Fréttablaðið - 06.10.2005, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 6. október 2005 35
Hvert sem litið er svífur andi
hippaáranna yfir tískunni í vetur,
víð pils, útsaumaðar skyrtur og
mussur með perluskreytingum
eða pallíettum, aðeins meira í
anda áttunda áratugarins. Ekki
má heldur gleyma þjóðlegum
slavneskum eða rússneskum stíl.
Handtöskur og skartgripir fylgja
að einhverju leyti sömu línum og
ekki hægt að segja að það vanti
liti fyrir þennan vetur, litagleðin
er taumlaus. Töskurnar eru auð-
vitað misjafnar og sumar hverj-
ar skartgripum líkastar. Njósna-
taska Fendi svo dæmi séu tekin
fæst í vetur með perluútsaumi
og kostar 2.600 evrur. Dior býð-
ur upp á ,,detective“-kvöldtösku
hannaða af John Galliano úr sat-
íni með flauelsblómum. Salva-
tore Ferragamo veðjar á hvíta
ullartösku með leðuról sem gæti
nú allt eins verið hekluð í Öræfa-
sveit en er framleidd á Ítalíu og
kostar 990 evrur. Antonio Mar-
ras, hönnuður tískuhúss Kenzo,
velur bútasaum með alls kyns
mynstri og litum fyrir sínar
töskur. Miu Miu, lína sem er
framleidd af Prada en fyrir yn-
gra fólk en aðallínan, selur lítil
hliðarveski úr leðri með silkiút-
saumi á ,,aðeins“ 600 evrur.
Að undanförnu hefur svo stór-
verslunin Printemps á Hauss-
mann-breiðgötunni boðið upp á
nýjung þar sem hægt er að velja
handtösku frá fimmtán hönnuð-
um (Paul og Joe, Vanessa Bruno,
Antik Batik, Zadig og Voltaire...)
og velja svo dúska, perlur, pallí-
ettur eða það sem er allra heit-
ast í dag, alls kyns lukkugripi,
lyklakippur eða bangsa til að
hengja á töskurnar eða sauma.
Þannig persónugerir hver sína
tösku.
Hugmyndaríkir hönnuðir
hafa nú tekið upp á því að hanna
fylgihluti sem hafa fleiri en eitt
hlutverk, kannski til að réttlæta
verðið. Til dæmis handtöskur
sem hægt er að tvöfalda með
einu handtaki og nota fyrir skj-
öl eða við innkaup (Longchamp,
La main dans le sac) nokkuð sem
er bæði þægilegt og um leið um-
hverfisvænt þar sem ekki þarf
plastpoka undir innkaupinn.
Næla getur verið beltissylgja.
Leðurstígvél eru seld með þren-
ns konar kanínuskinni í mörgum
litum sem má skipta um (Eliz-
abeth Stuart). Þessi hugmynd
hefur sömuleiðis skotið upp koll-
inum í innanhússtísku, lampa-
skermur getur verið blóma-
pottur, púðum er raðað saman
í dýnu þegar einhver gistir og
ungbarnapúði úr dúni breytist í
sæng þegar barnið stækkar.
Tískan fer í hringi og það
væri kannski ráð fyrir ykkur að
skreppa til Fríðu frænku eða í
heimsókn til ömmu og sjá hvort
ekki sé hægt að grafa upp gaml-
ar frænkutöskur sem eru í anda
hátískunnar í vetur áður en fjár-
fest er í tösku á tvöhundruðþús-
und krónur.
bergthor.bjarnason.wanadoo.fr
Heimaheklaðar hippatöskur
Sara María Eyþórsdóttir versl-
ar með sína hönnun og ann-
arra í skemmtilegu húsnæði á
annarri hæð.
Í Nakta apanum sem er til húsa á
annarri hæð í Bankastræti 14 með
yndislegt útsýni yfir aðallífæð
miðborgarinnar er seldur fatnað-
ur eftir Söru sjálfa og nokkra aðra
íslenska og erlenda unghönnuði.
Hönnun Söru samanstendur
aðallega af áþrykktum hettupeys-
um og bolum en flíkurnar vinnur
hún í samvinnu við grafísku hönn-
uðina Ólaf Orra Guðmundsson og
Þorleif Kamban. Þríeykið leggur
ríka áherslu á sjálfsprottin vinnu-
brögð og húmor og leikgleði ein-
kenna hönnunina.
Það kennir líka ýmissa annarra
grasa hjá henni Söru, ljósakrónur,
listaverkabækur, hattar, mynda-
vélar, skartgripir og geisladiskar
eru á víð og dreif um búðina og allt
er til sölu. Geisladiskurinn Beat-
makin Troopa er í spilaranum og
hljómar vel inni í frekar hráu en
litríku húsnæðinu sem reyndar er
í smá upplyftingu þessa dagana
þar sem verið er að rýma til fyrir
nýrri hárgreiðslustofu sem opnar
um miðjan næsta mánuð.
Gleðin er
allaf við völd
í Nakta apan-
um en nú þegar
hafa Sara og
strákarnir hald-
ið þrjú gleðiteiti
með litríkum
kokteilum og
dillandi kóng-
amúsík svo það
má gera ráð
fyrir skemmti-
legu partíi
þegar Kol-
brún vinkona
Söru opnar
hárgreiðslu-
stofuna eftir
rúmar tvær
vikur.
Peysur og bolir kr. 8.900 og 4.500.
Nakinn api við
Bankastræti
Sara í górillustólnum sínum sem hún
smíðaði sjálf.
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
(Litríkur kjóll á herðatré)
Impasse de la Defense
kr. 37.000.
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Sendum í póstkröfu
Haust í
Skarthúsinu
Alpahúfur
kr 990
Sjöl og treflar frá
kr 1290
Belti frá
kr 1990
Buxur
kr 3990
Sokkabuxur
frá kr 1290
Kínaskór
kr 1290
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4