Fréttablaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 52
30 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
����
������������
���������
�����������
������������������������������
�����������������
���� �����������������������������
www.steinsmidjan.is
BETTE DAVIS (1908-1989)
lést þennan dag.
„Allir hafa hjarta, nema sumir.“
Bette Davis var heimsfræg bandarísk leikkona. Hún var
tilnefnd til Óskarsverðlauna ellefu
sinnum og hlaut þau tvisvar.
MERKISATUBÐIR
1659 Hollenskt kaupskip sekkur
við Flatey á Breiðafirði.
1847 Bókin Jane Eyre eftir Char-
lotte Bronté er gefin út.
1895 Samkomuhús Hjálpræð-
ishersins er vígt. Það var
gamli spítalinn við Aðal-
stræti í Reykjavík.
1961 Háskólabíó er vígt á hátíð-
arsamkomu vegna hálfrar
aldar afmælis Háskóla
Íslands.
1981 Egypski forsetinn Anwar
Sadat er ráðinn af dögum.
1993 Flogið er í fyrsta sinn í
gegnum gatið á Dyrhólaey,
Flugstjóri var Arngrímur
Jóhannsson en Árni John-
sen var með í för.
2000 Slobodan Milosevic foreti
Júgóslavíu segir af sér.
„Ég taldi að það þyrfti að
gera breytingar á sam-
bandinu,“ segir Borgar
Þór Einarsson, sem var
kjörinn formaður Sam-
bands ungra sjálfstæð-
ismanna síðustu helgi.
Borgar er gamalreyndur
innan SUS. „Það eru tólf
ár síðan ég fór á mitt
fyrsta SUS-þing,“ segir
Borgar, sem var formað-
ur í Félagi ungra sjálf-
stæðismanna á Akranesi
fyrir ellefu árum og
hefur verið viðloðandi
SUS síðan.
Hann vill leggja
áherslu á að SUS vinni
fyrir félögin um land-
ið en líti ekki á þau sem
stoðdeildir. Þessu vill
hann ná fram með því að
fela einstökum félögum
meiri ábyrgð og stærri
verkefni. „Ég vil bygg-
ja félögin upp þannig að
við séum með nærveru
úti um allt land,“ segir
Borgar, sem er bjartsýnn
á að koma öllu í verk á
þeim tveimur árum sem
hann gegnir formennsku.
„Ég vil koma samband-
inu strax í það stand að
það verði ómissandi fyrir
flokkinn í næstu kosning-
um,“ segir Borgar, sem
vinnur sem lögfræðingur
hjá Landsbankanum.
Á þinginu sem haldið
var í Stykkishólmi um
helgina var Borgar einn
í formlegu framboði en
allir aðrir félagar voru
kjörgengir. Það vakti
nokkra athygli að hálf-
systir Borgars fékk 18
prósent atkvæða. „Þetta
var svartur húmor hjá
mínum andstæðingum
innan hreyfingarinnar,“
útskýrir Borgar, sem
fannst ekki sérstaklega
vel fram komið við yngri
systur sína sem var að
mæta á sitt fyrsta SUS-
þing og vissi ekki hvaðan
á sig stóð veðrið.
Pólitíkin er áhugamál
Borgars númer eitt, tvö
og þrjú. Auk þess hefur
hann mjög gaman af að
veiða og stundar laxveiði
eins og hægt er. Borgar á
stóra fjölskyldu, konu og
þrjú börn. „Ég reyni eins
og ég get að vera með
þeim þó það gefist lítill
tími,“ segir Borgar, sem
var mikið að heiman í
sumar að undirbúa fram-
boð sitt innan SUS. Hann
gaf sér þó tíma til að fara
með fjölskylduna í sína
fyrstu utanlandsferð til
Króatíu. „Það var mikið
ævintýri fyrir krakkana
en þau tvö yngri höfðu
aldrei komið í flugvél,“
segir Borgar, sem ske-
mmti sér mjög vel.
Borgar viðurkennir að
það sé eitthvað við stjórn-
mál sem togi í hann, sér-
staklega þörfin fyrir
að hafa áhrif á hvernig
hlutirnir séu í kring-
um hann. Hann hefur
þó ekki gert upp við sig
hvort hann muni vinna
við pólitík í framtíðinni.
„Þó það sé margt spenn-
andi við stjórnmál er líka
margt fráhrindandi,“
segir Borgar, sem finnst
stjórnmálamenn afsala
sér stórum hluta af sínu
einkalífi sem enginn geti
gert nema vera með hlut-
ina á hreinu gagnvart
sínum nánustu.
BORGAR ÞÓR EINARSSON KJÖRINN FORMAÐUR SUS:
Margt fráhrindandi
við stjórnmál
ANDLÁT
Halldór Jónsson frá Mann-
skaðahóli andaðist á sjúkrahúsi
Sauðárkróks laugardaginn 1.
október.
Gunnbjörn Jónsson, Hraun-
vangi 7, Hafnarfirði, andaðist á
sjúkradeild Hrafnistu Hafnarfirði
sunnudaginn 2. október.
Erlendur Lárusson, fyrrverandi
forstöðumaður Vátrygginga-
eftirlitsins, Krosshömrum 11,
Reykjavík, andaðist á heimili sínu
mánudaginn 3. október.
Ester Jósavinsdóttir, fyrrum
bóndi og húsfreyja á Másstöðum
í Skíðadal, Ægisgötu 25, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri þriðjudaginn 4. október.
Jóhanna Margrét Þorsteins-
dóttir ljósmóðir, áður til heimilis
á Baldursgötu 12, Reykjavík,
lést á heimili sínu, Dalbraut 27,
þriðjudaginn 4. október.
JARÐARFARIR
13.00 Minningarathöfn um Erling
Vigfússon, óperusöngvara,
verður haldin í Grafarvogs-
kirkju.
14.00 Sigurður Björn Ingólfsson
frá Suðurvöllum, Akranesi,
verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju.
Ástkær eiginkona mín,
Hallfríður Guðrún Sigurðardóttir
fyrrum húsfreyja að Uppsölum Svarfaðardal,
sem lést þann 30. september verður jarðsungin frá
Dalvíkurkirkju laugardaginn 8. október kl. 13.30.
Jarðsett verður í Vallakirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorsteinn Kristjánsson
Sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir,
fósturfaðir og afi,
Kristján Mikkaelsson
Flekkudal, Kjós,
verður jarðsunginn frá Reynivallakirkju í Kjós
laugardaginn 8. október og hefst athöfnin kl. 14.00.
Guðný G. Ívarsdóttir
Elías Kristjánsson Sigríður Lárusdóttir
Gunnar Kristjánsson Sigríður Birna Ólafsdóttir
Ásrún Kristjánsdóttir Jónas Dalberg Karlsson
Þorsteinn Kristjánsson
Jóhannes Björnsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
Guðmundur Bjarnason
vélstjóri, Háaleitisbraut 79, Reykjavík,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
miðvikudaginn 28. september. Útför hans fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 7. október kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Blindrafélagið.
María Jónsdóttir
Jón E.B. Guðmundsson
Stefán Ó. Guðmundsson Svanhvít Jónasdóttir
Larissa Jónsdóttir
María Stefánsdóttir Hákon Stefánsson
Elísabet Stefánsdóttir
Fanney, Anna Elísabet og Stefán Orri langafabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Gunnbjörn Jónsson
Hraunvangi 7, Hafnarfirði,
andaðist á sjúkradeild Hrafnistu Hafnarfirði
sunnudaginn 2. október. Jarðarförin auglýst síðar.
Kristín Gróa Gunnbjörnsdóttir Ingimar Kristjánsson
Sigfús Brynjar Gunnbjörnsson Anna Björk Brandsdóttir
Jón Valdimar Gunnbjörnsson Ragna Jóna Helgadóttir
Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir Rósinkar Snævar Ólafsson
Kristbjörg Gunnbjörnsdóttir Heimir Lárus Hjartarson
Guðjón Heiðar Gunnbjörnsson Elínborg Sigvaldadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Á þessum degi árið 1979
varð Jóhannes Páll páfi II
fyrstur páfa til að stíga fæti
inn í Hvíta húsið í Washing-
ton. Fundur hins 39. forseta
og 264. rómverska páfa vakti
nokkra athygli en í 200 ára
sögu Bandaríkjanna höfðu
fáir stjórnmálamenn viljað
láta bendla sig við kaþólsku
kirkjuna opinberlega.
Um 40 þúsund manns komu
saman til að berja páfann
augum þegar hann hélt messu
fyrir um þúsund presta við
dómkirkju St. Matthews áður
en hann hélt til Hvíta hússins
þar sem hann dvaldi síðasta
daginn af ferðalagi sínu um
sex bandarískar borgir.
Carter forseti ávarpaði
páfann á móðurmáli hans,
pólsku. Þá biðluðu þeir til
heimsins um kjarnorku-
afvopnun og aukna hjálp til
þróunarlanda. Athöfnin fór
friðsamlega fram en hálfum
tíma fyrir heimsókn páfa var
maður handtekinn sem hafði
í fórum sínum þrjár byssur
og hníf.
Páfinn hitti Carter forseta á
ný ári síðar og það ár bauð
hann Elísabetu Englands-
drottningu velkomna í Vatík-
anið. Árið 1998 hafði Jóhann-
es Páll páfi annar heimsótt
yfir hundrað lönd og farið
hringinn í kringum hnött-
inn 27 sinnum. Páfinn lést 2.
apríl árið 2005.
ÞETTA GERÐIST: 6. OKTÓBER 1979
Páfi heimsækir Hvíta húsið í fyrsta sinn
JÓHANNES PÁLL PÁFI ANNAR OG
JIMMY CARTER
AFMÆLI
Kolfinna Bald-
vinsdóttir sagn-
fræðingur er 35 ára.
FORMAÐUR SUS Borgar Þór á stóra fjölskyldu og fór með hana í sína fyrstu utanlandsferð í sumar til Króatíu.
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði,
stórafmæli, andlát og jarðar-
farir í smáletursdálkinn hér
að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma
550 5000.