Fréttablaðið - 06.10.2005, Síða 36
[ ]
Full búð af glæsilegum
haustfatnaði
Frábær verð
Tískuvöruverslun
Glæsibæ
Sími 588 4848
Mikið úrval af bolum
úr ull/silki og ull/bómull
Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776
Opið virka daga
kl. 11:00-18:00
Opið laugardaga 11:00-14:00
Grímsbæ við Bústaðarveg • Ármúla 15 • Hafnarstræti 106
600 Akureyri Sími 588 8050, 588 8488, 462 4010
Email: smartgina@simnet.is
Erum að taka upp
helling af nýjum vörum
��������������
����������� ������
��������������
������������������
����������� ������������������
Íslensk ull og prjónaskapur
hefur verið helsta viðfangsefni
Védísar Jónsdóttur í fimmtán
ár. Hún er höfundur allra upp-
skriftanna í nýrri prjónabók
Ístex sem heitir einfaldlega
Lopi.
Eins og nærri má geta er allt fu-
llt af prufum og prjónagarni hei-
ma hjá Védísi en geislaspilarinn
er heldur ekki langt undan. „Ég
hlusta oft á tónlist þegar ég er að
búa eitthvað til og þá gjarnan á
sama diskinn meðan ég er í sama
verkefninu. Þá myndast eins og
einhver þráður þó svo að hann
rofni þegar verkið er fullmót-
að,“ segir hún brosandi. Segir til
dæmis lagið Fönn, fönn, fönn hafa
orðið kveikju að einni peysunni í
nýju Ístexbókinni, ásamt stórum
snjóflyksum fyrir utan gluggann.
„Stundum finnst mér líka gott að
hlusta á einhver stórbrotin klass-
ísk verk til að lyfta mér upp úr
smáatriðunum og horfa á heild-
ina,“ segir hún brosandi.
Védís lærði almenna fata-
hönnun í Skolen for Brugskunst
í Kaupmannahöfn sem nú heitir
Danmarks Designskole. Þegar
hún kom heim hóf hún að vinn-
a fyrir Álafoss sem framleiddi
prjónavoðir sem síðan voru sniðn-
ar niður í flíkur. „Handprjónið er
auðvitað öðruvísi því þar er mað-
ur að forma flíkina um leið og hún
er prjónuð,“ segir Védís. Hennar
vinna er þó fyrst og fremst að ha-
nna flíkur og finna út stærðirnar
og hún kveðst leggja sig fram við
að hafa uppskriftirnar aðgengi-
legar. „Það eru svo margar ungar
manneskjur að byrja að prjóna og
flíkurnar í nýju bókinni eru flest-
ar fljótlegar,“ segir hún.
Védís blandar líka litina í lop-
anum og kveðst fá hugmyndir að
þeim úr öllum áttum. „Nýjungin
hjá okkur núna eru samkembdir
litir þannig að lopinn verður yrj-
óttur. Þá prófar maður sig áfram
með einhver hlutföll af þessum og
hinum litnum þar til náðst hefur
það sem maður vill. Síðan er lop-
inn seldur í búðirnar,“ segir hún
og nefnir Handprjónasamband-
ið, Rammagerðina, Hagkaup og
flestar hannyrðaverslanir. Nú er
hún að útbúa nýtt litakort fyrir
plötulopann. „Ég sagði bara þegar
ég fékk það verkefni: „Guði sé lof
að Sigur Rós er komin með nýjan
disk,“,“ segir hönnuðurinn Védís
hlæjandi að lokum.
gun@frettabladid.is
Nýi yrjótti lopinn er uppistaðan í þessari
peysu með áttblaðarósunum.
Tónlistin og ullin
tvinnast saman
Prjónapilsin eru komin í tísku og passa
vel við gallajakka. Húfan er hlýleg og ekki
má dúskana vanta á trefilinn.
Védís kann vel við sig innan um prjóna, lopa og prufur.
eru ekki í tísku. Það er samt alltaf svolítið svalt að vera í þeim.
Sérstaklega á Íslandi á veturna.
Hawaii-skyrtur
Rachel Weisz er nýtt andlit
Burberry ilmvatnsins.
Leikkonan Rachel Weisz hefur
tekið við af Kate Moss sem andlit
Burberry-ilmvatnsins. Hermt er
að aðstandendur Burberrys hafi
haft samband við leikkonuna eftir
að þeir riftu öllum samningum við
ofurfyrirsætuna Kate Moss. Þetta
er einn af mörgum samingum sem
Kate Moss missir í kjölfar þess að
myndir af henni sniffandi kókaín
birtust í breskum blöðum.
Rachel Weisz þykir ægifögur
og aðdáendur hennar mega nú
eiga von á því að sjá henni breg-
ða fyrir í auglýsingum fyrir Bur-
berry ilmvötn.
Tekur við af Kate Moss
Rachel Weis er einna þekkt-
ust fyrir leik sinn í kvikmynd-
inni About a Boy.
Heather reið
NOKKRAR FRÆGAR OFURFYRIR-
SÆTUR HAFA TEKIÐ AÐ SÉR AÐ
SÝNA LOÐFELDI Á TÍSKUSÝNING-
UM ÞRÁTT FYRIR FYRRI YFIRLÝS-
INGAR UM AÐ GERA ÞAÐ EKKI.
Heather Mills McCartney, eigin-
koma Pauls McCartney, er mikill
dýraverndunarsinni. Nú hefur hún
sakað ofurfyrirsæturnar Lindu
Evangelista, Cindy Crawford og
Naomi Campbell um að selja sálu
sína í hendur loðfeldaframleiðenda.
Heather varð ævareið þegar hún
komst að því að fyrirsæturnar höf-
ðu allar sýnt alvöru loðskinnsvörur
á sýningarpöllunum eftir að hafa
áður tekið þátt í herferðum gegn
loðdýrarækt.
Heather starfaði áður sem fyrirsæta
og í dag vinnur hún náið með PETA
samtökunum sem berjast gegn
misnotkun á dýrum.
M
YN
D
/G
ETTY