Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 16
80
57
78
39
78
32
79
52
86
58
2004
2003200220012000
Mun fleiri slys
rannsöku›
N‡ lög um Rannsóknarnefnd umfer›arslysa taka
gildi um mána›amótin. Fimm til sjö sinnum fleiri
slys ver›a rannsöku› á ári.
Með gildistöku nýrra laga um
Rannsóknarnefnd umferðar-
slysa víkkar verksvið nefnd-
arinnar frá því sem verið hefur,
en hún hefur starfað frá árinu
1998. Hingað til hefur nefndin
rannsakað banaslys í umferð-
inni, en með nýju lögunum kann-
ar hún öll alvarleg umferðar-
slys. Ágúst Mogensen, forstöðu-
maður og rannsóknarstjóri
nefndarinnar, býst við að aukið
umfang kalli á að bæta þurfi við
starfsmanni hjá nefndinni
fljótlega upp úr áramótum.
„Núna er ég í fullu starfi og svo
taka nefndarmenn bakvaktir á
móti mér ef svo ber undir,“
segir hann.
„Það sem gerist hjá okkur
núna 1. september og við vinn-
um að er að útfæra vinnulag til
að uppfylla skilyrði laganna og
væntanlegrar reglugerðar um
rannsóknir allra alvarlegra
umferðarslysa, en með því er
átt við banaslys og slys þar sem
verða mikil meiðsli,“ segir
Ágúst. Útköll nefndarinnar
vegna banaslysa hafa hingað til
verið 20 til 30 á ári. „Miðað við
síðustu tölur sem ég sá hjá
Umferðarstofu um mikil meiðsli
sýnist mér að í þessum nýja hóp
slysa sem sem við rannsökum
séu á milli 100 og 130 slys á ári,
þannig að breytingin er heil-
mikil.“ Ágúst sagðist gera ráð
fyrir að höfð yrði vakt allan
sólarhringinn vegna þessara
slysa og reynt að búa svo um
hnútana að nefndin mætti á
vettvang í öllum þessum
slysum. „Helst bara strax, en ef
ekki er hægt að koma því fyrir
vegna ytri aðstæðna, þá sem
fyrst eftir að slys verður.“
Fyrsta alvarlega umferðar-
slysið sem Rannsóknarnefndin
tekur til skoðunar samkvæmt
nýrri verkskipan er árekstur
strætisvagns og vörubíls í
Reykjavík síðasta föstudag, en
þar slasaðist vagnstjórinn mjög
alvarlega. „Ég fór reyndar ekki
á vettvang, en mun óska eftir
gögnum um þetta slys,“ segir
Ágúst og bætir við að næstu
mánuðir fari í að þróa verklag í
kringum aukin verkefni. „Koma
þarf útkallskerfinu í gott horf
og vonandi verður ekkert hikst í
því, en ég geri ráð fyrir ein-
hverjum aðlögunartíma hjá
öllum.“ Ágúst segir að á næstu
mánuðum og vonandi strax á
næsta ári verði Rannsóknar-
nefnd umferðarslysa komin á
fullt skrið í að rannsaka öll
alvarleg umferðarslys og bana-
slys í umferðinni. „Og vonandi
gefst svo tími til að taka einhver
fleiri fyrir,“ segir hann, en nýju
lögin heimila nefndinni einnig
að taka til skoðunar ákveðna
flokka slysa. „Þar gæti verið um
að ræða aftanákeyrslur eða önn-
ur slys á stöðum þar sem ytri
aðstæður, svo sem ný umferðar-
mannvirki, kalla á nákvæmari
skoðun.“
Rannsóknarnefnd umferðar-
slysa getur ekki krafist umbóta
í kjölfar rannsókna sinna, en
gerir þess í stað ábendingar til
þeirra sem málin varða.
Ábendingarnar eru svo birtar í
skýrslum nefndarinnar.
„Skýrsla af þessu tagi telst full-
birt þegar hún er komin á
netið,“ segir Ágúst og bætir við
að það sé svo hlutaðeigandi
stofnana að meta ábendingar
nefndarinnar. „Nefndin gæti
auðvitað haft rangt fyrir sér, en
16 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Nokkuð hefur verið rætt um eftirlitsmynda-
vélar en Persónuvernd úrskurðaði á dög-
unum að notkun falinnar myndavélar í lík-
amsræktarstöð og innan veggja heimavist-
ar væri óheimil.
Þarf að gera fólki aðvart um eftirlits-
myndavélar?
Samkvæmt lögum um persónuvernd og
meðferð persónuupplýsinga þarf að gera
fólki hvort sem er á vinnustað eða á al-
mannafæri viðvart ef upptaka á sér stað
með myndavél eða með öðrum hætti.
Koma þarf fram hver beri ábyrgð á mynda-
vélinni.
Hvað þarf að segja starfsfólki?
Segja þarf starfsfólki hvaða búnaður er
notaður við upptökuna, hvers vegna sé
verið að taka upp, hvernig og hvenær
myndunum verði eytt og hver geti
skoðað þær. Einnig þarf að koma öllum
öðrum atriðum sem talin eru nauðsyn-
leg fyrir starfsmennina á framfæri
hverju sinni.
Hvað má gera við myndir af ólöglegu
athæfi?
Aðeins má safna myndum af ólöglegu
athæfi verði þær afhentar lögreglu.
Lögreglan þarf hins vegar að gæta að
því að fara að öðrum lögum um með-
ferð þeirra. Ekki má þannig nota mynd-
ir af ólöglegu athæfi á neinn annan
hátt svo sem til að hengja upp, senda í
tölvupósti eða annað þess háttar nema
með leyfi Persónuverndar eða þess
einstaklings sem á í hlut.
Hvar má hafa eftirlitsmyndavélar?
FBL GREINING: EFTIRLITSMYNDAVÉLAR
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
Fjöldi umferðarslysa
Heimild: UMFERÐARSTOFA
SEGIST EKKI
HAFA RÆNT
ÁSU ÖMMU
MEINTUR ÖMMU-
RÆNINGI SIGAR
LÖGFRÆÐINGI Á
ÞORSTEIN JOÐ
37
.51
1 k
r
Dal.is
Eldshöfða 16
Sími: 616 9606
Opið milli 12 - 16
RANNSÓKNARNEFNDIN Rannsóknar-
nefnd umferðarslysa fundaði í gær í húsa-
kynnum sínum við Flugvallarveg í Reykja-
vík. Á myndinni eru, frá vinstri: Ágúst Mog-
ensen, Inga Hersteinsdóttir, Jón Baldurs-
son og Ásdís J. Rafnar.
Ásdís J. Rafnar hæsta-
réttarlögmaður, sem
skipuð var formaður
Rannsóknarnefndar
umferðarslysa í byrjun
ársins, segir nefndina
hafa unnið gott starf
undanfarin ár. „Í byrj-
un var hún að marka
sig og gerði ítrekað at-
hugasemdir um rann-
sókn lögreglu, en það
hefur unnist nokkuð vel. Auðvitað skiptir
máli að gögnin sem nefndin fær séu vel
unnin,“ segir hún og bætir við að nýju
lögin skerpi á sjálfstæði nefndarinnar.
„Nefndin á svo að gefa ábendingar í ör-
yggisátt, en því miður er auðvitað oft um
mannleg mistök, hraðakstur og þess
háttar þætti að ræða sem sennilega or-
sök slysa.“
Í lögunum kemur jafnframt fram að
nefndin skuli ekki leitast við að skipta
sök eða ábyrgð og að skýrslur um slys
skuli ekki notaðar sem sönnunargögn í
opinberum málum. „Þegar maður á að
vera sjálfstæður, óháður og draga sínar
ályktanir er auðvitað ekki þægilegt að
starfa undir því að geta verið kallaður til
vitnis í dómsmáli,“ segir Ásdís og bætir
við að hlutverk nefndarinnar sé í raun að
setja slys á svið þannig að skoða megi
alla þætti þeirra. Í því augnamiði hefur
nefndin víðtækar heimildir í nýju lögun-
um til að kalla eftir gögnum, svo sem
sjúkra- eða krufningargögnum, og leita
eftir upplýsingum hjá lögreglu, trygginga-
félögum, ökumönnum, vitnum og öðrum
sem að málum koma.
- óká
VÍÐTÆK HEIMILD TIL GAGNAÖFLUNAR:
LEITAR EKKI SÖKUDÓLGS
ÁSDÍS RAFNAR
RANNSÓKNARNEFND
UMFERÐARSLYSA:
Alþingi samþykkti 10. mars á þessu ári
ný lög um Rannsóknarnefnd umferðar-
slysa, en þau taka gildi nú um mán-
aðamótin. Nefndin hefur hins vegar
starfað frá árinu 1998 samkvæmt
ákvæðum í Umferðarlögum, en þau
falla úr gildi með nýju lögunum.
Nefndina skipa: Ágúst Mogensen, for-
stöðumaður; Ásdís J. Rafnar, hæstarétt-
arlögmaður, formaður nefndarinnar;
Inga Hersteinsdóttir, verkfræðingur hjá
VSI-ráðgjöf; og Jón Baldursson, yfir-
læknir slysa- og bráðadeildar Land-
spítala - háskólasjúkrahúss.
STRÆTISVAGN SEM LENTI Í ÁREKSTRI FYRIR H
slysa samkvæmt útvíkkuðu verksviði í nýjum lögum e
strætisvagns og vörubíls í Reykjavík síðasta föstudag.