Fréttablaðið - 24.08.2005, Side 12

Fréttablaðið - 24.08.2005, Side 12
„Akkúrat í dag er hálfur mánuður síðan ég var skorinn upp á hné,“ segir Magnús Ver Magnússon, sem legið hefur með fótinn upp í loftið eftir að hann var gerður óvígur í súluglímu á mótinu Austfjarðatröllinu á dögun- um. „Ég er nú farinn að fara aðeins um en er enn með fótinn alveg beinan í spelku,“ segir Magnús, sem er léttur í lund þrátt fyrir hrakföllin. Hann hefur nýtt tímann til þess að fara yfir ýmis mál sem setið hafa á hakanum í sumar vegna anna í mótahaldi. Það er að vonum erfitt fyrir karlmenni eins og Magnús Ver að liggja kyrr í lengri tíma. „Þetta er óþol- andi,“ segir hann hlæjandi en hann verður með spelku næstu sex vikur og hoppar því um á einni hækju eitthvað áfram. Það er þó ólíklegt að það muni halda aftur af þessum orkubolta sem starfar sem mótshaldari, einkaþjálfari og sölumaður öryggiskerfa fyrir Öryggismiðstöð Íslands. Þessa dagana vinnur Magnús að því að setja upp mótið „Sterkasti fatl- aði maðurinn“, sem haldið verður á næstunni. Magnús segist síður en svo þreyttur á því að halda mót og keppa á þeim. „Ég væri ekki að þessu ef mér þætti þetta ekki skemmtilegt,“ segir hann og hlær smit- andi hlátri. „Ég mun aldrei geta hætt að æfa,“ segir Magnús, sem æfir yfirleitt í þrjá tíma, fimm sinnum í viku, og finnst það skemmtilegasti hluti sportsins. 12 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR Lei›akort Strætó er hálfkák Ingi Gunnar Jóhannsson landfræðingur hefur hann- að eigið kort af nýju leiðakerfi Strætó. Hann hyggst gefa kortið út sjálfur ef ekki semst við Strætó um samstarf. „Ég leitaði samstarfs við Strætó fyrir tæpum fjórum árum þegar ljóst var að hanna ætti nýtt leiða- kerfi,“ segir Ingi Gunnar Jó- hannsson, landfræðingur og kortagerðamaður. Hann hefur í samvinnu við Auglýsingastofu Þórhildar hannað svonefnt hug- lægt kort af nýja leiðakerfinu en slík kort eru mörgum kunn úr leiðakerfum jarðlesta evrópskra stórborga. Þrátt fyrir ágætar viðtökur hjá Strætó hefur ekki fengist grænt ljós á samstarf um útgáfuna. Ingi Gunnar taldi sig vera á beinni og breiðri braut þegar hugmyndir hans voru notaðar til frumkynn- ingar nýja leiðakerfisins fyrir al- menningi í september á síðasta ári. Nú virðast ljón í veginum og hefur Strætó gefið út annað leiða- kort. Það kallar Ingi Gunnar hálf- kák sem nýtist strætófarþegum illa. Munurinn á huglægum kortum og hefðbundnum er sá að ekki er sýnt það eiginlega svæði sem kortið nær yfir, beygjur og réttar fjarlægðir víkja fyrir einfaldleika beinna lína. Lykilatriðið er að nafngreina stoppistöðvar og sýna glögglega hvar leiðir mætast. „Með svona kort í höndunum getur notandinn hoppað upp í vagn og hringsólað um borgina og það án þess að týnast heldur veit hann þvert á móti alltaf hvar hann er.“ Ingi Gunnar nefnir einnig sem mikilvægan kost huglægra korta að fólk þurfi ekki að kunna sér- stök skil á borginni sem ferðast er um. „Með kortið í höndunum og vel merktar stoppistöðvar gengur þetta upp, alveg eins og í París, Róm og Hamborg eða bara hvar sem er. Svona ferðast menn á 21. öldinni og gerðu reyndar líka á þeirri tuttugustu.“ Ingi Gunnar hefur hannað og gefið út huglægt kort fyrir leiða- kerfi langferðabíla landsins og er því dreift árlega í sextíu þúsund eintökum til ferðamanna. Útgáfan er kostuð með auglýsingum á kort- inu. Hann hefur átt í viðræðum við forsvarsmenn Strætó um samstarf um útgáfuna en enn er óljóst hvort fyrirtækið komi að verkinu. Það hefur jú gefið út eigið leiðakort, sem Ingi Gunnar ber ekki vel sög- una. Býst hann við því að kortið komi fyrir sjónir almennings hvort sem Strætó verður með eða ekki? „Ég gef þetta út sjálfur ef Strætó leitar ekki samstarfs. Borgarbúar fá að sjá þetta innan tíðar enda eiga þeir skilið að rata um og njóta þessa frábæra leiða- kerfis sem nú er búið að byggja upp. Þannig mun kerfið líka nýt- ast miklu betur.“ bjorn@frettabladid.is Skipuleggur mótahald á sjúkrabe›i HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? MAGNÚS VER MAGNÚSSON KRAFTAJÖTUNN nær og fjær „fiarf ekki a› stö›va fólk sem framkvæmir gegndarlaust á kostna› skattborgarans án fless a› hafa snefil af bisn- issviti?“ ÖGMUNDUR JÓNASSON ÞINGMAÐUR Í MORGUNBLAÐINU. „Mér hefur alltaf fund- ist skemmtilegra, ef ég á anna› bor› er a› fara út, a› fara á fullu tungli.“ GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON STJÖRNUSPEKINGUR Í FRÉTTABLAÐINU. OR‹RÉTT„ “ www.urvalutsyn.is ÍS L E N S K A A U G L † S IN G A S T O FA N /S IA .I S U R V 2 9 3 3 0 0 8 /2 0 0 5 49.900 kr. í viku* 59.900 kr. í tvær vikur* Sumartilboð í september! Bókaðu strax á www.urvalutsyn.is Gríptu tækifærið og bókaðu strax glæsilega gististaði Úrvals-Útsýnar á frábæru verði í haust. Lengdu sumarið og njóttu sólar í september! * Netverð á mann, óháð fjölda áfanga- eða gististaða, þó ekki færri en tveir í gistingu. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Hann hefur bannað ballett og óp- eru og barist gegn síðu hári og gulltönnum. Nú hefur hinn sér- vitri forseti Túrkmenistan, Sapar- murat Niyazov, sett nýjar reglur sem eiga að útrýma þeim mikla ósið að þykjast syngja með leikinni tónlist. Það er Niyazov þyrnir í augum að sjá gamla raddlausa söngvara hreyfa varir sínar undir tónlist sem þeir gerðu fræga fyrir löngu síðan. Hann telur það hafa nei- kvæð áhrif á þróun söngs og tón- listar. Eftir ákvörðun forsetans er því bannað að þykjast syngja með tónlist á öllum menningarsam- komum, tónleikum, í sjónvarpi og jafnvel í einkasamkvæmum eins og brúðkaupsveislum. Niyazov hefur verið leiðtogi Túrkmenistan í tuttugu ár. Nokk- urs konar trúarregla hefur mynd- ast í kringum persónu hans og er hann víða dýrkað- ur. Hann hef- ur á valda- tíma sínum sett margar reglur sem á k v a r ð a hegðun sam- landa sinna. Árið 2001 bannaði Niy- azov ballett og óperu þar sem hann taldi listformið ekki samræmast hugsunarhætti þjóðarinnar. Á síð- asta ári mælti hann eindregið með því að ungt fólk fengi sér ekki gull í tennurnar og hvatti yfirvöld til þess að taka hart á ungum mönn- um með skegg og sítt hár. - sgi Forseti Túrkmenistan: Gervisöngur banna›ur DRAUGAHÁTÍÐ Kínverskir Malasíubúar halda uppi skurðgoði og biðja til konungs heljar um gæfu og öryggi. Samkvæmt kín- versku dagatali heimsækja draugar og andar jörðina á sjöunda mánuði. Skurðgoð úr pappír eru brennd til þess að andarnir stígi ekki fæti inni á heimilin. SAPARMURAT NIYAZ- OV Forsetinn er á móti ballett, óperu, síðu hári og gulltönnum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P BEÐIÐ EFTIR STRÆTÓ Ingi Gunnar Jóhannsson segir kort Strætó af nýja leiðakerfinu nýtast farþegum illa. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.