Fréttablaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 66
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 áraSýnd kl. 3.40 og 5.50 í þrívídd
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 Sýnd í lúxus kl. 3.20 og 5.40 B.i. 10 ára
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 5,20, 8 og 10.30 Sýnd í lúxus kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 8
★★★
-HJ. MBL
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
★★★
-ÓHT. Rás 2
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í
EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
Sýnd kl. 5.30 B.i. 10 ára - Síðustu sýningar
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6 í þrívídd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 10 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.30
★★★
-HJ. MBL
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
★★★
-ÓHT. Rás 2
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í
EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
SÍMI 551 9000
Kabarett
í Íslensku óperunni
Næstu sýningar
Föstudaginn 26. ágúst kl. 20.00
Laugardaginn 27. ágúst kl. 20.00
Sunnudaginn 28. ágúst - Örfá sæti laus
Föstudaginn 2. september
Laugardaginn 3. september
Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is
Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON
“Söngur Þórunnar
er í einu orði sagt
stórfenglegur...”
SH, Mbl.
27.ágúst, kl. 14 / sunnd. 28.ágúst, kl. 14.00 /
laugd. 3.sept, kl. 14.00 / sunnd. 4.sept, kl.14.00
Donald Trump hefur nú skapað
kínverska útgáfu af raunveru-
leikaþætti sínum The Apprent-
ice. Trump mun vera framleið-
andi þáttanna en stjórnandi
þeirra verður kínverski fast-
eignafrömuðurinn Pan Shiyi frá
Peking. Í hinni bandarísku út-
gáfu The Apprentice beita þátt-
takendur kænsku sinni í við-
skiptum til að keppa hver á móti
öðrum og sigurvegarinn fær að
launum stjórnunarstarf hjá
Trump. Gefið hefur verið upp að
kínverska útgáfan muni líkjast
mjög þeirri bandarísku en engar
frekari upplýsingar liggja fyrir
enn um sinn.
„Kína mun nú loksins fá sína
eigin útgáfu af The Apprentice.
Það hafa verið gerðir ellefu eftir-
líkingarþættir en allir hafa kol-
fallið,“ sagði Donald Trump. ■
DONALD TRUMP Donald hefur náð heims-
frægð fyrir raunveruleikaþætti sína en var
áður vel þekktur sem viðskiptafrömuður.
Kapítalisminn tekur
yfir í kommúnistaríki
Málþing um kvikmyndaskáldið
Andrej Tarkovskí verður haldið í
Suðursal Hallgrímskirkju kl.
20.00 í kvöld.
Astrid Söderbergh Widding,
prófessor í kvikmyndafræðum
við Stokkhólmsháskóla, flytur
fyrirlestur sem nefnist Deus
absconditus – á mörkum hins
sýnilega og ósýnilega í kvik-
myndum Tarkovskís.
Þá fjalla félagar í rannsóknar-
hópnum Deus ex cinema um trú-
arleg stef í kvikmyndum Tarkov-
skís. Gunnlaugur A. Jónsson flyt-
ur fyrirlestur sem nefnist
Nostalgía Tarkovskís í biblíulegu
ljósi og fyrirlestur dr. Péturs
Péturssonar nefnist Speglanir í
kvikmyndum Andrejs Tarkov-
skís.
Enn fremur segir Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur frá kynn-
um sínum af Andrej Tarkovskí
og verkum hans.
Meðal þekktustu verka Tar-
kovski eru myndirnar Solyaris
frá 1972 og Nostalghia frá 1983
en hann lést úr lungnakrabba-
meini árið 1986, 54 ára að aldri. ■
Málfling um Tarkovskí
ANDREJ TARKOVSKÍ Málþing um rúss-
neska meistarann verður haldið í Suðursal
í Hallgrímskirkju í kvöld klukkan 20.00.
■ ■ TÓNLEIKAR
21.00 Tónleikar á lífræna kaffihús-
inu Kaffi Hljómalind. Þáttakendur
eru: Áki Ásgeirsson sem leikur á
tölvutengdan „rafmagns“-trompet,
Simon Jermyn (frá Írlandi) sem leikur
á umbreyttan rafmagnsgítar, Heiða
Árnadóttir sópransöngkona, Ingi
Garðar Erlendsson leikur á básúnu,
Nina Hitz (frá Austurríki) leikur á bar-
rokk-selló, Þórunn Björnsdóttir leikur
á blokkflautu og Haraldur Karlsson
sér um myndvinnslu í rauntíma. Tón-
listin er öll eftir meðlimi hópsins utan
eitt lag, en það er eftir John Cage.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Tónlistarveisla í Þjóðleikhús-
kjallaranum með frábæru tónlistar-
fólki. Rjóminn af því besta sem flutt
var á fjölsóttum Kammertónleikum
á Kirkjubæjarklaustri í ágúst 2005.
Flytjendur eru Auður Hafsteinsdóttir,
fiðla Bryndís Halla Gylfadóttir-selló,
Björn Thoroddsen-gítar, Edda Er-
lendsdóttir-píanó, Egill Ólafsson-
söngur, Gunnar Þórðarson- gítar, Oli-
vier Manoury-bandoneon, Jón Rafns-
son-kontrabassi. Höfundar: Janacek,
Kodaly, Piazzolla, Ellington, Gunnar
Þórðarson, Björn Thoroddsen, Egill
Ólafsson og fleiri.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Heath Ledger er orðinn svo þreytturá paparazzi-ljósmyndurunum sem
elta hann út um allt að nú bregður
hann á það ráð að henda í þá eggjum.
„Þegar ég er í sólbaði með
kærustunni og sé þá taka
myndir af okkur er það
eins og kjaftshögg. Við
megum auðvitað ekki
launa þeim greiðann með
einum á kjammann
svo þegar ég hef
tækifæri hendi ég
eggjum í þá“ sagði
Heath.
Mick Jagger er ekki vel vaxinn niðuref marka má félaga hans í Rolling
Stones, Keith Richards. „Hann er með
pínulítið typpi. Spyrjið bara Marianne
Faithfull,“ sagði Keith. Marianne Faith-
full var kærasta Keiths á sjöunda ára-
tugnum en hún átti einnig í nánum
kynnum við Mick Jagger
á þeim tíma. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem
Keith gerir lítið úr „karl-
mennsku“ Jaggers
því í viðtali við
tímaritið Q ný-
lega talaði hann
um tólið sem
„litla stýrið“.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Brad Pitt og Jennifer Aniston
hafa komist að samkomulagi um
skilnað sinn. Draumahjónaband
Hollywood er því allt en form-
lega verður gengið frá því 2.
október. Þetta þýðir enn fremur
að nú gæti eitthvað farið að
skýrast í kringum Angelinu
Jolie og Pitt. Jolie hefur hingað
til ekki sagst geta átt í ástarsam-
bandi við giftan mann. Hún
segir að slíkar konur hafi eyði-
lagt hjónaband mömmu hennar
og leikarans Jons Voight.
Allur lagalegi hluti skilnaðar-
ins fór fram utan réttarsalarins.
Pitt og Aniston réðu dómarann
Jill Robbins til þess að hlusta á
beiðnir lögmannanna sem á end-
anum samþykktu skilmálana.
Aðeins í Kaliforníu er hægt að
leigja dómara.
Aniston lagði fram skilnaðar-
kröfu snemma á þessu ári. Þar
voru erfiðleikarnir sagðir vera
óyfirstíganlegir. Um jólin fóru
sögur að berast af því að Jolie
og Pitt væru að stinga saman
nefjum. Bæði Aniston og Pitt
hafa þráfaldlega neitað þeim
orðrómi. Pitt hefur sagst langa í
barn og því reiknuðu margir
með að ferillinn hjá Aniston
væri ljónið í veginum, hún vildi
ekki fórna honum strax fyrir
barneignir. Í nýlegu viðtali neit-
aði hún þó þessari sögusögn og
sagðist langa í börn, vissi raun-
ar ekki hvaðan Pitt hefði þessa
sögu.
Reikna má með því að
glæsihús þeirra, sem þau eyddu
tveimur árum í að hanna, verði
selt. Þá þurfa þau heldur ekki á
fjárframlögum hvors annars að
halda þar sem þau eru bæði
meðal launahæstu leikara í
Hollywood. ■
Skilnaðurinn
genginn í gegn
ANGELINA JOLIE
Blóraböggull eða hjóna-
djöfull? Jolie hefur verið
sögð eyðileggja drauma-
hjónaband Hollywood
en neitar orðrómi um
samband við Pitt.
JENNIFER ANISTON Jennifer hefur
verið í öngum sínum yfir skilnaðinum
við Brad Pitt. Hún hefur lýst því yfir að
hana langi í börn, ólíkt því sem fyrrum
eiginmaður hennar segir. Aniston lagði
snemma á árinu fram skilnaðarkröfu
sem gengur í gegn 2. október.
BRAD PITT Giftist
Jennifer Aniston fyrir
fimm árum síðan.
Hjónabandið var talið
eitt það traustasta í
Hollywood en skjótt
skipast veður í lofti.
Eignast Mary
prins?
Danir bíða í ofvæni eftir nýjasta
afkvæmi konungsfjölskyldunnar
en Mary Donaldson, eiginkona
krónprinsins, er jú ólétt. Nú hefur
það kvisast út til dönsku fjölmiðl-
anna að hjónunum hafi verið
boðnir tveir bláir barnavagnar frá
Odder barnavagnaframleiðandan-
um í Hortsense og að þau hafi tek-
ið við þeim. Þetta hefur vakið upp
vangaveltur um hvort Mary gangi
með prins en eins og flestir vita
hefur blár verið álitinn strákalit-
ur.
Henrik Jespersen, fram-
kvæmdastjóri Odder, sagði hins
vegar af og frá að framleiðend-
urnir vissu um kynið. „Liturinn
heitir Marienblár en við verðum
sennilega að breyta því heiti yfir í
Kóngablár,“ sagði hinn stolti
framkvæmdastjóri við danska
fjölmiðla og bætti við að blár gæti
líka verið stelpulitur. ■
MARY OG FRIÐRIK Parið er eftirlæti
Dana um þessar mundir og þeir spá mikið
í kyn barnsins sem hún ber undir belti.