Fréttablaðið - 06.10.2005, Síða 66
Ástarfleyið mun leggja úr höfn á næstu dögum
og bíða eflaust margir eftir því að fá að fylgjast
með fjórtán ástleitnum ungmennum þreifa fyrir
sér við strendur Marmaris. Alls sóttu fimmhund-
ruð manns um að taka þátt í Ástarfleyinu og því
greinilega margir sem gætu hugsað sér að freista
þess að finna ástina fyrir augum sjónvarpsáhorf-
enda. Stjórnendur þáttarins hafa nú tekið viðtöl
við fjörutíu manns og fékk Fréttablaðið leyfi til
að birta myndir af þessum viðtalsefnum. Fjórtán
aðilar, sjö stelpur og sjö strákar, munu verða vald-
ir til að eyða tólf dögum um borð í Ástarfleyinu.
Greinilegt er á umsækjendum hversu fjölmenn-
ingarlegt samfélag Ísland er orðið. Í hópi umsækj-
enda mátti finna fólk frá átta mismunandi löndum
en þeir sem eru af erlendu bergi brotnir tala allir
íslensku sem aðaltungumál. Hópurinn er afar fjöl-
breyttur og í honum má finna fólk með háskóla-
menntun, verkafólk, nema, bankastarfsmenn og
þannig mætti lengi telja.
Ástarkapteinninn Valdimar Flygenring mun
sjá um að allt fari vel fram og stjórnar leikjum
og stefnumótum. Hingað til hafa Íslendingar látið
nægja að drekka sig fulla á börum og slefa í eyrað
á álitlegum kosti. Forvitnilegt verður því að sjá
hvort íslensku víkingarnir breyti um aðferð þeg-
ar þeir sigla fyrir ströndum Marmaris eða hvort
úr verður alls herjar sukk. Munu allar stelpurn-
ar falla fyrir sama stráknum? Eru kannski ein-
hverjir í hópnum of skyldir til að mega verða
kærustupar? Verða særindi, slagsmál og nöldur
daglegt líf eða mun eintóm rómantík einkenna
Ástarfleyið? Það verður forvitnilegt að sjá þegar
skipið leggur úr höfn.
Finna þau ástina við
strendur Tyrklands?
64 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
fiú getur fimmfaldað tíðni auglýsinganna þinna með
samlesnum auglýsingum sem birtast á Bylgjunni,
Talstöðinni, Létt 96,7, Fréttablaðinu og á visir.is.
Þegar þú hringir og pantar auglýsingu líða innan við
tvær klukkustundir þar til hún er komin í loftið.
Daginn eftir birtist hún svo í smáauglýsingum í
Fréttablaðinu og á visir.is.
Margföld áhrif
með samlesnum
auglýsingum!
Einfalt, fljótlegt og
gríðarlega áhrifaríkt!
Hringdu í síma 550 5000 og
margfaldaðu tíðni auglýsinganna þinna
Eitt símtal
550 5000