Fréttablaðið - 06.10.2005, Side 64
42 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
GA
RÐ
YR
KJUF
ÉLAG ÍSLANDS
1 8 8 5
Landsþing föstudaginn 7. október kl. 13:30-18:30.
Dagskrá:
Mæting við garðskálann í Grasagarði Reykjavíkur. Garðurinn skoðaður undir leið-
sögn Auðar Jónsdóttur og Ingunnar J. Óskarsdóttur. Síðan farið í rútu og skoðaðir
einkagarðar.
Kl. 16:00. Fundur í sal KFUM við Holtaveg.
Setning. Kristinn H. Þorsteinsson, formaður GÍ.
Starfsemi garðyrkjufélags á Skáni. Anna María Pálsdóttir.
Sagt verður frá starfinu í Skagafjarðardeild GÍ.
Tengsl milli höfuðstöðva og landshlutadeilda.
Jóhanna B. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri GÍ.
Þinginu lýkur með veitingum og óvæntri uppákomu í rökkrinu.
Allir félagar GÍ velkomnir. Ekkert þátttökugjald.
Skráningarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 6. október.
Ráðstefna laugardaginn 8. október kl. 10:30-17:00.
Dagskrá:
Setning. Jóhanna B. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri GÍ.
Ávarp. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra.
Afi minn garðyrkjumaðurinn. Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur.
Gróður til gagns og gleði á miðöldum. Ingólfur Guðnason garðyrkjumaður.
Saga matjurtaræktunar. Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur.
Gildi matjurtagarðsins. Auður Jónsdóttir garðyrkjumaður.
Hádegishlé.
Blómskrúðið í görðunum. Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður hjá LBHÍ.
Umhverfisskynjun. Áhrif umhverfis á vellíðan og heilsu. Anna María Pálsdóttir
garðyrkjusérfræðingur og Kristín Þorleifsdóttir landslagsarkitekt.
Þróun heimilisgarða í þéttbýlinu. Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt.
Aðlögun heimilisgarðsins að breyttum fjölskylduhögum.
Sigurður Þórðarson, varaformaður GÍ.
Plöntur á faraldsfæti. Dóra Jakobsdóttir grasafræðingur.
Nýjar trjátegundir í íslenskri garðrækt. Ólafur Njálsson garðyrkjusérfræðingur.
Horft til framtíðar. Kristinn H. Þorsteinsson, formaður GÍ.
Móttaka í gróðurskála Grasagarðs Reykjavíkur í boði landbúnaðarráðherra og GÍ.
Afhentar verða viðurkenningar í ljóða- og ljósmyndasamkeppni.
Þátttökugjald er 2.000 kr. fyrir félaga GÍ og 3.500 kr. fyrir utanfélagsmenn.
Tekið er á móti skráningu á skrifstofu Garðyrkjufélagsins í tölvupósti
gardurinn@gardurinn.is og í síma 552 7721.
Skráningarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 6. október.
„Gróður til gagns og gleði“
Landsþing og afmælisráðstefna Garðyrkjufélags
Íslands í KFUM húsinu við Holtaveg föstudaginn
7. október og laugardaginn 8. október 2005
Sjálfstæðismaðurinn Júlíus Víf-
ill Ingvarsson nefnir spaghetti
bolognese sem einn af sínum
uppáhaldsréttum. Rétturinn teng-
ist dvöl Júlíusar og eiginkonu
hans Svanhildar Blöndal á Ítalíu
fyrir nokkrum árum þegar Júlíus
stundaði þar söngnám við tónlist-
arháskólann í Bologna.
„Þetta er mjög einfaldur og
þægilegur réttur. Hann er holl-
ur og það getur hver sem er
búið hann til,“ segir Júlíus. „Það
er þjóðarsiður á Ítalíu að geta
búið til góðan mat og maður fer
hvergi á veitingastað öðruvísi en
að fá góðan mat. Það sama er ekki
hægt að segja um öll lönd. Eftir
að við komum heim eimdi enn af
þessum áhuga okkar á ítalskri
matargerðarlist og þegar konan
vill að ég komi heim og mæti á
réttum tíma í mat er það nátt-
úrlega spaghetti sem er málið,“
segir hann.
Að sögn Júlíusar fylgir því
ákveðin gleði og stemning að elda
ítalskan mat. Reynir hann að setja
skemmtilega tónlist á fóninn og
jafnvel á hann það til að raula
ítalska lagabúta þegar hann býr til
spaghetti bolognese, að minnsta
kosti þangað til unglingarnir á
heimilinu fara að kvarta. „Ítölsk
matargerðarlist er ekki einmana-
leg. Hún krefst samræðna og
þegar við fáum gesti er oft mjög
gaman áður en veislan byrjar
því þá eru menn að taka þátt í að
búa til þennan rétt.“ Júlíus segist
oftast ná sér vel á strik í eldhús-
inu. „Það er nú einu sinni þannig
að allir bestu tenórar heims hafa
verið góðir kokkar og það er lág-
mark að hafa seinni partinn í
lagi,“ segir hann og hlær.
Heillaður af ítalskri
matargerðarlist
Bjórhátíð verður í vínbúðum í
október en þá gefst viðskiptavin-
um kostur á að nálgast fróðlegan
bækling um bjór og bjórgerðir auk
þess sem valdar tegundir verða á
tilboðsverði. Októbermánuður
hefur löngum verið hátíðarmán-
uður bjórsins. Októberhátíð hefur
verið haldin í Þýskalandi í hundr-
uð ára og mörg lönd hafa tekið upp
þennan sið og haldið októberhátíð
að þýskri fyrirmynd. Því er tilval-
ið að setja bjórinn í öndvegi og
fræðast betur um þær fjölbreyttu
gerðir og úrval sem þessi einn
elsti drykkur mannkyns hefur að
bjóða.
Bjór er líklega jafngamall mann-
kynssögunni. Í andrúmsloftinu
eru gergró og getur því náttúru-
leg gerjun átt sér stað í sætum
vökva, sem kemst í snertingu við
andrúmsloftið. Bjór er framleidd-
ur í flest öllum löndum heims og
framleiðsluaðferðirnar eru fjöl-
margar. Grunnhráefnið sem notað
er í bjór er vatn, malt, humlar og
ger. Vatn getur verið mismunandi
og er þá talað um hart og mjúkt
vatn. Því meira sem steinefnainni-
haldið er, þeim mun harðara er
vatnið. Drykkjarvatn hér á landi
er mjúkt og hentar einkar vel til
framleiðslu á lagerbjór. Malt er
spírað korn, en þegar talað er um
malt, er oftast verið að tala um
maltað bygg, sem er algengasta
korntegundin.
Humall er
kl ifurjurt
og eru blóm
kvenplönt-
unnar notuð
til bragð-
bætis í bjór.
H u m l a r
i n n i h a l d a
náttúrulega rotvörn og auka því
geymsluþol bjórsins. Ger er ein-
frumungur af sveppaætt. Það
nærist á sykrinum og gefur af
sér vínanda og koltvísýring, auk
sérstaks bragðs og ilms. Önnur
hráefni geta verið krydd, ávextir,
grænmeti, sykur, hunang, kaffi
eða súkkulaði, svo eitthvað sé
nefnt.
Bjórhátíð í vínbúðum í október
Rauðvínin frá Bodega Norton
sem byrjað var að flytja
inn fyrir um ári síðan hafa
slegið í gegn á Íslandi og
eru nú orðin söluhæstu
vínin frá Argentínu í
Vínbúðum. Vínin hafa
fengið mjög góða dóma
og hefur Þorri Hringsson
valið Norton Cabernet
Sauvignon sem bestu
kaup í Gestgjafanum
og Norton Cabernet
Sauvignon Reserve
sem vín mánaðar-
ins.
Sigurganga Nort-
on heldur áfram því
í nýjasta tölublaði
Gestgjafans valdi
Þorri Norton Mal-
bec Reserve bestu
kaupin. „Bodegas
Norton er ein þeirra
víngerða í Argent-
ínu sem virðast geta framleitt
frábær vín, og yfirleitt
á ótrúlega góðu verði,“
segir Þorri í umsögn
sinni um Norton Malbec
Reserve og bætir við að
vínið sé „sérlega gott og
vandað á ótrúlega góðu
verði.“
Bodegas Norton í
Argentínu á sér langa
sögu sem eitt af hel-
stu víngerðarhús-
um Argentínu. Var
stofnað árið 1895
af Englendingnum
Edmund Norton en
hann hafði komið
til Argentínu til að
gera járnbraut sem
tengir Mendoza-
svæðið við Chile.
Verð í Vínbúðum
1.390 kr.
NORTON:
Bestu kaupin í Gestgjafanum
FR
E´
TT
A
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Í ELDHÚSINU Júlíus Vífill Ingvarsson og eiginkona hans Svanhildur Blöndal kunna að elda gott spaghetti bolognese.
Spaghettí bolognese
að hætti Júlíusar Vífils:
Soðið spaghetti. Ólífuolía og salt sett
í pottinn.
Hakk steikt á pönnu ásamt sveppum.
Kryddsósan er elduð sérstaklega þar
sem mörg hráefni koma við sögu:
Laukur, hvítlaukur, gulrætur, fjórir
stilkar af selleríi, ferskt basil, oregano,
tómatpúrre, lítil dós af stærri tómötum,
kjötkraftur, salt og pipar.
Nauðsynlegt er að smakka sósuna vel
og vandlega áður en henni er síðan
blandað saman við hakkið og sveppina.
Mikilvægt er að sósan sé ekki of mikil.
Ef sósan er súr er oft gott að bæta
hlynsýrópi á pönnuna.
Eftir að búið er að blanda öllu saman
er saxaðri steinselju stráð yfir réttinn
ásamt parmesan osti.
Nauðsynlegt er að hafa brauð með
réttinum ásamt sódavatni og jafnvel
rauðvíni ef menn vilja vera flottir á því.
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Mér finnst herfilegt að vera rjúpnalaus á jólum. Ég prófaði í fyrra að
vera með hreindýr en það var ekki það sama, þannig að ég get illa
verið án jólarjúpunnar.
Fyrsta minningin um mat?
Það er sennilega þegar afi reyndi að láta mig
borða skyrhræring. Það tókst ekki og ég hef
ekki lagt í það fyrirbæri síðan.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Það er þessi sami skyrhræringur, en ég tek
fram að ég hef ekki gefið honum annað tæki-
færi síðan á æskuárunum.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Allar máltíðir sem eru eldaðar úr góðu hráefni
og af mikilli alúð og umhyggju er góðar
máltíðir. Ég fæ slíkan mat sem betur fer
nokkuð oft.
Leyndarmál úr eldhússkápunum?
Þegar maður er á þönum er kúskús fljótlegra en bæði kartöflur og
hrísgrjón.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Rétti þar sem allur maturinn er saman í skál og maður getur legið
samankrullaður upp í sófa með teppi yfir sér og borðað beint úr
skálinni. Kjöt og grænmeti með miklum krafti sem hefur verið
eldað saman í stórum potti í langan tíma.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum?
Mjólk og skyr. Ekkert voðalega sexí.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða rétt tækir þú með þér?
Mikilvægast væri að vera með nóg af hrísgrjónum, en að sjálfsögðu
myndi ég taka með rjúpu ef ég yrði föst yfir jólin.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað?
Mér finnst fæst skrítið, en ætli það sé ekki lundahjörtu. Þau
eru mjög góður matur, steikt með hvítlauk og fleiru. Ég
get vel hugsað mér að borða þau aftur.
Jólarjúpan verður að vera
MATGÆÐINGURINN SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR HJÁ VINSTRI GRÆNUM
> sparaðu ekki hvítlaukinn...
...hann er ekki aðeins bragðgóður
heldur líka fyrirtaks kveffæla.
maturogvin@frettabladid.is