Fréttablaðið - 06.10.2005, Page 31
FIMMTUDAGUR 6. október 2005 29
IL TUCANO
Tryggvagata 11, 101 Reykjavík
Sími: 534 6100
Sérverslun
með húsgögn
og gjafavörulífstílsverslun
í miðbænum
Útsala
frá 40%
afsláttu
r
RÝMIN
GARSA
LA
ÚT VIK
UNA
JÓL 2005
útstillingavörur fyrir verslanir
Bergís ehf – Heildverslun
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
S: 587 8877
Engin sala til einstaklinga
Madonnan sómir sér vel á þilinu. Hún
er saumuð með hálfu krossspori og í
stærðinni 22X30 kostar hún 2.020.
Sætur púði sem lífgar uppá sófann. Efnið
í hann kostar 2.245.
Hannyrðaverslunin Erla hefur fært sig um set við
Snorrabrautina og býður fólk velkomið í bjartara
húsnæði en áður.
Þrátt fyrir hraðann í þjóðfélaginu þá eru hvers konar
hannyrðir að ná hylli fólks aftur eftir nokkurra ára lægð.
Verslunin Erla hefur lengi verið ein af þeim sem sér fólki
fyrir handavinnuefni og hefur nú flutt sig í annað og
bjartara húsnæði en hún hafði áður þótt hún haldi sig enn
við Snorrabrautina. „Áður sá ég bara fætur og kannski
töskur út um gluggana,“ segir María Sigurðardóttir ka-
up kona hlæjandi og bætir við: „Nú er ég miklu víðsýnni
og fylgist betur með mannlífinu.“ Hún segir viðskipta-
vinina líka kunna vel að meta breytingarnar og það leyn-
ir sér heldur ekki á traffíkinni þá stund sem blaðamaður
stoppar við. Spurð um eftirsóttustu vörurnar í búðinni
bendir María strax á marglitan lopa sem hún raðar upp í
stöpla við einn vegginn. En áteiknaðar strammamyndir,
púðar, eldhúshandklæði og dúkar eru líka vinsæl vara og
meðal þess sem heillar yngra sem eldra fólk nú á haust-
dögum. Þess má geta að hannyrðaverslunin Erla er með
heimasíðu. Slóðin er einfaldlega www.erla.is.
Útsaumur er inn!
Fagurlitir fuglar eru nýflognir inn um
gluggann í hannyrðaversluninni. Þeir eru
saumaðir með ýmsum sporum. Myndin
er í stærðinni 20X20. Strammi og garn
kostar 4.650
Haustlaufin lifa lengi í þessum púða sem
saumaður er með krossaum. Pakkningin
með stramma og garni kostar 2.335.