Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 28
Björgvin Guðmundsson
skrifar
„Það hefur verið mikil umfram-
eftirspurn eftir vinnuafli. Hing-
að til hefur það verið bundið við
ákveðnar greinar, eins og bygg-
ingariðnaðinn, en nú er hægt að
sjá svipaða þróun í þjónustu- og
umönnunargreinunum,“ segir
Gissur Pétursson forstjóri
Vinnumálastofnunar. Þetta sé að
hluta árstíðabundin sveifla þegar
skólafólk fari af vinnumarkaðn-
um. „En þetta er meira áberandi
núna en hefur verið. Það ber því
vitni að það er gífurleg þensla á
vinnumarkaðnum.“
Ásgeir Jónsson, hagfræðingur
hjá KB banka, segir launaskrið
líklega farið af stað eins og oft
tíðkist hér á landi þegar atvinnu-
leysi er mjög lítið. Þetta hafi
verið algeng þróun á árunum
1970 til 1988. Innflutt vinnuafl,
sem megi sjá í fleiri störfum en
byggingariðnaði, hafi haldið
aftur af þessari þróun hingað til.
Eins og Gissur nefnir vantar
starfsfólk í fjölmörg þjónustu-
störf og sjást þess merki í at-
vinnuauglýsingum. Virðist litlu
breyta þó víða megi sjá fjölda út-
lendinga starfa í byggingariðn-
aði, á veitingahúsum, við þrif, í
ferðaþjónustu og fleiri greinum.
Ein birtingarmynd aukinnar
eftirspurnar eftir fólki er að laun
hækka. Síðustu tólf mánuði hefur
launavísitalan hækkað um 6,6
prósent. Í launakönnun Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur í ár
kemur í ljós að sjötíu prósent
þátttakenda fá einhvers konar
hlunnindi, sem eru hluti af laun-
um, en í fyrra var hlutfallið 43
prósent. Snorri Kristjánsson hjá
VR segir síma og bíl vera lang-
algengustu hlunnindin.
Húsasmiðjan brá á það ráð að
auglýsa eftir starfsfólki úr eldri
aldurshópunum. Guðrún Krist-
insdóttir, starfsmannastjóri
Húsasmiðjunnar, segir að það
hafi gefist gríðarlega vel og um
sextíu umsóknir borist. Það hafi
komið á óvart að umsækjendur
voru yngri en búist var við. Hug-
myndin var meðal annars að ná
til fólks sem var komið út af
vinnumarkaðnum.
Lárus Blöndal, deildarstjóri
vinnumarkaðsdeildar Hagstof-
unnar, segir atvinnuþátttöku í
aldurshópnum 55 til 74 ára vera
tæp 65 prósent. Þetta sé sá hópur
sem helst sé hægt að sækja í til
að fá á vinnumarkaðinn aftur.
Hann bendir þó á að þetta hlutfall
hér sé mun hærra en í löndum
Evrópusambandsins. Þar hafi
verið gerðar áætlanir um að ná
þessu hlutfalli yfir fimmtíu pró-
sent.
Vika Frá áramótum
Actavis Group 3% 7%
Bakkavör Group 3% 66%
Burðarás 1% 43%
Flaga Group -3% -30%
FL Group 5% 52%
Grandi 1% 6%
Íslandsbanki 5% 28%
Jarðboranir 2% 3%
Kaupþing Bank 1% 31%
Kögun 0% 24%
Landsbankinn 0% 74%
Marel -1% 29%
SÍF 0% -1%
Straumur 2% 37%
Össur 2% 14%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudag
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
„Gífurleg þensla
á vinnumarkaðnum“
Víða vantar fólk til vinnu. Aukin eftirspurn eftir vinnuafli ýtir
undir þenslu og launin hækka.
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
Horft verður meðal annars til
reynslu Íslendinga þegar Danir
leita svara við því hvernig danskt
þjóðfélag geti komist í fremstu
röð á alþjóðavettvangi. Á heima-
síðu Samtaka atvinnulífsins segir
að yfir eitt þúsund
þátttakendur á
a ð a l f u n d i
S a m t a k a
iðnaðarins
í Dan-
m ö r k u
skoði ár-
angur í
efnahags-
málum og
viðskiptum Íslendinga. Horft
verður sérstaklega á sveigjan-
legan vinnumarkað hér á landi og
hvernig tækifæri í alþjóðlegum
viðskiptum hafi verið nýtt.
Einnig verður horft til
árangurs Írlands
og Massachu-
setts-ríkis í
Bandaríkj-
u n u m .
Fundurinn
er haldinn
í lok sept-
e m b e r
næstkom-
andi. - bg
Gengi finnska flugfélagsins
Finnair hefur hækkað um 35 pró-
sent á þremur mánuðum en geng-
ið hefur hækkað mest á undan-
förnum dögum. Í síðustu viku
skilaði félagið góðu uppgjöri og í
kjölfarið hækkaði gengið mikið.
Uppgjörið var yfir væntingum
markaðsaðila og einnig yfir
væntingum stjórnenda félagsins.
Finnair gerir ráð fyrir því að eft-
irspurn aukist á árinu sem og
nýting flugvélanna. Fyrirtækið
jók hlutafé sitt nýlega og var það
skráð í byrjun vikunnar.
Samkvæmt síðasta hluthafa-
lista á Burðarás tæp átta prósent
í félaginu. - dh
„Við erum að fara í endurskipu-
lagningu á yfirbyggingu félags-
ins og verður hagrætt á flestum
sviðum. Samsetningu flugflotans
verður breytt og vélum fækkað.
Þetta mun skila sér í einfaldari,
markvissari og hagkvæmari
flugrekstri,“ segir Hafþór Haf-
steinsson, forstjóri flugflutn-
ingasviðs Avion Group. Þetta sé
mögulegt nú þegar sjö mánaða
sameiningarferli Íslandsflugs og
Air Atlanta Icelandic er lokið.
Fjórum Boeing 737-300/400
leiguflugvélum verður skilað til
eigenda fyrir árslok og aðrar
þrjár vélar í eigu félagsins seldar
fyrir haustið 2006. Í stað þeirra
véla sem eru í flugi fyrir Excel
Airways í Bretlandi, sem er í
eigu Avion Group, koma nýjar
Boeing 737-800-vélar. Þá verður
eldri 747-200-farþegavélum skipt
út á næstu níu mánuðum fyrir
nýrri, sem þykja hagkvæmari í
rekstri. Niðurstaðan verður um-
fangsminni flugfloti. - bg
Hagræða og minnka flugflotann
Avion Group í endurskipulagningu til að gera reksturinn markvissari.
Finnair hækkar flugið
Búist við aukinni eftirspurn á árinu.
Sífellt verður augljósara að tími
er kominn til að heimila sölu á
léttvíni og bjór í matvöruverslun-
um og sérverslunum, að mati
Samtaka verslunar og þjónustu.
Samtökin segja ÁTVR vera
löngu horfið frá því markmiði
sem lögin setji henni til að sporna
gegn misnotkun áfengis. Þá sé
ljóst að ÁTVR standi ekki undir
kröfum neytenda um úrval létt-
víns sem í boði er líkt og þær
verslanir sem eru í samkeppni
myndu gera.
Samtökin segja dæmi um að
léttvín og bjór séu seld með öðr-
um varningi yfir búðarborð á fjöl-
förnum ferðamannastað á lands-
byggðinni. Þetta þyki sjálfsagt og
eðlilegt, enda hafi neysluvenjur
landsmanna breyst á undanförn-
um árum og meðferð slíkra
drykkja sé ekki sama feimnismál
og áður var. Í Fréttabréfi Samtaka
verslunar og þjónustu segir að
tímabært sé að taka skref-
ið til fulls og leyfa
neytendum að nálg-
ast þessa drykkjar-
vöru í matvöru-
verslunum um leið
og aðrir hlutar mál-
tíðarinnar séu keypt-
ir. - dh
Útlán bankanna til er-
lendra aðila hafa aukist
mikið frá áramótum. Út-
lán til erlendra aðila
námu 352 milljörðum
króna í reikningum inn-
lánsstofnana í lok júlí
samkvæmt tölum frá
Seðlabankanum og höfðu
þau þá aukist um 85 pró-
sent frá áramótum, um
162 milljarða króna.
Erlendum verk-
efnum hefur fjölgað
mjög hjá bönkunum á
síðustu misserum og verða útlán til erlendra aðila stöðugt stærri
hluti af útlánasafni þeirra. Í lok júlí voru útlán til erlendra aðila um
tuttugu prósent af öllum útlánum innlánsstofnana en um síðustu ára-
mót var hlutfallið fjórtán prósent. Í Morgunkornum greiningar-
deildar Íslandsbanka kemur fram að erlend fjármálafyrirtæki sem
íslensku bankarnir hafi nýverið keypt séu ekki með í þessum tölum,
til dæmis hvorki FIH í Danmörku né BN bank í Noregi. - dh
Samskip hafa opnað skrifstofu í
Ho Chi Minh-borg í Víetnam.
Þetta er fjórða skrifstofa félags-
ins í Asíu en fyrir eru útibú í Pus-
an í Suður-Kóreu og Quingdao og
Dalian í Kína.
Rekstur nýju skrifstofunnar
mun heyra undir aðalskrifstofu
Samskipa í Pusan en yfirmaður
hennar er Yong-Jun Nam. Þrír
starfsmenn verða á skrifstofunni í
Ho Chi Minh-borg til að byrja með.
Flutningur á frystum fiski er
meginverkefni skrifstofa Sam-
skipa í Asíu. Einar Þór Guðjóns-
son, framkvæmdastjóri flutn-
inga- og kæliflutningasviðs Sam-
skipa, segir að miðstöð fisk-
vinnslunnar í Víetnam sé í
grennd við Ho Chi Minh-borg og
því sé það rökrétt skref í áfram-
haldandi uppbyggingu flutninga-
nets Samskipa í Asíu að opna
skifstofu þar. - jsk
LAUNASKRIÐ Á VINNUMARKAÐI Nú vantar ekki bara fólk til starfa í byggingariðnaði
heldur við ýmis þjónustu- og umönnunarstörf.
Læra íslensku leiðina Áfengi selt yfir búðarborð
BOEING-ÞOTA AIR ATLANTA Flugfloti
Avion Group er nú í endurskoðun.
Samskip opna í Víetnam
Fjórða skrifstofa Samskipa í Asíu opnuð.
GENGI FINNAIR HEFUR HÆKKAÐ
MIKIÐ Burðarás á tæp átta prósent í félag-
inu.
ÚTLÁN TIL ERLENDRA AÐILA AUKAST Líklega eru
erlendir ferðamenn ekki duglegir við að slá lán í íslensk-
um bönkum.
Erlend útlán
aukast mikið