Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 34
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN8
F R É T T A S K Ý R I N G
Árferði á norrænum hlutabréfamörkuðum
hefur verið einstaklega gott á þessu ári en
allar hlutabréfavísitölurnar á Norðurlöndum
hafa hækkað mikið það sem af er ári. Þær
skiluðu betri ávöxtun en flestar hlutabréfa-
vísitölur á Vesturlöndum á fyrri hluta ársins
en það sama gerðist einnig á fyrri hluta árs
2004.
Efnahagsaðstæður eru góðar, hagvöxtur
er víðast hvar mikill og einkaneysla hefur
vaxið á árinu. Félög í útrás hafa nýtt sér tæki-
færið vel á Íslandi en það sama gildir einnig
um Norðurlöndin, þar sem fyrirtæki sem líta
á heiminn sem sitt starfssvæði hafa notið
góðs af uppganginum.
ÚRVALSVÍSITALAN Í FYRSTA SÆTI
Frá áramótum hefur íslenska úrvalsvísital-
an, sem mælir verðbreytingu fimmtán
helstu félaga, hækkað um 35 prósent en
KFX, danska hlutabréfavísitalan, og OBX,
sú norska, fylgja í humátt eftir. Danska vísi-
talan hefur hækkað um 32 prósent en sú
norska um 28 prósent. Báðar hafa þær
hækkað gríðarlega í sumar og mun meira en
sú íslenska.
OMX-vísitalan í Svíþjóð, sem tekur til 30
félaga, hefur hækkað um sautján prósent frá
áramótum en HEX í Finnlandi, sem 25 félög
mynda, hefur stigið upp um sextán prósent.
NORÐMENN BROSA BREITT
Síhækkandi olíuverð hefur virkað eins og
vítamínsprauta á norska markaðinn. Félög
sem byggja afkomu sína á olíuframleiðslu,
olíuleit eða þjónustu tengdri olíuiðnaði eru á
hraðri uppleið og draga önnur félög með sér.
Besta dæmið er Statoil, sem er að 70 prósenta
hluta í eigu norska ríkisins. Þetta langstærsta
fyrirtæki Noregs hefur hækkað um sextíu af
hundraði frá áramótum og er markaðsvirði
þess um 3.310 milljarðar íslenskra króna.
Hækkun á eignarhlut norska ríkisins í Statoil
samsvarar nú þreföldu markaðsvirði KB
banka!
Annar orkurisi, Norsk Hydro, hefur einnig
hækkað verulega í verði eða um 40 prósent,
sem samsvarar 500 milljarða aukningu á
markaðsverði. Norska ríkið á um 44 prósent í
Hydro.
Yara International, sem framleiðir meðal
annars áburð og gas, er þriðjungi hærra að
virði en það var um áramótin og hefur hækk-
að um 90 milljarða að markaðsvirði. Stærsti
eigandi þess er norski ríkissjóðurinn með um
36 prósenta hlut.
Einnig hafa fyrirtæki í sjávarútvegi og
fiskeldi, fjármálaþjónustu og hátækni átt
góðu gengi að fagna. Fjord Seafood hefur
hækkað um 45 prósent frá áramótum og Pan
Fish, annað stórt fiskeldisfélag, um þrettán
af hundraði. Aker Seafoods, sjávarútvegs-
risinn sem Kjell Inge-Rökke fer fyrir, hefur
hækkað um 38 prósent frá því að fyrirtækið
var skráð í maí síðastliðnum. Opera Soft-
ware, sem er í eigu Íslendingsins Jóns S. von
Tetzchner, hefur hækkað um 80 prósent frá
áramótum.
DnB Nor, stærsti banki Noregs, hefur
hækkað um þrettán prósent og er fjórða verð-
mætasta félagið í norsku kauphöllinni.
Það kemur ekki á óvart að norska ríkið er
stærsti hluthafinn þar.
BAUGUR OG BÓNUSBANKINN
Aðeins fjórtán félög af 182 í dönsku kauphöll-
inni hafa lækkað það sem af er ári en danski
markaðurinn hefur hækkað hratt að undan-
förnu. Á öðrum ársfjórðungi hækkaði sá
danski næstmest á eftir HEX-vísitölunni í
Finnlandi.
Fasteignafélagið Keops, sem Baugur
Group á um 30 prósenta hlut í, er það fyrir-
tæki sem hækkað hefur mest á árinu, um tæp
280 prósent. Fast á hæla Keops kemur svo
eignastýringarfyrirtækið Capinordic með um
250 prósenta hækkun. Bonusbanken er í
þriðja sætinu með 170 prósent.
Fyrirtæki af öllum toga hafa hækkað, þar
á meðal fasteignafélög, útgáfu- og fjölmiðla-
fyrirtæki, fataframleiðendur og ýmis
hátæknifyrirtæki.
Af stóru félögunum sem mynda KFX-víx-
itöluna eru flutningafélagið DSV (+70%) og
vindorkufyrirtækið Vestas Wind Systems
(+66%) þau félag sem hafa hækkað mest á
árinu. A.P. Möller - Maersk-veldið hefur
hækkað um helming en hækkun olíuverðs
kemur því til góða. Einnig fæst það meðal
annars við sjóflutninga og rekstur stórmark-
aða. Skammt á hæla þess kemur Jyske bank
(+47%), sem hefur hækkað mest fjármála-
stofnana í KFX-vísitölunni.
STÓRU FÉLÖGIN HÆKKA ÁGÆTLEGA
Svíar eiga fimm af tíu stærstu bönkum
Norðurlandanna. Nordea, stærsti bankinn á
Norðurlöndum, hefur hækkað um tíu prósent
frá áramótum. Handelsbanken (SHB), sem er
þriðji stærsti á Norðurlöndum, hækkaði að-
eins um 1,5 prósent en mesta hækkunin liggur
í Skandia, þar sem Burðarás er næststærstur
með um 4,5 prósenta hlut. Skandia hefur frá
áramótum hækkað um 26 prósent, sem rekja
má til væntinga um yfirtöku á félaginu.
Símaframleiðandinn Ericsson (+26%) skil-
ar betri ávöxtun en bankarnir. Af öðrum stór-
um fyrirtækjum má nefna miklar hækkanir á
hlutabréfum í ABB (48%), sem framleiðir
búnað fyrir orkuver, lyfjafyrirtækinu Astra-
Zeneca (+45%), fjárfestingarsjóðnum In-
vestor (+37%) og Volvo (+30%).
Í Finnlandi ber það til tíðinda að fjármála-
fyrirtækið Sampo hefur hækkað um 28 pró-
sent frá áramótum og Nokia um sextán af
hundraði.
Stuð í Skandinavíu
Það er glatt á hjalla á norrænum hlutabréfamörkuðum, sem hafa hækkað meira en flestir þeir mark-
aðir sem við erum vön að bera okkur saman við. Danir, Íslendingar og Norðmenn hafa séð tveggja
stafa ávöxtun á sínum mörkuðum og útlitið er enn gott að mati Eggerts Þórs Aðalsteinssonar.
STATOIL MALAR GULL Norska olíufyrir-
tækið Statoil hefur hækkað um 60 prósent
frá áramótum. Hátt olíuverð kveikti í norska
hlutabréfamarkaðnum snemmsumars og er
lítið lát á hækkunum þarlendis.
Markaðsvirði
félaga í norrænum
kauphöllum
(í íslenskum krónum) og fjöldi þeirra *
Markaðs- Fjöldi
virði* skráðra
félaga
Danmörk 10.799 179
Finnland 14.208 139
Ísland 1.434 30
Noregur 11.994 205
Svíþjóð 25.913 269
* Tölur miðast við lok júlí 2005
▲
Hækkun á hlutabréfum
frá áramótum til 22. ágúst
Danmörk - KFX +32%
Finnland - HEX +16%
Ísland - ICEX +35%
Noregur - OBX +28%
Svíþjóð - OMX +17%
▲