Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 37
Olíuleit hefur skapað atvinnu og miklar
vonir eru bundnar við olíuvinnslu Færeyinga.
Skýrasta dæmið um það er fyrsta færeyska
félagið skráð á markað hér á landi, Atlantic
Petroleum.
Ekki er hægt að fjalla um færeyskt efna-
hagslíf án þess að minnast á að Danir veita
Færeyingum árlega 630 milljónir danskra
króna, hátt í sjö milljarða íslenskra króna, í
styrki. Danir ætla að greiða Færeyingum
þessa upphæð fram til næsta árs en þá verð-
ur hún líklega lækkuð.
HAFA STIGIÐ FYRSTU SKREFIN
Íslendingar hafa nú þegar komið sér ágætlega
fyrir í Færeyjum og eiga þar hlut í ýmsum fyr-
irtækjum. Einnig hafa íslensk fyrirtæki farið
beint í samkeppni við færeysk fyrirtæki. Ís-
lensk fyrirtæki hafa verið að kaupa færeysk
fyrirtæki í einhverjum mæli upp á síðkastið.
Dæmi um það eru nýleg kaup Og fjarskipta á
68 prósenta hlut í P/f Kall en fyrirtækið hefur
náð ágætri markaðshlutdeild á færeyska fjar-
skiptamarkaðinum. Samstarfið við Og Voda-
fone gefur Kalli möguleika á því að taka nýj-
ungar hraðar í notkun og verður um leið
ákveðið forskot á samkeppnisaðilana.
Eimskip sameinaðist Föroya Ship á síðasta
ári og hefur einnig nýlega fest kaup á fær-
eysku flutningafélagi. Eimskip stefnir að því
að byggja upp alhliða flutningafélag í Fær-
eyjum á borð við það sem hefur verið gert
hér á landi.
KB banki er með starfsemi í Færeyjum og
hefur á skömmum tíma náð að hasla sér völl
á sviðum sem færeysku bankarnir hafa sinnt
lítið, verðbréfaviðskiptum og fjárfestingar-
bankasviði.
Baugur á 50 prósenta hlut í SMS, sem er
stærsta matvörukeðja í Færeyjum með átta
verslanir, þarf af sex Bónusverslanir og tvo
stórmarkaði. SMS er í nánu innkaupasam-
starfi við Aðföng, vöruhús Baugs-Íslands, og
lögð hefur verið áhersla á sölu íslenskrar
matvöru í verslunum Bónuss í Færeyjum.
Samherji hefur einnig komið sér fyrir í
Færeyjum en félagið á hluti í sjávarútvegs-
fyrirtækjum þar, bæði í útgerðum frystiskipa
og uppsjávarveiðiskipa.
EINKAVÆÐING FRAM UNDAN
Færeyska stjórnin hefur tilkynnt að fyrir
dyrum standi að einkavæða fjögur fyrirtæki,
Atlantic Airways, Föroya Banka, Lív og
Föroya Tele. Líkt og hefur átt sér stað hér á
landi í kringum einkavæðingu eru ýmis atriði
sem þarf að huga að áður en fyrirtækin eru
seld. Þeirri spurningu hefur verið upp hve
mikinn hlut erlendir fjárfestar eigi að geta
keypt. Stjórnendur fyrirtækja hafa ekki endi-
lega sömu sýn og stjórnmálamenn. Raddir á
borð við að ekki eigi að einkavæða Atlantic
Airways því þá versni þjónustan hafa verið á
lofti sem og hræðsla við hagræðingu í
rekstri.
Fjármálaráðherra Færeyja hélt erindi
fyrr á árinu í London þar sem hann kynnti
færeyskt efnahagslíf fyrir þarlendum fjár-
festum. Við komuna heim til Færeyja sagðist
hann ekki efast um að gott verð fáist fyrir
fyrirtækin sem verði einkavædd. Hann sagði
mikinn áhuga vera á færeyskum fyrirtækj-
um hjá breskum fjárfestum.
Föroya Tele má líkja við Símann að ein-
hverju leyti en tekjur Föroya Tele og hagnað-
ur á síðasta ári nam einum sjöunda af tekjum
og hagnaði Símans. Föroya Tele hefur verið
að sjá tekjur sínar minnka og hefur Kall,
samkeppnisaðili Föroya Tele, náð yfir tuttugu
prósenta markaðshlutdeild á fjarskiptamark-
aði.
Grunnnetið verður áfram í höndum ríkis-
ins ólíkt því sem var ákveðið hér á landi fyrir
sölu Símans.
Það sem ýtir undir væntingar um að Ís-
lendingar verði áhrifamiklir í Færeyjum á
komandi árum er lítill áhugi erlendra fjár-
festa á íslenskum fyrirtækjum. Áhuginn er
þó að aukast en gera má ráð fyrir að enn
minni áhugi sé hjá þeim á Færeyjum, að
undanskildum Dönum, en þeir hafa til þessa
ekki verið mikið að koma sér fyrir í Færeyj-
um. Markaðurinn þar er mjög lítill og eins er
erfitt að nálgast upplýsingar ef viðkomandi
skilur ekki færeysku.
SKRÁÐ HÉR Á LANDI
Færeyski Virðisbrævnamarknaðurinn og
Kauphöllin eru í samstarfi um skráningu
skuldabréfa og hlutabréfa hér á landi. Þrír
flokkar færeyskra skuldabréfa eru skráðir
hér á landi og eitt hlutafélag. Skuldabréfin
sem skráð eru í Kauphöllinni eru gefin út af
landstjórn Færeyja í dönskum krónum. Virði
þeirra er tæpir 20 milljarðar og velta með
bréfin í fyrra nam tæpum fjórum milljörðum.
Þegar færeysk fyrirtæki verða
einkavædd og skráð á hlutabréfa-
markað verða þau skráð hér á landi.
Íslenskir fjárfestar eru því líklegri
til þess að hafa áhuga á hlutum í
færeyskum félögum.
Ástæða þess að íslenska Kaup-
höllin varð fyrir valinu en ekki sú
færeyska er sú að aðstæður hér á
landi til skráningar voru fýsilegri
þegar Færeyingar skoðuðu málin.
Fjárfestar hér á landi þekkja til
starfsemi stærstu félaganna í Fær-
eyjum. Einnig ef haft er í huga að
fyrirtækin eru að stórum hluta í
eigu færeyska ríkisins svo ekki er
vanþörf á meira fjármagni til frek-
ari vaxtar. Því er búið að leggja
traustan grunn að viðskiptum með
færeysk verðbréf þegar að skrán-
ingu fleiri félaga verður.
Í kjölfar skráningar á færeysk-
um verðbréfum í Kauphöllina varð
Föroya Sparikassi aðili að Kauphöll-
inni sem þýðir að Föroya Sparikassi
geti átt viðskipti þar.
SÆKJA VATNIÐ YFIR LÆKINN
Hægt er að segja að íslenskir fjár-
festa leiti langt yfir skammt en
vissulega eru tækifærin takmörkuð
þar sem Færeyjar eru lítill markað-
ur. Á móti kemur að lítill vöxtur
hefur verið undanfarin ár þannig að
miklir vaxtarmöguleikar ættu að vera til
staðar. Einnig ætti það að vera auðvelt fyrir
íslensk fyrirtæki að nota svipaðar aðferðir og
hafa dugað hér á landi til þess að hasla sér
völl í Færeyjum. Menningin og tungumálið
ættu í það minnsta ekki að standa í vegi fyrir
frekari fjárfestingum Íslendinga í Færeyj-
um. Íslendingar eiga það líka sameiginlegt
með Færeyingum að hafa lotið stjórn Dana.
Íslendingar hafa fjárfest til þess að stuðla
að frekari vexti annars staðar og sama má
segja um fjárfestingar í Færeyjum. Um þess-
ar mundir hafa flestir fjárfestar fjárhagslega
burði til þess að ýta undir vöxt fyrirtækj-
anna, að minnsta kosti á færeyska vísu. Lík-
lega verða áhugasamir kaupendur frá Íslandi
boðnir velkomnir til að koma að rekstri fyrir-
tækja í Færeyjum með reynslu frá svipaðri
en aðeins stærri þjóð.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 11
Ú T T E K T
Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic
Petroleum var skráð í Kauphöllina um
miðjan júní. Félagið var þar með
fyrsta færeyska félagið sem fer á
hlutabréfamarkað.
Atlantic Petroleum stundar olíuleit í
færeysku efnahagslögsögunni og í
Norðursjó. Lengi hafði staðið til hjá
forsvarsmönnum Atlantic Petroleum
að koma hingað til lands og stóð upp-
haflega til að félagið yrði skráð um
síðustu áramót.
Wilhelm Petersen, framkvæmda-
stjóri Atlantic Petroleum, sagði af því
tilefni ástæðu skráningar félagsins á
íslenska markaðinn vera þá að hug-
myndir um uppbyggingu hlutabréfa-
markaðar í Færeyjum tókust ekki. Þar
sem stjórnendur AP hefðu haft mikinn
áhuga á að komast á hlutabréfamarkað
hefðu þeir valið Ísland.
Markaðsverðmæti félagsins er nú
tæpir 2,4 milljarðar króna. Ekki var
gefið út nýtt hlutafé í tengslum við
skráninguna.
KB banki hefur umsjón með skrán-
ingu félagsins í samvinnu við færeyska
aðila.
Eigendur Atlantic Petroleum eru
3.000, mestmegnis einstaklingar og
félög í Færeyjum.
Atlantic Petroleum
Markaðsvirði fyrirtækisins er rúmir tveir milljarðar króna
og hluthafar þess eru um þrjú þúsund talsins.
Líkt og hefur átt
sér stað hér
á landi í kringum
einkavæðingu
eru ýmis atriði
sem þarf að huga
að áður en
fyrirtækin eru
seld. Þeirri spurningu
hefur verið velt
upp er hve mikinn hlut
erlendir fjárfestar
eigi að geta
keypt.