Fréttablaðið - 24.08.2005, Qupperneq 40
Reglur um rétt foreldra til töku
fæðingarorlofs geta verið með
ýmsum hætti. Síðustu daga og
vikur hefur mikið verið rætt og
ritað um þessi réttindi. Lítið
hefur hins vegar heyrst um það
hvert er markmið laga um fæð-
ingar- og foreldraorlof. Í lögun-
um segir að markmiðið laganna
sé tvíþætt, þ.e. að „tryggja barni
samvistir bæði við föður og móð-
ur“ og jafnframt „að gera bæði
konum og körlum kleift að sam-
ræma fjölskyldu- og atvinnulíf“.
Skýrara getur þetta vart verið,
grundvallarmarkmiðið er réttur
barns til samvista við foreldra og
annað markmið snertir jafnrétti
kynjanna.
INNTAK RÉTTINDA
Lítum á helstu þætti þessara rétt-
inda. Sem kunnugt er eiga nýbak-
aðar mæður á vinnumarkaði rétt
á þriggja mánaða orlofi, feður á
vinnumarkaði eiga sömuleiðis
rétt á þriggja mánaða orlofi og
sameiginlega eiga þau rétt á öðr-
um þremur mánuðum. Samtals
eru þetta níu mánuðir og eru rétt-
indin óframseljanleg. Réttindin
eru með öllu óháð því hvaða
starfi móðir eða faðir gegnir og
eins hver mánaðarlaun eru, svo
fremi sem öðrum skilyrðum er
fullnægt.
Tilkynna skal vinnuveitanda
um töku fyrirhugaðs orlofs. Eftir
að tilkynning hefur verið send og
á meðan á orlofi stendur njóta
foreldrar ákveðinnar verndar.
Þannig eru uppsagnir vinnuveit-
anda óheimilar nema gildar
ástæður séu fyrir hendi og skal
þá rökstyðja uppsögn skriflega.
Það sama gildir um þungaðar
konur og konur sem nýlega hafa
átt börn. Skal starfsmaður eiga
rétt á að hverfa aftur til starfa að
orlofi loknu eða fá sambærilegt
starf hjá vinnuveitanda. Laun-
þegi getur sagt starfi sínu lausu á
þessu tímabili samkvæmt al-
mennum reglum um uppsagnir
af hálfu launþega. Eins er laun-
þega heimilt að semja við vinnu-
veitanda um starfslok fyrir eða
eftir barnsfæðingu.
Greiðslur til foreldra sem
hafa verið sex mánuði á vinnu-
markaði nema 80% af launum
síðastliðinna tveggja ára en þó
aldrei meira en kr. 480.000 á
mánuði. Sömu reglur gilda um
greiðslur til kvenna og karla.
MIKILVÆGT FYRIR MÆÐUR,
FEÐUR OG BÖRN
Það hefur verið sagt að lögin frá
2000 um fæðingar- og foreldra-
orlof hafi verið stærsta skref til
þess að tryggja jafnrétti kynj-
anna frá því konur fengu kosn-
ingarétt hér á landi. Margt er án
efa til í þessu. Sjálfstæður og
óframseljanlegur réttur feðra til
töku fæðingarorlofs leiðir til
þess að staða kynjanna á vinnu-
markaði verður jafnari. Spurn-
ingar sem sagt er að vinnuveit-
endum spyrji í atvinnuviðtölum
um hugsanlegar barneignir koma
væntanlega bæði upp í atvinnu-
viðtölum kvenna og karla í dag.
Fram hjá því verður hins
vegar ekki horft að umræða lið-
inna daga og vikna kom til vegna
væntanlegs fæðingarorlofs
karls. Ekki hafa áður heyrst sjón-
armið áþekk sjónarmið um ætlað
fæðingarorlof konu. Má því velta
upp þeirri spurningu hvort í raun
sé ekki litið svo á í atvinnulífinu
að rétturinn sé bæði feðra og
mæðra. Lagatextinn er engu síð-
ur ótvíræður, réttindi kvenna og
karla eru sambærileg.
ÓÞÆGINDI FYRIR ATVINNU-
REKANDA
Það er ljóst að fæðingarorlof
starfsmanns kemur sér oftar en
ekki illa fyrir atvinnurekanda og
hefur aukinn kostnað í för með
sér. Þetta hefur hins vegar alltaf
átt við um orlof mæðra og mun
áfram gilda um orlof beggja for-
eldra. Löggjafinn hefur ákveðið
hvernig þessum réttinum skuli
háttað í ljósi markmiðanna og
þar með lagt óbeinar álögur á
atvinnulífið.
Hugsanlegt er að tvíþættu
markmiði laganna yrði eins náð
með öðrum hætti. Mætti til dæmis
hugsa sér að réttur foreldra væri
framseljanlegur, til dæmis til ná-
kominna sem þá mundu hugsa um
barnið og fá orlofsgreiðslur? Með
því væri réttur barnsins til sam-
vista við báða foreldra hins vegar
ekki tryggður.
Velflestir karlar nýta sér þann
rétt að taka fæðingarorlof. Það
þykir almennt ekki tiltökumál í
dag þótt karl fari í orlof til að
sinna ungu barni. Þó eru alltaf
einstaklingar sem gera það ekki,
s.s. karlar með nokkuð há laun.
Svo virðist sem eitthvað sé um
það að karlar er vinna í bönkum
og fjármálafyrirtækjum taki lítið
eða ekkert orlof. Getur verið að
umhverfi þeirra gefi þeim þau
skilaboð að það sé ekki við hæfi
að fara í slíkt orlof? Slæmt er ef
svo er. Mikilvægt er að minna
feður, mæður og atvinnurekend-
ur á meginmarkmið laganna, það
er rétt barns til samvista við
bæði föður og móður. Vonandi
nýta sem allra flestir feður sér
þennan rétt, einnig með það í
huga að tryggja jafnrétti kynj-
anna sem vart verður náð nema
bæði karlar og konur taki fullan
þátt í að stefna að því markmiði.
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN14
S K O Ð U N
Mikið reynir á hagstjórnina á næstunni:
Hætta á harðri lendingu
Hafliði Helgason
Fáum dylst að þensla og góðæri einkenna íslenskt þjóðfélag þessa
dagana. Hitamælar efnahagslífsins nálgast suðumark hver af
öðrum.
Lengi hafa menn búist við því að vinnumarkaðurinn færi að sýna
af sér þenslumerkin. Það dróst á langinn, einkum vegna innflutts
vinnuafls, bæði við stórframkvæmdir á Kárahnjúkum og í bygging-
ariðnaði á höfuðborgarsvæðinu.
Nú hrannast upp merki þess að reyni á þanþol vinnumarkaðar-
ins. Erfiðlega gengur að manna leikskóla og frístundaheimili í skól-
um. Húsasmiðjan auglýsti eftir eldra fólki til starfa. Nú er það svo
að þrátt fyrir að í hópi þeirra sem komnir yfir miðjan aldur sé
mikið af úrvals starfsfólki á fólk komið yfir miðjan aldur oft erfitt
uppdráttar þegar þrengir að á vinnumarkaði.
Verðbólga án húsnæðis er lág hér á landi, en fasteignamarkaður-
inn er enn á uppleið, þótt flestir búist við því að hann fari að hægja
á sér. Það er því vel kynt undir kötlum efnahagslífsins þessa
dagana. Viðskiptahallinn slær fyrri met og krónan virðist ekkert
vera á þeim buxunum að gefa eftir.
Stjórnvöld standa því frammi fyrir
krefjandi verkefnum í hagstjórninni.
Ríkisstjórnin hefur boðað lækkun
skatta og á meginþungi lækkananna að
koma fram árið 2007. Þá var ráð fyrir
því gert að hápunkti framkvæmda væri
náð. Nú eru hins vegar merki um að
þenslan haldi áfram með frekari
stækkunum álvera og framkvæmdum
við orkuöflun fyrir þau.
Fylgismenn skattalækkana nú hafa
haldið á lofti þeim rökum að þrátt fyrir
að skólabókarhagfræði mæli með
skattalækkunum á samdráttarskeiði sé
raunin sú að þá lækki stjórnmálamenn
aldrei skatta við þær kringumstæður.
Eina leiðin sé því að lækka skatta í góð-
æri, þótt það valdi frekari þenslu og
auki hættuna á harðri lendingu hag-
kerfisins þegar saman dregur á ný.
Hverrar skoðunar sem menn eru verða
stjórnvöld á hverjum tíma að meta slík-
ar ákvarðanir út frá heildarhagsmun-
um efnahagskerfisins. Full rök eru
fyrir því að breyta tímasetningum skattalækkana eftir horfunum í
efnahagslífinu.
Önnur rök fyrir skattalækkunum eru að einstaklingar séu síst
líklegri til að fara illa með fjármuni en ríkið í góðærinu. Það er
vissulega rétt að stjórnmálamenn eiga erfitt með að neita sér um að
deila út fé skattborgaranna þegar vel árar. Hins vegar bendir
hækkandi yfirdráttur heimila til þess að auknar ráðstöfunartekjur
hafi ekki verið nýttar til þess að lækka skuldir heimila, heldur
aukið mönnum bjartsýni, sem aftur hefur leitt til meiri skuldsetn-
ingar. Mikil skuldsetning er meðal þess sem getur gert lendingu
hagkerfisins eftir góðærið harkalegri en ella með þeim harmleik
sem gjaldþrot einstaklinga eru.
Þensla á vinnumarkaði og launaskrið ógna stöðugleika efnahags-
lífsins. Ruðningsáhrif góðærisins koma fram og verst borguðu
störfin gjalda fyrir. Það leiðir svo auðvitað hugann að því hvaða
störf eru viðkvæmust fyrir ruðningsáhrifunum. Það hlýtur að vera
umhugsunarefni að fyrstu einkenni þenslu á vinnumarkaði verði til
þess að þeir sem eru hæfir til að sinna uppeldi barnanna okkar leiti
annarra starfa.
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Björgvin Guðmundsson, Dögg Hjaltalín, Eggert Þór Aðalsteinsson, Jón Skaftason AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína
Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og auglysingar@markadurinn.is
VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu á
heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Ekki sama íþrótt
The Financial Times | Francisco Guerrera segir í The
Financial Times að samanburður milli Indlands og
Kína sé eins og að spyrja hverjir myndu vinna ef
bandaríska körfuboltaliðið Los Angeles Lakers og
enska knattspyrnuliðið Manchester United leiddu
saman hesta sína. Vissulega hafi bæði löndin, rétt
eins og liðin, notið vel-
gengni undanfarin ár. Hins
vegar séu Indland og Kína svo ólík að samanburð-
ur myndi ekki leiða til neinnar niðurstöðu. Þetta
segir hann að hafi sýnt sig þegar ríkisstjórn Ind-
lands ákvað að fresta einkavæðingu á þrettán ríkis-
fyrirtækjum. Kínverjar haldi sínu einkavæðingar-
ferli hins vegar ótrauðir áfram: nú síðast hafi
Royal Bank of Scotland keypt tíu prósenta hlut í
Bank of China. Guerrero varar við því að ályktanir
verði dregnar af þessu; stjórnarfar, menning og
saga landanna sé einfaldlega svo ólík að mismun-
andi aðferðir kunni að leiða til svipaðrar niður-
stöðu.
Arfleifð Greenspans
The Observer | Í The Observer veltir Heather
Stewart fyrir sér arfleifð Alans Greenspan, seðla-
bankastjóra Bandaríkjanna, sem lætur af störfum
um næstu áramót. Stewart segir Greenspan fyrir
löngu hafa áunnið sér traust sem maður sem kann
að bregðast við krísum.
Hann hafi brugðist skjótt og
örugglega við hinum svokallaða „svarta mánudegi“
árið 1987 þegar Dow Jones-vísitalan féll um rúm
tuttugu prósent á einum degi. Eins hafi farið með
netbóluna, Greenspan lækkaði í kjölfarið stýri-
vexti úr sex og hálfu prósenti í eitt prósent á tæp-
um tveimur árum og þannig náð að halda skaðan-
um í lágmarki. Stewart segir Greenspan njóti svo
mikillar aðdáunar á Wall Street að fjármálamógúl-
ar þekki hann undir nafninu „maestro“, eða meist-
arinn. Greenspan er þó ekki gallalaus og telur
Stewart að hann megi helst gagnrýna fyrir að sjá
ekki fyrir efnahagskrísur fyrr en þær hafi skollið
á: „Fari svo að húsnæðisbólan springi í valdatíð
Greenspans verður það blettur á annars á frábær-
um ferli,“ segir Stewart.
U M V Í Ð A V E R Ö L D
Fylgismenn skatta-
lækkana nú hafa
haldið á lofti þeim
rökum að þrátt fyrir
að skólabókarhag-
fræði mæli með
skattalækkunum á
samdráttarskeiði sé
raunin sú að þá
lækki stjórnmála-
menn aldrei skatta
við þær kringum-
stæður.
bjorgvin@markadurinn.is l dogg@markadurinn.is l eggert@markadurinn.is
haflidi@markadurinn.is l jsk@markaðurinn.is
Helga Melkorka
Ólafsdóttir
hdl. og meðeig-
andi LOGOS lög-
mannsþjónustu
O R Ð Í B E L G
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Af hverju fæðingarorlof karla?
Mætti til dæmis hugsa sér að réttur foreldra væri
framseljanlegur, til dæmis til nákominna sem þá
mundu hugsa um barnið og fá orlofsgreiðslur? Með
því væri réttur barnsins til samvista við báða for-
eldra hins vegar ekki tryggður.