Fréttablaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 62
40 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
Ekki missa af...
������������������������������������������� ���� �� � ��
�������������
�� ������ ���� �
������������������ ����������������
�� ��������
������
�������������
������� ������� �������������������
������ ���������� �
�����������������
������ ���������� ���
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
Mikið úrval mynda verður
í kvikmyndahúsunum um
helgina. Alþjóðlega kvik-
myndahátíðin heldur áfram
að rúlla en um helgina
verða þrjár ólíkar kvik-
myndir frumsýndar. Meðal
þeirra er ein sem talin er
líkleg til afreka á óskars-
verðlaunahátíðinni í mars.
Hrollvekjan The Descent segir
frá sex vinkonum sem halda í ár-
lega ferð upp í Appalachia-fjöll.
Árinu áður lenti þessi hópur í
hræðilegu slysi en þær ákveða
að láta það ekki á sig fá. Hópur-
inn ákveður að skoða djúpa hella
en þá ríður enn eitt slysið yfir.
Skriða lokar fyrir útgönguleiðina
og neyðist hópurinn því til að kan-
na hellana í von um að þar leynist
annar útgangur. Gamanið kárn-
ar svo enn frekar því risavaxin
skrýmsli hafa tekið sér bólfestu
í hellunum. Það er Neil Marshall
sem leikstýrir þessari hrollvekju
en myndin er stranglega bönnuð
innan sextán.
Það eru þau Russell Crowe,
Renee Zellweger og Paul Giamatti
sem fara með aðalhlutverkin í nýj-
ustu kvikmynd Ron Howard, Cind-
erella Man. Howard er um þessar
mundir upptekinn við tökur á Da
Vinci Code með Tom Hanks. Á bak
við þessa öskubuskusögu er box-
arinn Jim Braddock, sem neydd-
ist til að láta af hnefaleikum eftir
nokkur töp í röð. Þegar kreppan
mikla dundi yfir Bandaríkin á
þriðja áratug síðustu aldar fékkst
Braddock við illa launuð störf til
að geta framfleytt konu sinni og
þremur börnum. Hann gaf samt
drauminn um að stíga aftur í
hringinn aldrei upp á bátinn. Það
þarf varla að taka það fram að
Universal-kvikmyndaverið ásamt
Miramax bindur miklar vonir við
þessa kvikmynd enda leggur ósk-
arslyktina af henni langa leið.
Það er líka eilítil óskarslykt af
kvikmyndinni Stealth en þetta var
næsta verkefni Jamie Foxx eftir
að hann fékk styttuna góðu fyrir
Ray. Stealth segir frá orrustuflug-
vél sem er stjórnað með gervi-
greind. Þegar vélin verður fyrir
eldingu verður hún stjórnlaus og
það er í hendi þriggja orrustu-
flugmanna að koma í veg fyrir
að stórslys verði sem gæti leitt til
næstu heimsstyrjaldar. Auk Foxx
fara þau Josh Lucas og Jessica
Biel með lykilhlutverk. Leikstjóri
myndarinnar er Rob Cohen.
Fjölbreytnin í fyrirrúmi
JIM BRADDOCK Russell Crowe á mjög líklega eftir að gera tilkall til Óskars frænda ef
eitthvað er að marka dóma erlendra miðla um frammistöðu hans í myndinni Cinderella
Man.
But ritual remains that we must
do a series of platonic actions
before we can have intercourse.
John Nash útskýrir hug sinn fyrir Aliciu á mjög einfald-
an og öruggan hátt í kvikmyndinni A Beautiful Mind.
Það verður seint sagt um Russell Crowe að hann
sé ljúfur á manninn. Hann var á þessu ári handtek-
inn fyrir að lemja hótelstarfsmann með síma vegna
þess að hann náði ekki sambandi við Ástralíu.
Hann baðst afsökunar á atvikinu í þætti Davids
Letterman en sagðist svo seinna geta vel hugsað
sér að vinna utan Bandaríkjanna. Leikarinn hefur
verið sakaður um að vera hrokafullur og leiðinleg-
ur í umgengni. Margir vilja meina að velgengnin
hafi stigið honum til höfuðs. Aðrir segja að Crowe
sé orðin jafnmikil klisja og Oprah Winfrey. Það
verður þó ekki horft framhjá því að bandaríska
kvikmyndaakademían elskar hann. Þrjár tilnefning-
ar og einn Óskar frændi eru sönnun þess.
Crowe er fæddur á Nýja-Sjálandi. Ferill hans
hófst þegar Crowe var ungur að árum og hann
er í raun barnastjarna. Hann fékk tækifærið í
kvikmyndinni Romper Stomper sem fjallaði um
nýnasista í Melbourne. Eftir það bauðst honum að
leika í kúrekamynd Sam Raimi, The Quick and
the Dead. Þar með hafði Crowe tekist að brjóta
sér leið inn á Ameríku-
markað.
Eftir velgengni LA Con-
fidential lét leikarinn
tilleiðast og lék í nokkrum
„öruggum“ kvikmynd-
um sem náðu þó engri
verulegri hylli. Hann hefur
hingað til aðallega leikið í
óskarsvænum kvikmynd-
um, svo sem The Insider,
Gladiator, A Beautiful
Mind og svona mætti
lengi telja. Ef miðað er við
gengi Cindarella Man,
síðustu myndar hans, ætti
það að koma fáum á óvart
ef nafn leikarans yrði enn
og aftur meðal þeirra sem
tilnefndir eru til óskars-
verðlauna.
Umdeildur skaphundur
Bollywood-stjarnan Gulshan
Grover hefur staðfest að hann
verði næsti óþokkinn í nýju Bond-
myndinni, Casino Royale. Þetta
þýðir að nú er búið að skipa í öll
helstu hlutverk nema aðalhlut-
verkið. Kelly Brook verður Bond-
stúlkan, Judi Dench leikur M og
John Cleese bregður sér í hlutverk
Q. Það vantar enn sem fyrr sjálfan
James Bond.
Grover lýsti þessu yfir í viðtali við
tímaritið Times of India. Hann,
eins og flestir kvikmyndasér-
fræðingar, vissi ekki hver myndi
taka hlutverk Bonds að sér en nú
er spennan nánast orðin óbæri-
leg. „Ég ræddi við framleiðendur
myndarinnar og þeir ætla að til-
kynna um valið á mér þegar Bond
hefur verið ráðinn,“ sagði Grover,
sem er einn vinsælasti leikari Ind-
lands.
Þeir sem nefndir hafa verið
til að feta í fótspor Pierce Brosn-
an eru Nip/Tuck-leikarinn Julian
McMahon og ER-stjarnan Goran
Visnjic. Þrátt fyrir að allt útlit sé
fyrir að Brosnan muni ekki snúa
aftur er Hollywood orðin logandi
af orðrómi þess efnis að hann
muni klæðast smókinginum á ný.
Grover vondi kallinn?
The Descent
Internet Movie Database 7,6/10
Aðrar síður höfðu
ekki gefið mynd-
inni dóm
Cinderella Man
Internet Movie Database 8,0/10
Metacritic 7,1/10
Rottentomatoes Fersk / 84%
Stealth
Internet Movie Database 4,5/10
Metacritic 2,4/10
Rottentomatoes Rotin/13%
Stöðugt bætist við gestalistann á
Októberbíófest kvikmyndahátíð-
inni sem hefst í lok þessa mánaðars
því nú hefur franski leikstjórinn
Luc Jacquiet hefur boðað komu
sína. Jacquiet er leikstjóri myndar-
innar Mörgæsagangan, eða
Marche La de l‘empereur eins og
hún heitir á frummálinu, en hún
hefur óvænt slegið í gegn um allan
heim.
Hinn 4. nóvember verður hald-
in sérstök sýning í Háskólabíó þar
sem Jacquiet mun kynna myndina
og sitja fyrir svörum að henni lok-
inni.
Mörgæsagangan er heimildar-
mynd sem fjallar um árlegar reisur
keisaramörgæsa um Suðurskauts-
landið sem hefjast í mars í upphafi
fengitíma. Ferðalagið er langt og
strangt og mörgæsirnar þurfa að
leggja hundruð kílómetra að baki
áður en þær komast á leiðarenda
og geta fundið sér maka.
Jacquiet og kvikmyndatökulið
hans lögðu á sig ómælt erfiði til
að gera myndina, en aldrei áður
hafa kvikmyndagerðarmenn
fylgst svo náið með keisaramör-
gæsum. Hópurinn dvaldi á Suður-
skautslandinu við tökur í rúm-
lega ár, í algjörri einangrun frá
umheiminum. Jacquiet var svo
búinn á líkama á sál þegar heim
var komið að hann hófst ekki
handa við að klippa myndina fyrr
en ári eftir að hann sneri heim.
Það verður því án efa stórfróð-
legt að heyra hvað hann hefur
um gerð myndarinnar að segja á
sýningunni.
Hann sér eflaust ekki eftir því
í dag; Mörgæsagangan hefur farið
sigurför um heiminn og í Banda-
ríkjunum einum hefur hún halað
inn um 600 milljónir króna. Aðeins
ein heimildarmynd hefur feng-
ið betri aðsókn í Bandaríkjunum
hingað til en það er Fahrenheit
9/11 eftir Michael Moore sem kom
út í fyrra.
Mörgæsaleikstjóri
ræðir við áhorfendur
MÖRGÆSAGANGAN Jacquiet og tökulið
hans dvaldi í rúmt ár á Suðurskauts-
landinu og fylgdist með daglegu lífi
keisaramörgæsa.
JULIAN MCMAHON Þykir enn koma til greina sem næsti James Bond en óvissan í kring-
um ráðningu næsta Bonds er að taka aðdáendur kappans á taugum.
Charlie and the Chocolate Factory eftir
Tim Burton. Með þessari mynd sannar
hann enn og aftur að kvikmyndir hans
eru eitthvað allt annað en við eigum að
venjast frá Hollywood. Honum tekst að
búa til umhverfi sem líður seint úr minni
áhorfendans og fangar anda bókarinnar
með einstökum hætti. Tær snilld þar sem
Johnny Depp fer enn og aftur á kostum
undir stjórn Burton.
RUSSELL CROWE
Hefur oftar en ekki látið
skapið hlaupa með sig í
gönur og hér sést hann
leiddur burt í járnum
eftir að hafa að lamið
mann með síma.
bio@frettabladid.is