Fréttablaðið - 24.08.2005, Page 53
17
DEILISKIPULAG
Kópavogsbær
Auglýsing um afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar Kópavogs
á auglýstum tillögum að deiliskipulagi.
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst afgreiðsla bæjarráðs
og bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi deiliskipulagstillögum:
Bryggjuhverfi. Deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 22. mars 2005 tillögu að deiliskipulagi bryggjuhverfis á utanverðu Kársnesi. Deiliskipulags-
svæðið afmarkast í austur af opnu svæði undir bæjarvernd, af Vesturvör og norðurmörkum lóðanna nr. 12, 14, 16 og 20 í suður, af
lóðamörkum Hafnarbrautar 30 í vestur. Til norðurs afmarkast svæðið af landfyllingu sem mun ná 100-150 m út í
Fossvog miðað við núverandi fjöruborð. Í tillögunni felst heimild til að byggja 394 íbúðir í 3-4 hæða húsum auk kjallara.
Á svæðinu er jafnframt gert ráð fyrir leiksskóla, siglingaklúbbi og smábátahöfn. Á jarðhæð nokkurra húsanna er gert ráð fyrir
atvinnustarfsemi. Deiliskipulagstillagan er sett fram í greinargerð, á uppdrætti í mkv. 1:1000 dags. 2. mars 2005 og breytt 25. júlí
2005. Greinargerð og skipulagsskilmálar: Bryggjuhverfi í Kópavogi útgáfa nr. 1.1 með sömu dagsetningum, fylgir í sér hefti.
Skýringaruppdráttur fylgir jafnframt deiliskipulagsgögnunum. Tillagan var auglýst frá 21. apríl til 21. maí 2004 með
athugasemdafresti til 7. júní 2004. Athugasemdir og ábendingar bárust. Með tilvísan í framkomnar athugasemdir og ábendingar voru
samþykktar eftirfarandi breytingar á kynntri tillögu að deiliskipulagi svæðisins:
• Byggðin var lækkuð. Öll fimm hæða húsin voru lækkuð í fjórar hæðir.
• Íbúðum var fækkað úr 460 í 392.
• Húsin við eystri aðkomu inn á svæðið voru lækkuð í landi sem nemur 2 metrum.
• Húsin úti á ìtanganumî færð til á fyrirhugaðri fyllingu þ.e. nær höfninni.
Með tilvísan til ábendinga Skipulagsstofnunar hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á framlögðum gögnum:
• Vegna nálægðar við Reykjavíkurflugvöll hafa verið settar inn í skilmála kvaðir um hindrunarljós á nokkrum byggingum og á
byggingarkrönum
• Inn í skilmála hafa verið settar kvaðir um að engir gluggar eða op skulu vera undir kóta 4.2 á þeim hliðum sem snúa að sjó.
• Hljóðvarnarveggur við Vesturvör skilgreindur á deiliskipulagsuppdrátt.
Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. of-
angreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 24. ágúst 2005.
Sundlaug Kópavogs á Rútstúni. Deiliskipulag.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti þann 22. júlí 2005 tillögu að deiliskipulagi Sundlaugar Kópavogs á Rútstúni. Deiliskipulagssvæðið af-
markast af Borgarholtsbraut í norður, Skjólbraut og lóðarmörkum Skjólbrautar 22 í austur, Kópavogsbraut í suður og af Urðarbraut í
vestur. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að Rútstúnið verði óbreytt en að hluti eldri mannvirkja laugarinnar þ.e. barnalaug, gufubað,
heitir pottar og útiklefar verði fjarlægð. Þess í stað verði sundlaugarhús stækkað til norðausturs. Í tillögunni er jafnframt gert ráð fyrir
að á sundlaugarsvæðinu verði byggð eimböð, útigeymslur fyrir sundlaugarbúnað, heitir pottar, rennibrautir og annað er tengist starf-
semi laugarinnar. Áætlað er að nýbyggingar verði að hámarki 2000 m2 að flatarmáli. Fyrirkomulag bílastæða er að mestu óbreytt. Til-
lagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 29. apríl 2005. Tillagan var auglýst í
samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 1. júní til 29. júní 2005 með athugasemdafresti til 13. júlí 2005. Eng-
ar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýs-
ing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 24.
ágúst 2005.
Valla- og Vindakór. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti þann 21. október 2004 tillögu að breyttu deiliskipulagi við Valla- og Vindakór. Í tillögunni felst að
byggð vera 7 fjölbýlishús 2ja til 5 hæða í stað fjögurra háhýsa 9- 14 hæða. Fjöldi íbúða verður óbreyttur eða 180 íbúðir.
Aðkomu að fyrirhuguðu miðhverfi breytist jafnfram ásamt fyrirkomulagi bílastæða og fyrirhugað byggingarmagn í atvinnuhúsnæði er
aukið um 2.000 m2 þ.e. úr 13.000 m2 í 15.000 m2. Tillagan var auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 frá 3. september til 1. október 2004 með athugasemdafresti til 18. október 2004. Engar athugasemdir eða ábendingar bár-
ust. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins
sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 24. ágúst 2005.
Kórar (Hörðuvellir). Heilsu-, íþrótta- og fræðasetur. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 24. júlí 2005 tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir heilsu-, íþrótta- og fræðasetur í Kórum
(Hörðuvöllum) þ.e. Vallakór 10, 12 og 14. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Vatnsendavegi til norðurs, fyrirhuguðu íbúðarsvæði Þinga
(Suðursvæði) til austurs, hesthúsahverfinu í Heimsenda í suður og fyrirhugaðri íbúðarbyggð við Tröllakór í vestur. Í tillögunni felst að
gerðir verða 3 knattspyrnuvellir (68x105m hver); knatthús (yfirbyggður knattspyrnuvöllur) allt að 25m hátt og íþróttahús á 1-2 hæð-
um auk kjallara (keppnissalur, búningsaðstaða, skrifstofur, líkamsræktarstöð ásamt sundlaug). Þá er í tillögunni gert ráð fyrir fram-
haldsskóla á svæðinu, byggingu sem er áætluð á þremur hæðum auk kjallara. Í tillögunni er jafnframt gert ráð fyrir 3 hæða verslunar-,
þjónustu- og heilsumiðstöð á fyrirhuguðu miðbæjarsvæði þ.e. Vallakór 10. Í austurhluta byggingarinnar er gert ráð fyrir 9 hæða bygg-
ingu fyrir gistiheimili og íbúðir. Undir byggingunni er gert ráð fyrir bílastæðakjallara. Aðkoma að svæðinu breytist ásamt fjölda og fyrir-
komulagi bílastæða svo og gönguleiða. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skilmálum dags.19. mars
2005 og breytt 1. maí 2005. Tillagan var auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 11. maí til 8. júní
2005 með athugasemdafresti til 22. júní 2005. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögn-
in og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku
deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 24. ágúst 2005.
Klapparkór 1. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti þann 18. ágúst 2005 tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Klappakór 1.
Í breytingunni felst heimild til að hækka hluta hússins um eina hæð og fjölga íbúðum um tvær, þær verði 17 í stað 15. Fyrirkomulag
bílastæða og niðurgrafinnar bílageymslu er jafnframt breytt. Bílastæðum er fjölgað um fjögur. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv.
1:2000 dags. 15. mars 2005. Tillagan var auglýst frá 20. apríl til 18. maí 2005 með athugasemdafresti til 1. júní 2005. Engar athuga-
semdir eða ábendingar bárust. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um
samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 24. ágúst
2005.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar deiliskipulagsáætlanir og afgreiðslur þeirra er hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópa-
vogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.