Fréttablaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 6
6 3. október 2005 MÁNUDAGUR STJÓRNMÁL Þingflokkur Samfylk- ingarinnar vill fækka ráðuneytun- um þrettán í níu. Það kom fram á fréttamannafundi sem haldinn var í gær. Flokkurinn vill að skilið verði milli heilbrigðis- og trygg- ingamála, og að stofnað verði sér- stakt innanríkisráðuneyti. Önnur áherslumál þingflokks- ins eru aukið framboð á menntun fyrir fólk á vinnumarkaðnum, leiðrétting kjaraskerðingar líf- eyrisþega og að afkomutryggingu verði komið á fyrir þá. Jafnframt vill Samfylkingin að lög verði sett um óháðar rann- sóknarnefndir sem myndu taka að sér að kanna málin þegar rök- studdur grunur leikur á að stjórn- völd eða aðrir sem fara með völd í samfélaginu hafi misbeitt þeim völdum. Einnig að rannsóknir á þróun valds og lýðræðis fari fram, svipaðar þeim sem önnur Norðurlönd eru nú að láta gera, og að skipun embættismanna verði endurskoðuð í þeim tilgangi að skilja pólitísk störf frá faglega skipuðum embættum Stjórnar- ráðsins. „Við viljum að það sé gerður mjög skýr greinarmunur, þannig að fólk viti hvenær hið pólitíska vald er á ferðinni og hvenær það er faglegt vald,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Sam- fylkingarinnar. - smk Kosning Sólveigar Pétursdóttur sem forseta Alþingis: Ekki var hægt a› segja nei STJÓRNMÁL Frjálslyndi flokkurinn er óánægður með að ekki skuli hafa verið hægt að segja „nei“ við kosningu Sólveigar Pétursdóttur í embætti forseta Alþingis. Ein- göngu var hægt að ýta á „já“-takk- ann eða „greiðir ekki atkvæði“, en Sólveig var ein í kjöri. Í tilkynn- ingu sem flokkurinn sendi frá sér á laugardag segist flokkurinn hafa ætlað sér að undirstrika óánægju sína með því að segja nei, en þar sem það var ekki hægt er ómögu- legt að sjá hversu margir voru al- farið á móti kosningu Sólveigar, heldur eingöngu að 12 af 63 þing- mönnum hefðu setið hjá. Að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis er ástæðan fyrir þessu sú að kosning- in er skrifleg samkvæmt þing- sköpum. „Það var bara hægt að gera tvennt, að skrifa nafn Sól- veigar Pétursdóttur eða skila auðu,“ segir Helgi, og bætir við að til að flýta fyrir hefur Alþingi not- ast við atkvæðagreiðslukerfið í allmörg ár, en langt er orðið síðan fleiri en einn var í kjöri til emb- ættis forseta Alþingis. - smk Hver ger›i hva› í Baugsmálinu Eins dags verkfall í Frakklandi: Mótmæla stefnu stjórnvalda VERKFALL Líklegt er talið að mikill fjöldi fólks muni leggja niður vinnu um allt Frakklandi á þriðju- dag til að mótmæla stefnu stjórn- valda í efnahags- og atvinnumál- um. Þetta verður fyrsta alvöru barátta ríkisstjórnar Frakka, sem aðeins hefur starfað í fjóra mán- uði, við verkalýðsfélög landsins sem þykja oft á tíðum óstýrilát. Ríkisstjórn forsætisráðherr- ans Dominique de Villepin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í málum sem snúa að verkamönnum. Til að mynda þeim ofbeldisfullu mótmælum sem brutust út á Korsíku fyrir nokkru. - sgi NÆSTI FORSETI? Rudolph Giuliani hugleið- ir hvort hann vilji verða næsti forseti Bandaríkjanna. Kosningar í Bandaríkjunum: Giuliani íhug- ar frambo› FORSETAFRAMBOÐ Fyrrum borgar- stjóri New York, Rudolph Giuliani, upplýsti á ferð sinni um Danmörku nýverið að hann ætlaði að ákveða á næsta ári hvort hann byði sig fram til forseta árið 2008. Hann setti þó þann fyrirvara að þessar hugleið- ingar hans um að verða forsetaefni repúblikana gætu að engu orðið. Giuliani þótti sýna fádæma leið- togahæfileika í kjölfar hörmung- anna í New York þann 11. sept- ember árið 2001. Hann var í Dan- mörku vegna ráðstefnu viðskipta- leiðtoga í Kaupmannahöfn. ■ Dreamweaver MX 2004 Dreamweaver er eitt vinsælasta vefsmíða- forrit á markaðnum í dag enda bæði fjölbreytt og afar einfalt í notkun. Á þessu námskeiði verður farið í helstu grunnatriði Dreamweaver og hvernig má nota það til að búa til vefsíður og halda þeim við. Einnig verður kennd notkun margmiðlunar- efnis og javascript til að krydda vefsíður ásamt faglegri uppsetningu skráa á vefsvæði. Í lok námskeiðsins búa nemendur til full- kláraðan vef og læra hvernig á að setja vefsíður inn á Netið. Sjá nánari lýsingu á heimasíðu skólans. Lengd námskeiðs 31 kennslustund. Kennt er mánudags- og miðvikudagskvöld frá kl 17:30 - 21:00. Hefst 10. okt og lýkur 26.okt. Verð kr. 29.000,- (Kennslubók innifalin) V E F S M Í Ð I Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is Á ríkið að hlaupa undir bagga með útflutningsfyrirtækjum? SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu farin(n) að búa til jóla- kortin? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 63% 37% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN M YN D /A P Lögreglan í Kópavogi: Loka›i skemmtista› LÖGREGLUMÁL Skemmtistað í Kópa- vogi var lokað skömmu eftir mið- nætti í fyrrinótt en lögreglan kom þá að nokkrum unglingum undir lögaldri þar inni. Var það annað kvöldið í röð sem lögreglan finnur börn á þessum stað. Málið hefur verið kært til sýslu- manns og mega eigendur staðarins því eiga von á fjársektum eða leyf- ismissi. Samkvæmt lögum verður gestur að vera 18 ára eða eldri til að sækja skemmtistað sem þennan. Staðnum var aðeins lokað þessa nótt en eigendur gátu opnað aftur næsta dag. - jse ALÞINGI SETT Frjálslyndi flokkurinn mótmælir því að ekki skuli hafa verið hægt að segja „nei“ við kosningu Sólveigar Pétursdóttur sem forseta Alþingis. fiær fimm lykilpersónur sem hva› mest komu vi› sögu í a›dragandanum a› Baugsmálinu eru Jón Gerald Sullenberger, Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnars- son. Hér á eftir er raki› hva›a hlutverki hvert fleirra gegndi. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins Veturinn og vorið 2002 berast Styrmi Gunnarssyni gögn frá Jóni Geraldi Sullenberger varð- andi viðskipti hans við Baug. Jón Gerald vill að Styrmir fjalli um Baug í Morgunblað- inu. Styrmir tel- ur málið ekki þess eðlis að það eigi erindi á síður blaðsins en sér aumur á Jóni Geraldi og veitir honum því aðstoð í málinu. Hann finn- ur handa honum lögfræðing, samflokksmann sinn og fyrrver- andi lögmann útgáfufélags Morgunblaðsins til margra ára, Jón Steinar Gunnlaugsson, sem Styrmir, eftir að ráðfæra sig við Kjartan Gunnarsson, æskuvin sinn, telur að sé heiðarlegur og vandaður lögmaður. Styrmir segir Jónínu Benediksdóttur að hvorki hún né Jón Gerald þurfi að hafa áhyggjur af Jóni Stein- ari því tryggð hans við ónafn- greindan mann sé innmúruð og ófrávíkjanleg. Styrmir aðstoðar þá Jón Gerald við þýðingar á hinum ýmsu greinum og fær til þess hjálp blaðamanna sem hjá honum starfa. Styrmir sendir einnig skjöl Jóns Geralds um Baug umbeð- inn til Jónínu sem kemur þeim áfram til tollstjóra sem kemur þeim til skattrannsóknastjóra. Styrmir segist reyndar ekki skilja af hverju skattrannsóknin á Baugi sé ekki hafin og getur sér til um að það sé hugsan- lega vegna þess að fjármála- ráðherra sé ekki kominn úr sumarfríi. Jónína Benediktsdóttir, athafnakona Sleit sambúð við Jóhannes Jónsson kenndan við Bónus í nóvember 2001. Finnst hann hafa hlunnfar- ið sig fjár- hagslega en rekstur lík- amsræktar- stöðvar Jón- ínu, Planet Pulse, gekk ekki sem skyldi á meðan tveggja ára sambúð þeirra varði. Hún krefur Jóhannes um tugmilljónir og hvítan Audi. Jónína, sem kynntist Jóni Geraldi í gegnum Jóhannes, ákveður að taka hann upp á sína arma og styðja hann í deilum hans gegn Baugi. Hún notar sér samband sitt við Styrmi Gunnarsson til þess að vekja athygli áhrifa- mikilla manna á máli Jóns Geralds. Þegar Styrmir og félagar hans ákveða að taka að sér Baugsmálið hefur Jónína reynt að vekja athygli fjölda þjóðþekktra manna á meint- um svikum Baugsfeðga. Þar á meðal fundar hún með Valgerði Sverrisdóttur við- skiptaráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og fleiri Samfylkingarmönnum, sem og nokkrum af helstu fjöl- miðlamönnum landsins. Enginn telur málið þess eðlis að bregðast þurfi við því þótt allir hvetji hana til að snúa sér til lögreglu telji hún Baugsmenn hafa brotið lög. Það er því ekki fyrr en hún leitar til Styrmis að hjólin fara að snúast í Baugs- málinu. Jón Gerald Sullenberger, athafnamaður Rak vöruhús í Flórída og átti í viðskiptum við Baug í Bandaríkjunum. Einnig átti hann hlut í snekkjunni Thee Viking, á móti Baugs- mönnum. Reksturinn á vöruhúsi Jóns Geralds gekk ekki sem skyldi og á haust- mánuðum 2001 kom í ljós að viðskiptin við Baug voru ekki jafnmikil og samningar höfðu verið gerðir um. Því var hagnaður Jóns Geralds minni en hann hafði áætlað. Vorið 2002 fara í gang samningaviðræður milli Jóns Geralds og Baugs vegna þessa og útlit er fyrir að sættir náist. Baugur býðst meðal annars til að greiða það sem upp á hagnaðinn vantar vegna minni viðskipta en samið var um. Í júní 2002 slítur Jón Ger- ald samningaviðræðum og hættir viðskiptum við Baug. Þá er hann kominn í sam- band við Styrmi og Jón Steinar og farinn að undir- búa kæru á hendur Baugi. Jón Gerald kærir Baug í ágúst 2002 og í kjölfarið ræðst efnahagsbrotadeild lögreglunnar til atlögu og gerir húsleit í höfuðstöðvum Baugs 28. ágúst sama ár. Jón Steinar Gunnlaugsson, þá hæstaréttarlögmaður Einn helsti ráðgjafi Davíðs Oddssonar um áratugaskeið tekur að sér mál Jóns Geralds fyrir milligöngu Styrmis. Hafði um árabil starfað sem lögmaður Ár- vakurs, útgáfu- félags Morgun- blaðsins, og varði meðal annars Agnesi Bragadóttur blaðamann í máli sem höfðað var gegn Morgun- blaðinu í kjölfar skrifa Agnesar um endalok Sambandsins. Agnes var krafin um að gefa upplýsingar um heimild- armann sinn en dómnum var hnekkt í Hæstarétti. Styrmir segir að meðal annars vegna þeirra starfa Jóns Steinars hafi hann ákveðið að benda Jóni Geraldi á hann þegar hann leitaði að lögmanni í Baugs- málinu. Jón Steinar var þegar nefndur til sögunnar í byrjun maí 2002. Í lok maí talast hann og Jón Gerald fyrst við í síma en hittast ekki fyrr en síðar. Opinberlega tekur Jón Steinar við máli Jóns Geralds í júlí og fór þá að senda Styrmi gögn um málið sem Jón Ger- ald sendi honum. Jón Steinar ráðleggur Jóni Geraldi annað tveggja: Að höfða einkamál á hendur Baugi eða kæra þá til lögreglu fyrir brot á lögum. Jón Steinar kærir Baug fyrir hönd Jóns Geralds en semur síðar um 120 milljóna króna greiðslu til handa Jóni Geraldi frá Baugi svo mál Jóns Ger- alds gegn Baugi í Bandaríkjun- um verði látið niður falla. Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastj. Sjálfstæðisflokksins Trúnaðarvinur Styrmis og einn áhrifamesti maður í Sjálfstæðisflokknum og oft nefndur mað- urinn á bak við Davíð Oddsson. Tengdur Styrmi nánum fjölskyldu- böndum og að sögn Styrmis þrautgóður á raunastund enda hafi hann oft leitað til hans þegar mik- ið lá við. Þegar Jón Gerald spyr Styrmi ráða um hvaða lög- mann hann eigi að velja til að fara með mál sitt gegn Baugi dettur Styrmi Jón Steinar í hug. Það er þó ekki fyrr en eftir samráðsfund með Kjartani og Jóni Stein- ari, sem haldinn var á rit- stjóraskrifstofu Morgunblaðs- ins um mánaðamótin júní/júlí, að Styrmir treystir sér til þess að mæla með Jóni Steinari við Jón Gerald. Kjartan, Styrmir og Jón Steinar hittust því til að ræða hæfi og hæfni Jóns Steinars sem lögmanns og komust að þeirri niðurstöðu að hann væri nægilega hæfur lög- maður til þess að fara með mál Jóns Geralds gegn Baugi. Kjartan hafði, þrátt fyrir að vera einn helsti ráðgjafi Davíðs, þó aldrei nefnt Jón Gerald Sullenberger í eyru Davíðs, áður en innrásin var gerð í höfuðstöðvar Baugs. sda@frettabladid.is ÁHERSLUMÁL KYNNT Frá fréttamannafundi Samfylkingarinnar í gær, þar sem aðal áherslumál þingflokksins voru kynnt. Áherslumál Samfylkingarinnar fyrir komandi þing: Rá›uneytum fækki um fjögur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.