Fréttablaðið - 09.10.2005, Síða 10
9. september 2005 SUNNUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum starfar á grundvelli laga nr.
47/2004. Mörk þjóðgarðsins skv. 1.gr eru sýnd á
meðfylgjandi korti.
Samkvæmt 11.grein reglugerðar nr. 848/2005 um
þjóðgarðinn á Þingvöllum er öll skotveiði bönnuð inna
marka þjóðgarðsins.
Þ
i
n
g v e l l
i
r
Þ
j
ó
ð
g a r
ð
u
r
Nánari upplýsingar og hnitsett kort má finna á heimasíðu
þjóðgarðsins www.thingvellir.is
Rjúpnaveiðimenn athugið
Sjávarútvegur í hættu
Eigið fé sjávarútvegsfyrir-
tækja mun brenna upp og
gjaldþrot þeirra um allt
land blasir við ef ekkert
verður að gert. Þetta er
meðal þess sem kemur
fram í ályktun frá aðal-
fundi Samtaka fiskvinnslu-
stöðva sem fram fór í
Hveradölum á föstudag.
Hjálmar Blöndal fylgdist
með fundinum.
Staða krónunnar var aðalum-
ræðuefni fundarins og þar með
aðaláhyggjuefni fundarmanna.
Ekki þarf að ítreka og fara yfir
stöðu krónunnar í sögulegu sam-
hengi sem hefur að undanförnu
sett hvert metið á fætur öðru.
Gengisvísitalan hefur náð sögu-
legu lágmarki sem veldur út-
flutningsgreinunum áhyggjum
en að sama skapi er hún hagstæð
fyrir innflutningsgreinarnar.
Í ályktun sem samþykkt var á
fundinum lýsa samtökin yfir
áhyggjum af stöðunni og að sama
skapi kom fram í erindum, sem
flutt voru á fundinum, að staða
krónunnar er nú orðin svo stórt
áhyggjuefni fyrir sjávarútveg-
inn í landinu, að verði ekkert að
gert, blasir ekkert annað við en
gjaldþrot víða um land. Í álykt-
uninni kemur meðal annars fram
að gengi krónunnar hefur hækk-
að um fimmtán prósent gagnvart
erlendum gjaldmiðlum og að
óbreyttu mun það hafa í för með
sér um átján milljarða króna
samdrátt í útflutningsverðmæt-
um sjávarafurða á einu ári. Eng-
um dylst heldur sú staðreynd að
sjávarútvegurinn hefur átt nokk-
ur góð ár þegar gengið var út-
flutningsgreinunum hagstætt.
Það breytir ekki vandanum nú og
hann þarf að leysa að mati sjáv-
arútvegsins. En hvað er til ráða?
Ráðherra vill auka gjaldeyrisforða
Einar K. Guðfinnsson, nýskipað-
ur sjávarútvegsráðherra, kom á
sinn fyrsta fund hjá heildarsam-
tökum í sjávarútvegi eftir að
hann tók við starfi sjávarútvegs-
ráðherra. Hann sagðist deila
áhyggjum með hagsmunasam-
tökum sjávarútvegsins og að eng-
inn gæti leyft sér að líta fram hjá
því að varnirnar væru að bresta í
sjávarútveginum vegna gengis-
ins.
„Verður sjávarútvegurinn og
annar útflutningsatvinnuvegur
að búa við þetta ofurgengi sem er
greinilega algerlega ofviða flest-
um fyrirtækjum á þessu sviði á
landinu? Svar mitt við þeirri
spurningu er klárlega nei,“ sagði
Einar. Hann sagði að viðfangs-
efnið sem fyrir lægi væri þrí-
þætt. Í fyrsta lagi að tryggja
jafnvægi í þjóðarbúskapnum,
treysta stöðu atvinnulífsins og
tryggja lága verðbólgu. Einar
sagðist óttast að með því að
lækka eingöngu stýrivexti Seðla-
bankans við núverandi aðstæður
gæti það kallað á víxlverkun
kaupgjalds og verðlags. Hann
lagði til tvennt til að stuðla að
lækkun raungengisins. Annars
vegar að draga úr umfangi lána-
starfseminnar og lækka þannig
heildarútlán og hins vegar að
huga að því að styrkja enn frekar
gjaldeyrisvarasjóð landsmanna.
Óskar Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Eskju hf., flutti erindi á fundin-
um um rekstrarumhverfi sjávar-
útvegsfyrirtækja á tímum hækk-
andi raungengis. Hann sýndi
nokkur dæmi þar sem bersýni-
lega mátti sjá hver áhrif gengis-
mála eru á stöðu sjávarútvegsins.
Í tilbúnu dæmi þar sem sjávarút-
vegsfyrirtæki hefur um milljarð
íslenskra króna í tekjur og geng-
isvísitalan stendur í 120 stigum,
gæti EBITDA-hagnaður viðkom-
andi fyrirtækis verið um 150
milljónir. Þegar vísitalan væri
hins vegar komin niður í 102 stig,
væri EBITDA-framlegðin orðin
að engu og tap væri fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði. Engu
skipti þótt viðkomandi fyrirtæki
næði gengisáhrifunum til baka
með gengishagnaði af erlendum
lánum, þar sem sjóðstreymið
væri orðið neikvætt og þannig
yrði fyrirtækið að fjármagna
skattskuldbindingar með lánum.
Óskar velti ýmsum möguleik-
um upp til lausnar á þeim vanda
sem við blasti og meðal annars
hvort mögulegt væri að afnema
verðtryggingu af lánum. Sama
mátti heyra í máli annarra ræðu-
manna á fundinum. Krónan væri
aðaláhyggjuefnið og það þyrfti að
leysa spennuna á gjaldeyrismark-
aðnum. Tryggvi Þór Herbertsson,
forstöðumaður Hagfræðistofnun-
ar Háskóla Íslands, benti meðal
annnars á þann möguleika hvort
ekki væri hægt að selja bönkun-
um Íbúðalánasjóð.
Erfiðir tímar framundan
Í áðurnefndri ályktun kemur
meðal annars fram að sjávar-
útvegurinn og annar gjaldeyris-
skapandi atvinnurekstur greiðir
nú niður verð á innfluttum vörum
og þjónustu. Ljóst sé að kjara-
samningar á almennum vinnu-
markaði eru í uppnámi vegna
þess að verðbólgumarkmið
samninganna haldist ekki og
verðbólgan stefni í fjögur pró-
sent á þessu ári. „Útilokað er að
fiskvinnslan taki á sig aukinn
launakostnað um næstu áramót
sem orsakast af þensluástandi
undanfarinna mánaða, á sama
tíma og þrengt er að rekstri fyr-
irtækjanna,“ segir í ályktuninni.
Arnar Sigurmundsson, for-
maður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, sagði í ræðu sinni að fyrr-
verandi sjávarútvegsráðherra
hefði í upphafi ársins skipað
nefnd sérfræðinga til að að fjalla
um áhrif hágengis á rekstrarum-
hverfi sjávarútvegsfyrirtækja.
„Eftir mikil fundahöld, þar á
meðal með fulltrúum útgerðar og
fiskvinnslu, fæddist nefndarálit
síðasta vor. Þar var ekkert að
finna sem létt getur róðurinn á
tímum hágengis,“ sagði Arnar.
Enda þótt gengismál hefðu
verið aðalumræðuefnið á þessum
fundi Samtaka fiskvinnslustöðva
var þó einnig rætt um annað.
Þannig kynntu hátæknifyrirtæk-
in Skaginn hf. og Marel hf. það
nýjasta í tækniframförum við
fiskvinnslu og fjallað var um al-
þjóðavæðinguna í sjávarútvegi.
Bjart var því á einhverjum svið-
um enda þótt krónan virðist
stefna sjávarútveginum í hættu
ef ekkert verður að gert. ■
EINAR K. GUÐFINNSSON SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Sat sinn fyrsta fund sem
sjávarútvegsráðherra hjá heildarsamtökum í sjávarútvegi. Góður rómur var gerður að
ræðu sem ráðherrann flutti á fundinum. Hann deildi áhyggjum fundarmanna af stöðu
krónunnar og lagði fram tillögur til úrbóta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M