Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 39
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 13
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjöf Og Vodafone í síma 599 9500 eða sendu tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
89
38
07
/2
00
5
Er einhver í þínu fyrirtæki
sem heldur að skást sé best?
Sautján slösuðust og fjórir voru
fluttir á sjúkrahús þegar óeirðir
brutust út við útsölu á notuðum
Apple iBook-fartölvum í Hen-
rico-sýslu í Virginíuríki í Banda-
ríkjunum.
Útsalan var á vegum yfir-
valda í Henrico-sýslu en nýlega
var ákveðið að skipta út öllum
Apple-tölvum í opinberum bygg-
ingum sýslunnar fyrir spánnýjar
tölvur frá Dell. Þúsund fartölvur
voru í boði og kostaði stykkið að-
eins rúmar fjögur þúsund ís-
lenskar krónur.
Talið er að tólf þúsund manns
hafi bitist um fartölvurnar þús-
und. Þegar forsvarsmenn útsöl-
unnar komu á vettvang var um
kílómetra löng röð fyrir utan
sölustaðinn og var sú ákvörðun
tekin að hefja söluna tveimur
klukkustundum fyrr en áður
hafði verið ákveðið.
Mikill troðningur varð þegar
fólkinu var loks hleypt inn; slags-
mál brutust út og stólum var
kastað auk þess sem einn far-
tölvuunnandi taldi skynsamlegt
að keyra bíl sínum inn í þvöguna.
Enginn var handtekinn.
„Ég skil ekki þennan mikla
áhuga á tölvunum. Þetta er úrelt
drasl,“ sagði Paul Proto yfir-
maður tölvumála hjá Henrico-
sýslu. - jsk
Óeirðir á tölvuútsölu
Tólf þúsund manns bitust um þúsund notaðar Apple iBook-fartölvur.
Einn kaupandinn keyrði bíl sínum inn í þvöguna.
APPLE IBOOK-TÖLVA Allt ætlaði um koll að
keyra á útsölu á notuðum Apple iBook-tölvum í
Bandaríkjunum á dögunum. Sautján slösuðust
og fjórir voru fluttir á sjúkrahús.
Teymi vísindamanna við Háskól-
ann í Tókýó hafa þróað efni með
hita- og rafleiðslum sem gerir
vélmennum kleift að skynja
snertingu og hitabreytingar, rétt
eins og mannfólkið gerir.
Um er að ræða skinn sem má
vefja utan um fingur og aðra lík-
amshluta vélmenna. Þetta er í
fyrsta skipti sem þróað er skinn
sem getur skynjað hitabreyting-
ar.
Vísindamennirnir segja að
uppgötvunin muni auðvelda
vélmennum að komast af í
mannheimum og að brátt muni
vélmenni skynja hluti sem
mannfólkið skynjar ekki:
„Brátt verður hægt að búa til
skinn sem getur skynjað ljós,
raka og hljóð,“ segir í grein
sem birtist í tímaritinu
Proceedings of the National
Academy of Sciences. - jsk
Rannsóknir vísindamanna hafa leitt
í ljós að neðansjávareyjan Spartel,
þar sem margir telja að hin goð-
sagnakennda borg Atlantis hafi
staðið, varð fyrir risaflóðbylgju fyr-
ir um tólf þúsund árum. Franski líf-
fræðingurinn Jaques Collina-Gir-
ard uppgötvaði eyjuna árið 2001.
Forn-gríski heimspekingurinn
Platón fjallaði um Atlantis í
bókum sínum, sem skrifað-
ar voru fyrir um tvö þús-
und árum. Platón sagði
Atlantis hafa lagst í eyði
„á einum degi og einni
nóttu“, og síðan horfið í
sæinn. Samkvæmt Platón
dundu ósköpin einmitt yfir
borgina fyrir um tólf
þúsund árum. Spartel-eyja liggur
um sextíu metrum undir yfirborði
sjávar, í Gíbraltarsundi sem liggur
milli syðsta odda Evrópu og nyrsta
hluta Afríku. Vísindamennirnir
fundu hins vegar engin merki um
mannaferðir á eyjunni, engar rústir
voru sjáanlegar auk þess sem eyjan
var mun smærri en áður hafði verið
talið.
Þetta þykir mæla því í mót
að einhvern tíma hafi þrifist
siðmenning á Spartel. -jsk
Vélmenni með skinn
Þróað hefur verið efni sem gerir vélmennum
kleift að skynja snertingu og hitabreytingar.
GRÍSKI HEIMSPEKINGURINN
PLATÓN Platón skrifaði um hina
miklu borg Atlantis sem lagðist í
rúst í miklum náttúruhamförum.
Vísindamenn telja hugsanlegt að
borgin hafi staðið á neðansjáv-
areyjunni Spartel.
Atlantis fundin?
Risaflóðbylgja reið yfir neðansjávareyjuna Spartel
fyrir tólf þúsund árum. Engin merki siðmenning-
ar hafa þó fundist á eyjunni.Sádar daðra með Bluetooth
Trúarbragðalögreglan í Sádi-Arabíu er ráðalaus gagnvart tækninýjungum.
Lögbrjótar nýta sér í síauknum mæli Bluetooth-farsímatækni.
Bluetooth-tæknin gerir yfirvöldum í Sádi-Arabíu
lífið leitt þessa dagana. Bluetooth gerir far-
símanotendum kleift að senda skilaboð í
síma í níu metra radíus án þess að notast
við hið hefðbundna farsímakerfi.
Af þessu hefur trúarbragðalögreglan í
landinu miklar áhyggjur en ógiftum kon-
um er bannað að hafa samskipti við karla
sem ekki tilheyra fjölskyldum þeirra,
samkvæmt lögum í landinu.
Um leið og fólk tengist Bluetooth-kerf-
inu kemur upp listi með nöfnum annarra
notenda á svæðinu; nöfnin sem upp koma
eru þó nánast órekjanleg enda notast flestir
við dulnefni. Undanfarið hefur færst í auk-
ana að ungir Sádi-Arabar mæli sér mót í verslunar-
miðstöðvum og daðri símleiðis.
Stjórnvöld í landinu hafa reynt allt til að
koma í veg fyrir ólögleg samskipti kynjanna;
myndavélasímar voru til að mynda bannaðir
tímabundið. Bannið var hins vegar fljótlega
afturkallað þar sem myndavélar eru staðal-
búnaður í flestum nýjum símum.
Abdullah Muhammad er einn þeirra sem
nota Bluetooth-tæknina til samskipta við hitt
kynið: „Ég nota Bluetooth til að hitta stelpur.
Trúarbragðalöggan á ekki séns í mig.“ - jsk
FARSÍMI MEÐ BLUETOOTH Ungir Sádi-Arabar nota nú
Bluetooth-síma í auknum mæli til að kynnast jafnöldrum
sínum af hinu kyninu. Bluetooth-skilaboð eru órekjanleg.