Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 42
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN16 F Y R I R T Æ K I F Ó L K Á F E R L I „Ég byrjaði árið 1968 að fram- leiða karamellur í kjallaranum heima hjá mér. Það var nú bara hugsað sem smá aukavinna til að drýgja tekjurnar, en vatt síðan upp á sig. Ég fór svo að framleiða Hraun og Æðibita, sem allir þekkja og lifa enn góðu lífi,“ segir Helgi Vilhjálmsson, eigandi sælgætisgerðarinnar Góu. Það er óhætt að segja að Góa hafi vart litið um öxl síðan Helgi byrjaði í karamellunum. Fyrir- tækið flutti nýlega í sex þúsund fer- metra hús- næði við Garðahraun, á mótum Garðabæjar og Hafnarfjarðar, og ekkert lát virðist vera á vel- gengninni. „Í dag er sælgætið frá okkur inni á öllum heimilum, nema þeirra sem er illa við mig,“ segir Helgi hlæjandi. Helgi segir miklu muna að vera í eigin húsnæði. Í upphafi hafi Góa hrökklast úr einu leigu- húsnæðinu í annað: „Við keypt- um svo loksins hús í Hafnarfirð- inum og vorum þar í tuttugu ár þangað til við fluttum hingað í Garðahraunið. Það er algerlega nauðsynlegt að vera í eigin húsnæði.“ Góa keypti árið 1992 ak- ureyrsku sæl- g æ t i s v e r k - smiðjuna Lindu og stuttu síðar lakkrísgerðina Drift: „Með samrunanum hófst nýtt ævintýri. Þegar við keyptum Lindu var þetta eiginlega spurning um tvö lítil fyrirtæki sem þurftu að kom- ast á sama gólf. Með kaupunum á Drift varð gamla húsnæðið ekki nægilega stórt og því fluttum við hingað í Garðahraunið.“ Hjá Góu vinna í dag um fjöru- tíu manns. Helgi segist þó eiga erfitt með að henda reiður á fjöldanum enda telji hann allt með puttunum: „Ég er ekki með nægilega marga putta til að telja allt fólkið sem vinnur hérna. Því virðist þó alltaf fjölga er nær dregur mánaðamótum og útborg- unardegi.“ ATVINNULEYSIÐ KEPPINAUTUR Helgi er forstjóri af gamla skól- anum, í vinnunni klæðist hann verkamannagalla í stað jakkafata, hins hefðbundna forstjóraklæðn- aðar: „Ég gæti svo sem alveg far- ið út í búð og keypt mér tíu Boss- jakkaföt. Ég myndi bara aldrei klæðast þeim, þau yrðu sennilega orðinn allt of lítil á mig þegar mér loksins dytti í hug að fara í þau.“ Það er greinilegt að Helga er mikið í mun að vera bara einn af hópnum: „Ég hef aldrei verið hrifinn af titlum og slíku prjáli. Þeir hafa aldrei og munu aldrei gefa manni neitt. Ég vil frekar vera kallaður Helgi í Góu en for- stjóri eða eitthvað slíkt.“ Á Íslandi eru í dag sex þúsund manns án atvinnu. Helgi hefur sterkar skoðanir á því, eins og svo mörgu öðru: „Það fer hrein- lega um mann að fletta dagblöð- unum og sjá allar atvinnuauglýs- ingarnar, svo eru þúsundir manna atvinnulausar. Þetta stenst ekki skoðun“ Hann segir að skuldinni megi að miklu leyti skella á verkalýðs- félögin, sem fái allt of mikla meðgjöf frá ríkinu: „Í síðustu kjarasamningum varð mest hækkun á atvinnuleysisbótunum. Það er svo komið að aðalkeppi- nautur okkar atvinnurekenda um starfsfólk er atvinnuleysið.“ Helgi heldur áfram: „Ég sé ekkert að því að öryrkjar og annað fólk sem á við vanda að stríða fái bætur en þegar fólk í blóma lífsins vill heldur stimpla sig inn einu sinni í mánuði, og fá fyrir það fín laun, finnst mér nóg komið. Ég er með eina 89 ára í vinnu hjá mér, líklega elsta starfsmann í heimi, og ekki kvartar hún. Hún skilar sínu og vel það, rífur meira að segja kjaft.“ „HEFÐI KEYPT MÉR KADILJÁK“ Helgi vill ekki gefa upp nákvæm- ar tölur úr rekstri Góu, segist hreinlega ekki vera með þess konar hluti á hreinu: „Ég hef aldrei spáð í tölur, til þess eru endurskoðendur. Ætli veltan sé ekki einn til tveir milljarðar, ég er bara ekki með síðustu tölur á takteinum.“ Hann segir það þó vilja brenna við að menn forgangsraði vitlaust: „Það vill oft gleymast að það er það sem eftir stendur sem skiptir máli, hvað afgangurinn er góður eftir öll þessi ár.“ Framtíðin er björt að mati Helga. Hann segir gríðarlegar breytingar hafa orðið á þjóð- félaginu frá því hann ólst upp og flest til batnaðar: „Þegar ég var ungur fengu nokkrir útvaldir lán, nú getur ungt fólk fengið splunkunýjan bíl fyrir sextán þúsund krónur á mánuði. Hefði þetta verið hægt þegar ég var ungur hefði ég líklega unnið tíu tíma í næturvinnu og keypt mér Kadilják í stað þess að vera sí- fellt að púkka upp á einhverjar druslur.“ Sælgætisgerðin Góa Stofnuð 1968 af Helga Vilhjálmssyni Fjöldi starfsmanna: Um fjörutíu Höfustöðvar: Garðahrauni 2, Garðabæ Gæti keypt mér tíu Boss-jakkaföt Helgi Vilhjálmsson er eigandi sælgætisgerðarinnar Góu auk þess að fara með umboð fyrir Kentucky Fried Chicken á Íslandi. Helgi hefur rekið Góu frá árinu 1968 og farið frá því að framleiða karamellur í kjallaranum heima hjá sér í að reka sex þúsund fermetra sælgætisverksmiðju. Jón Skaftason ræddi við Helga yfir rjúkandi kaffibolla og Æðibitum. ÞORVALDUR I. BIRGISSON hefur verið ráðinn sölustjóri á fyrirtækjasviði Sjóvá en Þorvaldur hóf störf hjá félaginu í maí síðastliðinn. Hann starfaði áður sem rekstrarstjóri neytendasviðs hjá Skeljungi en þar á undan hjá Ruko AS í Danmörku. Þorvaldur lauk mastersprófi (M.Sc) frá Viðskiptaháskólanum í Kaup- mannahöfn (CBS) árið 2002. HELGI VILHJÁLMSSON Í GÓU Helgi segir Ísland hálfgerða Paradísareyju, fólk hafi allt til alls og geti jafnvel keypt sér nýjan bíl fyrir sextán þúsund krónur á mánuði: „Hefði þetta verið hægt þegar ég var ungur hefði ég líklega unnið tíu tíma í næturvinnu og keypt mér Kadilják í stað þess að vera sífellt að púkka upp á einhverjar druslur.“ Fr ét ta bl að ið /G VA „Ég er ekki með nægilega marga putta til að telja allt fólkið sem vinnur hérna. Því virðist þó alltaf fjölga er nær dregur mánaðamótum og útborgunardegi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.