Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 21
Hjólreiðar
Þeir sem ferðast um landið á þessum árstíma ættu að huga að því að hafa ljós á
hjólinu. Farið er að dimma á kvöldin auk þess sem erfitt getur verið að sjá hjólreiða-
mann í rigningu. Ekki er verra að klæðast fatnaði í sterkum litum og með endurskini.[ ]
AFMÆLISHÁTÍÐ Í BÁSUM
30 ára afmæli Útivistar í Básum
laugardaginn 27. ágúst 2005.
Dagsferð frá BSÍ brottför
kl. 8.30 laugardag.
Helgarferð, brottför frá BSÍ
kl. 20.00 föstudag.
Kökuhlaðborð, varðeldur og
sannkölluð Útivistargleði
FRÍ TJALDSTÆÐI ALLA HELGINA
Sportklettaklifur er nýleg
íþróttagrein á Íslandi. Henni
vex samt óðum fiskur um
hrygg.
„Fólk er farið að kunna að meta
ýmiss konar útivistarsport meira
en áður. Eitt af því er klettaklifur.
Þeim fer stöðugt fjölgandi sem
iðka það,“ segir Ívar Freyr Finn-
bogason, sem kennir klifur á veg-
um Íslenskra fjallaleiðsögumanna.
Blaðamaður Fréttablaðsins hitti
hann austur í Öræfum þar sem góð
aðstaða er til þess að stunda þetta
sport í gömlum sjávarhömrum.
Þennan dag voru nokkrar fjöl-
skyldur á svæðinu enda var þetta
um helgi og veður gott. Kjóinn
heyrðist væla skammt frá, ábúinn
að vernda hreiður sitt en maríu-
erlan flögraði um og tísti fjörlega.
„Við setjum upp helgarnámskeið
sem miðast við að fólk geti klifrað
á svæðum þar sem múrboltar eru
fyrir. Slíkt námskeið dugar ekki
þeim sem ætla að klifra á svæðum
þar sem menn þurfa að tryggja sig
sjálfir.“ Ívar segir klettaklifur
hættulitla íþrótt. „Auðvitað er
hægt að gera mistök en þegar
menn kunna orðið réttu handtökin
þá er þetta mjög hættulítið sport.“
Hann segir misjafnt hvernig fólki
gangi að læra þessi handtök og það
fari mest eftir áhuga og ástundun.
Klettaklifur er líka ódýrt, að sögn
Ívars Freys. Grunnbúnaðurinn
kostar kannski 15-20 þúsund kall á
haus. Þetta eru skór, hjálmar, belti,
lína, tvistar til að tengja línuna við
bergið og svo tryggingartól. „Aðal-
kostnaðurinn er í bensíni því það
er nokkuð langt að keyra í Öræfin
úr borginni. Það eru nokkur minni
svæði nær, til dæmis í Eilífsdal í
norðanverðri Esjunni. En góð
klifursvæði eru ekki á hverju strái
á Íslandi. gun@frettabladid.is
Við hjá Flugufréttum á flugur.is eigum marga kunningja án
þess að þekkja þá endilega í sjón. Þannig kom í ljós að ná-
ungi sem stóð úti í Elliðavatni einn morguninn er tíður
gestur á flugur.is og gaf sig fram við mig til að ræða málin,
þótt hann væri að kasta fyrir sex laxa sem hann taldi sig
hafa staðsett í vatninu! Kappinn hefur stundað vatnið lengi,
en aldrei fengið neitt fyrr en í fyrra. „Þá fór ég loksins inn í
einn fisk, skoðaði flugu og hnýtti samkvæmt því. Og er bú-
inn að taka sex hundruð fiska í fyrrasumar og sumar!“
Hann sýndi einföldustu útgáfu af lirfu sem hægt er að
ímynda sér: Svartur tvinni vafinn á öngulinn, látinn þykkna
fram í eins konar vænghús svo framhlutinn verður bústinn,
og hringvafinn grannur koparvír fram. Ekkert meir!
Annar lunkinn veiðimaður Garðar Scheving veiddi í Norð-
fjarðará fyrir skemmstu og sagði að fiskurinn væri óvenju
vænn þetta sumarið. Hann fékk að vísu bara níu bleikjur í
ferðinni en hefur, þegar best hefur látið, náð yfir 100 bleikj-
um á ferðum sínum austur. Það gladdi hann mjög að hann
náði þremur góðum bleikjum á þurrfluguna White Wing í
einmitt sama hylnum og hann reyndi hana fyrst fyrir
nokkrum árum. Veiðin hefur gengið mjög upp og niður í
Hlíðarvatni í Selvogi síðustu vikurnar. Sumir eru heppnir –
eða bara svona flinkir – og koma heim með 10-15 bleikjur
eftir daginn, á meðan aðrir hreinlega núlla. Þá segja þeir
sem til þekkja: Já, bleikjan í Hlíðarvatni er söm við sig –
dyntóttari en allt sem dyntótt er!
Og meira af silungi: Svartá í Bárðardal tók vel á móti tveim-
ur félögum á dögunum. Tveggja daga ferð gaf rúmlega 20
fiska hver á bilinu 1-5 pund. Mikið tók Mobutu með appel-
sínugulum frambúk, en svo tók ‘ann aðrar púpur líka, ekki
síst „Pál Óskar“ en það eru allar púpur sem vafðar eru með
latexi!!! Á sömu slóðum er Laxá í Mývatnssveit, þar var
urriðasvæðið fínt í síðustu viku að sögn Hannesar Júlíusar
sem var að koma að norðan: Fiskurinn tók jöfnum höndum
straumflugur og alls konar púpur andstreymis. „Pæluvargur“
sagði Hannes um aðstæður, sem þýðir fyrir þá sem ekki
þekkja til í Mývatnssveit að flugnagerið var svo þykkt að
menn urðu að moka sig (pæla) í gegnum það! Fiskurinn er
vel haldinn í þessari flugnaveislu, feitur, stór og sterkur!
Heldur lítið hefur verið um að vera á bökkum Hofsár síð-
ustu 4-5 daga og telja menn helst að þar sé veðurblíðunni
um að kenna. Veiðin hefur verið mjög góð fram að þessu
og voru um 1.190 laxar komnir í bókina í vikunni. Það er
150-200 löxum meira en á sama tíma í fyrra. Sömuleiðis er
heildarveiðin í systuránni í Vopnafirði Selá orðin mjög góð.
Við fréttum af félögum sem voru þar með fimm stangir í
tvo og hálfan dag og fengu saman nær 100 laxa. Og svo
gerast undur og stórmerki: Stjórn SVFR var í Norðurá og þá
veiddist fyrsti hnúðlax sem vitað er um upp úr ánni! Þetta
eru þekktir flökkufiskar, einkum á norðausturhorninu, en
núna komnir á kortið í Borgarfirðinum!
Veiðikveðja, Stefán Jón.
Meiri veiðifréttir, heilræði, sögur og myndir í vikulegu
fréttabréfi, Flugufréttum, sem sendar eru út frá flugur.is
alla föstudaga til fjölda áskrifenda.
VEIÐISUMARIÐ með Stefáni Jóni Hafstein
VEIÐIFRÉTTIR Í SAMSTARFI VIÐ FLUGUR.IS
Elliðavatnsgúrú!
Hvaðan kom kerlingin í Kerlingarfjöllin?
Örnefnin í bílinn
ÞEKKING Á ÖRNEFNUM GEFUR
LANDINU NÝJA VÍDD SEM OG AÐ
VITA HVAÐAN ÞAU ERU KOMIN.
Fátt er skemmtilegra en að ferðast
um landið og slá um sig með bæj-
arnafnaþekkingu. Hægt er að
undirbúa sig vel og á aðgengilegan
hátt með því að kynna sér kort
áður en lagt er af stað. Einnig er
gott að glugga í bæjatal Örnefna-
stofnunar sem hægt er að finna á
vefsvæðinu ornefni.is. Þar er leitað
að bæjarnöfnum eftir sveitarfélög-
um og sýslum og birtist það á al-
gengu formi sem auðvelt er að
prenta út og hafa með sér.
Á vefnum ornefni.is er einnig að
finna nokkuð ítarlega skýringu á
ýmsum örnefnum undir tenglinum
örnefni mánaðarins. Fyrir ágústmán-
uð varð örnefnið Skjálg fyrir valinu,
en Skjálg er meðal annars þekkt
sem bæjarnafn í Kolbeinsstaða-
hreppi og kemur einnig fyrir í á að
minnsta kosti einum öðrum stað á
landinu sem örnefni, það er í Eyja-
firði. Umfjöllun um fjölda annarra
örnefna er þar að finna og öruggt
að hægt er að slá um sig með ör-
nefni mánaðarins í vasanum.
„Nú er bara að rétta úr sér. Það var lagið.“
Guðný er bæði ánægð og þreytt eftir að
hafa sigrað hamarinn.
Ívar Freyr og Þorvaldur Lúðvík Sigurjóns-
son fylgjast vel með Guðnýju, leiðbeina
henni og hvetja hana áfram.
Guðný Guðmundsdóttir er óvön klettaklifri
en ætlar samt að prófa. Eiginmaður henn-
ar Hersir Sigurgeirsson sér um að festing-
arnar séu í lagi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
.
Heillandi sport í
hömrunum