Fréttablaðið - 02.10.2005, Page 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Ískaldur
Léttur öllari ROYAL
Nýr konunglegur!
Umfer›ar-
ökuflórinn
VERNHARÐS ÞORLEIFSSONAR
BAKÞANKAR
Ég bý í Grafarholti og þarf því að akasmáspotta þegar ég fer í bæjarleið-
angur. Ég er uppalinn á Akureyri og
lærði að keyra þar. Þegar ég flutti til
Reykjavíkur þurfti ég að læra að keyra
hér. Í ljósi þess að ég keppti í íþróttum
lengi vel leit ég á þetta sem hverja aðra
áskorun. Hérna voru einfaldlega fleiri til
að keppa við. Við karlmenn erum
miklum mun verri en konur hvað þetta
varðar.
ÉG HELD að peningar og umferð séu
það tvennt sem breytir fólki hvað mest.
Sallarólegir skrifstofumenn setjast upp
í bílinn sinn að loknum löngum vinnu-
degi, en í stað þess að stilla á Létt 96,7
og reyna að raula með í viðlaginu breyt-
ast þeir í Michael Schumacher með fyr-
irtíðaspennu. Ég skil þetta að mörgu
leyti. Ég hef nefnilega farið í naflaskoð-
un og fundið rót vandans. Þetta liggur í
genunum. Við karlmenn erum nefnilega
flestir að upplagi með þörf fyrir að
vinna aðra í einhverju. Margar konur
eru það að sjálfsögðu líka en þetta er
meira áberandi með karlmenn. Og ef
atvinna karlmannsins er þess eðlis að
hann fær ekki útrás fyrir þessa þörf þá
er heimferðin einn af seinustu sénsun-
um sem hann fær þann tiltekna dag til
að vinna einhvern í einhverju.
UM HELGAR er það fótboltinn. Ef
maðurinn spilar ekki knattspyrnu sjálf-
ur þá á hann sér uppáhaldslið. Og takið
nú eftir, liðið kallar hann „okkur“. Það
voru ekki bara knattspyrnumennirnir
sem fá milljónir fyrir að spila leikinn
sem unnu heldur vorum það „við“ sem
unnum leikinn. Ef „við“ töpuðum leikn-
um tekur maðurinn út tímabil sem ein-
kennist af gremju og pirringi sem er
auðvitað afleiðing ófullnægðrar þarfar
mannsins til að vinna einhvern í ein-
hverju.
EN HVAÐ er til ráða? Hvernig getum
við náð taumhaldi á umferðinni aftur,
já, og gert helgarnar að gæðatíma fjöl-
skyldunnar án tilits til þess hvernig
leikurinn hjá „okkur“ fór? Mín hug-
mynd er sú að þið konur nýtið ykkur
þessar innherjaupplýsingar okkur öll-
um í hag. Hvernig væri til dæmis að
taka eina netta skák yfir morgunmatn-
um og leyfa karlinum að vinna. Olsen-
olsen gæti jafnvel virkað líka ef karlinn
er mjög lélegur í skák. Þarna er upplagt
tækifæri til að senda karlmanninn í
vinnuna í sigurvímu sem vonandi endist
langt fram á kvöld og gerir heimferð
okkar allra öruggari fyrir vikið. ■