Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 30

Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN4 F R É T T I R Greiningardeild Íslandsbanka hefur gert nýtt verðmat á SÍF og mælir með kaupum í félaginu. Ráðgjöfin er til skemmri tíma, eða næstu þriggja til sex mánaða, en til lengri tíma er mælt með því að fjárfestar markaðsvegi bréfin í vel dreifðum eignasöfn- um sem taka mið af íslenska markaðinum. Gengi SÍF var um miðjan dag í gær 4,85 krónur á hlut og var 4,8 krónur á hlut í síðustu viku, þannig að verðmat Íslandsbanka hefur ekki orðið til þess að hækka gengi félagsins mikið. Greiningardeild Íslandsbanka telur að SÍF sé 399 milljóna evra virði eða rúmlega 31 milljarðs virði. Verðmatið jafngildir verð- matsgenginu 5,3 sem er um tíu prósentum hærra en gengi fé- lagsins á markaði. Síðasta verð- mat Íslandsbanka á SÍF var unn- ið í janúar 2005 og fékkst þá út verðmatsgengið 5,1. Síðan þá hefur félagið þróast áfram og meðal annars selt frá sér nokkrar rekstrareiningar sem ekki tengj- ast kjarnastarfsemi. - dh Átta sinnum meiri vöxtur varð í veltu dagvöruverslunar á Íslandi en að meðal- tali í ESB-löndunum frá maí 2004 til maí 2005. Þetta kemur fram í Fréttapósti Samtaka verslunar og þjónustu. Vöxturinn hér á landi var þrettán pró- sent á föstu verðlagi samanborið við 1,6 prósent í ESB-löndunum. Í Fréttapóstin- um segir að þannig hafi Íslendingar auk- ið neyslu í mat og drykk margfalt meira en íbúar ESB-landanna á síðustu mánuðum. Velta í dagvöruverslun hér á landi hafi verið 14,3 prósent meiri í júní síðastliðinn en í sama mánuði árið 2004 og því talið líklegt að forskotið í neysluaukningu Íslendinga samanborið við ESB-löndin haldi áfram að aukast. - dh Björgvin Guðmundsson skrifar Sindraberg, sem hefur framleitt frosna sushi-rétti á Ísafirði, er gjaldþrota. Skuldir fyrirtækisins eru ríflega hundrað milljónir króna, að sögn Elíasar Jónatanssonar framkvæmdastjóra. Á móti skuldun- um komi svo eignir í formi birgða og fleira. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins á tæp þrjátíu prósent í Sindrabergi, Byggðastofnun 21 prósent og Hvetjandi ehf., sem er að mestu í eigu Ísafjarðar- bæjar, 26 prósent. Elías segir stærsta kröfuhafann vera Byggðastofnun, sem seldi Sindrabergi hús- næði undir framleiðsluna. Elías segir Sindraberg hafa verið nýsköpunar- fyrirtæki sem stofnað var árið 1999. Helsti markað- ur fyrirtækisins var sala á sushi til veitingahúsa og neytenda í Þýskalandi. Bretlandsmarkaður reynd- ist erfiður og innanlandsmarkaður lítill. Reksturinn snerist til betri vegar í fyrra en gengisþróun það sem af er ári kom hart niður á rekstraráætlunum. Samkeppnin ytra jókst, bæði frá Asíu og öðrum Evrópulöndum, og ekki var svigrúm til að lækka verð til að mæta henni. „Við stóðum frammi fyrir því að geta ekki rekið fyrirtækið áfram nema nýtt hlutafé kæmi til eða meira lánsfé. Menn voru einfaldlega ekki tilbúnir að leggja meira fé í fyrirtækið,“ segir Elías. Um tuttugu manns unnu hjá fyrirtækinu í fimmtán stöðugildum, að sögn framkvæmdastjór- ans. Sushi-framleiðslu hætt á Ísafirði Sindraberg er gjaldþrota. Nýsköpunarsjóður, Byggðastofn- un og Ísafjarðarbær tapa framlögum sínum. Laun hækkuðu um 0,4 prósent í júlí samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,6 prósent. Samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka stafar hækkunin að stærstum hluta af samn- ingsbundnum launahækkunum hjá hinu opin- bera, lítið hafi verið um launaskrið á almennum markaði. Greiningardeildin telur einnig að launaskrið geri vart við sig á næstu mánuðum og að verð- bólguþrýstingur í hagkerfinu aukist af þeim sökum. - jsk CTT Systems, sem er skráð á O-lista sænska kauphallarinnar, hækkaði hvorki meira né minna en um 160 prósent í gær eftir að félagið landaði feitum samningi við Boeing-verksmiðjunnar. Fyr- irtækið hefur samið við flugvéla- framleiðandann um að framleiða afísunarbúnað fyrir nýja módelið B787. „Við tvöföldum veltuna frá og með árinu 2007,“ segir Torbjörn Johansson, forstjóri CTT Systems. Félagið hefur þrefaldast frá áramótum. - eþa SUSHI TIL ÞÝSKALANDS Sindraberg flutti mest af sinni fram- leiðslu til veitingahúsa í Þýskalandi. Fr ét ta bl að ið /G VA Neytendur mótmæla kvóta Evrópusamtök neytenda mótmæla harðlega að kvóti hafi verið settur á innflutning vefnaðarvara og segja það stríða gegn frjálsri verslun. Evrópusamtök neytenda (BEUC) hafa sent frá sér fréttatilkynn- ingu og opið bréf til Peters Mand- elson, framkvæmdastjóra við- skiptamála hjá Evrópusamband- inu, þar sem kvóta á vefnaðar- vöru er harðlega mótmælt. Ís- lensku neytendasamtökin eru eitt aðildarfélaga BEUC. Evrópusambandið hefur árum saman reynt að takmarka inn- flutning á vefnaðarvöru. Nú síð- ast voru hömlur á innflutningi frá Kína auknar með þeim rökum að innflutningurinn truflaði eðli- legan framgang markaðarins. Í bréfinu er Mandelson hvatt- ur til þess að falla frá kvóta á vefnaðarvörur sem fluttar eru inn til landa Evrópusambandsins. Kvótarnir eru sagðir stríða gegn hugmyndum um frjálsa verslun auk þess sem hagsmunir neyt- enda bíði skaða. - jsk Veltuauking í dagvöru áttföld á við ESB ÍSLENDINGAR DUGLEGIR AÐ VERSLA Neysla á mat og drykk eykst mikið. Mælt með kaupum í SÍF Greiningardeild Íslandsbanka verðmetur félagið tíu prósentum yfir markaðsvirði. HÖFUÐSTÖÐVAR SÍF Fyrirtækið er rúm- lega 30 milljarða virði að mati greiningar- deildar Íslandsbanka. 200 prósenta dagshækkun NordicPhotos, nor- rænn myndabanki sem er í meirihlutaeigu Arnalds Johnson, Hreins Ágústssonar, Kjartans Dagbjarts- sonar og Thors Ólafs- sonar, hefur fest kaup á sænska myndabank- anum Tiafoto og verð- ur rekstur hans sam- einaður starfsemi Nor- dicPhotos í Svíþjóð. Kaupverð fékkst ekki upp gefið. NordicPhotos var stofnað árið 2000 og er einn stærsti ljós- myndabanki á Norður- löndunum með fimm milljónir ljósmynda í safni sínu frá yfir fimm hundruð ljós- myndurum. Fyrirtæk- ið er með skrifstofur á Íslandi og í Svíþjóð auk þess að vera með umboðsaðila víða um heim. Tiafoto er þriðji myndabankinn sem NordicPhotos kaupir í Svíþjóð á tveimur árum. - jsk NordicPhotos kaupir myndabanka Laun fara hækkandi KAUPMÁTTUR Laun hækkuðu um 0,4 prósent í júlí og hafa hækkað um 6,6 pró- sent síðastliðna tólf mánuði. ARNALDUR JOHNSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI NORDICPHOTOS Nor- dicPhotos hefur fest kaup á sænska myndabankanum Tiafoto.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.