Fréttablaðið - 24.08.2005, Side 38

Fréttablaðið - 24.08.2005, Side 38
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN12 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Ásgeir Friðgeirsson hefur undanfarin misseri unnið sem ráðgjafi í almannatengslum fyrir ýmis fyrirtæki. Mest áberandi hafa verið fyrirtæki Björgólfsfeðga og Magnúsar Þor- steinssonar sem saman áttu Samson, sem keypti kjölfestuhlut ríkisins í Landsbankan- um. Ásgeir átti þess kost við brotthvarf Guð- mundar Árna Stefánssonar að setjast á þing. Eftir nokkra umhugsun ákvað hann að halda áfram að vinna að ráðgjöf á sístækkandi leik- velli viðskiptavina sinna. B5 er tiltölulega nýr staður og matseðillinn lofar góðu. Ásgeir fær sér þorsk og ég lambaskanka. „Við erum þjóðlegir í valinu,“ segir Ásgeir. Þorskurinn og lambið héldu þjóð- inni á floti í harðbýlu landi og voru um langt skeið helsta lífsbjörg þjóðarinnar. Nú eru aðrir tímar. Ásgeir hefur verið ráðgjafi Björgólfsfeðga frá því á seinni hluta söluferlis Landsbankans. „Ég hafði fengist við almannatengslaráðgjöf áður á síðasta áratug. Ég var sannfærður um að framtíð fjölmiðlunar lægi á internetinu og var í biðstöðu meðan ég reyndi að fá menn að slíkum verkefnum, þá tók ég að mér ráðgjöf.“ Síðan tók netið við en Ásgeir var ritstjóri strik.is. Eins og oft er með nýja hluti var bjart- sýnin of mikil um allan heim og skrefin stigin helst til snemma. Strik mátti þola sömu örlög og margar góðar hugmyndir. Netbólan sprakk og dagar margra slíkra fyrirtækja voru taldir. „Ég var aðeins farinn að sinna ráðgjöf undir lok tímabilsins, þegar Björgólfur Guðmunds- son setti sig í samband við mig.“ KYNNTIST BJÖRGÓLFI Í KIRKJUNNI Ásgeir var í námi í Bretlandi og á sama tíma var Björgólfur búsettur þar. „Ég tók þátt í starfi Íslendingafélagsins, var formaður þess um tíma og söng í kirkjukór. Þau hjón voru kirkjurækin þá eins og nú. Þá kynntist ég þeim hjónum. Svo lágu leiðir okkar saman þegar hann var að sinna íþróttafélagi vestur í bæ sem ég vil helst ekki nefna á nafn, en þá var ég formaður Breiðabliks.“ Ásgeir segist alltaf hafa starfað sjálfstætt og verkefnin hafi verið slitrótt til að byrja með. Ekki leið þó á löngu eftir að Samson hafði eignast kjölfestuhlut í Landsbankanum áður en hjólin fóru að snúast og það hratt. Um- fangsmestu eignatilfærslur íslenskrar við- skiptasögu voru fram undan. „Það er ákveðin þungamiðja í þessum verkefnum. Það er aug- ljóst að árið 2003 var þungamiðjan hér heima. Miklar breytingar á Landsbankanum, fjárfest- ing í SH og síðar í Eimskip og umbreyting á því félagi. Fyrst með sölu Brims, síðan skipa- félaginu og nú síðast sameining við Lands- bankann og Straum Burðarás. Þetta hefur í raun verið eitt samfellt ferðalag. Ég held að menn muni sjá það þegar fram í sækir að markmiðið hefur ekki verið að byggja upp fyrirtæki sem gína yfir öllu á Íslandi, eins og einhverjir hafa viljað í láta í veðri vaka.“ Ásgeir segir að yfir sama tímabil hafi þungamiðjan hjá Burðarási og Björgólfi Thor verið á leiðinni út. „Það sést best á því að á síðustu tveimur árum hefur verið fjárfest í fjórum símafélögum í jafnmörgum löndum og svo fjárfestingar Burðaráss á Norðurlöndum. Burðarás er orðinn þekkt félag á þeim mörkuðum.“ HRINGURINN SEX TIL SJÖ ÁR Ásgeir segir að samhliða því að sinna vel samskiptum við hluthafa og almenning á Ís- landi til þess að tryggja að ekki væri á ferð misskilningur um markmiðin hafi þurft að byggja upp tengslanet erlendis. „Það sýndu margir áhuga á að misskilja hvað vakti fyrir mönnum.“ Verkefnin hafa vaxið og Ásgeir ver sífellt meira af tíma sínum við erlend verk- efni viðskiptavinanna. „Ég ákvað að byggja ekki upp fyrirtæki í kringum þetta, heldur vera sjálfstæður ráðgjafi. Það var markviss ákvörðun, því ég sá það fyrir mér að ég myndi sennilega enda sem sölu- maður á vinnu annarra.“ Verkefni Ásgeirs fyrir feðgana og Magnús Þor- steinsson voru ekki orðin svo mikil þegar Ásgeir fór í prófkjör Samfylkingarinn- ar og náði góðri kosningu og varaþingmannssæti. „Ég var á tímamótum, búinn að vera á kafi í internetinu í sex til sjö ár. Mér sýnist það reyndar vera hringurinn hjá mér. Ég var svipaðan tíma í Bretlandi, líka sex til sjö ár á Iceland Review og svo á netinu.“ Ásgeir er því ekki hálfn- aður með hringinn í suðu- potti alþjóðavæðingar viðskiptanna. „Það var augljós hætta á hagsmuna- árekstri við það að setjast á þing, sem varð til þess að mér fannst ekki koma til greina að sinna því sem ég er að gera sam- hliða því að vera á þingi eins og hefur verið venjan ef menn eru til dæmis í útgerð eða bændur,“ segir Ásgeir og brosir. „Það þykir allt í lagi,“ bætir hann við. BLAIR OG BLIKARNIR Þótt áhuginn á þjóðmálum sé mikill toguðu verkefnin meira í hann. „Þetta áhugaverða viðfangs- efni sem ég er að fara að takast á við er að byggja upp það sem við skulum kalla tengslanet í útlöndum. Al- þjóðlegt fyrirbæri sem vinn- ur í þeim löndum sem Íslend- ingar hafa verið að fjárfesta og sérhæfir sig í fjármála- og fjarskiptafyrirtækjum.“ Þetta eru þeir geirar sem Björgólfur Thor hefur lagt mesta áherslu á. Ásgeir segir að þetta gefi síðan tækifæri til að vinna fyrir erlend fyrir- tæki í sömu greinum sem hafi áhuga á að afla nýrra við- skiptatengsla í Íslandi. „Það er einmitt það sem þessi mikla umfjöllun um Ísland hefur leitt af sér, að við erum miklu meira inni á radarnum hjá erlendum fjárfestum en þjóðir miklu stærri en við.“ Áhugi Ásgeirs á þjóðmál- um og félagsmálum hefur alltaf verið mikill, auk þess sem hann skilgreinir sig sem fjölmiðlafíkil. „Áhuginn á pólitík er enn mikill. Mér finnst ég samt meira á heimavelli sem ráðgjafi en sem stjórnmálamaður.“ Hann fylgist mikið með breskum stjórnmálum. „Samfélagið hefur gjörbreyst frá því ég var þarna í námi, þá setti atvinnuleysið mikinn svip á sam- félagið. Ég segi ekki að breytingin sé Tony Blair að þakka, hann naut ýmissa verka Mar- grétar Thatcher eins og núverandi ríkisstjórn hefur notið framsýni Jóns Baldvins og kratanna.“ Annar heimavöllur er heimavöllur Breiða- bliks. „Þar er ég hitti ég gamla félaga og finn fyrir rótunum í Kópavogi,“ segir Ásgeir, sem mun fylgjast með sínum mönnum í efstu deild að ári. Hádegisverður fyrir tvo á B5 Steiktur þorskur með risotto og aspas Hægeldaður lambaskanki með kartöflumús Drykkir Vatn Kaffi Alls 3.450 krónur ▲ H Á D E G I S V E R Ð U R I N N Með Ásgeiri Friðgeirssyni almannatengslaráðgjafa Niður með Noreg - upp með markaðinn Um áramótin spáði Aurasálin því að úrvalsvísitalan myndi halda áfram að falla og fara niður fyrir þrjú þúsund stig fyrir haustið. Aurasálin losaði sig því við þau fáu hlutabréf sem hún átti, sérstaklega í Landsbankan- um, Bakkavör og FL Group, og setti allt sitt beint inn á banka- bók. Þessi þrjú félög höfðu hækkað svo mikið í fyrra að þessu hlaut að linna. Aurasálin ákvað að geyma peningana á tékkareikningi til þess að hægt yrði að losa þá út með skömmum fyrirvara ef ómótstæðileg tæki- færi sköpuðust á markaðinum. Nú hefur komið í ljós að þetta var ekki heppileg ráðstöfun. Lands- bankinn hefur hækkað um 77 prósent, Bakkavör um 70 pró- sent og FL Group um 66 prósent. Ákvörðun Aurasálarinnar um áramótin var því, svona eftir á að hyggja, ekki alveg eins góð og Aurasálin átti von á. Til þess að bæta gráu ofan á svart fór Aurasálin með fjölskyldu sína í sumarfrí til Noregs í júní og júlí. Fríið var mjög gott og það fór vel um fjölskyldu Aurasálarinn- ar í hlýlegum fjallakofanum með saunaklefanum og innisundlaug- inni þessa tvo mánuði. Ekki skemmdi heldur fyrir að það var stutt í stórborgina þar sem hægt var að finna verulega fína og flotta veitingastaði ef vel var leitað. Aurasálin er vön því að gæta vel að því að útgjöld heimilisins séu innan skynsamlegra marka en þegar maður er í sumarfríi hætt- ir manni til að gleyma sér. Ekki hjálpaði það til að allir sem sáu Aurasálina á leigða Hummern- um héldu umsvifalaust að þar færi iðjuhöldur af voldugustu gerð. Aurasálin gat því ekki látið sjá sig og fjölskyldu sína nema á allra fínustu stöðunum og þótt Aurasálin sé langt frá því að vera nánös var henni farið að blöskra þegar hún áttaði sig á því að kvöldmaturinn kostaði oftast á bilinu sjötíu til áttatíu þúsund. Nú líður að mánaðamótum og enn hefur verðbréfamarkaðurinn ekki hrunið. Aurasálin er reynd- ar sannfærð um að það hljóti að koma að því en í stað þess að bíða í ofvæni vonar Aurasálin að hrunið láti aðeins standa á sér. Þetta var nefnilega dýrt sumar fyrir Aurasálina og fríið í Nor- egi mun gera henni erfiðara en ella fyrir með að stökkva inn á hlutabréfamarkaðinn í nánustu framtíð. VISA-reikningarnir munu éta upp tékkareikninginn og gott betur en það! Aurasálin vill því koma því áleið- is til forstjóra Kauphallarinnar að hann haldi verðinu á íslenska markaðinum háu næstu átta til tíu mánuðina á meðan Aurasálin vinnur af sér yfidráttinn. Eftir það væri gott ef verð á bréfum færi lækkandi. Þá ætlar Aura- sálin svo sannarlega að vera til- búin og græða á tá og fingri! A U R A S Á L I N Ásgeir Friðgeirsson Starf: Almannatengslaráðgjafi Fæðingardagur 25. október 1958 Börn: David Kalendaric-Babic f. 1984 ÁSGEIR FRIÐGEIRSSON „Ég ákvað að byggja ekki upp fyrirtæki í kringum þetta, heldur vera sjálfstæður ráðgjafi. Það var markviss ákvörðun, því ég sá það fyrir mér að ég myndi sennilega enda sem sölumaður á vinnu annarra.“ „Ég tók þátt í starfi Íslendingafélagsins, var formaður þess um tíma og söng í kirkjukór. Þau hjón voru kirkjurækin þá eins og nú. Þá kynntist ég þeim hjónum. Svo lágu leiðir okkar saman þegar hann var að sinna íþróttafélagi vestur í bæ sem ég vil helst ekki nefna á nafn, en þá var ég formaður Breiðabliks.“ Þingið vék fyrir alþjóðavæðingunni Ásgeir Friðgeirsson hyggst einbeita sér að uppbyggingu tengslanets og ráðgjafar erlendis fyrir fjár- mála- og fjarskiptafyrirtæki. Hann er ráðgjafi Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar og fyrir- tækja þeirra. Hafliði Helgason snæddi með Ásgeiri og ræddi við hann um verkefnin og valið milli þings og verkefna fyrir íslenska fjárfesta. Fr ét ta bl að ið /E .Ó l.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.