Fréttablaðið - 06.10.2005, Síða 46
18
SMÁAUGLÝSINGAR
6. október 2005 FIMMTUDAGUR
Sýslumaðurinn í
Keflavík
Hjá Sýslumanninum í Keflavík
er laust starf löglærðs fulltrúa.
Æskilegt er að starfsmaður
geti hafið störf frá og með
1.nóvember 2005 eða eftir samkomulagi. Í
umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um
menntun og fyrri störf. Afrit prófskírteina skulu fylgja
umsókn. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum
eyðublöðum, en óskast sendar Sýslumanninum í
Keflavík, Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík.
• Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
ríkisins og Stéttarfélags lögfræðinga í
ríkisþjónustu
• Umsóknarfrestur er til 15 . október 2005
• Reyklaus vinnustaður
Nánari upplýsingar veita Jón Eysteinsson,
sýslumaður í síma 420-2428 eða Ásgeir Eiríksson,
staðgengill sýslumanns í s. 420-2436.
Sýslumaðurinn í Keflavík 21. september 2005
Jón Eysteinsson,
sýslumaður
Leikskólarnir
Fossakot og Korpukot
Óskum eftir deildarstjóra, leikskólakennurum og
leiðbeinendum sem fyrst til starfa.
Skemmtileg vinnuaðstaða í vel búnum leikskólum þar sem
unnið er með mikilvægasta fólki í heimi.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofu í síma 577-1900
eða sendi tölvupóst á skrifstofa@alla.is
Fossakot Korpukot
Fossaleyni Fossaleyni 12
Menntasvið
STÖRF Í LEIKSKÓLA
REYKJAVÍKURBORGAR
Vilt þú taka þátt í framþróun í
leikskólastarfi
Leikskólinn Laufskálar er fjögurra deilda
leikskóli sem er staðsettur í Laufrima 9.
Hugmyndafræðin sem er lögð til grund-
vallar uppeldisstarfinu er John Dewvey og
Reggío, þar sem lagt er upp úr opnum
efnivið og skapandi hugsun.
Nú í haust var byrjað að þróa nýtt náms-
efni um tilfinningaleikni þar sem áhersla
er lögð á að hlusta á barnið og virða
tilfinningar þess.
Óskað er eftir leikskólakennurum í
sterkan starfsmannhóp til að þróa með
okkur starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði í starfi
• Jákvæðni og áhugasemi
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Ef ekki fást leikskólakennarar til starfa
verða ráðnir starfsmenn með aðra
háskólamenntun eða reynslu á sviði
uppeldis og kennslu.
Upplýsingar um starfið veitir Halldóra
Pétursdóttir leikskólastjóri í síma
587-1140. laufskalar@leikskolar.is.
Störfin eru laus til umsóknar.
Einnig veitir starfsmannaþjónusta
Menntasviðs upplýsingar í síma 411-7000.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttar-
félög. Umsóknareyðublað er hægt að fá í
leikskólanum eða á heimasíðunni
www.leikskolar.is
STARF Í GRUNNSKÓLA
REYKJAVÍKURBORGAR
Aðstoðarskólastjóri Álftamýrarskóla
Laus er staða aðstoðarskólastjóra við
Álftamýrarskóla frá 1. janúar 2006 til
31. desember 2006.
Álftamýrarskóli er heildstæður grunnskóli
fyrir nemendur í 1. - 10. bekk. Nemendur í
skólanum eru rúmlega 340.
Í Álftamýrarskóla er m.a. stefnt að því
• að góður og jákvæður andi ríki milli
nemenda og starfsfólks.
• að efla einstaklingsmiðað nám með
áherslu á fjölbreytt námstækifæri
• að auka ábyrgð nemenda á eigin námi
og námsumhverfi
• að efla foreldrasamstarf
• að kennarar vinni saman, bæði við
undirbúning kennslu og við þróun
skólastarfsins.
Leitað er að umsækjendum sem hafa:
• Kennaramenntun og kennslureynslu,
einkum á unglingastigi
• Stjórnunarhæfileika og reynslu af
stjórnun
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Metnað í starfi og áhuga á skólaþróun
framhaldsmenntun, t.d. á sviði stjórn-
unar
Reykjavíkurborg leggur áherslu á þróun
skóla í átt til einstaklingsmiðaðs náms,
samvinnu nemenda og skóla án aðgrein-
ingar. Auk þess er lögð áhersla á að
styrkja tengsl skóla við grenndar-
samfélagið.
Upplýsingar um starfið gefa Steinunn
Ármannsdóttir, skólastjóri Álftamýrarskóla,
símar 570 8100 og 664 8110, netfang:
steinunn@alfto.is, Brynhildur Ólafsdóttir
570 8100 og 664 8111, netfang
brynhildur@alfto.is. Einnig veitir starfs-
mannaþjónusta Menntasviðs upplýsingar í
síma 411 7000.
Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og störf
auk annarra gagna sem málið varðar.
Umsóknarfrestur er til 24.okt. 2005.
Umsóknir sendist í Álftamýrarskóla
Reykjavík. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi LN og KÍ.
Frekari upplýsingar um Álftamýrarskóla er
að finna á heimasíðu skólans
http://www.alftamyrarskoli.is
Menntasvið annast starfsemi og rekstur
grunnskóla og leikskóla. Í því felst þróun
grunnskóla- og leikskólastarfs, undir-
búningur stefnumörkunar, mat og eftirlit
með skólastarfi og upplýsingamiðlun
fyrir menntaráð og starfshópa á vegum
ráðsins.
Áhugaverð störf í boði
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband
við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Karon heildverslun óskar eftir
starfskrafti við ýmis tilfallandi störf.
Vinnutími að jafnaði 9:00 til 14:00.
Viðkomandi þarf að vera góður í
mannlegum samskiptum og hafa bíl til
umráða. Umsóknir með mynd sendist fyrir
7.oktober á dogg@karon.is www.karon.is
Styrktarfélag vangefinna
Dagvistunin Lyngás
óskar eftir starfsmanni í eldhús. Um er að ræða 85-90%
starf í dagvinnu. Matreitt er fyrir um 50 manns. Lyngás er
sérhæft dagheimili, staðsett í Safamýri 5 og er opið frá
8.00-16.30 á virkum dögum. Þangað sækja börn og ung-
lingar á aldrinum 1-18 ára þjónustu.
Staðan er laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar veita Birna Björnsdóttir og
Hrefna Þórarinsdóttir í síma 553-8228 alla virka daga.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Eflingar.
Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrktarfélagið á
heimasíðu þess http://www.styrktarfelag.is
Starfsfólk á næturvaktir
Starfsfólk óskast í aðhlynningu á næturvaktir. Einnig óskum
við eftir starfsmönnum á morgun- og kvöldvaktir í
aðhlynningu. Starfshlutfall samkvæmt samkomulagi.
Áhugasamir eru velkomnir í heimsókn, en geta einnig kynnt
sér starfsemi Grundar á heimasíðu Grundar sem er
www.grund.is þar sem jafnframt er hægt að sækja um störf.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
í síma 530-6100 virka daga.
Víkurbraut 46,
Sími 426 771
Fax 426 7712
www.es.is
Eignamiðlun Suðurnesja
Sigurður V. Ragnarsson,
löggiltur fasteignasali
Snjólaug Jako
sölumað
HEIÐARGIL 2, KEFLAVÍK
Sérlega vandað og glæsilegt
einbýlishús á mjög góðum
stað. Húsið, sem er teiknað af
Kjartani Sveinssyni, skiptist
þannig að á efri hæð eru 3
svefnherbergi, stofa, borð-
stofa, hol, eldhús og tvö bað-
herbergi. Á neðri hæð eru tvö
herbergi, stórt hol, geymsla
og baðherbergi auk 40 ferm.
bílskúrs. Í eldhúsi er ný innrétting, mjög glæsileg, baðherbergi eru þrjú. Öll
baðherbergi í húsinu voru tekin í gegn og endurnýjuð fyrir fjórum árum. Á
gólfum í herbergjum og stofu er parket en flísar á forstofu, eldhúsi og holi á
neðri hæð hússins. Sér inngangur er á neðri hæð og innangengt er í bílskúr.
Fataskápar eru í forstofu og öllum svefnherbergjum. Stór afgirtur sólpallur
með heitum potti. Lóð er ræktuð og mjög gróin. Glæsilegt útsýni yfir bæinn
og Faxaflóann.
Verð 46.000.000.-
VALLARGATA 6, KEFLAVÍK
Þetta er einbýlishús á tveimur
hæðum, sem skiptist í stofu,
sjónvarpshol og 5 rúmgóð
svefnherbergi. Í eldhúsi er
innrétting spónlögð, sérlega
vönduð, granít á milli skápa,
á borðplötum og á gólfum. Á
baði er innrétting, veggir og
gólf klætt með marmara,
nuddbaðkar, á nh er einnig
baðherbergi með sturtu.
Þvottaherbergi er rúmgott með innréttingu, einnig er herbergi inn af þvotta-
herbergi. Skápar eru í forstofu, holi og hjónaherbergi. Sérlega vönduð og
skemmtileg eign, hannað af Finni Fróðasyni arkitekt. Húsið var allt endur-
byggt 1991 en þá var ma. húsið einangrað og klætt að utan, skipt um alla
glugga og gler og útihurðar, einnig var skipt um allar lagnir. Þá var húsið ein-
nig innréttað að innan, á gólfum í stofum og herbergjum er parket. Innkeyrsla
er hellulögð með snjóbræðslukerfi. Lóðin er girt og grasilögð. Svalir í suð-
vestur. Bílskúrinn var byggður 2002 og er 66 fm. Húsið er á eignalóð.
Verð 38.000.000.-
LYNGMÓI 18, NJARÐVÍK
Mjög glæsilegt einbýlishús á
einni hæð, innst í botnlanga-
götu. Húsið skiptist í samliggj-
andi stofur, þrjú góð svefnher-
bergi, eldhús, tvö baðherbergi,
þvottahús og stóran bílskúr. Í
eldhúsi er innrétting, flísar á
gólfi, ofn, helluborð og vifta.
Fataskápar eru í hjónaherbergi
og öðru barnaherbergi. Hurðir
eru hvítlakkaðar. Á baði er innrétting, flísar á gólfi, baðkar og sturta. Mjög
snyrtileg og skemmtileg eign á góðum stað. Lóð er girt og ræktuð og góður
sólpallur með heitum potti. Bílskúr er tæpir 50 fermetrar.
Verð 31.500.000.-Sta
BLIKABRAUT 1, KEFLAVÍK
Mjög skemmtilegt og vel
staðsett parhús á frábærum
stað, sem skiptist í stofu,
borðstofu, hol, 2 baðher-
bergi, þvottaherbergi og 5
svefnherbergi. Bílskúr (28
ferm.) er fullgerður og undir
honum er stórt (ca. 25 ferm.)
herbergi. Innihurðir eru spón-
lagðar. Parket á stofu, plast-
parket á öllum herbergjum. Í
baðherb. eru veggir og gólf
flísalagt, baðkar. Nýjir skápar eru í 3 barnaherb, spónlagðir. Einnig er
skápur í hjónaherb. og í forstofu á neðri hæð. Í eldhúsi er ný innrétting -
mjög falleg, nýr Siemens ofn og helluborð, flísar á gólfi. Nýtt járn er á þaki
bæði á íbúðarhúsi og bílskúr. Forhitari er á hitaveitukerfi. Pallur er á lóð.
Lóð er grasilögð og girt. Svalir í suð-vestur. Mjög skemmtileg og rúmgóð
eign. Frábær staður.
Verð 23.000.000.-
Hafnargötu 20,
230 Reykjanesbæ
Sími 421-1700
Víkurbraut 46
Grindavík
Sími 426 7711
www.es.is
Allt 44-46 (18-20) rað 5.10.2005 17:10 Page 4