Fréttablaðið - 24.08.2005, Qupperneq 36
Mitt á milli Íslands og meginlands Evrópu
eru eyjar sem Íslendingar virðast oft líta
framhjá þegar kemur að fjárfestingarkost-
um. Ein ástæða þess er að stór hluti fyrir-
tækja er í eigu færeyska ríkisins. Viðskiptalíf
Færeyja hefur sannarlega ekki þróast jafn-
hratt og íslenskt viðskiptalíf á undanförnum
árum. Færeyjar virðast oft gleymast þegar
verið er að skoða erlend umsvif íslenskra
fyrirtækja, kannski vegna þess að Íslending-
ar líti svo stórt á sig að þeim finnist ekki taka
því að minnast á Færeyjar. Eða kannski ligg-
ur skýringin í því að flestir hafi komið auga á
kauptækifæri þar en ekki viljað benda öðrum
á þau. Fyrir dyrum stendur að einkavæða
nokkur stærstu fyrirtæki Færeyja en stór
hluti færeysks efnahagslífs er í eigu ríkisins,
eða Landsstýrisins eins og það heitir í Fær-
eyjum enn sem komið er. Fyrirtækin sem
stendur til að einkavæða eru Föroya Tele,
sem er eitt af tveimur símafyrirtækjunum í
Færeyjum, Atlantic Airways, flugfélag Fær-
eyinga, Föroya Banki sem er stærsti banki
Færeyja og Lív, tryggingafélag í Færeyjum.
LÍTILL VÖXTUR
Færeyingar eru rúmlega 50 þúsund talsins og
eru mikil sjávarútvegsþjóð. Nánast allur út-
flutningur er tengdur sjávarútvegi, bæði
fiskur og unnar fiskafurðir. Einnig eru sam-
göngur, fjarskipti og bankar stór hluti af fær-
eysku efnahagslífi. Sjávarútvegurinn er
mikilvægur í augum Færeyinga og svipar
þeim nokkuð til Íslendinga með hversu
mikinn vörð þeir standa um atvinnuveginn.
Mörg smá fyrirtæki einkenna sjávarútveginn
í Færeyjum og fáar sameiningar hafa átt sér
stað. Þó sameinuðust tvö stærstu sjávar-
útvegsfyrirtækin á árinu.
Færeyska fjármálakerfið samanstendur af
einum banka, Föroya Banka, og nokkurs kon-
ar sparisjóði, Föroya Sparikassa. Bankarnir
fundu mjög fyrir kreppunni undir lok níunda
áratugarins og var mikill taprekstur á þeim í
kjölfarið. Sjóðir í eigu ríkisins komu þeim til
bjargar og tveir stærstu bankarnir urðu í
ríkiseigu vegna þess. Þeir sameinuðust svo í
einn árið 1994 undir nafninu Föroya Banki.
Sameiningin var af hinu góða en vöxtur bank-
ans hefur verið hægur undanfarin ár.
Hagvöxtur var mestur árið 2002, fimm
prósent, en svo fór að ára verr og dróst land-
framleiðsla saman árið 2003.
Ef aðstæður í kjölfar einkavæðingar verða
svipaðar og hér á landi má búast við uppgangi
í kjölfar einkavæðingar. Peningamagn í um-
ferð eykst, aukinn kraftur verður settur í
fjárfestingar og viðskiptaumhverfið í Fær-
eyjum verður mun alþjóðlegra.
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN10
Ú T T E K T
Fyrir dyrum stendur að einkavæða nokkur helstu fyrirtæki Færeyja og má gera ráð fyrir því að ís-
lenskir fjárfestar kanni hvað verður í boði. Efnahagslíf Færeyja hefur ekki verið upp á marga fiska
síðustu ár en líklega verða breytingar á í kjölfar einkavæðingar. Íslensk fyrirtæki hafa nú þegar
haslað sér völl í Færeyjum en Dögg Hjaltalín býst við meiri ítökum Íslendinga þar í framtíðinni.
Færeyjar færast nær
Ísland Færeyjar
Íbúafjöldi í þúsundum 294 49
Þjóðarframleiðsla í milljónum 858.921 101.352
Atvinnuleysi 3% 4%
Stærð í þúsundum ferkílómetra 103 1
Heildarafli í tonnum 1980 613
Útflutningur í milljónum 259.429 46.212
Innflutningur í milljónum 281.717 59.461
Útflutningur sem hlutfall af þjóðarframleiðslu 38% 46%
Innflutningur sem hlutfall af þjóðarframleiðslu 40% 59%
*Samkvæmt tölum frá Hagstovu Föroya fyrir 2003
S A M A N B U R Ð U R Á F Æ R E Y J U M O G Í S L A N D I
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP