Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 10
10 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR Vaxandi andstaða í Bandaríkjunum við hernaðinn í Austurlöndum: Bush ætlar a› ljúka verkefninu BANDARÍKIN Enginn áform eru uppi um að draga úr herafla Banda- ríkjamanna í Írak og Afganistan. George W. Bush Bandaríkjaforseti minntist tvö þúsund fallinna her- manna í ræðu í Salt Lake City í fyrrakvöld. Eftir því sem fleiri hermenn falla í Austurlöndum vex andstað- an við hernaðinn í Bandaríkjunum. Í ræðu sinni á landsráðstefnu fyrr- verandi hermanna í Salt Lake City í Utah á mánudagskvöldið lofaði Bush þær fórnir sem tvö þúsund hermenn í Írak og Afganistan hafa fært með lífi sínu. Hann ítrekaði aftur á móti að herir landsins yrðu ekki kallaðir heim frá þessum löndum þrátt fyrir vaxandi þrýst- ing. „Þeir eiga það inni hjá okkur að við ljúkum við það verkefni sem þeir gáfu líf sitt fyrir.“ Bush minntist ekki á Cindy Sheehan, móður bandarísks her- manns sem féll í Írak, en hún tjald- aði fyrir utan búgarð forsetans og heimtaði að fá að hitta hann. Stuðn- ingsmenn Sheehan héldu fund í Salt Lake City á sama tíma og Bush ávarpaði hermennina en þeir létu sér fátt um finnast um orð hans. „Það særir mig að heyra að fleira fólk verði að deyja þar sem þegar eru margir látnir,“ sagði Celeste Zappala frá Fíladelfíu, en sonur hennar féll einnig í Írak. -shg Félag leikskólakennara segir öllum frjálst að sækja um: Eldra fólk velkomi› til starfa á leikskólum LEIKSKÓLAR „Fyrst og fremst er auglýst eftir kennurum til starfa,“ segir Björg Bjarnadóttir, formað- ur Félags leikskólakennara. „Ef ekki tekst að fá kennara í öll störf verður hins vegar að ráða leið- beinendur og ég veit ekki annað en öllum sé frjálst að sækja um þau störf óháð aldri.“ Mikil mannekla hefur orðið til þess að hugmyndum um að ráða eldra fólk til starfa á leikskólum hefur verið velt upp. Össur Skarp- héðinsson alþingismaður ritaði grein þess efnis á heimasíðu sína auk þess sem sviðsstjóri Mennta- sviðs og formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar hafa bæði orðað hugmyndir í þessa veru í fjölmiðlum. „Aldur skiptir ekki höfuðmáli ef fólk hefur áhuga á því að starfa á leikskólum og hefur þar eitt- hvað til brunns að bera,“ segir Björg. „Ég er viss um að umsókn- ir eru skoðaðar með jákvæðum huga sama hvaða aldurshópur á í hlut, þó að auðvitað sé ekki alveg allra að starfa á leikskólum.“ - ht Banna› a› spyrja um arfgenga sjúkdóma Viltu PSP? Aðalvinningur er PSP + 4 leikir! × DVD myndir × × Kippur af Coca Cola × BT C PS V 19 00 ! × Sv ar að u ein ni sp ur ni ng u um × Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 1 49 k r/ sk ey tið . * A ða lv in ni ng ur e r d re gi n úr ö llu m in ns en du m S M S sk ey tu m Á RÁÐSTEFNU FYRRVERANDI HERMANNA Sjaldgæft er að forsetinn tiltaki sérstaklega hversu margir Bandaríkjamenn hafi fallið í átökum enda er það viðkvæmt pólitískt mál. BJÖRG BJARNADÓTTIR Formaður Félags leikskólakennara er þess fullviss að um- sóknum allra aldurshópa um störf á leik- skólum verði vel tekið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R TRYGGINGAR Tryggingafélögum verður óheimilt, frá og með næstu áramótum, að óska eftir upplýs- ingum um arfgenga sjúkdóma foreldra og systkina þeirra sem sækjast eftir líf- og sjúkdóma- tryggingum. Þetta kemur fram í niðurstöðu Persónuverndar um öryggi vinnslu hjá trygginga- félögum sem unnin var vegna nýrra laga um vátryggingasamn- inga sem taka gildi 1. janúar. Niðurstaða barst trygginga- félögunum í síðustu viku og er enn verið að skoða hvaða áhrif þetta mun hafa á líf- og sjúkdóma- tryggingar. Þorvarður Sæmunds- son, framkvæmdastjóri Lífís, segir að ef þetta verði niðurstaðan muni þeir aðilar sem ekki hafa fjölskyldusögu hugsanlega þurfa að borga hærra iðgjald. „Áhættu- matið verður ekki eins nákvæmt og ella og áhættan dreifist því víð- ar.“ Þorvarður segir að farið verði eftir tilmælum Persónuverndar. Vegna þessara úrskurðar mun Lífís taka við vátryggingabeiðn- um þar sem þessum upplýsingum er sleppt. Einnig er líklegt að iðgjald líf- og sjúkdómatrygginga hjá Tryggingamiðstöðinni muni hækka, að sögn Péturs Péturs- sonar, upplýsingafulltrúa Trygg- ingamiðstöðvarinnar. „Í grund- vallaratriðum erum við ósam- mála Persónuvernd og teljum þetta í ósamræmi við vátrygg- ingalög sem taka gildi um næstu áramót. Við munum leita leiða til að fá þessu breytt og munum skoða hvort farin verði dómstóla- leið eða leitað til æðra stjórn- valds.“ Þegar sótt er um líf- eða sjúk- dómatryggingu í dag er óskað eftir upplýsingum um heilsufar foreldra og systkina. Meðal ann- ars er spurt um hjarta- eða æða- sjúkdóma, geðsjúkdóma, krabba- mein og aðra sjúkdóma sem gætu verið arfgengir. Þórður Sveins- son, lögfræðingur hjá Persónu- vernd, segir að leyfilegt verði að afla upplýsinga um heilsufar skyldmenna sem ekki tengjast arfgengum þáttum, sé þess gætt að fá samþykki skyldmennana. Hins vegar hljóti að vera leitað eftir slíkum upplýsingum til að kanna hættu á arfgengum sjúk- dómum, sem verði óleyfilegt. svanborg@frettabladid.is STRANDLÍF Fjöldi fólks hefur flatmagað á nýju ströndinni undanfarna daga. Fjölbreytt strandlíf: N‡ ba›strönd á Amager KAUPMANNAHÖFN Amager strand, ný baðströnd í Kaupmannahöfn, var tekin í notkun um liðna helgi. Á þessum stað hefur verið bað- strönd um langt skeið en stórfelldar endurbætur hafa staðið þar yfir. Gerð hefur verið þriggja kílómetra löng eyja út frá gömlu baðströnd- inni og á milli strandarinnar og eyj- unnar er nú stórt lón. Samanlögð lengd baðstrandarinnar er 4,6 kíló- metrar. Framkvæmdir hafa staðið yfir í fjórtán mánuði og kostnaður við þær er um tveir milljarðar ís- lenskra króna. ■ Persónuvernd telur a› samkvæmt n‡jum vátryggingalögum ver›i trygginga- félögum banna› a› óska eftir uppl‡singum um arfgenga sjúkdóma. Trygginga- félögin segja i›gjöld munu hækka. Tryggingami›stö›in íhugar málaferli. HUGSANLEGA TRYGGÐ Persónuvernd segir að tryggingafélög megi ekki spyrja þá sem vilja líf- eðs sjúkdómatryggingu hvort foreldrar eða systkini hafi haft arfgenga sjúkdóma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.