Fréttablaðið - 24.08.2005, Side 62

Fréttablaðið - 24.08.2005, Side 62
24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR > Við finnum til með ... ... Bjarka Gunnlaugssyni, sem gengst í dag undir enn eina aðgerðina vegna íþróttameiðsla. Þessi stórgóði knatt- spyrnumaður sýndi góða takta í sumar en gat lítið beitt sér vegna meiðslanna, eins og svo oft áður. Það verður einnig eftirsjá að bróður hans Arnari, sem hefur lagt skóna á hilluna í bili. Víkingur/Fjölnir í vetur Handknattleikslið Víkings og Fjölnis munu stilla upp sameiginlegu liði í deildarkeppninni í handboltanum í vetur. Gunnar Magnússon, þjálfari Víkings til nokkurra ára, verður þjálfari liðs Víkings/Fjölnis, eins og það mun heita í vetur. sport@frettabladid.is 22 > Við hvetjum ... .... alla knattspyrnuáhuga- menn til að fjölmenna á leiki dagsins í undan- úrslitum bikarkeppni kvenna en bæði leikir KR og Fjölnis og Breiðabliks og Vals hefjast kl 17.30 í dag. Úrslitaleikurinn fer svo fram í byrjun september. Liverpool tapa›i heldur óvænt á heimavelli í gær fyrir búlgarska li›inu CSKA Sofia en Evrópumeistararn- ir ensku unnu fyrri leikinn sannfærandi og komust flví áfram í Meistaradeild Evrópu. Liverpool áfram þrátt fyrir tap FÓTBOLTI Liverpool tapaði í fyrsta sinn í fimmtán leikjum í Meistara- deild Evrópu í gær er liðið laut í gras fyrir CSKA Sofiu frá Búlgar- íu. Liverpool hafði unnið fyrri leikinn, 3–1, á útivelli og gat því leyft sér að leyfa mörgum óreynd- um að spreyta sig í byrjunarlið- inu. Leikur liðsins var að sama skapi ekki upp á marga fiska og komust gestirnir yfir á 16. mínútu með góðu marki Valentin Iliev. Búlgarska liðið fékk svo tvö mjög góð tækifæri til að bæta við í fyrri hálfleik en allt kom fyrir ekki. Leikmenn Liverpool náðu svo undirtökunum í leiknum eftir því sem á leið en tókst ekki að skora, þrátt fyrir nokkur úrvalsfæri. Vandræðalegt tap hjá Evrópu- meisturunum á heimavelli stað- reynd þó svo að forysta Liverpool eftir fyrri leikinn hafi aldrei verið í alvarlegri hættu. Rosenborg frá Noregi komst áfram í riðlakeppnina eftir 3–2 sigur á Steaua frá Búkarest og hið sama má segja um Real Betis, Udinese og Panathinaikos. Þá komust Celtic-banarnar í Art- media Bratislava einnig áfram í riðlakeppnina eftir sigur á Partiz- an Belgrad í vítaspyrnukeppni. eirikurst@frettabladid.is MARKINU FAGNAÐ Valentin Iliev, liekmaður CSKA Sofia, fagnar marki sínu á Anfield, heimavelli Liverpool, í leik liðanna í forkeppni meistaradeildar Evrópu í gær. LEIKIR GÆRDAGSINS Meistaradeild Evrópu: LOKOMOTIV MOSKVA–RAPÍD VÍN 0–1 Rapíd Vín vann samanlagt, 2–1. PARTIZAN BELGRAD–ARTM. BRATISL. 0–0 Artmedia Bratislava vann eftir vítaspyrnukeppni. THUN–MALMÖ FF 3–0 Thun vann samanlagt, 4–0. MONACO–REAL BETIS 2–2 Real Beits vann samanlagt, 3–2. PANATHINAIKOS–WISLA KRAKOW 4–1 Panathinaikos vann eftir framlengingu, 5–4. ROSENBORG–STEAUA BÚKAREST 3–2 Rosenborg vann samanlagt, 4–3. LIVERPOOL–CSKA SOFIA 0–1 Liverpool vann samanlagt, 3–2. UDINESE–SPORTING LISSABON 3–2 Udinese vann samanlagt, 4–2. Enski deildarbikarinn: BURY–LEICESTER 0–3 Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir Leicester í leiknum. WATFORD–NOTTS COUNTY 3–1 READING–SWANSEA 0–3 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 20 21 22 24 25 26 27 Miðvikudagur ÁGÚST ■ ■ LEIKIR  17.30 Breiðablik og Valur mætast í VISA-bikarkeppni kvenna á Kópavogsvelli.  17.30 KR og Fjölnir mætast í VISA- bikarkeppni kvenna í Frostaskjóli. ■ ■ SJÓNVARP  18.20 Debrecen og Manchester United mætast í Meistaradeild Evrópu á Sýn.  18.30 Enska knattspyrnan á Enska boltanum. Þrír leikir í beinni útsendingu.  20.20 Villarreal og Everton mætast í Meistaradeild Evrópu á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  22.20 Bikarkvöld á RÚV. Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir hafa sagt sitt síðasta í fótboltanum í sumar. Arnar hefur ákveðið að hætta hjá KR á meðan bróðir hans Bjarki gengst undir þriðju aðgerðina á tæpu ári vegna ökklameiðsla. Hann er samningsbund- inn KR út árið og því óvíst hvað tekur við hjá honum. „Þetta er búið að vera svolítið erfitt í sumar en ég hætti líka vegna per- sónulegra ástæðna. Ég tel ekki lengur hægt að réttlæta það hversu mikið ég er frá fjöl- skyldu minni þegar maður er hvort eð er ekki í neinu standi til að spila,“ sagði Arnar. „Þó maður mætir á æf- ingar er þar með ekki sagt að maður sé heill til að spila einhvern alvöru fótbolta. Ég skil við félagið í fullkominni sátt.“ Arnar vill ekki gefa út neina lokaákvörð- un um að knattspyrnuferlinum sé lokið. „Það er ekkert ólíklegt en aldrei að segja aldrei. Ég er nú samt orðinn hálf- þreyttur á þessu. En ég tek endanlega ákvörðun um þetta síðar, ég sé til hvernig skrokkurinn verður í haust og vetur og tek þá ákvörðun með framhaldið.“ Bræðurnir eru þekktir markahrókar en hvorugur þeirra náði að skora mark í deildinni í sumar. Bjarki skoraði þó þrennu gegn Leikni í bikarkeppninni. Hann hefur hins vegar lítið komið við sögu í deildinni og aldrei náð að klára heilan leik. Oftast lék hann ekki meira en 40 mínútur í leik, hvort sem hann byrjaði eða kom inn á sem varamaður. „Þetta er ökklinn enn og aftur,“ sagði Bjarki. „Það er verið að fjarlægja einhvern beinstúf sem á ekki að vera þarna í ökklanum. Þetta eru víst meiðsli sem eru oft tengd við ballettdansara fyrst og fremst og veit ég ekki af hverju ég er að fá þetta,“ sagði hann og hló. Bjarki hefur glímt við meiðsli í sama ökklanum frá því að hann var tæklaður illa árið 2003 og fór hann tvívegis í aðgerð á síðasta ári. „Ég veit ekkert hvernig þetta verður á næsta ári, ég ætla fyrst að ná að labba eðlilega aftur. Þetta er engin óskastaða sem verið hefur þessi tvö undanfarin ár, hvorki fyrir mig né KR.“ ARNAR OG BJARKI GUNNLAUGSSYNIR: BÚIÐ SPIL Í SUMAR Arnar hættur og Bjarki me› ballerínumei›sli jálfarastö ur fyrir yngri flokka í knattspyrnu Hjá unglinganefnd knattspyrnufélags ÍA (UKÍA) eru nú lausar til umsóknar jálfarastö ur fyrir yngri flokka keppnistímabili 2005-2006. UKÍA er fyrirmyndarfélag ÍSÍ og leitar a metna arfullum jálfurum til a bætast í sinn öfluga jálfarahóp. UKÍA b ur jálfurum topp æfingaa stö u og m.a. er glæsilegt knattspyrnuhús a rísa. Umsóknarey ublö er hægt a nálgast á vefnum http://www.ia.is Umsóknir urfa a berast UKÍA í sí asta lagi 28. ágúst. Fari ver ur me allar umsóknir sem trúna armál. Nánari uppl singar gefa Ólafur Jósefsson s: 898-4054 e a Magnús Óskarsson s: 893-2621 HANDBOLTI Þáttaka íslenska ung- mennalandsliðsins á heimsmeist- aramóti U-21 landsliða í Ung- verjalandi er orðin martröð líkust en í gær tapaði liðið sínum fjórða leik í röð, nú gegn Dönum. Liðið er stigalaust í sínum milliriðli, rétt eins og Suður-Kórea, en þessi lið mætast á morgun í síðustu um- ferð milliriðlakeppninnar. Sigur- vegarinn í þeim leik mun keppa um níunda sætið á mótinu en tapliðið um ellefta sætið. Arnór Atlason var markahæst- ur íslensku leikmannanna með sex mörk, Magnús Stefánsson var með fjögur en fjórir leikmenn skoruðu þrjú mörk í leiknum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Viggó Sigurðsson, þjálfara íslenska landsliðsins, frekar en eftir aðra leiki Íslands í keppninni. Svo virðist sem Viggó standi ekki hugur til að ræða við íslenska fjölmiðla á meðan á mót- inu stendur. - esá HM í Ungverjalandi: Fjór›a tap Íslands í rö› Enska úrvalsdeildin: BIRMINGHAM–MIDDLESBROUGH 0–3 0–1 Mark Viduka (14.), 0–2 Mark Viduka (45.), 0–3 Franck Queudrue (71.). PORTSMOUTH–ASTON VILLA 1–1 0–1 Richard Hughes, sjálfsmark (11.), 1–1 Lomana Tresor LuaLua (42.). SUNDERLAND–MANCHESTER CITY 1–2 0–1 Darius Vassell (10.), 1–1 Anthony Le Tallec (41.), 1–2 Trevor Sinclair (35.). STAÐA EFSTU LIÐA: MAN. CITY 3 2 1 0 4–2 7 TOTTENHAM 2 2 0 0 4–0 6 CHARLTON 2 2 0 0 4–1 6 MAN. UTD. 2 2 0 0 3–0 6 CHELSEA 2 2 0 0 2–0 6 WEST HAM 2 1 1 0 3–1 4 M’BORO 3 1 1 1 3–2 4 LIVERPOOL 2 1 1 0 1–0 4 ARSENAL 2 1 0 1 2–1 4 BLACKBURN 2 1 0 1 3–4 3 EVERTON 2 1 0 1 1–2 3 ASTON VILLA 3 0 2 1 3–4 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.