Fréttablaðið - 06.10.2005, Side 2
2 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
SPURNING DAGSINS
Magni, er þetta handvömm?
„Alls ekki, í mesta lagi smá athugun-
arleysi.“
Magni Kristjánsson, bæjarfulltrúi í Fjarða-
byggð, benti á að fjarlægja þyrfti eina hönd
af þremur í listaverki Tryggva Ólafssonar sem
prýða Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað.
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
BANKASALA Framkvæmdanefnd um
einkavæðingu hefur til þessa rök-
stutt val sitt á Samson til viðræðna
um kaup á Landsbankanum haustið
2002 með því að samkvæmt skýrslu
HSBC hafi Samson verið með besta
tilboðið í bankann þegar horft var til
fimm þátta.
Samkvæmt skýrslu ráðgjafa
framkvæmdanefndar um einkavæð-
ingu, HSBC, um einkavæðingu rík-
isbankanna 2002, sem Fréttablaðið
hefur fengið afhenta í kjölfar ákvörð-
unar úrskurðarnefndar um upp-
lýsingamál, hafnaði framkvæmda-
nefndin upprunalegu reiknilíkani frá
ráðgjafanum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins féllst framkvæmdanefndin
ekki á þá útreikninga, enda var tilboð
Samson þar lakast, og fékk HSBC til
að endurmeta vægi einstakra þátta.
Í skýrslunni kemur fram að matið
á bjóðendunum var byggt á því að
Samson greiddi fyrir hlutinn sam-
kvæmt efri mörkum verðtilboðs þei-
rra, eða 3,90 á hlut, sem var hærra
verð en endanlega var greitt fyrir
bankann.
Endanlegt verð Samson á hlut
í Landsbankanum var 3,7 því 700
milljónir voru dregnar frá endanlegu
kaupverði eftir að ágreiningur kom
upp milli Samson og framkvæmda-
nefndar um gæði lána í lánastokki
Landsbankans.
Ágreiningur var í framkvæmda-
nefnd um einkavæðingu þegar
ákveðið var að ganga til viðræðna
við Samson um kaupin á Landsbank-
anum haustið 2002 því verðtilboð
Samson var talsvert lægra en hinna
bjóðendanna tveggja, S-hópsins og
Kaldbaks. Samson bauð á bilinu 3 til
3,90 á hlut, S-hópurinn 4,10 og Kald-
bakur 4,16.
Nefndarmenn voru ekki á einu
máli um vægi þeirra fimm jafngildu
þátta sem notaðir voru til að meta
tilboð fjárfestanna þriggja, Samson,
S-hópsins og Kaldbaks og gagnrýndi
einn nefndarmaður það harðlega að
framtíðarsýn fjárfesta hefði jafn
mikið vægi og verðtilboðið sjálft.
Í skýrslu HSBC kemur fram að
eftir miklar umræður á fundi fram-
kvæmdanefndar hafi verið ákveðið
að gera næmnigreiningu á reiknilík-
aninu þar sem lagt yrði mat á tilboðin
þrjú þar sem tekið yrði inn í mynd-
ina sá möguleiki að Samson héldi sig
ekki við efri mörk verðtilboðs síns.
Þegar tilboðin voru metin út frá
því að Samson greiddi 3,5 á hlut kom
í ljós að tilboð S-hópsins í Lands-
bankann var betra en tilboðið frá
Samson í tveimur útreikningum
af þremur, þar á meðal samkvæmt
útreikningum sem HSBC mælti upp-
haflega með að stuðst yrði við.
sda@frettabladid.is
Mati HSBC á tilboð-
um í banka breytt
Í skýrslu HSBC vegna sölu bankanna 2002 kemur fram að Samson var með
lakasta tilboðið í Landsbankann samkvæmt upprunalegu reiknilíkani HSBC.
Framkvæmdanefnd lét gera nýtt reiknilíkan þar sem vægi þátta var breytt.
STJÓRNMÁL Ríkissjóður greið-
ir sjálfum sér á sjötta milljarð
króna í fjármagnstekjuskatt af
söluhagnaði Símans.
Þetta kom fram í máli Geirs
H. Haarde utanríkisráðherra í
umræðum um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um ráðstöfun sölu-
andvirðis Símans, sem forsætis-
ráðherra mælti fyrir á Alþingi í
gær.
Geir sagði að fjármagnstekju-
skatturinn væri dreginn frá sölu-
hagnaðinum og tekjur ríkissjóðs
ykjust sem því næmi. Þetta yrði að
sínu leyti til þess að jöfnunarsjóð-
ur sveitarfélaga fengi 120 milljónir
króna í sinn hlut. Fram kom í máli
Geirs, sem lét nýverið af embætti
fjármálaráðherra, að samkvæmt
lögum um fjárreiður ríkisins yrðu
tekjur ríkissjóðs af sölu Símans
allar bókfærðar á þessu ári og þær
skattlagðar samkvæmt því.
Geir sagði jafnframt að ríkis-
sjóður hefði þegar samið um að lána
Seðlabankanum hluta af andvirði
Símans með útgáfu skuldabréfa.
Þetta væri nýtt því venjulega lánaði
Seðlabankinn ríkissjóði fé. - jh
FRUMVARP UM SÖLUANDVIRÐI SÍMANS
Ögmundur Jónasson og Geir H. Haarde
ræðast við í þingsal. Geir segir að jöfn-
unarsjóður sveitarfélaga fái 120 milljóna
króna glaðning vegna sölu Símans.
Ríkið greiðir sjálfu sér á sjötta milljarð króna í fjármagnstekjuskatt:
Glaðningur til sveitarfélaga
BANASLYS Lögregla hafnaði boði vakt-
manns á vegum skemmtibátafélags-
ins Snarfara um aðstoð nóttina sem
sjóslysið varð á Viðeyjarsundi, aðfara-
nótt 10. september.
Hafþór Lyngberg Jónsson, formað-
ur Snarfara, segist hafa rætt atvikið
við yfirlögregluþjón rannsóknardeild-
ar lögreglu í Reykjavík og fengið þau
svör að atvikið yrði skoðað. Í slysinu
fórust maður og kona en hjón, eigend-
ur bátsins, komust af með tíu ára son
sinn.
„Vaktmaður okkar var á svæðinu
þegar fyrstu björgunarmenn komu
með gúmbát niður í Snarfarahöfn.
Hann bauð strax fram aðstoð sína,“
segir Hafþór og bætir við að um hálf-
tíma síðar hafi vaktmaðurinn boðið
fram aðstoð sína öðru sinni þegar kom
meira björgunarlið með tvo báta. „En
það var aftur afþakkað,“ segir hann.
Hafþór vildi ekki fullyrða um
hverju það hefði breytt ef aðstoð
hefði verið þegin. „Það breytir
ekki því að hér erum við með vakt,
einmitt til þess að aðstoða fólk í
nauðum og höfum oft gert það.“ Þá
bendir hann á að hraðbátur félags-
ins sem boðinn var til leitarinnar sé
átta metra langur og búinn ljóskast-
ara. „Hann er miklu betri en þessir
gúmbátar sem hinir hafa yfir að
ráða.“
Vaktmaður er í Snarfarahöfn frá
því starfsemi félagsins hefst í mars-
byrjun og staðin er vaktin frá ellefu að
kvöldi til sex á morgnana fram í miðj-
an október. Ekki náðist í Hörð Jóhann-
esson, yfirlögregluþjón í Reykjavík, í
gærkvöldi vegna málsins. - óká
Lögregla vildi ekki hjálp vaktmanns Snarfara fyrst eftir sjóslys á Viðeyjarsundi:
Bauðst tvisvar til að aðstoða
Á VIÐEYJARSUNDI Skemmtibáturinn sem fórst aðfaranótt 10. september á Viðeyjar-
sundi var hífður upp daginn eftir til þess að hægt væri að flytja hann í land og kanna
skemmdir. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Héraðsdómur:
Maður játaði
fíkniefnabrot
Á SVIPTINGARHRAÐA Lögregl-
an á Akureyri stöðvaði akstur ungrar
stúlku þar sem hún ók á 109 kílómetra
á svæði þar sem hámarkshraðinn er
50. Stúlkan hefur aðeins haft ökuleyfi í
rúma þrjá mánuði og má nú búast við
því að missa það.
RAFMAGNSLEYSI Rafmagnslaust
varð í höfuðborginni á sjötta tím-
anum í gær. Háspennubilun varð
þess valdandi að aðalveitustöð
Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaár-
dal sló út.
Rafmagn komst víða aftur á
eftir um tuttugu mínútur er sum
hverfi voru án rafmagns í um
klukkustund.
Að sögn Helga Péturssonar,
upplýsingafulltrúa hjá Orkuveit-
unni, er bilunarinnar ennþá leit-
að en orsakirnar verða að öllum
líkindum ekki ljósar fyrr en ein-
hvern tímann í dag. - saj
Rafmagnsleysi í Reykjavík:
Straumrof í allt
að klukkutíma
ELDUR Í FJÖLBÝLISHÚSI
Eldur kom upp í kjallaraíbúð í fjöl-
býlishúsi við Háengi 2 á Selfossi í
gærkvöldi. Ein stúlka var í íbúðinni og
komst hún út af sjálfsdáðum. Slökkvi-
liði gekk greiðlega að vinna á eldinum
en miklar skemmdir eru á íbúðinni og
innbúi. Einhverjar reykskemmdir eru í
öðrum íbúðum í húsinu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HILLAH, AP Í það minnnsta 25
sjíar biðu bana í mannskæðu
sprengjutilræði í bænum Hill-
ah í Írak í gær. 87 manns eru
sagðir alvarlega sárir.
Sprengingin varð í mosku í
borginni þar sem fjöldi trúaðra
var saman kominn til bæna-
halds, en ramadan, föstumán-
uður múslima, er rétt nýhaf-
inn.
Þetta er annað hryðjuverkið
á fimm dögum sem framið er í
Hillah, en á föstudaginn létust
tíu í sprengjutilræði á mark-
aðstorgi.
Ekki er vitað hver ber ábyr-
gð á tilræðinu en al-Kaída í Írak
hefur sagst ætla að valda sem
mestum usla á næstu dögum til
að spilla fyrir atkvæðagreiðslu
um stjórnarskrárdrög landsins.
Súnníarnir í al-Kaída hafa horn
í síðu sjía og því er líklegt að
árásin sé runnin undan rifjum
þeirra. ■
Enn ráðist á Hillah:
Öflug sprengja
við sjíamosku
DÓMSMÁL Tuttugu og fjögurra ára
gamall maður játaði fíkniefnabrot
í Héraðsdómi Norðurlands eystra
í gær.
Mál mannsins er hluti af mun
stærra fíkniefnabrotamáli, þar
sem hann og sex aðrir menn eru
ákærðir fyrir ýmis fíkniefna-
brot, meðal annars að hafa farið
til Reykjavíkur og keypt töluvert
magn af amfetamíni og hassi,
drýgt efnin og flutt með sér til
Akureyrar.
Einnig tengist málið líkamsár-
ásarmáli, þar sem ungir menn eru
ákærðir fyrir að hafa misþyrmt
manni, stungið honum í skott á bif-
reið og skotið á úr loftbyssu. - smk
SPENNISTÖÐ Í EDDUFELLI Upphaflega var
talið að bilunina mætti rekja þangað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L