Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 6
6 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
LEIT Hollenska skútan Daisy, sem
leitað hafði verið síðan á laugardag,
fannst snemma í gærmorgun um
160 mílur suðvestur af Reykjanesi.
Skipstjóri skútunnar er þýskur en
auk hans voru tveir aðrir um borð.
Engan skipverja sakaði.
Neyðarbauja sem féll útbyrðis í
vonskuveðri á laugardag gaf frá
sér neyðarkall um hundrað sjómíl-
ur norðaustur af Hvarfi á Græn-
landi. Í kjölfarið var farið að
grennslast fyrir um skútuna og fór
norskur togari sem var í grennd-
inni til leitar á svæðinu án árang-
urs.
Liðsinnis nágrannaríkjanna var
leitað þar sem staðsetning neyðar-
kallsins var langt utan drægi
þyrlna Landhelgisgæslunnar og
ekki var mögulegt að senda út ís-
lenskar flugvélar til leitar. Þyrla
frá Grænlandi og vél frá breska
flughernum fóru því til leitar um
helgina en það var danska varð-
skipið Vædderen sem fann skútuna
í gærmorgun.
Skútan er talin hafa lagt upp frá
Grænlandi snemma í síðustu viku á
leið til Reykjavíkur. Daisy hélt för
sinni hingað til lands áfram í gær
og er væntanleg til hafnar í Reykja-
vík síðdegis í dag. - ht
NOREGUR Verkamannaflokkurinn
hefur allgóða forystu í skoðana-
könnunum þegar rétt tæpar þrjár
vikur eru til þingkosninga í Noregi.
Jens Stoltenberg, leiðtogi hans,
gegndi embætti forsætisráðherra í
eitt ár áður en núverandi forsætis-
ráðherra, Kjell Magne Bondevik
leiðtogi Kristilega þjóðarflokksins,
tók við embætti árið 2001. Nú lítur
því út fyrir að Stoltenberg endur-
heimti embættið.
Verkmannaflokkurinn mælist
með 25-30 prósenta fylgi á meðan
ríkisstjórnarflokkarnir mælast með
svipað fylgi samanlagt. Allt lítur því
út fyrir að samsteypustjórn Bonde-
vik, sem í sitja, auk Kristilega þjóð-
arflokksins, Íhaldsflokkurinn og
hinn frjálslyndi Venstre, muni falla
í kosningunum. Búist er við að
Verkamannaflokkurinn, sósíalistar
og Miðflokkurinn myndi ríkisstjórn
að kosningunum loknum.
Kristilegi þjóðarflokkurinn
reynir að lokka kjósendur til sín á
lokasprettinum með því að viður-
kenna þau mistök sem hann hefur
verið sakaður um og lofa að gera
betur. Þannig hefur Kjell Magne
Bondevik lofað að bæta hag fá-
tækra Norðmanna, sem hann hefur
verið gagnrýndur fyrir að gleyma.
- oá
Sögulegum brottflutningi
landtökumanna er loki›
SANUR, AP Sögulegum brottflutningi
ísraelskra landtökumanna af svæð-
um Palestínumanna lauk í gær
þegar tvær byggðir á Vesturbakk-
anum voru rýmdar. Flutningarnir
tóku aðeins fjórðung af þeim tíma
sem upphaflega var búist við og
átök vegna þeirra urðu mun minni
en óttast var.
Í gær réðust 6.000 ísraelskir
hermenn inn í tvær landnema-
byggðir á Vesturbakkanum, Sanur
og Homesh, en vitað var þar hefðu
um 1.600 manns hreiðrað um sig til
að mótmæla rýmingunni. Vestur-
bakkinn hefur mun meira sögulegt
og trúarlegt gildi í augum gyðinga
en Gaza-ströndin og því var búist
við heiftúðugum átökum á milli
hermanna og öfgaþjóðernissinna.
Fyrst í stað sýndu mótmælendurn-
ir nokkurt viðnám en þeir máttu
sín lítils gegn fílefldum hermönn-
unum. Níu klukkustundum eftir að
hermenn réðust til inngöngu höfðu
allir mótmælendurnir verið fjar-
lægðir.
Íbúar Ganim og Kadim, hinna
landnemabyggðanna tveggja sem
rýma átti á Vesturbakkanum, höfðu
þegar haft sig á brott og því var
þegar hafist handa við að rífa hús í
báðum kjörnunum í gær. Þar með
hefur rýming byggðanna 25 aðeins
tekið eina viku en reiknað var með
að aðgerðirnar stæðu yfir í heilan
mánuð hið minnsta.
Mahmoud Abbas, forseti
palestínsku heimastjórnarinnar,
hringdi í Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra Ísraels, í gær og óskaði
honum til hamingju með „hug-
rakka og sögulega“ ákvörðun.
Abbas stakk upp á að friðarvið-
ræðurnar yrðu teknar fljótlega
upp að nýju og varð leiðtogunum
að samkomulagi að hittast við
fyrsta tækifæri.
Landnemabyggðirnar fjórar
eru aðeins brot af hverfum Ísra-
ela á Vesturbakkanum en þar
búa alls 240.000 Ísraelsmenn.
Margir álíta að með rýmingu
byggðanna á Gaza og þessara
fjögurra á Vesturbakkanum ætli
ísraelska ríkisstjórnin að herða
enn frekar tökin á þeim svæðum
sem Ísraelar byggja á þessum
slóðum. sveinng@frettabladid.is
Aukin útþrá Dana:
Spánn heillar
DANMÖRK Fimmti hver Dani á
fullorðinsaldri getur hugsað sér
að flytja til útlanda. Þetta
kemur fram í niðurstöðum
nýrrar skoðanakönnunar.
Hlutfallið er enn hærra þegar
námsmenn eru spurðir en
helmingur þeirra stefnir á
búsetu i öðru landi.
Spánn er það land sem heillar
Dani öðrum fremur. Samkvæmt
opinberum tölum flytjast hins
vegar flestir Danir til Svíþjóðar.
Þessi aukna útþrá skýrist að
mestu af áhuga ungra Dana á að
ganga mennta sig og starfa á
erlendri grundu. Eldri kynslóð-
ir telja síður að flutningur út
fyrir landsteinana sé vænlegur
kostur. ■
Er FH-liðið besta fótboltalið
Íslandssögunnar?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú áhyggjur af manneklu
á leikskólum?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
76%
24%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
OPIÐ HÚS
Laugardaginn 27. ágúst kl. 13-16
Tölvunám eldri borgara
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
Grunnur
30 kennslustunda byrjendanámskeið fyrir 60 ára og eldri. Engin
undirstaða nauðsynleg, hæg yfirferð með þolinmóðum kennur-
um. Á námskeiðinu er markmiðið að þátttakendur verði færir
að nota tölvuna til að skrifa texta, setja hann snyrtilega upp
og prenta, fara á internetið, taka á móti og senda tölvupóst.
Kennsla hefst 6. september
og lýkur 27. september.
Kennt er þriðjudaga
og fimmtudaga kl 13 - 16.
Verð kr. 19.500,-
Vegleg kennslubók innifalin.
Framhald I
30 kennslustunda námskeið, hentar þeim sem lokið hafa
byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu.
Byrjað er á upprifjun áður en haldið er lengra í Word.
Framhaldsæfingar í Internetinu og tölvupósti auk þess sem
stafrænar myndavélar verða kynntar.
Kennsla hefst 5. september og lýkur 26. september. Kennt er
mánudaga og miðvikudaga kl 13 - 16. Verð kr. 19.500,-
Framhald II
30 kennslustunda námskeið ætlað þeim sem lokið hafa fyrra
framhaldsnámskeiðinu eða hafa sambærilegan grunn og
vilja enn meiri þekkingu og þjálfun. Byrjað er á upprifjun og
svo er haldið áfram og kafað dýpra.
Kennsla hefst 5. september og lýkur 26. september. Kennt er
mánudaga og miðvikudaga kl 13 - 16. Verð kr. 17.000,-
SKÚTA Neyðarkall barst frá skútunni vegna
neyðarbauju sem féll útbyrðis í vondu
veðri. Myndin er úr safni.
M
YN
D
/I
FA
W
Leitað var að hollenskri skútu síðan á laugardag:
Fannst su›vestur
af Reykjanesi
KRÆKIBER Bláber og krækiber voru víða
vel þroskuð á Vestfjörðum fyrir hálfum
mánuði.
Góð berjaspretta víðast hvar:
Man ekki eftir
ö›ru eins sumri
BERJASPRETTA Útlit er fyrir gott
berjaár og víða er bláberjaspretta
með eindæmum góð.
Ingólfur Kjartansson á Tálkna-
firði segir berjasprettu góða úti
með Snæfjallaströnd, en hann er
staðarhaldari í Dalbæ í Unaðsdal
yfir sumartímann. „Ég man ekki
eftir öðru eins bláberjasumri og nú.
Einnig er nóg af krækiberjum. Það
á líka við um aðalbláberin en þau
þroskast óvenju seint.“ Fregnir
berast af góðri berjasprettu víðar,
meðal annars á Norðurlandi. - jh
Innflytjendur berjast:
Tveir fengu
skot í sig
KAUPMANNAHÖFN Tveir ungir menn
særðust í uppgjöri tveggja hópa
innflytjenda í Kaupmannahöfn í
fyrrakvöld.
Tvö skot hlupu úr byssu sem
höfð var um hönd, að því er virðist
fyrir slysni. Lentu þau í tveimur
félögum byssumannsins, í hönd
annars en í nára hins. Sár þeirra
voru hins vegar ekki alvarleg. Hóp-
arnir hittust vegna orðróms um
lauslæti systur eins úr öðrum hópn-
um. Vildi bróðir hennar vernda
heiður fjölskyldunnar með því að
útkljá málið við hinn hópinn. ■
JENS STOLTENBERG Allt lítur nú út fyrir að
hann verði aftur forsætisráðherra í Noregi.
Tæpar þrjár vikur til þingkosninga í Noregi:
Miklar líkur á a›
stjórn Bondevik falli
R‡mingu 25 landnemabygg›a á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni lauk í
gær. firátt fyrir mikla andstö›u á me›al heittrúa›ra gy›inga kom til mun
minni átaka en óttast haf›i veri›.
UNGUR MÓTMÆLANDI 6.000 ísraelskir hermenn í fullum herklæðum bjuggust við hinu
versta þegar þeir réðust til inngöngu í Sanur- og Homesh-byggðirnar í gær. Brottflutningur
landtökumanna gekk þó að mestu snurðulaust fyrir sig.
GAZA
STRIP
I S R A E L
LÖGREGLUFRÉTTIR
VELTI BÍL Í LAUSAMÖL Ung frönsk
kona slapp ómeidd eftir að bíla-
leigubíll sem hún ók hafnaði utan
vegar og valt í Breiðdal laust eftir
hádegi á mánudag. Konan, sem var
ein í bílnum, missti stjórn á bifreið-
inni í lausamöl.