Fréttablaðið - 06.10.2005, Side 50
Umsjón: nánar á visir.is
Viðræður hefjast
Hugsanlega fer að styttast í fréttir af viðræðum FL
Group og Sterling. Fulltrúar félaganna munu eiga sinn
fyrsta fund í dag þar sem farið verður yfir málin.
Hannes Smárason og Pálmi Haraldsson hafa ekki náð
að funda enn sem komið er, en lögfræðingar á þeirra
vegum hafa rætt saman.
Eftir því sem heyrst hefur hafa enn sem kom-
ið er ekki verið nefndar neinar tölur varð-
andi kaupin og Sterling-menn munu ekki
opna bækur sínar fyrr en einhverjar verð-
hugmyndir eru á borðinu. Komandi viðræð-
ur virðast ekki trufla framrás félagsins
sem hefur nú tekið ákvörðun um
að bæta Helsinki á lista
norrænna höfuðborga
sem félagið flýgur frá
til fjölda áfanga-
staða.
Grein fyrir gott taugakerfi
Íslensku flugfélögin eru í miklum sóknarhug og
uppbygging greinarinnar gríðarlega mikil. Sterl-
ing, FL Group og Avion eru öll í sóknarhug á
sama tíma og hátt olíuverð dregur máttinn úr
stórum flugfélögum, fyrir utan kostnað sem
fylgir hertum öryggiskröfum í Bandaríkjunum.
Þannig tilkynnti flugfélagið Delta að dregið yrði
úr framboði í innanlandsflugi í Bandaríkjunum.
Delta er í greiðslustöðvun og sér ekki fyrir end-
ann á vandræðum félagsins. Delta er þó ekki
bara í vörn, heldur hyggst auka flug til Mexíkó
samhliða.
Á sama tíma virðist sókn Íslendinganna ganga
vel í þessari áhættusömu atvinnugrein þar sem
menn geta bæði hagnast mikið og tapað miklu
á skömmum tíma. Grein sem gerir kröfur um
sterkan fjárhag, gott taugakerfi og hraustan
maga.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.489 Fjöldi viðskipta: 283
Velta: 2.210 milljónir
-0,71%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
> Úrvalsvísitalan lækkaði í gær þriðja
daginn í röð og fór niður fyrir 4.500 stig á
tíma. Bankar og fjárfestingarfélög leiddu
lækkanir gærdagsins.
Landsbankinn tilkynnti í gær að hann
væri kominn með yfir fimm prósenta
hlut í Íslandsbanka en áður átti bankinn
3,5 prósenta hlut. Markaðsvirði hlutarins
er um ellefu milljarðar króna. Lands-
bankinn er nú fjórði stærsti hluthafinn í
Íslandsbanka.
Greiningardeild KB banka telur líklegt
að dregið hafi úr spennu á fasteigna-
markaði. „Þær miklu hækkanir sem hafa
verið á fasteignaverði undanfarið ár eru
ekki óeðlilegar í ljósi þess að fjármagns-
kostnaður hefur lækkað um 30% á
þessu tímabili og fjármagnsskömmtun til
íbúðakaupa hefur verið afnumin,“ segir í
Efnahagsfregnum KB banka.
28 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 40,10 -0,70% ...
Bakkavör 42,30 +0,50% ... FL Group 14,15 -1,10% ... Flaga
3,37 -2,00% ... HB Grandi 9,20 +0,00% ... Íslandsbanki 14,55 -
1,00% ... Jarðboranir 20,50 -0,50% ... KB banki 580,00 -0,90%
... Kögun 54,60 -0,40% ... Landsbankinn 21,60 +0,00% ... Mar-
el 64,00 -2,30% ... SÍF 4,47 +0,70% ... Straumur 13,10 -1,90%
... Össur 85,00 +0,00%
Mosaic Fashions +2,45%
Atorka Group +0,87%
SÍF +0,68%
Marel -2,29%
Flaga -2,04%
Straumur -1,87%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Íslandsbanki fjármagnar
kaup á félaginu.
Sigurjón Sighvatsson hefur
keypt danska fasteignafélagið
VG Investment samkvæmt
frétt danska viðskiptablaðsins
Børsen. Fréttablaðið greindi
frá því í síðustu viku að Sigur-
jón væri í lokaviðræðum um
kaup á dönsku fasteignafélagi
en þá var óljóst hvaða fast-
eignafélag væri um að ræða.
Kaupverðið er samkvæmt
Børsen ekki minna en tæpir sjö
milljarðar íslenskra króna og
segir Sigurjón í samtali við
Vejle Folks Amtsblad að hann
sjái danskan fasteignamarkað
fara vaxandi ekki síst þegar
efnahagurinn í Þýskalandi tek-
ur við sér á nýjan leik. „Þetta
eru okkar fyrstu kaup í Dan-
mörku en við höfum áhuga á að
kaupa meira,“ segir Sigurjón í
samtali við blaðið.
Það er fasteignafélag Sigur-
jóns, Heimiliskaup ehf., sem
fjárfestir í félaginu en auk Sig-
urjóns koma Íslandsbanki í
Lúxemborg og hér heima að
fjárfestingunni sem fjármögn-
unaraðilar.
Baugur Group hefur þegar
fest kaup á danska fasteigna-
félaginu Keops en áætla má að
frá því að Baugur keypti hlut
sinn í Keops um mitt sumar
hafi verðmæti hans aukist um
tvo milljarða íslenskra króna.
Gengi Keops hækkaði mjög við
opnun markaða í Kaupmanna-
höfn í gær og náði á tíma 22 en
gengi félagsins var 3,9 í byrjun
ársins. - hb
Sigurjón Sighvatsson
kaupir VG Investment
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
!
"
%
'
#
( "
)
! "# $ %&'% %( "#) !%* "# + , &
-../ % # % & # &0 #"# * +
"&
# ,-,.
/#)
#
&
1
#&#% 2%2
3" 4# "# '% ../ % %'% *44#56 # 0 %&
"# % "# 0 % #
45 %%.. ( "#) # "# !# %%0% % 5 % 8"# % % & #&#%' 5# #0 # 9#0 "# % 0 . % % & !%0 #&0 40
&
4# /4) ) SIGURJÓN SIGHVATSSON Ætlar sér frekari landvinninga á dönskum fasteignamarkaði.
Líti› bólar á launaskri›i
ennflá en fla› mun
væntanlega breytast.
Í ágúst hafði kaupmáttur launa
aukist um 2,9 prósent á tólf mánaða
tímabili. Laun höfðu hækkað á
sama tíma um 6,7 prósent en vísi-
tala neysluverðs um 3,7 prósent.
„Launabreytingar umfram
samningsbundnar hækkanir hafa
verið óverulegar, jafnvel í greinum
þar sem umframeftirspurn hefur
verið töluverð undangengið ár, svo
sem í byggingar- og mannvirkja-
gerð. Skýrist það fyrst og fremst af
því að umframeftirspurn eftir
vinnuafli hefur verið mætt með
innflutningi þess,“ segir í Peninga-
málum Seðlabanka Íslands.
Þar segir jafnframt að tölu-
verð umframeftirspurn eftir
vinnuafli virðist vera að mynd-
ast í þjónustugreinum, bæði á
almennum markaði og hjá hinu
opinbera. Launaþrýstings gæti
því farið að gæta þar á næstu
mánuðum verði henni ekki mætt
með innflutningi vinnuafls.
Einnig sé líklegt að endurskoðun
kjarasamninga feli í sér aukinn
launakostnað.
Spáir Seðlabankinn að launa-
kostnaður á framleidda einingu
aukist um rúmlega fjögur pró-
sent á þessu og næsta ári. Þetta
séu töluvert meiri hækkanir en
geti samrýmst 2,5 prósenta verð-
bólgumarkmiði bankans til
lengri tíma. - bg
Launakostna›ur hækki
EFTIRSÓTTIR LAUNAMENN Seðlabankinn
spáir því að launakostnaður hækki um rúmlega
fjögur prósent á hverja framleidda einingu á
þessu og næsta ári.
Gott sumar fyrir fer›afljónustuna
Gistinóttum fjölgar um
níu prósent í ágúst.
Gistnóttum fjölgaði um níu pró-
sent í ágúst miðað við sama mán-
uð í fyrra. Alls voru gistinætur í
ágúst samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofu Íslands 151.070 en
voru 138.250 í sama mánuði í
fyrra. Gistnóttum í ágúst hefur
fjölgað jafnt og þétt frá árinu
1999 og hafa aldrei verið fleiri en
í ár.
Mest hlutfallsleg aukning var á
Suðurnesjum, Vestfjörðum og á
Vesturlandi. Hótel Stykkishólmur
stækkaði hótel sitt um 50 herbergi
í um 80 herbergi í sumar og má
meðal annars rekja aukninguna á
Vesturlandi til þess. Á höfuðborg-
arsvæðinu fjölgaði gistinóttum
um 15 prósent á milli ára.
Framboð á gistirými hefur
stóraukist á höfuðborgarsvæðinu
á undanförnum árum en nokkur
ný hótel hafa risið í miðbæ
Reykjavíkur. Auk þess stefnir
Grand Hótel nú að því að stækka
þannig að hótelið verið stærst
allra hótela á landinu og með 316
herbergi strax á næsta ári.
Í Morgunkorni Íslandsbanka er
bent á að svo virðist sem sumarið
hafi í heild verið nokkuð hagstætt
fyrir ferðaþjónustuna sé litið til
fjölda ferðamanna og fjölda
gistinátta. - hb
RADISSON SAS HÓTEL SAGA
Ágústmánuður var góður fyrir hótelin á
landinu en aukningin var um 15 prósent á
höfuðborgarsvæðinu frá sama tíma í fyrra.
Forsendur tilbo›s brostnar
Tíu prósent hluthafa í
Skandia ganga ekki a›
yfirtökutilbo›i.
Tíu prósent hlut-
hafa í Skandia hafa
hafnað yfirtökutil-
boði Old Mutal eftir
að Handelsbanken
bættist í hóp þeirra
hluthafa sem segja
nei. „Við höfum
ákveðið að fara eft-
ir áliti stjórnarinn-
ar en einnig finnst
okkur að verðið sé
of lágt,“ segir Jo-
han Lagerström,
talsmaður Handels-
banken, í viðtali við
Dagens Industri.
Þar með er ljóst að Jim
Sutcliffe, forstjóra Old Mutual,
verður ekki að ósk sinni en hann
kvaðst þess fullviss um að níutíu
prósent eigenda Skandia myndu
samþykkja tilboðið. Forsendur
yfirtökutilboðsins virðast því vera
brostnar, enda setti Old Mutual
það sem skilyrði að níu prósent
eigenda gengi að því, en fastlega
er búist við því að þau viðmið verði
lækkuð.
Ýmislegt bendir til þess að
meirihluti hluthafa Skandia – allt
að sextíu af hundraði – fylgi Old
Mutual að málum eins og Straum-
ur-Burðarás fjárfestingarbanki
og fjárfestahópar tengdir honum.
- eþa
JIM SUTCLIFFE,
FORSTJÓRI
OLD MUTUAL
Verður ekki að
ósk sinni að níu-
tíu prósent eig-
enda Skandia
gangi að yfir-
tökutilboði frá
Old Mutual.
48-49 (28-29) Viðskipti 5.10.2005 17.03 Page 2