Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 1
Stjörnumessa
og stu›öskur
DR. GUNNI OG FELIX
FÓLK 30
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
SKÓLAR „Ég þarf að grípa til þess
að fara fyrr heim úr vinnunni á
daginn af því að þá getur enginn
séð um drenginn minn,“ segir
Vilma Kristín Guðjónsdóttir, ein-
stæð móðir sex ára drengs sem
ekki hefur komist að á frístunda-
heimili við grunnskóla hans í
Grafarvogi.
Sonur Vilmu Kristínar er of-
virkur og með athyglisbrest og
umtalsverð þroskafrávik. Hann
þarf því á stuðningsfulltrúa að
halda, en ekki hefur tekist að ráða
í þær stöður vegna manneklu.
„Ég sótti um mjög snemma þar
sem mér var sagt að þeir sem
fyrstir sæktu um kæmust fyrstir
að,“ segir Vilma, sem er ósátt við
að börn sem sótt hafi um síðar og
ekki þurfi á stuðningsfulltrúa að
halda hafi komist að á undan syni
hennar. Þá kveðst hún engin svör
hafa fengið um það hvenær búast
megi við að sonur hennar komist
að á frístundaheimilinu.
„Við höfum ekki fengið starfs-
fólk sem tekur að sér stuðnings-
börn og þess vegna höfum við
boðið öðrum börnum pláss á
undan,“ segir Dagný Edda Þóris-
dóttir, umsjónarmaður frístunda-
heimilis Rimaskóla. „Við vonumst
þó til þess að úr fari að rætast og
okkur takist að ráða í þessar stöð-
ur í vikunni.“ - ht
SUÐVESTURHORNIÐ
50%
73%
35%
Lestur kvenna á
miðvikudögum*
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í júlí 2005.
Lestur meðal 12–80 ára á miðvikudögum.
NORÐAN STREKKINGUR eða all-
hvasst, sérstaklega með ströndum
austanlands. Léttir til syðra en
rigning norðan- og austanlands. VEÐUR 4
MIÐVIKUDAGUR
24. ágúst 2005 - 227. tölublað – 5. árgangur
Ætlar í ópraktískt
nám
ÞÓRA TÓMASDÓTTIR
Í MIÐJU BLAÐSINS
● nám ● ferðir
▲
Ósko›a›ur og ótrygg›ur
Vörubíllinn sem lenti í hör›um árekstri vi› strætisvagn sí›astli›inn föstudag var ósko›a›ur og ótrygg›ur.
Bílstjórinn neitar a› hafa fari› yfir á rau›u ljósi. Lögreglan er a› rannsaka máli›. Vörubílstjórinn heim-
sótti strætisvagnabílstjórann á sjúkrahús og sag›i hann hafa teki› vel á móti sér.
SLYS Eigandi vörubílsins sem
skall saman við strætisvagn í
Reykjavík á föstudag hafði
hvorki mætt með bílinn í skoðun
greitt af honum lögbundnar
tryggingar.
Í slysinu slasaðist strætis-
vagnabílstjóri alvarlega og
missti báða fótleggi neðan við
hné.
Helgi Aðalsteinsson, eigandi
og ökumaður vörubílsins, segir
að hann hafi átt að mæta með
bílinn til skoðunar í maí en hafi
haft frest fram til 1. ágúst og
því hafi bíllinn verið komin
fram yfir skoðunartíma. Þá hafi
hann ekki greitt lögbundnar
ökutækjatryggingar af bílnum
en kippt því í lag strax í kjölfar
slyssins. Hann hitti strætis-
vagnabílstjórann á sunnudaginn
þar sem hann dvelur á sjúkra-
húsi.
„Hann tók mér ljómandi vel.
Hann er kunningi minn og það er
skylda mín að tala við hann. Auð-
vitað var þetta óþægilegt en mér
fannst þetta nauðsynlegt og ég
ætla að hitta hann aftur, vonandi
sem fyrst,“ segir Helgi.
Helgi segist ekki hafa keyrt
yfir á rauðu ljósi. „Ég var búinn
að keyra á grænu ljósi yfir öll
gatnamótin á undan og það er
þannig að um er að ræða sam-
stillt ljós þannig það getur ekki
hafa verið rautt ljós en vissulega
ók ég hraðar en leyfilegt er. Það
var hins vegar svo að strætis-
vagninn var á mikilli ferð og það
er því ekki rétt sem kemur fram
í Morgunblaðinu að strætisvagn-
inn hafi verið nýlagður af stað á
grænu ljósi,“ segir Helgi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Frumherja eru bílar ólöglegir hafi
þeir farið fram yfir skoðunartíma.
Hjá tryggingafélögunum fengust
þær upplýsingar að þeim sem ekki
greiða tryggingar af ökutækjum
væri sent lögreglubréf í við-
komandi umdæmi. Eftir fjórar
vikur félli lögboðin trygging svo
niður. Meginreglan er sú að tjón-
þolar fá tjón sem þeir verða fyrir
bætt óháð öðrum forsendum.
Málið er í rannsókn hjá lögregl-
unni í Reykjavík.
hjalmar@frettabladid.is
Á skjánum fram að jólum
▲
> Markaðurinn
Sögurnar... tölurnar...fólki›...
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.07.2005–31.07.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr.
30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir
hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur
en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn,
m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og
fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins,
vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu
sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf.
auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
410 4000 | landsbanki.is
8,5%*
Peningabréf Landsbankans
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
91
39
0
8/
20
05
Donald J. Trump
Tollir í tískunni
Úttekt
Færeyingar færast nær
Helgi Vilhjálmsson í Góu
Atvinnuleysið
keppinautur
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 24. ágúst 2005 – 21. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Hannes ekki yfirtökuskyldur |
Yfirtökunefnd komst að þeirri
niðurstöðu að Eignarhaldsfélagið
Oddaflug væri ekki yfirtökuskylt
í FL Group vegna þeirra breyt-
inga sem urðu á eignarhaldi í
félaginu 1. júlí. Félagið Oddaflug
er í eigu Hannesar Smárasonar,
stjórnarformanns FL Group.
FL undir væntingum | Hagnaður
FL Group var rúmir 1,9 milljarðar
króna á fyrstu sex mánuðum
þessa árs. Þetta er besta afkoma í
sögu félagsins á fyrri hluta árs.
Hagnaðurinn er þó rúmum tvö
hundruð milljónum króna lægri
en meðaltalsspá bankanna gerði
ráð fyrir.
Og Kögun líka | Um 118 milljóna
króna hagnaður varð af rekstri
Kögunar á öðrum ársfjórðungi og
223 milljónir fyrir árið í heild.
Uppgjörið er heldur undir vænt-
ingum en sérfræðingar höfðu
búist við að hagnaður félagsins
yrði 140 milljónir á fyrstu sex
mánuðum árs.
Japönsk bréf í hámarki | Virði
bréfa á japönskum hlutabréfa-
mörkuðum hefur ekki verið meira
í rúm fjögur ár. Nikkei-vísitalan
stóð við lok viðskipta á mánudag í
12.452, 51 stigum og hækkaði um
1,3 prósent frá því um morguninn.
Gott hjá Finnair | Hagnaður
Finnair var um þrír milljarðar á
fyrri árshelmingi. Burðarás er
annar stærsti hluthafi í félaginu
með 8,3 prósenta hlut og nemur
markaðsvirði hans um fimm millj-
örðum króna. Finnska ríkið er
stærsti hluthafinn með 59 pró-
sent.
Fasteignaverð hækkar | Fast-
eignaverð á höfuðborgarsvæðinu
í júlí hækkaði um 3,4 prósent frá
fyrri mánuði. Þetta var ellefti
mánuðurinn í röð sem vísitalan
hækkar, samkvæmt tölum frá
Fasteignamati ríkisins.
Yfirtakan á Somerfield:
Hluthafar vilja
hærra verð
Hluthafar í Somerfield hafa skorað
á stjórn félagsins að gefa ekkert
eftir í viðræðum við þá tvo hópa
fjárfesta sem vilja yfirtaka félagið
og vilja fá 220 pens á hlut fyrir sinn
snúð. Líklegt er að Apax, Barclays
Capital og Tchenguiz-bræðrur, sá
fjárfestahópur sem Baugur fylgdi
á sínum tíma, muni ekki bjóða
meira en 205 pens í hvern hlut, sem
þýðir að Somerfield er um 1,1
milljarða punda virði.
Í Financial Times hvetur Mark
Webster, hjá State Street Global
Advisors sem á um þriggja pró-
senta hlut, stjórn Somerfield til að
hætta frekar við yfirtökuviðræð-
urnar en að selja félagið of lágt.
Hann muni varla fallast á að selja
ef boð undir 220 pensum berist.
Hinn fjárfestahópurinn er
Livingstone-bræður en sam-
kvæmt heimildum hafa þeir ekki
gefið upp sínar verðhugmyndir.
Verði af yfirtökunni verður um
stærstu fasteignafjármögnun í
breskri sögu að ræða en fasteign-
ir Somerfield eru metnar á 1,1-1,3
milljarða punda. - eþa
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Í júní síðastliðnum var 750 milljón króna skuld
SkjásEins við Símann breytt í hlutafé, samkvæmt
heimildum Markaðarins. Stjórn Símans tók þessa
ákvörðun áður en Síminn var einkavæddur en
fyrir réð fyrirtækið yfir tæpum 77 prósent af
hlutafé SkjásEins. Nú er ljóst að Síminn ræður
yfir nánast öllu hlutafé Íslenska sjónvarpsfélags-
ins hf., sem rekur SkjáEinn.
Í fyrra keypti Síminn allt hlutafé í Íslensku
sjónvarpi ehf. fyrir 94 milljónir króna, en það
félag átti um helming hlutafjár í Skjá-
Einum. Á fyrstu þremur mánuðum
þessa árs keypti Síminn í öðru félagi
sem átti í SkjáEinum, Fjárfestingar-
félaginu Bröttubrú, og í SkjáEinum
sjálfum fyrir 89 milljónir króna. Þessi
félög voru svo sameinuð SkjáEinum,
sem er nú hluti af samstæðureikningi
Símans.
Síminn getur notað uppsafnað
skattalegt tap SkjásEins að upphæð
1,7 milljarðar króna samkvæmt efnahagsreikningi
í lok síðasta árs. Skuldir SkjásEins námu þá sam-
tals 1,5 milljörðum króna. Þar af voru um 230
milljónir langtímaskuldir. Eigið fé var neikvætt
um 290 milljónir króna. Heildarhlutafé var 642
milljónir króna.
Samkvæmt fjárfestingaráætlun Símans fyrir
árið í ár átti að ráðast í stóraukna fjárfestingu
vegna sjónvarpsrekstrar. Uppfæra átti ADSL-
dreifikerfið fyrir um milljarð króna til þess að
flytja gagnvirkt sjónvarp. Samkvæmt heimildum
Markaðarins hefði hvort eð er þurft að uppfæra
það kerfi. Með því að bjóða upp á sjónvarpsefni í
gegnum flutningskerfið, eins og Enska boltann,
fengist meira út úr þeirri fjárfestingu.
Viðskiptaáætlanir Símans sýna, þrátt fyrir erf-
iða fjárhagsstöðu SkjásEins um síðustu áramót, að
veltan vegna sjónvarpsreksturs verði
907 milljónir króna á þessu ári. Árið
2003 var velta SkjásEins 596 milljónir
króna. Veltan á síðan að aukast ár frá
ári og verða 1.300 milljónir árið 2007
og um tveir milljarðar árið 2009.
Búið var að taka allar þessar
ákvarðanir varðandi rekstur Skjá-
sEins áður en Síminn var seldur,
þegar hann var enn í eigu ríkisins.
Heimildir Markaðarins herma að
erfitt sé að vinda ofan af þessari þróun eftir einka-
væðinguna. Forsvarsmenn núverandi eigenda hafi
sagt opinberlega að ekki standi til að breyta þess-
um áætlunum.
F R É T T I R V I K U N N A R
6 10-11 16
Á næstunni verður undirritaður
fríverslunarsamningur milli Fær-
eyja og Íslands. Samningurinn
mun ná yfir breiðara svið en aðrir
viðskiptasamingar hafa náð til
áður vegna þess að verslun með
landbúnaðarafurðir verður einnig
gefin frjáls. Íslendingar eru nú
tæp 300 þúsund og stækkar því
markaðurinn fyrir landbúnaðar-
afurðir um tuttugu prósent og
ættu aðilar í landbúnaði því að
brosa breitt.
Samningurinn verður undirrit-
aður 31. ágúst af Davíð Oddssyni
fyrir hönd Íslands en hann verður
þá staddur í opinberri heimsókn í
Færeyjum.
Stjórnvöld á Íslandi og Færeyj-
um vilja með fríverslunarsamn-
ingnum auka efnahagstengsl milli
landanna og samræma þróun í
efnahagsmálum og ætla að þróa
og auka samvinnu sín á milli á
öðrum sviðum.
Bæði Íslandi og Færeyjum er
þó heimilt að viðhalda takmörkun-
um á eignarhaldi erlendra aðila.
Íslendingum er heimilt að viðhalda
takmörkunum í geirum fiskveiða
og fiskvinnslu og í Færeyingum í
fiskveiðum og fiskeldi. - dh
Útrásarvísitalan lækkar:
Keops nýtt inn
Útrásarvísitalan lækkar milli
vikna um tæpt eitt prósent og er
hún nú í 115,84 stigum. Krónan
styrktist og þess vegna lækkar
útrásarvísitalan en gengishækk-
un félaganna vó þyngra en
gengislækkun þeirra.
Finnair hækkar mest, um
rúm 20 prósent. Þar á eftir
kemur Intrum Justitia sem
hækkar um tíu prósent milli
vikna. Keops, danskt fasteigna-
félag, kemur nú nýtt inn í útrás-
arvísitöluna og hækkar um tæp
átta prósent.
Markaðsvirði flestra félag-
anna í íslenskum krónum lækk-
ar þó milli vikna og lækkar BTC,
búlgarski síminn, mest eða um
tæp átta prósent. BTC hefur
lækkað um þrjú prósent frá
byrjun maí við upphaf útrásar-
vísitölunnar. Sjá síðu 6 / - dh
Síminn breytti skuld
SkjásEins í hlutafé
SkjárEinn átti ekki fyrir skuldum í byrjun árs. Stjórn Símans
ákvað að breyta 750 milljóna króna skuld SkjásEins í hlutafé.
Fríverslunarsamningur milli
Íslands og Færeyja brátt í höfn
Sala á landbúnaðarafurðum gefin frjáls en hömlur á eignarhaldi í sjávarútvegi.
HÖFNIN Í ÞÓRSHÖFN Búast má við
auknum viðskiptum milli Íslands og Fær-
eyja.
Blaðið og SkjárEinn eiga
tæpan helming hvort í Pyrit
fjölmiðlun ehf. sem rekur
útvarpsstöðvarnar KissFM
og X-FM. Síminn á því
einnig hlutdeild í útvarps-
rekstri í gegnum eignar-
hald sitt á SkjáEinum.
VILMA KRISTÍN ÁSAMT SYNINUM LEÓ
Vilma Kristín segist einungis geta unnið
rúmlega hálft starf meðan sonur hennar
kemst ekki að á frístundaheimili við grunn-
skóla hans í Grafarvogi.
Erfitt reynist að ráða stuðningsfulltrúa við frístundaheimili borgarinnar:
Ofvirk börn flurfa a› bí›a lengur
AF VETTVANGI ÁREKSTURSINS Vörubíllinn var lítið skemmdur eftir áreksturinn en strætis-
vagninn stórskemmdist. Ökumaður vörubílsins hefur heimsótt strætisvagnabílstjórann á
sjúkrahús.
Flugóhapp í Mosfellsdal:
Nau›lenti á
fiingvallavegi
NAUÐLENDING Lítil flugvél nauðlenti
á Þingvallavegi við Seljabrekku,
skammt ofan við Laxnes, í hádeg-
inu í gær. Lendingin gekk vel og
sakaði flugmanninn ekki, en hann
var einn í vélinni.
Flugvélin var eins hreyfils og
tveggja sæta og hafði fyrr um
morguninn verið flogið frá
Reykjavík til Hellu. Flugmaðurinn
var á leið til baka til höfuðborgar-
innar þegar hann tilkynnti um að
hreyfill vélarinnar hefði misst afl
og skömmu síðar um lendingu á
veginum.
Lið lögreglu og björgunarmanna
var sent á vettvang og ræstur var út
slökkvibíll og tveir sjúkrabílar auk
flugvallarbíls, sem þó fékk að snúa
við þegar í ljós kom að vélin hafði
lent heilu og höldnu. - ht
NAUÐLENTI Á VEGINUM Engan sakaði þegar lítil flugvél nauðlenti á Þingvallavegi við Laxnes um hádegisbil í gær.
Leiðakort Strætó hálfkák
Ingi Gunnar Jóhannsson landfræðing-
ur hefur gefið út huglægt kort fyrir
hið nýja leiðakerfi Strætó. Hann segir
auðveldara að rata eftir
sínu korti enda byggi
það á beinum línum
auk þess sem stoppi-
stöðvar beri nöfn.
TILVERAN 12
Kapítalistar allra landa...
Ólafur Hannibalsson
segir Hannes
Hólmstein
Gissurarson hafa
uppgötvað „leiðtoga
lífs síns“, Davíð
Oddsson, foringjann
mikla og
óskeikula.
SKOÐUN 18
Arnar og Bjarki ekki meira
með í sumar
Arnar Gunnlaugsson hætti í gær hjá
KR en hann hefur átt erfitt
uppdráttar í sumar, rétt
eins og bróðir hans Bjarki
sem í dag leggst undir
hnífinn í þriðja sinn á
tæpu ári vegna
meiðsla í ökkla.
ÍÞRÓTTIR 22
VEÐRIÐ Í DAG
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
G
VA