyrtu og drapp-
litað bútasaumspils sem var
utan yfir. Ekki má gleyma
perluklasaeyrnalokkunum sem
fullkomnuðu lúkkið.
Bjútídót sem
gerir kraftaverk
PRIME FX COLOR NEUTRALIZING
FACE PRIMER gefur húðinni
stjarnfræðilega fallegan ljóma.
Kremið gefur raka en það dregur
líka úr fínum línum og roða og
baugar verða minna áberandi.
Húðliturinn verður jafn og falleg-
ur. Gott er að nota kremið eitt og
sér en það er líka hægt að nota
það undir farða eða blanda því
saman við farða. Prime FX er
sem sagt málið fyrir allar dömur
sem kjósa að vera sérlega sætar
um þessar mundir.
PRIME FX PRO CONCEALMENT KIT
Hver vill ekki geta haft snyrtidót-
ið hangandi á lyklakippunni? Pall-
ettan Prime FX Pro Concealment
Kit inniheldur allt sem til þarf til
að lagfæra útlitið. Pallettan inni-
heldur Line Line Diffuser
krem sem mýkir húðina og
minnkar fínar línur
(hrukkur), einnig
er „soft-focus“
púður sem
fyllir upp
í fínar línur,
tveir hyljarar sem inni-
halda Photo Opticô
tækni. Annar hyljarinn
felur roða og hinn felur bauga.
Pressed Powder Photo Opticô
púður sem er notað til að dusta
létt yfir andlit. Púðrið endurkast-
ar ljós og gefur ljóma! Verst að
verslunarmannahelgin er liðin
því þá hefðu allir þeir sem ættu
slíka pallettu í veskinu getað
verið flottastir á útihátíðinni.
Pallettan er líka tilvalin á djamm-
ið, svo smart að það er nánast
hægt að nota hana sem hálsmen.