Fréttablaðið - 06.08.2005, Side 60
Ofurfyrirsætan Naomi Campbellhefur enn eina ferðina látið
skapið hlaupa með sig í gönur því
ein elsta og besta vinkona hennar,
leikkonan Yvonne Scio, hefur nú
kært hana fyrir líkamsárás. Hið
meinta atvik átti sér stað á hótelher-
bergi þegar vinkonurnar hugðust
fara út að skemmta sér. Eitthvað fór
efnislítill Fendi-kjóll sem Scio
klæddist fyrir brjóstið á Naomi, sem
varð skyndilega al-
veg fokill. „Hún
kallaði mig öllum
illum nöfnum svo
ég fór og skipti um
föt. Það var greini-
lega ekki nóg því
þegar ég kom til
baka réðst hún á
mig og barði mig
illa,“ sagði Scio.
Nýjasta æðið!
Engin trygging nauðsynleg
– flokkast sem reiðhjól.
Notist á gangstéttum.
Engin aldurstakmörk
Munið eftir
hjálmunum!
Salan er hafin!
Sími: 869 0898
Scooterhjól með mótor
í fyrsta sinn á Íslandi!
Unglingatilbo›
Margaríta Pizza og
Pepsi á kr. 800
Láttu sjá flig
www.pizzahut.is • 533 2000
Nordica • Sprengisandi • Smáralind
Tilbo›i› gildir einungis í veitingasal
Lagið The King of the Dancefloor
með rokksveitinni Hölt hóra er
komið í spilun á X-inu 97,7 og XFM
91,9. Lagið er tekið af EP-plötunni
Love Me Like You Elskar Mig sem
var nýlega gefin út.
Fyrsta lagið sem fór í spilun af
plötunni Party Through the Night
komst á topp 20 lista X-FM ásamt
því að ná toppsæti rokk.is-listans
tvær vikur í röð. Hölt hóra spilaði
síðast á Akureyri um verslunar-
mannahelgina við mjög góðar
undirtektir. ■
HÖLT HÓRA Rokksveitin Hölt hóra er
komin með nýtt lag í spilun.
Konungur dans-
gólfsins í spilun
Forgotten Lores
me› tónleika
Hljómsveitin Forgotten Lores, sem
hitaði upp fyrir rapparann Snoop
Dogg í Egilshöll í síðasta mánuði,
heldur tónleika í Stúdentakjallaran-
um í kvöld.
Fimm manna kjarni sveitarinnar
spilar á tónleikunum og því verður
ekki sami fjöldi uppi á sviði og spil-
aði í Egilshöllinni. Stúdentakjallar-
inn opnar klukkan 22.00 í kvöld og
kostar 500 krónur inn. ■
FORGOTTEN LORES Hljómsveitin verður
í Stúdentakjallaranum í kvöld.
Rithöfundurinn Helen Fielding
hefur nú endurlífgað sköpunar-
verk sitt, Bridget Jones, með
nýjum vikulegum dálkum í dag-
blaðinu The Independent. Tíu ár
eru síðan Helen hóf skrif sín í
blaðið undir nafni Bridgetar en
þegar vinsældir hennar jukust
ákvað Helen að skrifa bók byggða
á persónunni. Úr því urðu tvær
metsölubækur en ekkert nýtt hef-
ur heyrst frá Bridget í fimm ár,
eða frá því seinni bókin kom út.
Bridget varð alþjóðleg stjarna
þegar gerðar voru tvær afar vin-
sælar bíómyndir um hana með
Renée Zellweger í aðalhluterki og
því bíða margir spenntir eftir nýj-
um ævintýrum Bridgetar.
Í dálkunum er Bridget enn að
ströggla við að halda kjörþyngd
og í ástarvandamálum auk þess að
þurfa nú að hafa áhyggjur af
hækkandi aldri og hryðjuverkum.
„Það er komið að nýjum kafla í
lífi hennar og margt spennandi að
gerast,“ sagði Helen þegar hún
kynnti þessa ákvörðun sína. „Hún
er samt alltaf gamla og góða
Bridget.“ ■
BRIDGET JONES Colin Firth, Renée Zellweger og Hugh Grant í hlutverkum sínum í kvik-
myndinni um Bridget Jones.
Bridget Jones brussast
aftur inn á sjónarsvi›i›
FRÉTTIR AF FÓLKI