Fréttablaðið - 24.08.2005, Page 19
3MIÐVIKUDAGUR 24. ágúst 2005
Innritun stendur
yfir á vef skólans
www.ir.is
(sjá fjarnám)
Kennsla hefst fimmtu-
daginn 1. sept.
Nánari uppl‡singar
á www.ir.is
og í síma 522 6500.
Fjarnám
me› áherslu á starfstengt nám
Byggingagreinar
Efnisfræ›i, grunnteikning,
framkvæmdir og vinnuvernd.
Grunnnám rafi›na
Rafmagnsfræ›i, efnisfræði og rafeindatækni.
Rafvirkjabraut
L‡singatækni, rafmagnsfræ›i, regluger›ir,
raflagnateikning, st‡ringar.
Rafeindavirkjun
Allar greinar á 3. og 4. önn.
Tækniteiknun
Grunnteikning, húsateikning, innréttinga-
teikning, raflagnateikning, vélateikning
og AutoCad.
Tölvubraut
Forritun, gagnasafnsfræ›i, vefsí›ugerð,
netst‡rikerfi.
Uppl‡singa- og fjölmi›labraut
Allar greinar í grunnnámi
uppl‡singa- og fjölmi›labrautar.
Meistaraskóli
Allar stjórnunar- og rekstrargreinar.
Traust menntun í framsæknum skóla
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri fer með verkefnisstjórn í einu þeirra verkefna sem hlutu styrk frá Evrópusambandinu.
Stór styrkur frá Evrópusambandinu
Ísland fær rúma milljón evra
í verkefnastyrk frá Evrópu-
sambandinu vegna Leonardo
da Vinci-starfsmenntaáætlun-
arinnar.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins samþykkti á dögun-
um styrkupphæðir til þátttöku-
landa Leonardo da Vinci-starfs-
menntaáætlunarinnar fyrir árið
2005. Að þessu sinni fékk Ísland
rúma milljón evra í sinn hlut, eða
um áttatíu milljónir króna, sem
er næsthæsta upphæð sem Ís-
land hefur fengið úthlutað úr
áætluninni frá upphafi.
Styrkupphæðinni verður veitt
til þriggja verkefna en alls bár-
ust sjö umsóknir frá Íslandi.
Verkefnin sem um ræðir eru til-
raunaverkefni, þar sem samstarf
þriggja eða fleiri Evrópuríkja á
sér stað. Verkefnin miða að því
að þróa nýjar aðferðir og leiðir
til að stuðla að auknum gæðum
og fjölbreytni í starfsmenntun og
starfsþjálfun og auka færni og
þekkingu starfsmanna. Verkefn-
in sem hljóta styrk eru:
*Building Bridges: Menntun
kvenna í landbúnaði og stofnun
tengsla- og þekkingarnets milli
landsbyggðar og þéttbýlis, Land-
búnaðarháskólinn á Hvanneyri.
*The Value of Work: Þróun að-
ferða við mat á raunfærni,
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
*Business Community Model:
Þróun námsefnis í rafrænum við-
skiptum fyrir starfsfólk fyrir-
tækja, Verslunarmannafélag
Reykjavíkur.
Leonardo da Vinci-starfs-
menntaáætlun ESB var hrundið
af stað árið 1995 og hefur Ísland
verið þátttakandi frá upphafi.
Áætluninni er ætlað að ýta undir
ný viðhorf í stefnumótun Evr-
ópulanda og geta af sér nýjungar
í starfsmenntun, jafnt fyrir
atvinnulíf og menntakerfi.
Næsti umsóknarfrestur um
styrki úr áætluninni er 30. sept-
ember næstkomandi. Nánari
upplýsingarum áætlunina er að
finna á heimasíðu Landsskrif-
stofu Leonardós: www.leon-
ardo.is. ■
Viljum gera góða skóla betri
STARFSFÓLKI GRUNNSKÓLANNA Í
LANDINU BÝÐST AÐ TAKA HEILS-
DAGSNÁMSKEIÐ Í ALMENNRI SKYNDI-
HJÁLP OG SÁLRÆNUM STUÐNINGI.
„Við héldum fyrsta námskeiðið í
Grundaskóla á Akranesi sem hefur
verið í samstarfi við okkur um að
koma þessu námsefni á koppinn,“
segir Gunnhildur Sveinsdóttir, verkefn-
isstjóri hjá Rauða krossinum er stend-
ur fyrir námskeiðinu. Hún segir það
ætlað öllu starfsfólki innan grunnskól-
anna og segir starfsfólk Rauða krossins
tilbúið að fara með það um allt land
og í alla skóla ef áhugi sé fyrir hendi.
Hún bendir á að skólarnir séu mjög
stórir vinnustaðir og börnin verji stór-
um hluta síns dags þar. „Vissulega
getur komið margt upp á í skólum og
við hugum að forvörnum og því hvern-
ig skólinn geti undirbúið sig sem best
undir slys eða áföll og reynum að æfa
viðbrögð við slíkum hremmingum. Við
erum ekki að halda því fram að skól-
arnir hafi staðið sig illa í forvörnum
eða skyndihjálp heldur viljum gera
góða skóla betri,“ segir Gunnhildur.
Frá námskeiðinu í Grundaskóla á Akranesi.