Fréttablaðið - 05.10.2005, Page 43
Fiskþurrkunarfyrirtækið Faroe
Marine Products (FMP) í Leirvík
á Austurey í Færeyjum, sem
Laugafiskur, dótturfyrirtæki
Brims, á 45% eignarhlut í, var á
dögunum valið fyrirtæki ársins í
Færeyjum.
FMP þurrkar þorskhausa og
hryggi fyrir Nigeríumarkað.
Vöxtur Faroe Marine Products
hefur verið mjög mikill og hrað-
ur, en fyrirtækið hóf starfsemi
árið 2001 og var árið 2002 fyrsta
heila rekstrarár þess.
Í rökstuðningi dómnefndar
um val á FMP sem fyrirtæki árs-
ins er bent á að FMP nýti orku
frá sorpbrennslustöð og einnig er
bent á þá staðreynd að fyrirtæk-
ið hafi stóraukið virði færeysks
sjávarfangs, en áður en verk-
smiðja FMP var sett á stofn voru
allir fiskhausar sem til féllu í
Færeyjum nýttir í mjöl eða flutt-
ir til Danmerkur þar sem þeir
voru unnir í loðdýrafóður.
Þetta kemur fram á heimasíðu
Brims.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 19
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Gef›u starfsmönnum jólagjöf a› eigin vali! Rafræna gjafakortið í Smáralind er vinsæl
jólagjöf sem þú getur verið viss um að hittir í mark hjá starfsmönnum jafnt sem viðskiptavinum.
Láttu sérmerkja kortið fyrirtæki þínu til að gera gjöfina enn eftirminnilegri. Kortið fæst hjá
þjónustuborði Smáralindar á 1. hæð fyrir hvaða upphæð sem er frá 1.000 krónum.
LOGO hf.
Veldu gjafakort sem flér flykir fallegast og vi›
sérmekjum korti› flínu fyrirtæki. Fá›u fallegar gjafaumbú›ir utan um gjafakorti›.
jólagjafirnar tímanlega í ár!
Veldu
Rafrænt gjafakort í Smáralind
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
13
7
Skoski framleiðandinn Willam Grant, sem þekktur er
fyrir framleiðslu sterkra drykkja á borð við Glenfiddich
og Grantís, stendur fyrir framleiðslu Reyka vodka í
Borgarnesi. Markaðssetning Í Bandaríkjunum er
komin í gang og meðal annars hefur verið auglýst
eftir íslensku fólki til kynningarstarfa fyrir Reyka í
nokkrum borgum Bandaríkjanna.
Í fréttatilkynningu segir að Reyka vodkinn hafi
vakið mikinn áhuga erlendra fjölmiðla þar sem jarð-
hiti og íslenskt hraun leika mikilvægt hlutverk í
framleiðslu hans. Tugir erlendra blaðamanna hafi
þegar komið til landsins til að kynnast framleiðsl-
unni og fréttir af vörunni birst í fjölda blaða og tíma-
rita vestan hafs og austan að undanförnu. - hhs
Íslenskt Reyka
vodka komið í sölu
Samstarf í fraktflutningum:
Eimskip og DHL semja
Katrín veldur
atvinnuleysi
Eftir fellibylinn Katrínu sem reið
yfir suðurríki Bandaríkjanna í
lok ágúst eru 279.000 manns at-
vinnulausir. Talið er að töluvert
fleiri störf muni tapast á næst-
unni í kjölfarið á fellibylnum
Ritu. Þetta aukna atvinnuleysi og
hækkandi olíuverð á stóran þátt í
því að spáð er minnkandi hag-
vexti í Bandaríkjunum á seinni
helmingi þessa árs. Hagvöxtur
stóð í 3,3 prósentum á ársgrund-
velli á tímabilinu apríl-júní en
ljóst er að sú tala verður lægri
fyrir tímabilið júlí-september.
- hhs
FL Group
selur ferða-
skrifstofur
Svissneska ferðaheildsalan IS-
Travel hefur keypt allar sölu-
skrifstofur Íslandsferða á megin-
landi Evrópu. Íslandsferðir eru
dótturfélag FL Group en ferða-
skrifstofurnar eru reknar undir
nafninu Island Tours og eru með-
al annars í Frakklandi, Hollandi,
á Ítalíu, Spáni, í Sviss og Þýska-
landi. Með sölunni munu Íslands-
ferðir hverfa af almennum neyt-
endamarkaði og einbeita sér að
sölu pakkaferða til ferðaskrif-
stofa um allan heim. Um fimmtíu
manns starfa hjá Íslandsferðum
eftir breytinguna. - hb
Fyrirtæki ársins í Færeyjum
Eimskip hefur gert samning um
aðgang að flutningsneti DHL
hraðflutningsþjónustunnar í
flug- og sjófrakt. Eimskip getur
því boðið viðskiptavinum sínum
hraðflutningsþjónustu DHL í við-
bót við eigin þjónustu.
Eimskip og DHL nýta þegar
daglegt fraktflug í sameiningu til
og frá Evrópu. Með samstarfs-
samningnum eykst samstarf
milli félaganna tveggja. DHL á
Íslandi er í eigu Deutsche World
Net í Þýskalandi sem rekur DHL
flutningsfyrirtækið í yfir 220
löndum. Hjá félaginu starfa um
300.000 manns og er fyrirtækið
leiðandi fyrirtæki á sviði hrað-
flutninga og flutningsþjónustu
um allan heim. - hb