Fréttablaðið - 06.10.2005, Side 34
[ ]
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Fiskbúðin Álfheimum Fiskbúðin Reykjavíkurvegi
Álfheimum 4 Reykjavíkurvegi 68
553 8090 564 2783
Heitur matur í hádeginu
Fjölbreyttir fiskréttir í boði
getur aukist við mikið álag.
Psoriasis
Tónlistarmenn þurfa að liðka
sig og huga að andlegri og
líkamlegri heilsu. Áshildur
Haraldsdóttir flautuleikari
hefur sinn hátt á því.
„Ég reyni að ganga sem mest og
fyrir mánuði fékk ég mér lóð sem
ég hef bæði á fótum og höndum til
að gera göngurnar að enn meiri
áreynslu, segir Áshildur Haralds-
dóttir flautuleikari fjörlega þegar
hún er beðin að lýsa því hvernig
hún haldi sér í formi. Bæði kv-
eðst hún ganga í og úr vinnu og
einnig eiga hund sem reki hana
út í göngutúra í öllum veðrum. En
er það lífsnauðsyn fyrir tónlistar-
mann að vera vel á sig kominn lík-
amlega? „Já, yfirleitt eru tónlist-
armenn í skrítnum og einhæfum
stellingum í vinnunni. Svo herjar
streitan stundum á þá líka og axl-
irnar geta orðið stífar, Því er þeim
nauðsynlegt að hreyfa sig og vera
meðvitaðir um líkamsstöður,“
svarar hún. Fastur vinnustaður
Áshildar er Háskólabíó því þar
æfir hún og spilar með Sinfóníu-
hljómsveitinni. Í fyrra kveðst hún
hafa hjólað í vinnuna en nú finnist
henni notkun þess ekki reyna nóg
á og því hafi hún fengið sér 750
gramma ökla- og únliðalóð til að
ganga með. „Af því ég er með börn
og margt á minni könnu þá finnst
mér ég ekki hafa tíma til að fara
í líkamsrækt svo göngur með lóð
eru mín aðferð. Ég er reyndar ekki
búin að eiga lóðin nema í mánuð
en ég er sannfærð um að þau gera
mér gott. Ég get ekki hugsað mér
að ganga við stafi og er ekki nógu
dugleg að hlaupa,“ segir Áshildur
og bætir við að lokum. „Svo finnst
mér ekki sniðugt að koma hlaup-
andi í vinnuna löðursveitt með
flautuna á bakinu.“
gun@frettabladid.is
Labbar rösklega með lóð á
höndum og fótum
Áshildur gengur um úti hálftíma á dag með hundinn og ferðast líka á tveimur jafnfjótum í og úr vinnu - alltaf með lóðin.
Lóðin sjást á innfelldu myndinni
Þegar skammdegið sígur yfir
kenna því margir um slen og
sinnuleysi. Sú röksemd er ekki
fjarri lagi.
Skammdegisþunglyndi fer að
herja á fólk þegar nær dregur
nóvember. Einkennin geta verið
atorkuleysi, depurð, aukin svefn-
þörf og aukin þörf í sætindi. Þessi
einkenni verða síðan minni þegar
daginn tekur að lengja á ný.
Ástæða skammdegisþunglynd-
is felst í minnkandi birtu og lágs
hitastigs eða óvenjulega litlu ma-
gni af heilaboðefninu serótónín.
Algengara er að konur þjáist af
skammdegisþunglyndi og sumar
rannsóknir hafa sýnt fram á arf-
gengi sjúkdómsins. Á heimasíðu
Félags ungs fólks með þunglyndi
kemur fram að fleiri greinast
með skammdegisþunglyndi eftir
því sem norðar dregur í heimin-
um og minna sólarljóss gætir á
veturna.
Læknismeðferðir við skamm-
degisþunglyndi eru ýmsar. Hægt
er að styðjast við lyfjameðferðir
sem auka serótónín-magn í heil-
anum og einnig er hægt að fá sér-
staka lampa sem notaðir eru gegn
skammdegisþunglyndi. Læknis-
meðferðir skulu alltaf vera í sam-
ráði við lækni eða fagaðila.
Þungur í skammdeginu
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EIÐ
A