Fréttablaðið - 06.10.2005, Qupperneq 4
4 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Tuttugu og fjögurra ára
gamall maður játaði fíkniefnabrot
í Héraðsdómi Norðurlands eystra
í gær.
Mál mannsins er hluti af mun
stærra fíkniefnabrotamáli, þar
sem hann og sex aðrir menn eru
ákærðir fyrir ýmis fíkniefna-
brot, meðal annars að hafa farið
til Reykjavíkur og keypt töluvert
magn af amfetamíni og hassi,
drýgt efnin og flutt með sér til
Akureyrar.
Einnig tengist málið líkams-
árásarmáli, þar sem ungir menn
eru ákærðir fyrir að hafa misþyrmt
manni, stungið honum í skott á bif-
reið og skotið á úr loftbyssu. - smk
Héraðsdómur:
Játaði fíkni-
efnabrot
LÍKAMSÁRÁS Hnífurinn sem not-
aður var í grófri líkamsárás í
Garðabæ um síðastliðna helgi er
enn ófundinn. Að sögn lögreglu
í Hafnarfirði miðar rannsókn
málsins þó að öðru leyti vel.
Tveir þriggja meintra árásar-
manna losnuðu úr gæsluvarðhaldi
í gær og sá þriðji losnar á morgun
að öllu óbreyttu.
Ekki er útséð um hvort fram-
lengingar á gæsluvarðhaldi hins
meinta forsprakka verður krafist.
Fórnarlamb piltanna er á bata-
vegi og liggur á almennri deild á
Landsspítala í Fossvogi. - saj
Líkamsárás í Garðabæ:
Hnífurinn
ófundinn
BÆJARGIL Húsið þar sem árásin átti sér
stað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL „Þetta eru ömurlegar
fréttir og það er ljóst að það þarf
pólitíska aðkomu að þessu máli. Það
er þannig vaxið.“
Þetta segir Ágúst Ólafur Ágústs-
son, varaformaður Samfylkingar-
innar, sem hefur beðið um utandag-
skrárumræðu við utanríkisráðherra
um málefni Arons Pálma Ágústs-
sonar, sem dæmdur var í tíu ára
fangelsi fyrir brot sem hann framdi
þegar hann var ellefu ára gamall.
Ríkisstjórinn í Texas hafnaði náðun-
arbeiðni Arons Pálma í fyrradag.
Að sögn Ágúst Ólafs tók hann
mál Arons Pálma upp á Alþingi í
mars í fyrra. Hann beindi þeirri
spurningu til þáverandi utanríkis-
ráðherra, Halldórs Ásgrímsson-
ar, hvort hann væri tilbúinn til að
beita sér með beinum og pólitískum
hætti fyrir lausn þessa sorglega
máls til að umræddur Íslending-
ur gæti lokið afplánun sinni hér á
landi. Mikil áhersla var lögð á að
aðkoman yrði að vera pólitísk eðlis
en ekki eingöngu á vettvangi emb-
ættismanna.
Í umræðunni á þinginu á þeim
tíma tók Halldór vel í þá umleitan
og sagðist ætla að beita sér í mál-
inu, að sögn Ágústs Ólafs.
„Nú eru liðin tæp tvö ár og ekk-
ert bólar á Aroni Pálma heim,“
segir hann og bætir við að fordæmi
sé fyrir aðkomu stjórnvalda að mál-
efnum Íslendinga erlendis. Megi
þar nefna mál Sophiu Hansen. „Hér
er um að ræða íslenskan ríkisborg-
ara sem hefur verið beittur miklum
órétti og því ber að beita öllum til-
tækum leiðum til að koma honum
til hjálpar.“ - jss
Utandagskrárumræða á Alþingi vegna máls Arons Pálma:
Pólitísk aðkoma nauðsynleg
ARON PÁLMI Ágúst Ólafur Ágústsson hefur
beðið um utandagskrárumræðu.
AUSTUR-KONGÓ Friðargæsluliðar
á vegum Sameinuðu þjóðanna
hafa fundið fjöldagrafir í Austur-
Kongó, sem áður hét Saír. Í þeim
hvíla lík mörg hundruð flóttamenn
úr hópi Hútúa sem stjórnarher
Rúanda, skipaður Tútsum, er
sagður hafa stráfellt árið 1996.
Árið 1994 var Rúanda vett-
vangur einhverra hrikalegustu
fjöldamorða síðustu áratuga en
þá gengu Hútúar og Tútsar á milli
bols og höfuðs hverjir á öðrum
með þeim afleiðingum að 800.000
manns lágu í valnum. Friður hefur
ríkt í landinu síðustu ár. ■
Fjöldagrafir í Kongó:
Mörg hundruð
manns myrtir
DÓMSMÁL Phu Tién Nguyén játaði
við þingsetningu málsins í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær að hafa orðið
samlanda sínum Vu Van Phong að
bana. Hann sagðist þó ekki hafa átt
upptökin að átökunum.
Mál Víetnamanna vakti mikla
athygli fyrr á árinu. Phong var
stunginn til bana í matarboði í
heimahúsi í Hlíðarhjalla í Kópa-
voginum um hvítasunnuna, Alls
voru sautján matargestir í boðinu
þegar einn gestanna snöggreidd-
ist að sögn vitna og myrti Vu Van
Phong með eggvopni sem að sögn
lögreglu var líklega tekið úr eld-
húsi í íbúðinni.
Mörg vitni voru að atburðinum,
en engum var boðin áfallahjálp að
undanskilinni fjölskyldu hins látna.
Friðrik Smári Björgvinsson, tals-
maður lögreglunnar í Kópavogi,
sagði á sínum tíma að lögreglan
hefði mætt í Hlíðarhjallann innan
við tveimur mínútum eftir að henni
barst tilkynningin.
Phong, sem kallaður var Jói,
vann í Efnalauginni Björg í Mjódd
ásamt eiginkonu sinni og sögðu
vinnuveitendur hans skömmu eftir
lát hans að hann hefði verið hvers
manns hugljúfi. Hann var 28 ára
gamall og hafði flust hingað árið
2000. Hann skildi eftir sig unga
ekkju, Thanh Viet Mac, og þriggja
ára gamla dóttur. Viet átti von á
öðru barni þeirra hjóna. Viet, sem
er 27 ára gömul, fluttist hingað ári á
undan manni sínum, en móðursyst-
ir hennar var meðal fyrstu flótta-
mannanna sem komu hingað til
lands frá Víetnam á vegum Rauða
Krossins fyrir fjórtán árum.
„Jói smakkaði aldrei áfengi,
vann vel fyrir heimili sínu og fjöl-
skyldu og var hugljúfi allra þeirra
sem hann þekktu. Hann var ein-
staklega sterkur persónuleiki og
gaf af sér. Hann var duglegur, glað-
ur og jákvæður. Allir smituðust af
jákvæðu viðhorfi hans. Jói er búinn
að vera eins og einn af okkur og
hefur gengið í öll störf og tók það
ekki illa upp þó að konur segðu
honum fyrir verkum. Hann var
mikill jafnaðarmaður og friðar-
sinni og barði ekki einu sinni í borð
þótt hann reiddist,“ sagði Sigurður
Jónsson, vinnuveitandi Jóa, í viðtali
við Fréttablaðið í vor.
Phu Tién Nguyén situr í gæslu-
varðhaldi á Litla-Hrauni. Réttað
verður í málinu síðar í mánuðinum
með aðstoð túlks. smk@frettabladid.is
EFTIR ÞINGFESTINGU Phu Tién Nguyén hefur játað hafa stungið samlanda sinn í matar-
boði í Kópavogi um hvítasunnuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Játar að hafa stung-
ið Vu Van Phong
Víetnaminn Phu Tién Nguyén játar að hafa stungið samlanda sinn Vu Van
Phong í matarboði um hvítasunnuna. Hann segir þó að það hafi verið í sjálfs-
vörn. Phong lést af sárum sínum á meðan beðið var eftir sjúkrabíl.
Í MINNINGU VU VAN PHONG Borð með
mynd af hinum látna, matvælum, reykelsi
og blómum var útbúið að víetnömskum
sið á heimili Viet eftir lát Jóa.
VETTVANGUR Blóðslettur á stigagangi í
Hlíðarhjalla í Kópavogi.
MIKILL MISSIR Thanh Viet Mac og þriggja
ára gömul dóttir hennar og Vu Van Phong.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 05.10.2005
Gengisvísitala krónunnar
61,16 61,46
107,9 108,42
73,1 73,5
9,793 9,851
9,259 9,313
7,86 7,906
0,5371 0,5403
88,3 88,82
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
103,0206