Fréttablaðið - 24.08.2005, Qupperneq 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,48 63,78
114,13 114,69
77,65 78,09
10,413 10,473
9,7 9,758
8,284 8,332
0,5765 0,5799
93,01 93,57
GENGI GJALDMIÐLA 23.08.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
108,6613 +0,01
4 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Formaður stjórnarskrárnefndar Íraks er svartsýnn:
Telur ólíklegt a› samkomulag náist
BAGDAD, AP Formaður stjórnar-
skrárnefndar Íraks telur þrjá
daga ekki nægja til að ná sam-
komulagi um stjórnskipan
landsins. Vera má að plaggið
verði borið undir þjóðaratkvæði
þrátt fyrir andstöðu súnnía.
Rétt áður en fresturinn til að
greiða atkvæði um stjórnar-
skrárdrögin á íraska þinginu
rann út síðastliðið mánudags-
kvöld var ákveðið að fresta af-
greiðslunni í um þrjá daga svo
að vinna mætti þeim fylgis á
meðal súnnía.
Humam Hammoudi, formað-
ur stjórnarskrárnefndarinnar,
viðurkenndi hins vegar í gær að
sá tími gæti reynst of naumur
þar sem um grundvallarágrein-
ing um stjórnskipunina væri að
ræða, einkum um hversu mið-
stýrt landið eigi að vera.
Þegar Hammoudi var
spurður hvernig höggvið yrði á
hnútinn næðist ekki sátt um
málið sagði hann enga
spurningu að „íraska þjóðin ætti
ráða“.
Fari hins vegar svo að Kúrd-
ar og sjíar samþykki hina nýju
stjórnarskrá sem súnníar geta
með engu móti fellt sig við eru
allar líkur á að rósturnar í land-
inu færist enn í vöxt og haldi
áfram um ókomna tíð. ■
Endursko›a ber skil-
yr›i gervihjónabanda
MANNRÉTTINDI Nefnd Sameinuðu
þjóðanna um afnám kynþáttamis-
réttis gerir athugasemd við það að
íslensk stjórnvöld skáru fyrr á
þessu ári niður framlög til Mann-
réttindaskrifstofunnar.
Í nýrri skýrslu nefndarinnar er
farið fram á að íslensk stjórnvöld
veiti frjálsum félagasamtökum
sem vinna gegn kynþáttamisrétti
stuðning til að tryggja sjálfstæði
þeirra og fjárhag.
Þess er getið að Ísland hafi
ekki tekið upp í landslög ákvæði
sáttmála um afnám kynþáttamis-
réttis og eru stjórnvöld hvött til
þess að ráða bót á því.
Fram kemur að nefndinni hafa
borist skýrslur um að flóttamenn
og hælisleitendur hafi ekki ávallt
fengið fullnægjandi afgreiðslu
mála þótt íslensk lögreglu- eða
landamærayfirvöld hafi fengið
leiðsögn um alþjóðleg mannrétt-
indi og lög um flóttamenn.
Nefndin telur æskilegt að ís-
lensk stjórnvöld endurskoði
ákvæði um 24 ára aldursmark til
dvalarleyfis þegar giftingaraldur
er 18 ár. Hún mælir með að skil-
yrði svonefndra gervihjónabanda
verði endurskoðuð.
Fjallað er um skammtíma at-
vinnuleyfi í skýrslunni og talin
hætta á brotum gegn réttindum
erlendra farandverkamanna með
því að binda atvinnuleyfi við at-
vinnurekendur fremur en launa-
mennina sjálfa. Sérstök hætta er
talin vera á brotum sem lúta að
aðstæðum á vinnustað og starfs-
kröfum.
Vakin er athygli á því að ekki
er starfrækt á Íslandi mannrétt-
indastofnun og eru stjórnvöld
hvött til þess að koma á fót slíkri
stofnun sem starfi í anda Parísar-
sáttmálans.
Nefnd Sameinuðu þjóðanna
fagnar því að Íslendingar hafi
undanfarið staðfest fjölda samn-
inga og sáttmála, meðal annars
um réttindi barna. Þá hafi réttur
fólks af erlendum uppruna verið
treystur með lögum. Slíkar réttar-
bætur hafi meðal annars orðið til
þess að um eitt þúsund innflytj-
endur gátu nýtt sér kosningarétt í
sveitarstjórnarkosningunum árið
2002. johannh@frettabladid.is
FLÓÐ Í FRAZTANZ Ekki næst símasamband
við sum þorpanna þar sem aurskriður hafa
slitið í sundur jarðstrengi.
Flóð í Mið-Evrópu:
Fimm látist
í vonskuve›ri
AUSTURRÍKI, AP Björgunarmenn
hjálpuðu hundruðum íbúa að yfir-
gefa heimili sín á flóðasvæðum í
Austurríki og suðurhluta Þýska-
lands. Einnig byggðu þeir sand-
pokavirki meðfram ám sem flætt
höfðu yfir bakka sína.
Í gær hafði heyrst af fimm ein-
staklingum sem höfðu látist í flóð-
unum í Austurríki, Búlgaríu og
Sviss. Sérfræðingar segja ástandið
mjög alvarlegt, sérstaklega þar sem
ekki er hægt að ná sambandi við
sum þorpin sem verst hafa orðið úti,
en þar hafa aurskriður slitið í sund-
ur jarðstrengi. Áin Inn hefur hækk-
að um 30 sentimetra í flóðunum. ■
GUÐNI ÁGÚSTSSON LANDBÚNAÐARRÁÐ-
HERRA Gróðursetti fimmtán milljónustu
trjáplöntuna í Landgræðsluskógum lands-
ins í gær.
Landgræðsluskógar 15 ára:
Milljónir trjáa
gró›ursettar
SKÓGRÆKT „Þetta er stór áfangi sem
skógræktarfélögin hafa fyrst og
fremst unnið að,“ segir Brynjólfur
Jónsson, framkvæmdastjóri Skóg-
ræktar Íslands. Fimmtán milljónir
plantna hafa verið gróðursettar í
Landgræðsluskógum landsins síð-
astliðin fimmtán ár.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra gróðursetti fimmtán millj-
ónustu trjáplöntuna í gær við hátíð-
lega athöfn. „Okkur þótti rétt að
efna til fagnaðar enda eru skógarn-
ir orðnir mjög áberandi í náttúru
landsins og farnir að gegna mikil-
vægu hlutverki í útivistarlífi lands-
manna,“ segir Brynjólfur. - ht
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Í skólann á ný
Skólataska
Verð 2.990kr.
VEÐRIÐ Í DAG
M
YN
D
/A
P
UGGANDI UM SINN HAG Það eru ekki ein-
ungis súnníar sem hafa efasemdir um
stjórnarskrárdrögin. Yanar Mohammed,
leiðtogi einnar helstu kvennahreyfingar
Íraks (til hægri), telur íslamskar áherslur
stjórnarskrárinnar konum mjög í óhag.
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Rétta› yfir
ræningjum
DÓMSMÁL Réttað var í gær yfir
tveimur mönnum, 42 og 18 ára göml-
um, í Héraðsdómi Reykjavíkur
vegna ránstilraunar við Hamars-
gerði í Reykjavík í mars í fyrra. Þar
réðust þeir á mann með trékylfu og
slógu hann ítrekað með henni og
krepptum hnefa. Heimtuðu mennirn-
ir peninga, en flúðu af vettvangi
þegar íbúi kom út úr húsinu. Þeir
þekktu ekki til fórnarlambs síns.
Eldri maðurinn er einnig ákærður
fyrir að hafa haft í fórum sínum 1,7
grömm af amfetamíni, 0,3 grömm af
kannabis og ellefu e-töflur, þegar lög-
regla tók hann síðar sama dag.
Maðurinn sem ráðist var á krefst
tæplega 750.000 króna í bætur. - óká
M
YN
D
/A
P
Forseti Tékklands:
Vill auka vi›-
skipti vi› Ísland
FORSETAHEIMSÓKN Síðari dagur opin-
berrar heimsóknar Václav Klaus,
forseta Tékklands, hófst með fundi
með Halldóri Ásgrímssyni í Ráð-
herrabústaðnum. Á fundinum var
rætt um samskipti ríkjanna og voru
þeir sammála um að auka enn frek-
ar viðskipti milli þeirra. Þá ræddu
þeir málefni Sameinuðu þjóðanna
og Evrópusambandsins.
Áður en Halldór bauð Klaus til
hádegisverðar á Þingvöllum fór for-
seti Tékklands að skoða aðstæður
að Nesjavöllum. Deginum lauk
síðan með skoðunarferð um Gull-
foss og Geysi. - ss
Slasaður vagnstjóri:
Söfnun hafin
SÖFNUN Strætisvagnabílstjórar hjá
Strætó hafa hrundið af stað söfn-
un fyrir bílstjórann sem slasaðist
alvarlega við árekstur síðastlið-
inn föstudag. Þá er undirskriftum
safnað hjá bæjarskrifstofum á
höfuðborgarsvæðinu og hjá
nokkrum rútufyrirtækjum þar
sem starfsmenn samþykkja að
dregin verði tiltekin upphæð af
launum þeirra.
Fyrir þá sem vilja leggja söfn-
uninni lið er reikningsnúmerið
0537-14-607300 og kennitalan
500501-3160. - hb
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Nefnd Sameinu›u fljó›anna um afnám kynfláttamisréttis finnur a› ni›ur-
skur›i til Manréttindaskrifstofunnar. Einnig eru ger›ar athugasemdir vegna
afgrei›slu stjórnvalda á málum flóttamanna og hælisleitenda.
MANNRÉTTINDI OG KYNÞÁTTAMISRÉTTI Flóttamenn frá Júgóslavíu á Akureyri í mars 2003.