Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 70

Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 70
LÁRÉTT:1Strá,5Krá,6Te, 7Rú,8Tól,9 Eins,10Ys, 12Fit,13Tíu,15Kr, 16Nanó, 18Slóð. LÓÐRÉTT:1Skreytni, 2Trú, 3Rá,4Hel- stríð,6Tónik,8Tif, 11Sía,14Uns,17Ól. 30 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR LÁRÉTT 1 dreifa 5 knæpa 6 drykkur 7 óreiða 8 tæki 9 samskonar 10 þys 12 húðsepi milli táa 13 X 15 íþróttafélag 16 einn milljarðasti 18 stígur. LÓÐRÉTT 1 glysgirni 2 traust 3 þverslá á siglutré 4 dauðastríð 6 gosdrykkur 8 ganghljóð í klukku 11 sigti 14 þangað til 17 belti. LAUSN 1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 Það hefur komið á daginn að ein- hverjir hafa látið blekkjast af tví- fara aðalleikarans Ryan Phillippe. Samkvæmt heimildarmönnum Fréttablaðsins er leikarinn algjör- lega óþekktur en er sláandi líkur stórstjörnunni. „Hann er mun minni en annars eru þeir mjög áþekkir,“ sagði einn heimildar- maður blaðsins. Hingað til lands hafa verið fluttir tólf áhættuleik- arar en samkvæmt heimildum er tvífari Phillippe ekki einn af þeim. Phillippe mun því leika öll sín áhættuatriði sjálfur. Hópurinn unir glaður við sitt hér á landi en eitthvað er þó að fækka meðal íslensku þátttakend- anna. Þeir sem enn tóra hafa feng- ið launahækkun fyrir vel unnin störf en að jafnaði starfa um 100 manns á tökustað núna. Þeim fjölgar á morgun þegar Clint og félagar verða á tveimur stöðum, annars vegar í Krýsuvík og hins vegar í Sandvík. Þess ber að geta að tökur voru á laugardeginum og fengu íslensku staðgenglarnir ágæta launahækkun fyrir fram- lag sitt þar enda var víst ekki auð- velt að fá þá til vinnu á Menning- arnóttinni. Stjörnurnar virðast hafa tekið ástfóstri við Prikið, sem þeim þykir lítill og notalegur staður. Þar er þeim tekið eins og heima- mönnum og fá að vera í friði. Hópnum var víst boðið í Iðuhúsið í smá teiti á menningarnótt. Þar var Clint Eastwood sjálfur á staðnum og kunnugir sögðust hafa séð hann á rölti upp eftir Laugaveginum eftir miðnætti með konunni sinni. Hinir ungu létu ekki rigninguna hafa áhrif á sig og máluðu bæinn rauðan. Þeir ættu ekki að verða uppiskroppa með teiti þar sem þeim hefur verið boðið á sýningu Deuce Biga- low: European Gigolo með aðal- leikaranum Rob Schneider sem er væntanlegur hingað til lands. ■ Launahækkanir og tvífari hjá Eastwood RYAN PHILLIPPE Hinn eini sanni. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Á Akureyri. Coimbra. Aston Villa. ... fá systurnar Martha og Bryn- dís Ernstsdætur fyrir glæsilegan árangur í Reykjavíkurmaraþon- inu. HRÓSIÐ SUNDLAUGAGARÐ MEÐ HÖFRUNGUM Ég myndi vilja sjá sund- laugagarð með egypsk- um skyndibitastöðum. Það væri líka frábært að hafa höfrungapoll þarna rétt hjá þar sem draum- ur minn hefur lengi verið að synda með höfrungum. Þetta er svo stórt svæði að það ætti ekki að vera mikið mál en aðalatriðið er að sundlaugargarðurinn verði framúrstefnilegur, með risarennibraut, hringgöngum og veseni. LEIKSVÆÐI FYRIR ELDRA FÓLKIÐ Eitt súperstórt dansstúdíó, nei, nei, nei annars. Það mundi þurfa að vera eitt- hvað útivistartengt. Helst eitthvað sem tengist Naut- hólsvíkinni. Það er svo mikil menning í kringum Nauthólsvíkina á sumrin og gaman að sjá hvað allir eru duglegir að drífa sig út á hjólaskauta eða í göngu- túr. Ég fer þarna oft sjálf og já, ef flugvöllurinn færi burt myndi ég vilja sjá þarna leiksvæði fyrir eldra fólkið. „SÖKKVA VATNSMÝR- INNI OG VIRKJA TJÖRNINA.“ Ég hef enga skoðun á því hvort flugvöllurinn fari eða ekki. Drauma- svæðin mín, sem er ekki að finna í Reykjavík, finn ég úti á landi svo ég bið ekki um neitt. Mér finnst bara að það eigi að sökkva Vatnsmýrinni og virkja tjörnina. Þá hverf- ur þetta land og fólk getur hætt að rífast um þetta. DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON tónlistarmaður ÞÓREY PLODER VIGFÚS- DÓTTIR dansnemi GUNNAR JÓNSSON leikari og dyravörður á Kaffi Óliver ÞRÍR SPURÐIR HVAÐ VILTU SJÁ Í VATNSMÝRINNI? Ástarsamband Jóns Ólafssonartónlistarmanns og Hildar Völu Idol-stjörnu er og mun eflaust verða milli tannanna á fólki. Sitt sýnist hverjum um ráðahaginn en for- stöðumenn sjónvarpsþáttarins Idol- Stjörnuleitar þegja þunnu hljóði og vilja ekki tjá sig um þetta viðkvæma en fallega mál. Eftir því sem Frétta- blaðið kemst næst hefur ástarsam- bandið þó verið rætt innan herbúða Idol- Stjörnuleitar. Þar skiptist fólk í tvær fylkingar og ekki eru all- ir jafn ánægðir með þróun mála. Það þykir þó víst hugg- un harmi gegn að fyrst Amor hafi enn einu sinni tekið upp á því að skjóta örvum sínum í fólk hafi hann ekki getað valið betri skotmörk. Jón og Hildur Vala eigi sér stóran aðdáendahóp, séu vel þokkuð og eigi mikinn góðvilja úti í samfélaginu. Málið er því hvorki talið veikja né styrkja stöðu Jóns í Idolinu og hann mun áfram starfa innan þáttarins eins og ekkert hafi í skorist. Fast- lega má reikna með því að kynnarnir Jói og Simmi komi ekki til með láta málið eiga sig þegar þeir fara að reyta af sér brandarana í næstu keppni. Það fer hrollur um margan líkams-ræktarann um þessar mundir eftir að fréttist að Björn Leifsson, í World Class, hafi sett upp falda myndavél í búningsklefa karla í lík- amsræktarstöð sinni í þeim tilgangi að upplýsa skápaþjófnað. Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætis- ráðherra, er einn þeirra sem æfa undir verndarvæng Björns og hann veit ekki alveg í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. „Ég sveiflast nokkuð í þessu máli Persónuverndar um ólöglegar myndatökur í búnings- klefa World Class. Ég æfi í Laugum og finnst ekki góð tilhugsun að fald- ar myndavélar séu í búningsklefan- um. Ég fer þangað síðdegis í dag að æfa og maður veltir fyrir sér: Í hvaða átt á maður að snúa sér?,“ spyr Björn Ingi í pistli á heimasíðu sinni. Björn hefur þó skilning á aðgerðum Björns, sem verður að vernda skjólstæð- inga sína. „Bjössi Leifs – sem er Flateyringur eins og ég – er ekki líklegur til að láta slíkt viðgangast lengi án þess að gera eitt- hvað í því,“ segir Björn Ingi sem mun væntanlega halda áfram að berhátta sig í karla- klefa sveitunga síns. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FRÉTTIR AF FÓLKI SPURNINGAÞÁTTURINN POPPPUNKTUR: SNÝR AFTUR 4. SEPTEMBER Stjörnumessa og stuðöskur Spurningaþátturinn vinsæli Popppunktur snýr aftur á Skjá einn sunnudaginn 4. september, en hingað til hefur þátturinn verið á dagskrá á laugardags- kvöldum. Um er að ræða fjórðu þátta- röðina og í þetta sinn bjóða þeir Dr. Gunni og Felix Bergsson upp á svokallaða stjörnumessu þar sem sextán hljómsveitir berjast um sigurinn. Þar munu sigurveg- arar þáttarins til þessa, Ham, Ensími og Geirfuglarnir, etja kappi við alla hina sem komust langt í þáttaröðunum eða stóðu sig vel án þess að komast mikið áleiðis. Einnig fá fjórar nýjar hljómsveitir tækifæri til að stökkva beint inn í stjörnumess- una og í fyrsta þættinum á sunnu- daginn munu einmitt Hjálmar, Jan Mayen, Brúðarbandið og Nylon kljást innbyrðis um tvö aukasæti í 16 liða úrslitunum. Dr. Gunni hefur undanfarið setið sveittur við að semja nýjar spurningar fyrir þáttinn. Hann segist vera voðalega spenntur fyrir fjórðu þáttaröðinni. „Við erum með nokkrar ferskar nýj- ungar þar sem stuðöskrin koma meðal annars sterk inn en við erum ekkert að breyta því sem ekkert er að. Hinn endanlegi sigur- vegari í Popppunkti verður síðan krýndur 18. desember,“ segir Dr. Gunni. „Hann verður klyfjaður af alls konar vinningum og síðan fær hann náttúrlega heiðurinn líka.“ Auk vinnunnar við Popppunkt er Dr. Gunni að undirbúa nýja sólóplötu sem kemur út á næsta ári. Einnig stjórnar hann útvarps- þættinum Tónlistarþáttur Doktor Gunna sem er sendur út á Tal- stöðinni á sunnudögum milli 16 og 18. freyr@frettabladid.is DR. GUNNI OG FELIX Þeir félagar Dr. Gunni og Felix Bergsson ætla að halda uppi stuðinu í Popppunkti fram að jólum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.