Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 18
Heimalærdómur Notaðu göt í stundaskránni til að læra heima, þó það sé freistandi að nota tímann til að hvíla sig eða sinna áhugamálum. Best er að hafa lokið öllum heimalærdómi yfir daginn og nota kvöldin til annars.[ ] „Námskeiðið bar þann árangur sem ég leitaði eftir og rúmlega það. Svo er það mjög hvetjandi að það er lofað endurgreiðslu ef ekki verður að minnsta kosti tvöföldun á lestrarhraða.“ Björg Eyþórsdóttir, 22. ára nemi. ...næsta námskeið hefst 7. september Skráning er hafin á www.h.is og í síma 586-9400 Allir starfsmenn vakandi fyrir vandanum Einelti hefur minnkað í grunn- skólum landsins með tilkomu svokallaðs Olweusar-verkefnis. Þorlákur H. Helgason, fram- kvæmdastjóri verkefnisins, segir árangurinn góðan þegar allir starfsmenn skólanna séu vakandi fyrir vandanum. „Barn var að koma í nýjan skóla og þar vissi starfsfólkið ekki að það hefði lent í einelti áður. Í ljós kom eftir nokkra daga að eitt- hvað var að og nemandinn var hættur að skila sér í skólann. Þá var hann kallaður með foreldri í viðtal klukkan átta að morgni og fenginn til að segja frá. Meintir gerendur voru margir. Það var kallað á þá alla hvern í sínu lagi og haldnir fundir í hverjum ein- asta bekk. Sem sagt rætt við alla í skólanum. Síðdegis þennan sama dag var málið komið í rétt- an farveg samkvæmt eineltis- áætluninni og allir starfsmenn skólans með á nótunum. Svo var fylgst vel með öllum í framhald- inu.“ Þannig lýsir Þorlákur einu dæmi af mörgum um brunn sem var byrgður í tíma. Olweusar-verkefnið er kennt við háskólaprófessorinn Dan Olweus, sem hrinti því af stað í Noregi. Það fór af stað hér á landi haustið 2002 með þátttöku 45 skóla. Haustið 2004 bættust 30 skólar í hópinn. „Kannanir sýna að verkefnið skilar góðum ár- angri,“ segir Þorlákur og þakkar það vitundarvakningu meðal skólafólks og foreldra. Hann getur þess líka að þeir skólar sem tekið höfðu þátt í Olweusi frá upp- hafi hafi náð að halda betur utan um þá nemendur sem stóðu höll- um fæti að loknu langa verkfall- inu í fyrrahaust en aðrir. „Þeir komu standandi niður ef þannig má taka til orða,“ segir hann og bætir við að haustið 2006 sé stefnt að því að tveir þriðju grunnskól- anna verði orðnir þátttakendur. „Einelti á sér stað alls staðar og þess vegna leggjum við líka áherslu á að starfsfólk félagsmið- stöðva, íþróttahúsa og sundlauga taki þátt í verkefninu. Prestarnir eru sums staðar komnir inn í sam- starfið, enda eru þeir með ferm- ingarhópana. Þannig teygja for- varnirnar sig alls staðar inn í sam- félag krakkanna,“ segir Þorlákur. gun@frettabladid.is Gleraugnaverslunin SjónarhÓll stærri verslun meira úrval frábær tilboð Reykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði S.565-5970 w w w . s j o n a r h o l l . i s Píanóskóli Þorsteins Gauta Ármúla 38 - gengið inn frá Selmúla Píanóskóli Þorsteins Gauta er fluttur í stærra og betra húsnæði í Ármúla 38 - gengið inn frá Selmúla - Píanónám - Einkatímar - Námskeið - Kennum börnum frá 4 ára aldri Uppl. í símum 551 6751 og 691 6980 www.pianoskolinn.is - i k li i k li i MYNDAVÉLIN: Farið er inn á allar helstu stillingar á myndavélinni, þ.a.m. hraði, ljósop, dýptarskerpa, ljósmæling, lýsing, linsur, súmm, ISO, White balance, pixlar, RAW/JPEG MYNDATAKAN: Myndbyggingarreglur. Myndataka – almennt, landslagsmyndatökur, næturmyndatökur, norðurljósamyndatökur, nærmyndir, portrett. Ýmis góð ráð við myndatöku veitt sem koma að góðum notum. LJÓSMYNDASTÚDÍÓ: Myndataka - Portrett í Studíói. Notkun ljósa í stúdíói, mismunandi lýsing og notkun flassmælis. Sýnt hvernig á að búa til einfalt og ódýrt heima stúdíó. TÖLVAN: Færa myndir yfir á tölvuna, setja myndir í möppur, koma skipulagi á myndasafnið og skráningu mynda, setja leitarorð á myndir, afrita myndir á milli mappa, skipta um nafn á myndum, snúa myndum við, skoða allar upplýsingar um myndir, setja myndir yfir á geisladisk eða DVD, senda myndir með tölvupósti, prenta út myndir. PHOTOSHOP: Lagfæra myndir, taka burt atriði úr myndum, kroppa myndir, skipta um bakgrunn, gera myndir svart/hvítar, gera myndir brúntóna, setja lit á hluta af myndum, breyta myndum með effectum, setja ramma utan um myndir, minnka myndir, dekkja og lýsa myndir, auka og minnka kontrast í myndum, vista myndir. Kennsla er mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl 18:00 - 22:00 Námskeið í september, október og nóvember Verð kr. 14 .900 .- Skráning á l josmyndar i . is eða 898-3911. Le iðb . Pá lmi Guðmundsson 12 klst. ljósmyndanámskeið fyrir stafrænar myndavélar Þorlákur segir forvarnir gegn einelti þurfa að teygja sig alls staðar inn í samfélag krakkanna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.