Fréttablaðið - 06.10.2005, Side 29
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL
Unnur María Bergsveinsdóttir í Brúðar-
bandinu notar sleifar til ýmissa hluta.
„Uppáhaldseldhúsáhaldið mitt er sleif,“
segir Unnur María Bergsveinsdóttir í
Brúðarbandinu. „Það er hægt að gera allt
með sleif. Það er hægt að nota hana til þess
að hræra í pottunum og það er líka hægt að
borða með henni. Svo er hægt að nota hana
til þess að ógna kærastanum ef hann hagar
sér ekki vel.“
Unnur María segist nota sleif mjög mik-
ið. Hún segist reyndar eiga margar sleifar
sem allar komi sér vel og að engin þeirra sé
í meira uppáhaldi en önnur. „Ég nota allar
sleifarnar mínar mjög mikið,“ segir hún.
Það er hægt að gera
nær allt með sleif
Unnur María með allar sleifarnar sínar.
Ég held að himna-
ríki sé staður þar
sem maður borðar
ís og hlustar á
trompetta.
KRÍLIN
MARGT NÝSTÁRLEGT BER
FYRIR AUGU Á SÝNINGU DAN-
MARKS DESIGN SKOLE Í BELLA
CENTER Í KAUPMANNAHÖFN.
Um þessar mundir stendur yfir
sýning nemenda í Danmarks
Design Skole og er hún haldin
í sýningarhöllinni Bella Center
í Kaupmannahöfn. Eins og
gefur að skilja hafa þessir
ungu hönnuðir margir hverjir
komið fram á sjónarsviðið með
óvenjuleg húsgögn, svo ekki
sé meira sagt. Sem dæmi má
nefna þetta frábæra eldhús-
borð sem fer ekki hefðbundnar
leiðir hvað lag á borðplötu
viðkemur. Sagt er að markmið
margra hönnunarnemanna sé
að hanna húsgögn sem eru
ekki eins og húsgögnin sem
foreldrar þeirra keyptu. Þetta
frumlega borð er hannað af
Kristian von Hornsleth. Nú
er bara að vita hvort borðið
verði komið í framleiðslu og
á markað áður en langt um
líður. Áreiðanlega gætu margir
hugsað sér svona óvenjulegt
borð í eldhúsið.
Óvenjulegt eldhúsborð
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.51 13.16 18.39
Akureyri 7.38 13.00 18.21
Góðan dag
Í dag er fimmtudagur 6. októ-
ber, 278. dagur ársins 2005.
Þetta frumlega borð er hannað
af Kristian von Hornsleth.
SMÁAUGLÝSINGAR
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI: 550 5000
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
Handbók fyrir skólamötu-
neyti var að koma út hjá
Lýðheilsustöð. Handbókin
inniheldur leiðbeiningar
fyrir starfsfólk mötuneyta
um matseðlagerð, mat-
reiðslu, hollustu, hreinlæti og
innkaup.
Listmunauppboð verður
haldið í Súlnasalnum á Hótel
Sögu sunnudaginn 9. októ-
ber. Verkin sem bjóða á upp
verða til sýnis í Gallerí Fold
á Rauðarárstíg frá föstudeg-
inum 7. október og fram að
uppboðinu.
Kringlukast hefst 13.
október og stendur til
16. október. Verslanir
í Kringlunni bjóða upp
á vörur á 20-50% af-
slætti.
Alþjóðlegi geðheil-
brigðisdagurinn
er næstkomandi
mánudag og af
því tilefni verður
margt á döfinni
næstkomandi
laugardag. Þema dagsins er
Andleg og líkamleg heilsa yfir
æviskeiðið. Meðal þess sem
verður á dagskrá er Geðhlaup
og Geðsund í Nauthólsvík
klukkan 11, gengið verður aft-
ur á bak niður Laugaveginn
og síðan verður hátíðadag-
skrá í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar má finna
á vef landlæknisembættisins
www.landlaeknir.is.
Samtök um líknandi með-
ferð á Íslandi standa fyrir
opnu húsi á fjórðu hæð í húsi
Krabbameinsfélagsins við
Skógarhlíð laugardaginn 8.
október milli klukkan
13 og 15. Þar kynna
líknarþjónusturnar á
höfuðborgarsvæðinu
starfsemi sína og
heilbrigðisstarfs-
menn verða á staðn-
um reiðubúnir að
svara spurningum
gesta.
heimili@fretta-
bladid.is
LIGGUR Í LOFTINU
[ TÍSKA - HEIMILI - HEILSA ]
GARDÍNUR
Spennandi möguleikar
BLS. 2
BRJÓSTAKRABBA-
MEIN
Von í baráttunni BLS. 3
PARÍS
Sumartískan 2006
BLS. 10