Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 8
1Hvar á landinu hafa stöðumælarverið lagðir af? 2Hvaða borg í Portúgal er í hættuvegna skógarelda? 3Til hvaða liðs hefur fótboltamaðurinnMilan Baros verið seldur? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR Dauði Brasilíumannsins de Menezes í Lundúnum: Misvísandi uppl‡singar um myndavélar LUNDÚNIR Fregnum ber ekki sam- an af því hvort öryggismyndavél- ar á Stockwell-neðanjarðarlestar- stöðinni í Lundúnum hafi verið í lagi daginn sem Brasilíumaðurinn Jean Charles de Menezes var skotinn af lögreglunni. Breska blaðið The Independent segir að lögreglan hafi skýrt rannsóknarnefndinni sem rannsakar tildrög málsins frá því að engin af öryggismynda- vélunum á lestarstöðinni hafi ver- ið í lagi og því væru engar mynd- ir til af atburðinum. Í skjali frá lögreglu til nefndarinnar segir að allar myndavélar hafi verið skoð- aðar en vegna tæknilegra vanda- mála væru engar myndir til. Talsmenn fyrirtækisins sem reka neðanjarðarlestir Lundúna sendu aftur á móti frá sér yfir- lýsingu þar sem segir að þeir viti ekki af neinum bilunum í eftirlits- myndavélum í Stockwell-lestar- stöðinni daginn sem de Menezes var skotinn. Óháð rannsóknarnefnd lög- reglunnar tilkynnti í gær að niðurstöður athugana hennar á málinu myndu liggja fyrir um jólaleytið. Skýrsla nefndarinnar verður hins vegar ekki gerð opin- ber fyrr en búið er að fjalla um málið innan aganefndar lögregl- unnar og hjá dómstólum. - sda Íslendingur við störf í Novosibirsk í Síberíu: Fuglaflensan truflar mig ekki HEILBRIGÐISMÁL „Fuglaflensan hefur engin áhrif á mig og líf mitt. Ég borða bara svínakjöt, nauta- kjöt og salat í staðinn fyrir kjúkling,“ segir Steingrímur Ólafsson iðnrekstrarfræðingur, sem er við vinnu í Síberíu. Steingrímur sagði í Morgun- útvarpi Talstöðvarinnar í gær- morgun að almenningur í Síberíu hefði varann á en menn væru ekki hræddir. „Maður sér ekki að fólk sé neitt skelkað yfir þessu,“ sagði hann. „Annars er kerfið hérna eins vel í stakk búið til að takast á við svona vandamál og hægt er. Eitt af þremur bestu sjúkrahúsum landsins er hér og byrjað var að undirbúa aðgerðir áður en smit kom upp vegna nálægðar við þau lönd þar sem veikinnar hefur orðið vart.“ Íbúar í Síberíu borða mikið kjúklingakjöt en Steingrímur segir að stórlega hafi dregið úr neyslu á því frá því að fuglaflens- an greindist í Síberíu í júlí. Á þeim veitingastöðum sem hann sækir er ekki lengur boðið upp á kjúklingakjöt. -ghs Rannsókn á fuglaflensu tefst vegna fjárskorts Yfird‡ralæknir sótti um fjárveitingu upp á eina og hálfa milljón króna í maí til fless a› rannsaka hugsan- lega fuglaflensu í fuglum hér á landi. Umsóknin hefur ekki veri› afgreidd enn. Sérfræ›ingur í smitsjúk- dómum fugla segir liggja á a› hra›a rannsókn ekki síst í ljósi stö›unnar erlendis. HEILBRIGÐISMÁL Dráttur stjórn- valda á afgreiðslu fjárveitingar upp á eina og hálfa milljón króna hefur hamlað því að rannsókn á hugsanlegri fuglaflensu í alifugl- um og vatnafuglum geti hafist. Embætti yfirdýralæknis sótti um fjárveitinguna til þess að hrinda rannsókninni af stað í maí síðast- liðnum. Enn bólar ekkert á fjár- veitingunni. „Það er þörf á að kanna ástand- ið í fuglum hér, bæði villtum fugl- um og alifuglum,“ segir Jarle Rei- ersen, sérfræðingur í fuglasmit- sjúkdómum. „En það hefur verið eitthvað stirt í að finna fjármuni þessa. Mér skilst þó að þetta sé að leysast þannig að við getum gert þetta. Með slíkri rannsókn er hægt að kortleggja stöðuna hér og fínslípa þær aðgerðir sem við þurfum að grípa til. Við hefjum þessa rannsókn um leið og fjár- munir eru fyrir hendi. Það liggur auðvitað á að hraða henni í ljósi þess sem er að gerast erlendis.“ Ýmsar Evrópuþjóðir, til að mynda Hollendingar, Bretar og Þjóðverjar, óttast nú svo mjög fuglaflensuna að þeir hafa þegar gripið til eða eru að undirbúa varnaraðgerðir gegn henni. „Með farfuglum dreifist flens- an vestur eftir og þá er áhyggju- efni hvernig staðan verður hjá okkur,“ segir Jarle. „Þeir koma þó ekki hingað á þessum tíma árs. Hænsnfuglar í lausagöngu utan dyra eru miklu móttækilegri fyrir alls konar smiti sem berst með farfuglum. Með því að hafa smit- varnir í lagi og fugla innan dyra er sú hætta takmörkuð eins og kostur er. Hér á landi eru lang- flestir alifuglar haldnir innan dyra. Það eru einungis landnáms- hænur, aliendur og slíkir fuglar sem eru utan dyra.“ Jarle segir smitvarnir hér í góðu lagi eftir herferðina gegn kamfýlóbakter. Þá hjálpa lög og reglur um innflutning dýra og kjöts við að standa gegn almenn- um smitsjúkdómum. „Það verður tekið á þessu máli í heild,“ segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir um fjárveitinguna og vísar til starfandi ráðherra- nefndar um varnir gegn fuglaflensu.“ Það koma engir far- fuglar í haust, en viðbúnaður þarf að vera klár þegar þeir fara að koma næsta vor.“ jss@frettabladid.is Trúarskólar umdeildir: Flestir Bretar á móti fjölgun BRETLAND Tveir þriðju hlutar Breta eru mótfallnir áformum ríkisstjórnarinnar um að fjölga skólum reknum af trúfélögum í landinu, samkvæmt skoðana- könnun sem breska blaðið The Guardian lét vinna. Tilgangur- inn er að fjölga valkostum í skólakerfinu. Tillögur ríkisstjórnarinnar miða að því að auka styrki til slíkra skóla verulega í því skyni að auðvelda þeim að starfa inn- an ríkisrekna skólakerfisins. Þeir sem gagnrýnt hafa þetta óttast að það muni leiða til frek- ari aðskilnaðar innan sam- félagsins og koma í veg fyrir að börn kynnist ólíkum menningar- samfélögum í uppvexti sínum. ■ SVÍÞJÓÐ UPPSAGNIR HJÁ VOLVO Forsvarsmenn bílaverksmiðja Volvo í Svíþjóð hafa ákveðið að fækka starfsmönnum verulega. Er áformað að segja upp á milli 1.000 og 1.500 manns, flestum í verksmiðjunum í Gautaborg. Ástæðurnar eru meðal annars sagðar vera lágt gengi Banda- ríkjadals og aðrir erfiðleikar í rekstri. Stjórnendur Volvo segja nauðsynlegt að spara um einn milljarð sænskra króna í rekstri verksmiðjanna. Laugardaga 10 - 18 Sunnudaga 12 - 18 Nýr opnunartími virka daga 10 -20 LÍKIÐ Á GÓLFI LESTARVAGNSINS Þessi mynd birtist í fréttum ITV-sjónvarpsstöðvarinnar og er eina myndin af atburðinum sem birst hefur opinberlega. Lögreglan segir að allar myndavélar lestarstöðvarinnar hafi verið bilaðar en lestarfyrirtækið neitar því. ÓTTALAUS Í SÍBERÍU Steingrímur Ólafsson iðnrekstrarfræðingur ásamt samstarfsmanni í Síberíu. Hann segir að fuglaflensan sem þar geisar hafi engin áhrif á sig. FUGLABRENNUR Alifuglabændur í Rússlandi hafa eytt heilu fuglabúunum eftir að fuglaflensa kom þar upp. Myndin er tekin af hænsnabrennu þar í landi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.