Fréttablaðið - 06.10.2005, Síða 18
16 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
UPPÁHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐA
Tékkneskur
gullmoli
Tékkneska byggið
er einstakt í Evrópu
og oft nefnt tékkneska
gullið. Það leggur
grunninn að hinu
kjarnmikla bragði
og gullna lit sem hefur
gert Budweiser Budvar
að heimsfrægri
gæðavöru.
Kornið sem fyllir mælinn!
LÉ
TT
Ö
L
Garðar Thór Cortes óperusöngvari er
staddur í Noregi um þessar mundir
að syngja hlutverk hertogans í óper-
unni Rigoletto eftir Verdi. „Hún er
sungin á norsku,“ segir Garðar, sem
finnst það svolítið snúið. „Maður
þarf að bera jeg og deg rétt fram
svo það hljómi ekki eins og danska,“
segir hann kíminn.
Garðar ferðast töluvert um heim-
inn vegna starfs síns en er búsettur
á Íslandi. „Það er auðvitað draum-
urinn,“ segir Garðar um það að geta
verið óperusöngvari í fullu starfi á
Íslandi. Hins vegar sé sá draumur fjar-
stæðukenndur enn sem komið er.
Garðari finnst leiðinlegt að vera
að heiman en segist þó ekki geta
kvartað núna þar sem hann verður
eingöngu í burtu í fimm vikur. „Unn-
usta mín kom til Oslóar um daginn
og það stytti dvölina alveg heilmikið,“
segir Garðar, sem ætlar að gefa út
geisladisk í nóvember með klassískri
popptónlist. Eftir það hefjast æfing-
ar á Öskubusku sem verður sýnd í
Íslensku óperunni í vetur. „Þá fæ ég
að vera á Íslandi og ég er svo feginn,“
segir Garðar og finnst alger forrétt-
indi að fá að koma heim í kvöldmat.
Garðar átti ekki mikið sumarfrí en
gat þó slakað aðeins á í ágúst. Mestur
frítími hans fer þó samt sem áður í
að undirbúa næstu hlutverk. „Reynd-
ar fórum við tvö til Parísar og þá náði
ég að syngja ekki í fimm daga og það
var ægilega mikill lúxus,“ segir hann
hlæjandi.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: GARÐAR THÓR CORTES ÓPERUSÖNGVARI
Syngur Rigoletto á norsku
Einmitt
„Ég er að gera mér þá hug-
mynd að nú hilli undir lokin
á þessari rannsókn.“
Jón H.B. Snorrason saksóknari í
Fréttablaðinu um lögreglurannsóknina
á samráði olíufélaganna.
Þá vitum við það
„Ég er með mjög mjóar og
grannar hásinar.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgar-
stjóri um eigin hásinar í Morgunblaðinu
en hásin hægri fótar hennar skarst
þegar hún missti kjötsax á hana á
dögunum.
Einbeitingin skein úr andlit-
um þátttakenda í keppninni
um titilinn Sterkasti fatlaði
maður heims sem haldin
var á dögunum. Íþróttafélag
fatlaðra stóð að keppninni
og fór hún nú fram í þriðja
sinn.
„Þetta gekk ótrúlega vel,“ segir
Arnar Már Jónsson, aflraunamað-
ur og þjálfari hjá Íþróttafélagi
fatlaðra. Hann skipulagði mótið
ásamt Magnúsi Ver Magnússyni,
sem eitt sinn var sterkasti maður
heims.
Keppendur tóku vel á því og
náðu gríðarlega góðum árangri að
sögn Arnars. Sem dæmi má nefna
að Hörður Arnarsson, sigurvegari
í flokki standandi, lyfti 120 kílóa
steini upp á tunnu. Menn ættu
ekki að reyna það heima hjá sér!
Sigurvegari í samanlögðu, það
er í flokkum standandi og í hjóla-
stólum, varð Finninn Pahvo Jau-
hojarvi og varði hann titil sinn frá
í fyrra.
Að keppni lokinni gerðu menn
sér glaðan dag á Fjörukránni,
ræddu frammistöðuna og brýndu
sig fyrir næsta mót sem haldið
verður að ári.
Ógurleg átök og
gríðarleg gleði
ÁNÆGÐIR Í MÓTSLOK Keppendur og aðstandendur voru himinlifandi að móti loknu.
HLAÐINN VERÐLAUNUM Sigurvegararnir
voru hlaðnir verðlaunum.KOMA SVO Steinarnir voru ekki teknir neinum vettlingatökum.
ÞÚ SKALT UPP! Átökin voru ógurleg þegar keppt var um titilinn Sterkasti fatlaði maður
heims um helgina.
„Allir niðurskurðir til öryrkja eru af hinu slæma,“ segir Eydís Anna Björnsdóttir
fatahönnuður um þá fyrirætlan ríkisstjórnarinnar að fella niður bensínstyrki til
öryrkja. Kveðið er á um þann gjörning í fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var á
mánudag. Eydís Anna veit sem er að bætur öryrkja eru ekki háar og er þeirrar
skoðunar að rétt sé að reyna að létta þeim lífið með fjárhagsaðstoð á borð við
bensínstyrk. Hún vonar jafnframt að ríkisstjórnin hverfi frá þessari fyrirætlan
sinni svo öryrkjar geti áfram notið bensínstyrkjarins.
EYDÍS ANNA
BJÖRNSDÓTTIR
SJÓNARHÓLL
■ BENSÍNSTYRKUR ÖRYRKJA FELLDUR NIÐUR
Slæmt